Morgunblaðið - 15.02.1986, Side 35
35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. FEBRÚAR 1986
Leiðrétting
Minning:
Jón Einarsson
frá Húsatóftum
Fæddur 5. júlí 1901
Dáinn 8. febrúar 1986
Mig langar til að minnast með
fáeinum orðum Jóns Einarssonar
eða Nonna frænda eins og ég kall-
aði hann. Frá því að ég man veitti
hann hlýju og vakti yfír velferð
okkar hinnayngri í fjölskyldunni.
Hann fæddist í Grindavík 5. júlí
1901, sonur hjónanna Kristínar
Þorsteinsdóttur frá Haukholtum í
Hrunamannahreppi og Einars Jóns-
sonar, hreppstjóra, á Húsatóftum í
Grindavík. Böm þeirra: Guðsteinn,
látinn 1973, Jón, Valdimar, Einar,
dó ungur, Sólveig, Einar Kr. og
Þórhallur. Með þessum systkinum
öllum var einstakt samband, traust
og náið. Þau ólust upp við tóna
hafsins við brimsorfna strönd hjá
kærleiksríkum og leiðbeinandi for-
eldrum.
Eins og aðrir af aldamótakjm-
slóðinni fór Nonni snemma að taka
til hendi og hjálpa til við bústörfín
og sjóróðra stundaði hann á opnum
bátum með föður sínum og bræðr-
um. Má geta sér til að oft hefur
verið erfítt og vosbúð mikil. En það
líka haft sínar björtu hliðar eins og
gengur, og trúlega hefur oft verið
glatt á hjalla í Staðarhverfí á þeim
árum.
í kringum 1940 flytjast þau sem
eftir em heima, Jón, Sólveig og
Einar, með móður sinni að Hólum
í Jámgerðarstaðahverfí. Um það
leyti var verið að stofna Hraðfrysti-
hús Grindavíkur og var Guðsteinn
einn af hvatamönnum þess. Nonni
tók að sér verkstjóm þar og var
það hans ævistarf upp frá því.
Hann var vandaður maður til orðs
og verks, góðviljaður og hafði alveg
sérstaklega gott skap.
Hann kvæntist aldrei og eignað-
ist ekki afkomendur, en stór er
bamahópurinn orðinn, sem hændist
að honum, elskaði hann og virti.
Hvert og eitt okkar leit á hann sem
sinn Nonna, en það breytti engu,
því hann hafði svo miklu að miðla
ungum sálum með sínu stilita og
ljúfa skapi.
Nonni hafði mjög gaman af
ferðalögum og ferðuðust þeir mikið
saman, hann og Einar, bæði utan-
lands og innan. Ennfremureru ófá-
ar laxveiðiferðimar sem þeir bræð-
ur fóm saman og höfðu ómælda
ánægju af og var Nonni slungin
aflakló.
Þung raun var það fyrir þau öll,
þegar Einar, bróðursonurinn, sem
þau höfðu fóstrað að mestu, féll
frá í blóma lífsins, frá konu og 5
ungum bömum. Og svo aftur þegar
eittbamanna, Vagn, kvaddi skyndi-
lega aðeins tæpleg 12 ára að aldri.
En öll él birtir upp um síðir og
mikla gleði hafði Nonni af krökkun-
um sínum í Njarðvík.
Hin síðustu ár hafa verið honum
erfíð, elli og veikindi hijáð þreyttan
likama. Einar og Sólveig hafa gert
það sem þau gátu til að létta honum
lífíð, og hann fékk að vera heima
eins lengi og hægt var, og fara út
á Bakka í Staðarhverfí, sem var
hans kærasti staður.
Nú vitum við að honum líður
vel, laus við fjötra, veikindi og elli.
Og í dag fylgjum við vinir hans
honum út á Bakka.
Ég bið systkinum hans og mág-
konum Guðs blessunar um ókomin
ár.
Ég og fjölskylda mín þökkum
honum fyrir allt og biðjum Guð að
leiða hann á ókunnri strönd.
Margrét Valdimarsdóttir
NI5SAN CHERRY
er hæsta
trompið
Verð frá
kr. 398.000.
í VIÐTALI við Eirík Sigfússon á
Sflastöðum í miðvikudagsblaðinu,
slæddist inn prentvilla. Þar sagði
að búmark á bænum í fyrra hefði
verið 162 þúsund lítrar, en átti að
vera 262 þúsund lítrar. Þá sagði
einnig að hann hygðist hafa fleiri
kýr en áður, en átti auðvitað að
vera færri. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er22480
if Sparneytinn ir Lipur ir Traustur
it Rúmgóður it Ódýr ic Spennandi
Hjá okkur er fjölbreytnin mest og kjörin best
Munið bílasýningar okkar laugardaga og sunnudaga kl. 14-17,