Morgunblaðið - 05.02.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1986
Hluti ráðstefnugesta hlýðir á einn fyrirlesaranna.
Ráðstefna um meltu vinnslu og nýtingn fiskúrgangs:
Urgangi að verðmæti
500 milljónir hent
UM 300.000 lestir af fiskúrgangi
falla árlega tíl af flotanum og
fiskvinnslustöðvum í landi og er
120.000 til 180.000 lestum af
honum hent. Miðað við að það
sem hent er, væri unnið í lýsi og
mjöl gæti það gefið af sér um
500 milljónir króna. Það, sem til
feliur af togurum, mætti nýta í
meltuvinnslu, sem má nota til
fóðurgjafa fyrir sauðfé og í loð-
dýrarækt og fiskeldi. Af togur-
um er árlega hent úrgangi, sem
gæti dugað til eldis á 12.000 til
15.000 lestum af laxi. Nýting alls
hugsanlegs hráefnis, 550.000
iestir af bræðslufiski og fiskúr-
Slökkvilið
í önnum
TALSVEItDAR annir voru hjá
Slökkviliðinu i Reykjavík frá
því klukkan 19.00 á mánudag og
fram eftir kvöldi.
Klukkan 19.20 var slökkviliðið
kvatt að húsi við Laugames, þar
sem kviknað hafði í sóti í reykháfi
hússins. Tókst greiðlega að slökkva
eldinn og ekkert tjón hlaust af. Um
klukkan 20.25 barst tilkynning frá
húsi við Engihjalla í Kópavogi. Þar
hafði kviknað í dýnum í þvottahúsi
á 7. hæð. Nokkuð tjón varð á
þvottahúsinu af völdum sóts og
slökkvifroðu. Laust eftir klukkan
21.00 fór sjálfvirkt viðvörunarkerfí
í húsakynnum Hans Petersen við
Lyngás í gang og er slökkviliðið
kom á vettvang lagði talsverðan
reyk frá gangverki á vél sem þar
var. Ekki varð þar umtalsvert tjón.
Kef laví kurhöf:n:
Krani féll á
vörubifreið
LÖNDUNARKRANI féll á vörubif-
reið við Keflavíkurhöfn á mánudag-
inn er verið var að losa salt úr ms.
Hvalvík. Óhappið vildi þannig til
að rafmagn fór af búnaði kranans
með þeim afleiðingum að hann féll
ofan á pall bifreiðarinnar. Engin
slys urðu á mönnum en bifreiðin
skemmdist talsvert.
gangi, í fiskifóður eða loðdýra-
rækt gæti veitt 4.000 til 7.000
manns vinnu við þær atvinnu-
greinar.
Upplýsingar þessar komu meðal
annarra fram á ráðstefnu um
meltuvinnslu á vegum sjávarút-
vegsráðuneytisins og Rannsóknar-
stofnunar fiskiðnaðarins, sem hald-
in var þann 29. janúar síðastliðinn.
Siguijón Arason, deildarverkfræð-
ingur hjá RF, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að af togaraflotan-
um féllu til 70.000 til 80.000 lestir
af úrgangi á þessu ári auk þess,
sem verulegt magn félli til við fisk-
vinnslu í landi. Úrgangurinn til
meltuvinnslu væri verðlagður á
svipaðan hátt og loðna gæfi því
hvert kíló af honum um 2 krónur.
Miðað við að úrgangurinn, sem félli
til á togurunum, væri nýttur í
meltu, gæfi hann af sér svipað og
einn meðal loðnutúr á ári. Meltu-
búnaði hefði verið komið fyrir um
borð í togaranum Dagrúnu ÍS og
væri af því góð reynsla. Búnaðurinn
hefði verið settur niður í maí 1984
og þá kostað með niðursetningu um
1,2 milljónir króna. Á síðari hluta
ársins hefðu 527 lestir af meltu
verið unnar um borð að verðmæti
1,1 milljón króna. Af því hefðu
700.000 komið í hlut útgerðar en
15.000 í hásetahlut. Búnaðurinn
hefði farið langt með að borga sig
upp á hálfu ári samkvæmt erindi,
sem Elías Jónatansson frá Bolung-
arvík, hefði flutt á ráðstefnunni.
Auk Dagrúnar væru frystitogarinn
Freri RE, Kambaröst SU og Gunn-
jón GK með meltubúnað um borð.
Siguijón sagði, að Glettingur í
31
Þorlákshöfn hefði á síðasta ári
framleitt um 300 lestir af meltu og
hefði hún öll verið seld til bænda.
Meltan væri fyrirtaks fóður fyrir
sauðfé, þar sem hún innihéldi bæði
mikið af lýsi og próteini. Meltuna
mætti einnig vinna í mjöl og lýsi
svo og meltuþykkni, sem notað
væri í fiskeldi og loðdýrarækt og
kæmi þá bæði til greina útflutning-
ur fóðursins eða notkun innanlands
og gjaldeyrisspamaður því fylgj-
andi. Þá mætti geta þess, að verð
fyrir úrgang til meltuvinnslu í
Noregi og Danmörku væri um
þrisvar sinnum hærra en verð á
loðnu til bræðslu hér á landi..
Rannsóknarstofnun fískiðnaðar-
ins hefur frá upphafi unnið að lausn
á nýtingu fiskúrgangs og þegar er
farið að nýta ýmsa hluti innyfla, r
sem áður voru ónýttir, en mikil
áherzla hefur síðustu ár verið lögð
á þróun meltuvinnslunnar.
Erindi _ á ráðstefnunni fluttu
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, Siguijón Arason, Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins, Ólaf-
ur Guðmundsson, Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins, Ingvi Þor-
kelsson, Glettingi Þorlákshöfn, El-
ías Jónatansson, Einar Guðfinnsson
hf. Bolungarvík, Lárus Ásgeirsson,
Lýsi hf, Haukur Már Stefánsson,
Landsmiðjan og Finnur Ingólfsson,
aðstoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra.
Nú fœst Ora-raudkál í nýjum og betri umbúðum.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!