Morgunblaðið - 05.02.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
27
ströndum
Israel
Tel Aviv, 4. febrúar. AP.
SOVÉSKI flotinn hefur komið
fyrir njósnaskipi, dulbúnu sem
fiskibát út af ströndum landsins,
auk þess sem þar eru einnig tvö
sovésk orustuskip, að sögn tals-
manns israeiska hersins. Skipin
halda sig um 50 til 130 kílómetra
út af strönd landsins og eru þau
talin hluti þess aukna viðbúnaðar
sem bæði stórveidin hafa i
frammi á Miðjarðarhafi vegna
spennunnar milli Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna.
Nærvera njósnaskipsins er ekki
nýtilkomin. Skip hefur verið haft
þama undanfarin ár og er ljóst þrátt
fyrir dulbúninginn að þar er um
njósnaskip að ræða, sökum hárra
loftnetsstanga sem það hefur, að
sögn talsmannsins. Skipið hlerar
skeyti milli aðalstöðvar hersins og
ýmissa útstöðva og sendir upplýs-
ingamar áfram til Moskvu.
AP/Símamynd
Páll páfi II á fundi með Dalai Lama, hinum útlæga leiðtoga Tíbets. Páfi og Dalai Lama hittust í
sendiráði Vatíkansins í Nýju-Delhí.
kristínna
Shillong, Indlandi, 4. febrúar. AP.
UM 200 þúsund manns komu
saman til að fagna Páii páfa II
á golfvelli i hæðunum um 550
km norðaustur af Kalkútta. Er
þetta mesti mannfjöldi sem safn-
ast hefur saman til að fagna páfa
síðan hann hóf 10 daga pila-
grimsför sina fyrir „friði og
einingu“ á Indlandi.
í ræðu sem páfi flutti við þetta
tækifæri lofaði hann þá trúboða
sem boðuðu kristna trú við rætur
Himalaja en þar er erlent kristinboð
nú bannað. „Þessir huguðu prestar
létu erfíðleika og hindranir ekki
aftra sér, og hikuðu jafnvel ekki
við að fóma lífínu fyrir köllun sína.
Nú stendur kristin trú fostum fótum
víðsvegar um landið og hefur náð
að samræmast hugsunarhætti
landsmanna,“ sagði páfi.
Útflutningur á ferskum
fiski frá Noregi:
Útflutnings-
verðmætið
um 15 millj-
arðar króna
Osló, 4. febrúar. Frá fréttaritara Morgun-
bladsins, Jan Erík Laure.
ÚTFLUTNINGUR Norðmanna á
ferskum og heilfrystum fiski
nam 112.503 lestum á síðasta ári.
Verðmæti þessa útflutnings er
um 2,8 milljarðar norskra króna,
sem jafngildir um 15 milljörðum
íslenskra króna. Fiskurinn var
fluttur út til 36 landa.
Ef útflutningur á heilffystri
loðnu, loðnuhrognum, makríl og
laxi er einnig tekinn með f reikning-
inn, nemur útflutningsverðmætið
samtals 3,2 milljörðum norskra
króna, samanborið við 2,6 milljarða
árið 1984. Mestur var útflutningur-
inn til Danmerkur eða 15.800 tonn.
Baby Doc segist
hafa tögl og hagldir
Port-Au-Prince, Haiti, 4. febrúar. AP.
JEAN Claude Duvalier — Baby
Doc — forseti Haiti gaf út enn
eina yfirlýsingu í dag, þess efnis,
að mótmælaaðgerðirnar gegn
honum hefðu runnið út í sandinn
og hann hefði tögl og hagldir.
Forsetinn sagði að stöku áróð-
urs- og niðurrifsseggir hefðu
staðið að þessum mótmælum og
engin ástæða væri til að hann
hefði áhyggjur af þeim frekar.
Forsetinn fór í ökuferð um höfuð-
borgina Port au Prince f dag til að
leggja áherzlu á að hann væri hjá
„sínu fólki" eins og hann orðaði það.
„Þið megið ekki trúa því sem þið
lesið í útlendum blöðum," sagði
Duvalier við erlenda blaðamenn og
tók síðan glaðlega við fagnaðarlát-
um frá mannfjölda sem hafði safn-
ast saman í grenndinni. Duvalier
sagði að nú væri allt fallið í ljúfa
löð í landinu og það væri óhjá-
kvæmilegt annað en illgjamar og
rætnar manneskjur hefðu hom í
síðu hans og það brytist út einstöku
sinnum.
Ekki er enn vitað hvort Banda-
ríkjamenn ætla að veita Haiti efna-
hagsaðstoð á árinu vegna ásakana
sem settar hafa verið fram um að
Haitistjóm fremji gróf mannrétt-
indabrot. Duvalier sagði að Banda-
ríkjamenn yrðu vitaniega að styðja
við bakið á Haitibúum af mannúð-
arástæðum enda væri mikil þörf
fyrir aðstoð Bandaríkjamanna. Á
síðasta ári veittu Bandaríkjamerin
til Haiti 51 milljarð dollara.
Forseti Haiti
Rússar segjast
svara Frökkum
í sömu mynt
Margir franskir sendistarfsmenn
verða reknir frá Moskvu á næstunni
, Það heitir Apoíto. formfagun og uandað.
• Með áklœði ár leðrt eða 'a“'^“dín leyna sér ekkL
París, 4. febrúar AP.
SOVÉZKA sendiráðið í Par-
ís lýsti í dag brottrekstri
fjögurra rússneskra sendi-
starfsmanna þaðan sem
„ögrun“ og sagði, að frekari
brottrekstrum yrði svarað í
sömu mynt. I Moskvu stað-
festi TASS-fréttastofan, að
margir franskir sendistarfs-
menn yrðu reknir þaðan
strax á næstunni fyrir „ólög-
lega starfsemi“.
Haft er eftir heimildum í París,
að Rússamir fjórir, sem reknir
hersins. Skjót viðbrögð Sovét-
stjómarinnar við brottrekstri
mannanna nú em í samræmi við
viðbrögð hennar í september sl.,
er Bretar ráku 31 Sovétmann úr
landi fyrir ólöglega starfsemi. Þá
rak Sovétstjómin þegar í stað 31
brezkan borgara frá Sovétríkjun-
um.
TASS-fréttastofan tilkynnti í
dag, að í hópi þeirra Frakka, sem
reknir yrðu frá Sovétríkjunum,
væru einn tæknifræðingur, aðstoð-
armaður hermálafulltrúans og einn
viðskiptafræðingur, aðstoðarmað-
vom þaðan, hafí allir verið starfs- ur verzlunarfulltrúans við franska
menn GRU, Ieyniþjónustu sovézkajSftndiráðið í Moskvu.
rai
KRISTJfin SIGGEIRSSOn
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
njósnaskíp
undan
Páfa vel
tekið meðal
Indland: