Morgunblaðið - 26.03.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986
Kína;
Deng Xiaoping
í fullu fjöri
Peking, 24. mars. AP.
DENG Xiaoping, leiðtogi Kin-
verja, hitti forsætisráðherra
Danmerkur, Paul SchlUter, að
máli í dag og var það í fyrsta
skipti í 14 vikur sem hann kemur
fram opinberlega. Hinn 81 árs
gamli leiðtogi virtist vera við
góða heilsu, en fregnir hafa
verið uppi um það að hann væri
alvarlega veikur eða jafnvel lát-
inn.
Deng sagði við þetta tækifæri
að hann hefði viljandi minnkað
opinber umsvif sín til þess að gefa
minna reyndum leiðtogum tækifæri
til þess að reyna sig og sýna fram
á að stefnu hans um að opna Kína-
veldi yrði haldið áfram þó hans
nyti ekki við. Sagðist hann hyggjast
draga sig enn frekar út úr opinberu
lífi. „Síðastliðin ár hef ég viljandi
reynt að draga mig út úr daglegum
stjómunarstörfum, þannig að aðrir
félagar fái tækifæri til þess að axla
meiri ábyrgð. Þetta hef ég meðal
annars gert til þess að sýna fram
á að núverandi stjómarstefna í Kína
byggist ekki á mér eingöngu. Því
hef ég ekki komið fram opinberlega
nú í talsverðan tíma,“ sagði Deng.
Schliiter er í opinberri heimsókn
í Kína. í gær ræddi hann við forsæt-
isráðherra landsins, Zhao Ziyang.
Ziyang sagði við það tækifæri að
Kínveijar krefðust þess að Banda-
rikin og Sovétríkin kæmust að
samkomulagi í afvopnunarmálum
sem fæli í sér mikla fækkun í kjam-
orkuvopnabúrum stórveldanna.
Hann sagði ennfremur að sameinuð
og sterk Evrópa myndi auka á
stöðugleika í heimsmálunum og
gæti orðið sterkur þáttur í þróun
til friðar í heiminum. Schluter tók
undir þessi orð Ziyang og sagði að
sífellt yxi skilningur á hlutverki
Evrópu í friðarmálum.
GENGI
GJALDMIÐLA
London, 25. mars. AP.
Bandaríkjadollari snarhækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum í dag. Ástæðumar era
sagðar bæði lækkun vísitölu
neysluvara um 0,4 prósent í
Bandaríkjunum og átök Banda-
ríkjamanna og Libýumanna.
I Tókýó kostaði dollarinn síð-
degis í dag 179,60 japönsk jen
(177,30).
í London kostaði sterlingspund-
ið þegar gjaldeyrismörkuðum var
lokað 1,45725 dollara (1,4850).
Gengi annarra helstu gjald-
miðla var á þann veg að dollarinn
kostaði:
2,3290 vestur-þýsk mörk
(2,2870), 1,9520 svissneska
franka (1,91825), 7,1425 franska
franka (7,0200), 2,6300 hollensk
gyllini (2,5830), 1.583,50 ítalskar
lírur (1.556,00) og 1,40325 kana-
díska¥k)Ilara.(l,4005).
Sakharov-myndin:
Bonner gagnrýnir
sovésk stjórnvöld
Massachusetts, Bandaríkjunum, 25. mars. AP.
YELENA Bonner gagnrýndi í gær sovésk stjórnvöld fyrir
að láta frá sér fara kvikmynd, sem tekin var með leynd
af manni hennar, andófsmanninum Andrei Sakharov.
„I dag vík ég frá því loforði
mínu að tala ekki við fjölmiðla
og tala við ykkur, af því að
mér virðist sem birting mynd-
arinnar sé vottur þess, að heilsu
Sakharovs hafi hrakað," sagði
frú Bonner.
Umrædd mynd, sem er um
15 mínútna löng og tekin með
földum upptökuvélum, sýndi
Sakharov m.a. tala við eigin-
konu sína í síma.
„Hérna sjáum við það svart
á hvítu, hvemig stjómvöld víla
jafnvel ekki fyrir sér að troðast
inn í viðræður hjóna," sagði
Bonner. „I venjulegu þjóðfélagi
hefðum við hjónin átt að geta
lögsótt yfirvöld fyrir slíkan
verknað.
AP/Símamynd
Corazon Aquino, núverandi forseti Filippseyja, undirritar „frelsis-
stj ómarskrána".
Aquino gefur út „frelsis-
s<jórnarskrá“ á Filippseyjum
Innistæður Marcosar frystar í svissneskum bönkum
Manila og Bern, 25. mars. AP.
CORAZON Aquino, forseti Filippseyja, undirritaði „frelsisstjórnar-
skrá“ í dag og nam þar með úr gildi fyrri stjóraarskrá landsins, sem
sett var í tíð Marcosar fyrrum forseta. Samkvæmt stjóraarskránni
er þing rofið og getur forsetinn gefið út lög þar dl ný stjóraárskrá
hefur verið samþykkt með þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá hafa svissnesk
yfirvöld fryst til bráðabirgða innstæður Marcosar í svissneskum
bönkum.
