Morgunblaðið - 05.02.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
25
Marcos vill kapp-
ræður við Cory
Hundruð þúsunda sóttu fund Cory í Manilla í gærkvöldi
Marcos forseti
Manila, 4. febrúar. Frá önnu Bjarnadóttur fréttaritara Mbl.
í RÆÐU í dagf bauð Ferdinand
Marcos, forseti Filippseyja,
Cory Aquino til kappræðna í
sjónvarpinu í kvöld eða fyrra-
málið. Hann undirritaði og
nokkur ný lög' sem eiga að
bæta afkomu almennings, m.a.
um viðbótarlækkun söluskatts.
Þetta var á næst siðasta degi
kosningabaráttunnar og margt
bendir til að Marcos sé með
þessu að reyna að auka fylgi
sitt, þótt seint sé. Filippseying-
ar ganga að kjörborði þann 7.
febrúar. Allur áróður er bann-
aður daginn fyrir kjördag,
fimmtudag.
Marcos talaði á fundi Samtaka
verslunarráða í Intercontinental-
hótelinu í Maniia í dag. Cory
Aquino talaði þar á vegum sömu
samtaka í gær, mánudag, og var
fagnað mjög innilega. Forsetan-
um var tekið kurteisislega þegar
hann gekk í salinn í dag en mikil
spenna lá í loftinu.
Ræðu Marcosar var tekið held-
ur fálega. Hann minnti á reynslu-
leysi Cory Aquino og sagði 50
helstu ráðgjafa hennar ætla að
stjóma landinu og nota hana sem
leikbrúðu. Hann sagði suma
þeirra vera kommúnista og varaði
við að þeir kæmust til valda ef
Aquino verður kosinn forseti.
Hann gerði hlé á ræðu sinni til
að undirrita ný lög sem eiga að
bæta afkomu almennings. Hann
lækkaði m.a. söluskatt á ýmsum
vömm um 1,5 prósent til viðbótar
söluskattslækkun sem hann
ákvað um áramótin og er nú orðin
veruleg. Hann undirritaði lög sem
virka hvetjandi á ijárfestingu í
landbúnaði og aflétti skattakröf-
um af námufyrirtækjum í erfíð-
leikum. Hann ákvað hvaða 334
svæði og framkvæmdaverkefni
eiga að fá ríkisstyrk á þessu ári
og setti nýjar reglur um athafnir
ríkisfyrirtækja.
Marcos bauð Cory Aquino til
kappræðna í sjónvarpi í hæðnis-
legum tón. Hann sagðist gera það
til að afsanna fullyrðingar stjóm-
arandstöðunnar um að hann þori
ekki að ræða við hana. Aquino
setti ýmis skilyrði fyrir kappræð-
um í áskomn sinni á forsetann
til kappræðna fyrr í kosningabar-
áttunni. Marcos sinnti áskomn-
inni ekki, fyrr en nú. Hann segist
tilbúinn til að tala við hana og
setti fram eigin reglur. Hann lagði
til að þau töluðust við án ráðgjafa
Corazon Aquino
og minnismiða og bauð henni að
velja umræðustjóra.
Ráðgert var að þau myndu
talast við hvort frá sínum stað í
þættinum Nightline í bandarísku
sjónvarpsstöðinni ABC á fímmtu-
dagsmorgun. Aquino lagði til eftir
að hún fékk kappræðutilboð
Marcosar að Nightline yrði tekinn
upp á miðvikudagsmorgun og
honum yrði sjónvarpað beint á
Filippseyjum eins og í Bandaríkj-
unum og það yrði kappræðustaður
forsetaframbjóðendanna. Marcos
taldi uppástungu hennar misbjóða
virðingu Filippseyinga og sagði
að forsetaframbjóðendumir ættu
að ræðast við í þætti undir stjóm
Filippseyinga en ekki Bandarílq'a-
manna. Hann lagði til að þau
hittust í fyrramálið, miðvikudag,
og hvort um sig tilnefndi tvo
spyijendur.
Aquino hafði ekki svarað þess-
ari uppástungu þegar þetta er
ritað.
Stærsti kosningafundur Cory
Aquino var haldinn í miðborg
Manila í kvöld og allt fór á annan
endann. Fólk streymdi til fundar-
ins úr öllum áttum. Um kvöld-
matarleytið vom hundmð þús-
unda saman komin í Lunetagarði.
Hótelstjóri á hóteli í grennd við
garðinn, þar sem allir starfsmenn
em merktir Marcosi, fór með blm.
Mbl. upp á þak á hótelinu og sýndi
henni útsýnið og mannijöldann.
„Ég hef aldrei séð annað eins,“
sagði hann. „Eigandi þessa hótels
styður Marcos og við segjumst
styðja hann. En ég ætia að kjósa
Aquino, þú mátt hafa það eftir
mér ef þú nefnir mig ekki á nafn.
Ég vil ekki missa vinnuna."
Frá brúðkaupi Diönu Ross ogArnes Næss
Fjallgöngumenn úr vinahópi brúðgumans halda á loft ísöxum, á meðan brúðhjónin ganga út úr kirkjunni.
Mynd þessi var tekin um síðustu helgi í Lausanne í Sviss, þar sem brúðkaupið fór fram.
Njósnaði „slátrarinn“ fyrir
Breta og Éandaríkjamenn?
London, 4. febrúar. AP.
