Morgunblaðið - 15.02.1986, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Kæri stjömuspekingur! Ég
er fædd 10. júní 1970 kl.
19.20 að kveldi til í Reykja-
vík. Mig langar að vita hvaða
starf hentar mér best. Mig
langar til að verða skáld og
rithöfundur. Hvemig passar
tungumálanám mér? (Ég er
á tungumálabraut.) Hvaða
stjömumerki semur mér best
við? Með kærri kveðju,
Nemesis."
Svar:
Kæra réttvísi- og refsigyðja.
Þegar þú fæddist var Sól í
Tvíburamerkinu, Tungl og
Miðhiminn í Meyju, Merkúr
og Satúmus í Nauti, Venus
og Mars í Krabba og Sporð-
dreki var Rísandi. Þú berð
því einkenni Tvíbura, Meyju,
Nauts, Krabba og Sporð-
dreka.
Rithöfundar-
hcefdeikar
Sagt er um Tvíburann að
hann sé merki tjáskipta og
upplýsingamiðlunar. Það er
því Tvíburum eðlilegt að fást
við ritstörf og störf að margs
konar fjölmiðlun. Þar sem
sólin var f Tvíburamerkinu
er þú fæddist ættir þú að
hafa rithöfundarhæfileika og
meðfædda þörf tii að tjá þig.
Hins vegar eru hæfíleikar
ekki allt. Þeir sem fást við
listræn störf segja margir
að vægi hæfíleika sé 5% og
vinnu 95%. En það er jú oft
irinri þörf sem rekur menn
áfram í vinnu. Þú mátt ekki
gleyma þvf að það er þinn
vilji sem skiptir öllu máli.
Ef þú vilt raunvemlega verða
rithöfundur þá verður þú
rithöfundur. Það helsta sem
þú getur þurft að sigrast á
er eirðarleysi. Margir Tví-
burar eiga erfítt með að sitja
kyrrir og beita sér af fullum
krafti að 'einu ákveðnu máli.
Þó þú þurfír að varast eirðar-
leysi þá er samt sem áður
mikilvægt fyrir þig að fást
við fjölbreytileg viðfangs-
efni.
Tungumálahœfúeiki
Þú hefur góða tungumála-
hæfíleika. Meyjarmerkinu
fylgir iðulega málfræðihæfí-
leikar og Tvíburar eru ágætir
tungumálamenn.
Skáldskapur
Allt bendir einnig til þess að
þú hafír hæfileika í skáld-
skap. Merkúr- Venus- Nept-
únus-tenging er algeng hjá
skáldum, táknar að tengsl
eru milli hugsunar, fegurðar-
kyns og ímyndunarafls.
Tengslum Merkúrs og Nept-
únusar fylgir hins vegar
hætta á of miklu draumlyndi
og sjálfsblekkingum. Til að
ná sem bestum árangri þarft
þú að læra að hemja ímynd-
unaraflið og fínna því já-
kvæðan og uppbyggilegan
farveg.
Hjálpsöm
Um aðra þætti í korti þínu
má segja, t.d. hvað varðar
tilfínningar, að Tungl í
Meyju og Venus í Krabba
táknar að þú ert frekar
íhaldssöm, þarft öryggi og
varanleika. Þú ert hjálpsöm
en getur átt það til að vera
gagnrýnin og hvöss. Mikil-
vægt er fyrir þig að eiga
gott heimili og að hafa dag-
legt líf þitt reglubundið og í
föstum skorðum. Þú ert
snyrtileg og nákvæm í þér.
SjálfstœÖ
Mars í spennuafstöðu við
Úranus táknar að þú þarft
að starfa sjálfstætt og eftir
þínum eigin reglum að þér
fellur best að vinna í skorp-
um og óháð stimpilklukku.
Ég get ekki séð hvaða merki
þér semur best við. Ekki er
þó ólíklegt að þér falli vel
við eitt eða fleiri „hinna
merkja" þinna, Meyju,
Sporðdreka, Naut eða
Krabba.
DÝRAGLENS
LJÓSKA
- iMCTKINl Fl? YDAO
HVAP
APVCKA /TTHM5t-lá( BH. HÖN
VERE>
QFTTR VNSRJ \
KONUM UIFA
T/MUI Rill ICMMI
\"JP' \ 7» : 1 UIVIiVII Uu JtlMNI
/\r HVERJU pb-
LEIPIRÐU 1ÖMMA
EKKI TIL
GEZA EnTHVADrTf (SÓE>
££M MATREIPSLO-
MEISTAR.I /PTLA é&AÐ)
„ TIL SÆLKEKÁ-
MÓSA - PÖUNUKÖKO/
FERDINAND
SMÁFÓLK
Tónleikar fyrir ungt fólk „Pétur og úlfurinn" Aftur? Kannske verðum við Kannske að úlfurinn nái
rétt einu sinni, og sjáðu heppnar I þetta sinn ... honum núna!
hvað þeir eru að spila...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það fer í taugamar á lesendum
þegar spil eru vitlaust upp sett.
Víst geta menn oftast ráðið í
það hvar mistökin liggja, en það
spillir mjög ánægjunni af því að
skoða spilið. Á miðvikudaginn
víxluðust hendur austurs og
suðurs í þessu spili:
Suður gefur; A/V á hættu.
Norður
♦ 2
¥-
♦ ÁD10
♦ 1098765432
Vestur Austur
♦ Á ♦ KDG109
♦ ÁKDG109
í KG98765432 ♦ -
*ÁK Suður ♦ DG
♦ 876543
V 8765432
♦ -
♦ -
Vestur Norður Austur Suður
3 grönd
Dobl Pass Pass Redobl
Pass Pass Pass
Spilið er hugsmíð greifans
Von Zedtwitz, sem hann bjó til
í því skyni að sýna fram á að
hægt væri að vinna þrjú grönd
með aðeins 6 punkta á milli
handanna. Þegar skiptingin er
villt er eðlilegt að sagnir séu það
líka, og Zedtwitz skýrði sagnir
svo, að suður ætlaði sér að
blekkja, hindra andstæðingana
með * því að vekja á þremur
gröndum og þvinga svo makker
til að taka út í annan hálitinn.
Redoblið átti að sjá til þess að
makker opnaði munninn, en
hann lagði annan skilning í það
— taldi það sýna fjallsterk spil
ogpassaði.
Éins og við höfum áður farið
yfir, er spilið óhnekkjandi —
vestur getur ekki annað en spil-
að tígli og gefíð sagnhafa þar
með innkomur og frið til að fría
og taka laufið. Eigi austur út
hins vegar, tekur vömin alla
slagina ef vestur hendir spaða-
ásinum í hjarta austurs.
Á sama hátt standa 7 grönd
í austur ef suður spilar út hjarta,
en með spaða út fara þau tíu
niður!
Umsjón Margeir
Pétursson
í 1. deildar keppni sovézka
meistaramótsins í ár kom þessi
staða upp í skák alþjóðameistar-
ans Azmaparashvilis, sem hafði
hvítt og átti leik, og stórmeistar-
ans Holmovs.
26. Hxf7! og Holmov gafst upp,
því eftir 26. — Kxf7, 27. Hd7+
er hann vamarlaus. Mót þetta er
úrtökumót fyrir úrslit sovézka
meistaramótsins sem fer fram í
vor. Röð efstu manna: 1. Malanjuk
10 Vt v. af 17 mögulegum, 2—3
Balashov og Smagin 10 v. 4—9.
Panehenko, Judasin, Tseshkov-
sky, Khalifman, Rashkovsky og
Azmaparashvili 9'A v.