Aquino tilkynnti þessa ákvörðun nú nær sömu völd og Marcos tók
sína f dag í útvarpi og hefur hún sér er hann lýsti yfír hemaðar-
ástandi á Filippseyjum árið 1972.
Aquino sagði að „frelisstjómarskrá
sín væri til bráðabirgða og ný
stjómarskrá yrði samin af 30-50
manna nefnd, sem hún myndi skipa
innan 60 daga. Stjómarskráin yrði
síðan borin undir þjóðaratkvæði“.
Svissneska ríkisstjómin hefur
fiyst inni til bráðabirgða allar inn-
Ein þeirra bifreiða sem notaðar voru til þess að skjóta eldflaugunum frá.
stæður í svissneskum bönkum sem
með einhveiju móti tengjast Marcos
fyrrum forseta. Em þess ekki dæmi
áður að svissnesk ríkisstjóm geri
slíkt. í tilkynningu ríkisstjómarinn-
ar um þessar aðgerðir segir að
ýmislegt hafí bent til þess að til-
raunir væm gerðar til þess að ná
út innstæðum Marcosar. Nefnd,
sem Aquino hefur skipað á Filipps-
eyjum til þess að rannsaka fjárreið-
ur og viðskilnað Marcosar, segir að
hann kunni að hafa komið úr landi
verðmætum að upphæð 10 milljarð-
ar Bandaríkjadala og hluta þessarar
upphæðar sé að fínna í bönkum í
Sviss. Samtök banka í Sviss hafa
lýst yfir undmn sinni á þessum
aðgerðum ríkisstjómarinnar.
Marcos, sem er á Hawaii, hefur
flutt sig frá Hickam-herstöðinni,
þar sem hann hefur dvalist frá því
hann kom til eyjanna 26. febrúar,
í úthverfí Honolulu. Þar hefur hann
tekið hús á leigu við ströndina.
Vaxandi
ofbeldi
í Punjab
AP/Simamynd
Lögregla skoðar leifar eldflaug-
ar, þar sem þær liggja í anddyri
bandaríska scndiráðsins.
Japan;
Eldf laugaárás á keis-
arahöllina og banda-
ríska sendiráðið
Tókýó, 25. main^ AP.
HEIMATILBÚNUM eldflaugum var skotið að bandaríska sendiráðinu
og keisarahöllinni í Tókýó i dag. Ekki er kunnugt um hverjir voru
þaraa að verki, en lögregla segir að að flaugunum hafi sennilega
verið skotið til þess að hafa áhrif á áætlanir um fund sjö iðnvelda
I Japan í maí og hátíðahöldin vegna 60 ára valdaferils Hirohitos sem
keisara. Vinstrimenn í Japan tengja Hirohito gjaraan við japanska
heraaðarstefnu fyrir síðari heimsstyrjöldina og varúðarráðstafanir
vegna væntanlegs fundar iðnveldanna eru geysilegar.
Ekki var kunnugt um neinar
skemmdir eða slys á mönnum í
eldflaugaárásunum. Þetta er fyrsta
árásin þessarar tegundar á banda-
ríska sendiráðið í Japan. Þrjár
flaugar lentu á þaki sendiráðsins
og að minnsta kosti tvær til viðbótar
lentu í hallargarðinum. Flaugunum
var ekki ætlað að springa, heldur
einungis sýna fram á að hægt væri
að hitta-skotrriörkin. Þeim var skot-,
ið frá stolnum bifreiðum sem lagt
hafði verið í um 100 metra flarlægð
frá skotmörkunum og fann lögregl-
an skotbúnað í þeim.
Sendiráði Bandaríkjanna var
lokað eftir árásina og ekki opnað
aftur í dag. Engir hafa lýst á hendur
sér ábyrgð á árásunum og lögreglan
hefur enn sem komið er ekki hand-
tekið neinn vegna málsins.
Amritsar, 25. mars. AP.
EKKERT lát er á óeirðum og
ofbeldisverkum í Punjabfylki á
Indlandi, þar sem öfgasinnaðir
sikhar beijast fyrir yfirráðum,
en hófsamir sikhar hafa haldið
um stjóraartaumana síðasta
hálfa árið. Aldrei hefur ofbeldið
verið meira en í gær, mánudag,
síðustu sex mánuðina. Níu menn
voru drepnir og hafa því samtals
um 40 manns fallið siðustu tíu
dagana. Valda þessar óeirðir
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, og fylkisstjóra hóf-
samra sikha sífellt meiri vand-
ræðum, en öfgasinnarair krefj-
ast þess að Punjab fái sjálfstæði.
Fyrir utan bæinn Batala, þar sem
ríkt hefur umsátursástand undan-
fama daga, voru tvær manneskjur
myrtar og um helgina sátu öfga-
sinnaðir sikhar fyrir þremur hindú-
um og drápu þá. Lögregla segir að
sér hafí tekist að ijúfa umsátur
öfgasinnanna um Batala, en það
hefur staðið síðustu fímm daga. 71
sikhi var handtekinn. íbúar í þorp-
um sikha-trúflokksins halda áfram
að neita að selja afurðir sínar til
borganna og hefur fylkisstjómin
gripið til þess ráðs að flytja vömr
að annars staðar úr landinu.