Bróðir Castros í
virðingarstöðu
Havana, 4. febrúar. ^ ^
Að sögn Lundúnablaðsins Da-
ily express stundaði nazistafor-
inginn fyrrverandi, Klaus Bar-
bie, sem einnig er kunnur undir
nafninu „slátrarin frá Lyon“,
njósnir fyrir leyniþjónustur Bret-
lands og Bandaríkjanna um langt
skeið eftir Heimsstyijöldina síð-
ari. Segir blaðið að breska leyni-
þjónustan hafi skýrslu undir
höndum þar sem fram komi að
Barbie hafi starfað að njósnum
fyrir leyniþjónustuna frá stríðs-
lokum og allt til 1950.
Barbie var handtekinn í Bólivíu
árið 1983 og framseldur til Frakk-
lands þar sem hann bíður nú réttar-
halda ákærður um stríðsglæpi og
grimmdarverk. Daily express segir
að í stríðslok hafí breskir leyniþjón-
ustumenn komist í samband við
Barbie og notað hann sem tengilið
við þjóðveija sem veittu leyniþjón-
ustunni upplýsingar. Þá hefði Bar-
bie einnig tekið að afla upplýsinga
um þýska kommúnistaflokkinn og
útsendara Sovétríkjanna í Þýska-
landi fyrir bandarísku leyniþjón-
ustuna en árið 1950 hefði banda-
ríska leyniþjónustan ekki talið
óhætt að hafa hann lengur í Þýska-
landi. Bandarískir leyniþjónustu-
menn hefðu svo séð til þess að hann
kæmist óáreittur til Suður-Amer-
íku. Blaðið getur þess ekki fyrir
hvaða deild bandarísku leyniþjón-
ustunnar Barbie á að hafa unnið.
FORMAÐUR nefndar, sem
Bandaríkjaforseti hefur skipað
til að fylgjast með rannsókninni
á Challenger-slysinu, hét þvi í
dag að forðast „óréttmæta gagn-
rýni“ á störf NASA, bandarísku
geimferðastofnunarinnar.
William P. Rogers, fyrrum utan-
UM 1.700 kommúnistar söfnuð-
ust saman í Havana á Kúbu í dag
tíl að sitja fjögurra daga þing,
sem þarlendir embættismenn
telja að leitt gæti til mannabreyt-
inga á æðstu stöðum. Jafnvel er
búist við þvi að Raul Castro,
yngri bróðir Castros, hljóti
stöðuhækkun, þótt ekki sé vitað
hvers eðlis hún verði.
Raul er 54 ára og fímm árum
yngri en Fidel Castro. Athygli fjöl-
miðla hefur í auknum mæli beinst
að Raul Castro undanfarið og hann
hefur fengið ýmis verkefni á vegum
kommúnistaflokksins á Kúbu. Fidel
Castro hefur sagt að falli hann frá
eða verði af öðrum sökum óhæfur
til að gegna forsetaembætti sínu
muni Raul taka við af sér.
Helsti viðburður þingsins í dag
verður setningarræða forsetans.
Þar ætlar Castro að gera grein fyrir
þeim árangri, sem náðst hefur
undanfarin fimm ár, „í að koma á
kommúnísku þjóðskipulagi".
Greinargerð Castros er að sögn
óralöng og er búist við að hann
verði daginn á enda að lesa hana
upp.
Mikill viðbúnaður hefur verið í
Havana undanfarið til að gefa höf-
uðborginni andlitslyftingu fyrir
þingið. Tvær milljónir manna búa
í Havana og um 350 þúsund manns
hafa unnið við að gera við götur,
mála hús, reisa flaggstangir og
gróðursetja eina milljón runna.
ríkisráðherra, var í dag skipaður
formaður nefíidar, sem á að fylgjast
með rannsókninni á Challenger-
slysinu og skila skýrslu til Reagans,
forseta, eftir fjóra mánuði. Neil
Armstrong, sá, sem fyrstur manna
steig fæti á tunglið, er varaformað-
ur nefndarinnar, en hún er alls
Mörg hundruð böm í skólabún-
ingum tóku á móti fulltrúum er
þeir komu til Havana í morgun til
að sitja þingið.
Helstu verkefni þingsins em að
kjósa nýja miðstjóm, nýtt stjóm-
málaráð og leggja fram drög að
stefnu flokksins.
Þing kommúnistaflokksins er nú
haldið þriðja sinni frá því að Castro
komsttil valda 1. janúar 1959.
GEN(ÍI
GJALDMIÐLA
London, 4. febrúar. AP.
Bandarikjadollar snar-
hækkaði gagnvart öllum
helztu gjaldmiðlum Evrópu í
dag. Sterlingspundið lækkaði
enn í kjölfar lækkandi olíu-
verðs. Gullverð lækkaði um
meira en dollar hver únsa.
Síðdegis í dag kostaði pundið
1,3785 dollara (1,3855), en
annars var gengi dollarans
þannig, að fyrir hann fengust
2,4220 vestur-þýzk mörk
(2,3960), 2,04925 svissneskir
frankar (2,0330), 7,4125 fran-
skir frankar (7,3375), 2,7315
hollenzk gyllini (2,7070),
1.643,625 ftalskar límr
(1.629,50), 1,44175 kandaískir
dollarar (1,4340) og 192,45 jen
(190,85).
skipuð
skipuð 12 mönnum.
Rogers lagði á það áherslu í dag,
að nefndinni væri ekki aðeins ætlað
að fylgjast með rannsókn NASA
og sagði hann það sína skoðun, að
sérfræðingar stofnunarinnar stæðu
óaðfínnanlega að rannsókninni.
Challeng-er-slysið:
Forsetanefnd
Washington, 4. febrúar. AP.