Morgunblaðið - 15.02.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1986
45
Þessir hringdu . . .
Slæða og peysa
gleymdust
Jón hringdi:
„1. febrúar sl. vorum við hjónin
á Hótel Sögu. Þegar halda skyldi
heim fengum við engan leigubíl, en
fengum far með ungum manni. Svo
óheppilega vildi til að konan mín
gleymdi peysu og slæðu í bílnum
hjá piltinum. Við vitum ekki hver
hann er né veit hann nokkuð um
okkur, þannig að ég bið hann eða
þá sem kannast við málið að hafa
samband í síma 74971.
Lyklakippa
tapaðist
Lítil stúlka týndi nýlega lykla-
kippu í Austurstræti. Á merkis-
spjaldinu stendur „Bergen".
Finnandi er vinsamlega beðinn að
hafa samband í síma 44796.
Kvæðin eftir
Guðmund
Guðmundsson
Sigríður Eyjólfsdóttir hringdi:
„Um daginn birtist fyrirspum
frá Guðmundi A. Finnbogasyni um
tvö kvæði. Ég get upplýst að þau
eru bæði eftir Guðmund Guðmunds-
son skólaskáld. Annað heitir Kvöld-
ljóð og er í fyrra bindi kvæðasafns
Guðmundar, en hitt heitir Jón Sig-
urðsson og er í öðru bindi. Við síð-
ara ljóðið er til fallegt lag eftir Jón
Laxdal, en nótnabókin sem það er
að fínna í er orðin mjög gömul og
þekkja því fáir ljóðið.
Haldið vel
á spöðunum
í Tjarnarskóla
Móðir hringdi:
„Mig langar til að lýsa ánægju
minni með Tjamarskólann og það
starf sem þar fer fram.
í upphafí hraus mér hugur við
að greiða 3000 krónur í gjald á
mánuði, en skipulagning skóla-
starfsins, samfelldur skóladagur,
heimanám í skólanum og fleira varð
til þess að ég sendi dóttur mína í
skólann. Nú fínnst mér ég hafa
fengið peningana margfalt til baka
og skólinn hefur farið fram úr mín-
um björtustu vonum. Þar er vel
haldið á spöðunum og fylgst grannt
með árangri nemenda. Ef bömin
fá milli 9 og 10 í einkunn í ensku,
er boðið upp á frekara nám og sé
frammistaðan slök í einhveiju fagi
fá þau aukatíma. Þannig er ekki
beðið eftir miðsvetrarprófum til að
kanna árangurinn og foreldrar geta
treyst því að vel sé fylgst með.“
Misskilningur
um fréttir
á táknmáli
Halldóra Jónsdóttir hringdi:
„Ifyrir skömmu birtist grein í
dálkum Velvakanda um fréttir á
táknmáli. Nokkurs misskilnings
virðist gæta hjá bréfritara og vil ég
benda á ýmislegt í því sambandi.
Fréttir á táknmáli em ætlaðar
þeim sem hafa aldrei haft heym
og hafa því lært táknmál. Útdrátt-
urinn sem birtist á skjánum eftir
fréttir er fyrir þá sem hafa misst
heymina af einhveijum ástæðum
og á elli kerling þar stærstan hlut
að máli. Það er draumurinn að frétt-
ir á táknmáli verði sýndar á litlum
skermi um leið og þær em lesnar.
En til þess að það sé hægt verður
túlkurinn að heyra, en einnig að
vera svo fær í táknmálinu, að hann
geti túlkað fréttimar jafnharðan og
þær em sagðar. Sem stendur er
enginn hér á landi sem gæti þetta,
að ég best veit, en nú er verið að
þjálfa hóp sem hugsanlega gæti
sinnt þessu í framtíðinni.
í framhaldi af þessu langar mig
einnig að minnast á þær reglur um
textun á erlendu efni sem Sverrir
Hermannsson menntamálaráðherra
undirritaði nýlega. Fyrir heymar-
daufa væri það til stórkostlegra
bóta ef íslenskt efni væri einnig
textað. Allra best væri ef hann
fylgdi þegar efni er sent út í fyrsta
sinn. En þegar íslenkt efni er endur-
sýnt eins og oft er, fínnst mér
sanngjamt og í raun sjálfsögð krafa
að texta það.“
4 MORGUNBLADID, 8UNNUDAGUR ». FKBBtlAR 1866
• •
„Ofl sem vilja múlbinda
allt andóf og gagnrýni“
— segir Eiríkur Stefánsson sem rekinn var úr Kaupfélagi Fáskrúðsfjarðar.
Fáskrúðsfirðingar sammála um að vöruverð sé lœgra í verzlun VerkalýðsfélagBÍns
Kæru Fáskrúðsfirðingar
Kæru Fáskrúðsfirðingar
fýllstu gætið virðingar.
og kurteisti við kaupfélags-
kóngana að morgni dags.
Verkalýðsfélagsforinginn
fékk að taka pokann sinn.
Hann á að taka hattinn ofan
og hengja lás á búðarkofann.
Hákur
Einkaflugmannsnám-
skeið
Haldið verður einkaflugmannsnámskeið sem hefst
15. febrúar og stendur til aprílloka. Upplýsingar
gefnarísíma 28970. Flugfarhf. Vesturflughf.
TOPtY KðY
í kvöld skemmtir Tony Kay,
hinn bráðskemmtilegi söngvari, píanóleikari
og grínisti matargestum í Blómasal.
Blómasalur býður upp á nýjan
glæsilegan matseðil. Par á meðal logandi
piparsteik framreldda við borðin og
góðan ábætisrétt á eftir.
Komið og eigið skemmtilega kvöldstund
í Blómasalnum.
Borðapantanir í síma 22321 og 22322
HÓTEL LOFTLEIÐiR
FLUGLEIDA ,
' HÓTEL