Morgunblaðið - 26.03.1986, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ1986
Olafur Einars-
son — Minning
Fæddur 6. september 1912
Dáinn 19. marz 1986
Virðing og þökk eru efst í hugan-
um þegar ég kveð Ólaf Einarsson
tengdaföður minn í dag. Þó svo að
kynni okkar spönnuðu aðeins lítinn
hluta ævi hans og Ólafur væri dulur
maður er þó margs að minnast.
Ólafur Einarsson fæddist á Eski-
fírði, en fluttist nokkurra mánaða
gamall með foreldrum sínum, Ein-
ari Ólafssyni og Þórstínu Ámadótt-
ur, til Fáskrúðsfjarðar. Þar ólst
hann upp á alþýðuheimili og vann
öll almenn störf í sjávarplássinu að
Búðum á unglingsámm. Snemma
var þó ljóst að hugurinn stóð til
mennta, en ekki var heiglum hent
að komast á skóla í þá daga. Með
dugnaði og eljusemi tókst Olafí að
gera þennan draum að vemleika.
Hann hélt frá Fáskrúðsfírði og lauk
prófí frá héraðsskólanum á Laugar-
vatni. Ólafur innritaðist í Mennta-
skólann á Akureyri og lauk þaðan
stúdentsprófí árið 1937, þá 25_ ára
gamall. Nám sitt fjármagnaði Ólaf-
ur með vinnu árin áður en hann
gat hafíð skólagöngu og með sum-
arvinnu.
Hann fluttist suður til Reykjavík-
ur og hafði hug á háskólanámi, en
slíkt var kostnaðarsamt. Síðari
heimsstyijöldin geisaði úti í heimi
og mikil umbrot áttu sér stað í ís-
lenzku þjóðlífí. Ekki varð af frekari
skólagöngu. Ólafur stofnaði heimili
uicu cii/ii tiianui ivuuu oiuui, xiou
Friðriksdóttur, og giftust þau árið
Í945.
Á stríðsámnum starfaði Ólafur
hjá Skeljungi og síðan í þrjá áratugi
á endurskoðunardeild Reykjavíkur-
borgar. Hann minntist gamalla
samstarfsmanna þar ævinlega með
söknuði. Útivinna heillaði Ólaf alltaf
og um tíma vann hann í byggingar-
vinnu, meðal annars við byggingu
Skálholtskirkju og Ljósafossvirkj-
unar. Sumranna á þessum slóðum
fannst honum gott að minnast.
Eitt áhugamál var öðmm ofar í
huga Ólafs; skákin. Hann var alla
tíð virkur þátttakandi á skákmótum
og meistarflokksmaður í íþróttinni.
Oft var farið beint úr vinnu og sezt
að tafli. Skákin og sá félgsskapur,
sem hún gaf, veitti Ólafí mikið.
Ekki er nema mánuður síðan Ólafur
fylgdist með keppninni á Reykjavík-
urskákmótinu og síðasti verðlauna-
peningur Ólafs í skákinni er aðeins
tæplega sex mánaða gamall, dag-
settur 3. október 1985.
Árið 1968 fluttu Ólafur og Ása
í nýtt hús að Sörlaskjóli 11. í garð-
inum við húsið var helzt að fínna
Ólaf yfír sumartímann og í raun
stórkostlegt að sjá til hans, þar sem
hann dag eftir dag og kvöld eftir
kvöld var í garðinum sínum. Hann
var'oþreytandi við að rækta og
bæta, hlú að og snyrta enda bar
garðurinn í kringum húsið að Sörla-
skjóli 11 Ólafí fagurt vitni.
Beztu stundir Ólafs vom við
skákborðið, í garðræktinni eða með
góða bók í höndum. Hann las alla
tíð mikið og þá um allt milli himins
og jarðar. Hin síðar ár vom ýmsar
spumingar læknavísindanna hon-
um hugleiknar, en á milli fannst
honum gott að grípa í góðan reyf-
ara. Fyrr á ámm þýddi Olafur tals-
vert af bamabókum á gott og
vandað íslenzkt mál.
Ólafur flíkaði ekki tilfínningum
sínum, en fylgdist vel með. Er við
ræddum saman fyrir nokkra komst
ekki annað að í huga hans en
frammistaða íslenzka landsliðsins í
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik í Sviss. Hann hafði skoð-
anir á þeim málum eins og öðmm
og þegar sezt var niður í góðu tómi
var frá ýmsu forvitnilegu að segja.
Ólafur mundi tímana tvenna og var
minnugur á liðna tíð.
Ása og Ólafur áttu þijú böm
saman: Þórhildi, sem er gift David
Fuegi bókasafnsfræðingi, og starf-
ar hann sem ráðgjafí hjá stofnun
tengdri enska menntamálaráðu-
neytinu. Þau búa í Colehester. Einar
málarameistara, sem kvæntur er
Kristjönu Guðmundsdóttur, og
Ingileif hjúkmnarfræðing, sem gift
er þeim er þetta ritar. Stjúpsonur
Ólafs er Friðrik Bjömsson, heild-
sali, giftur Herdísi Gunngeirsdótt-
ur. Ólafur var Friðrik alla tíð sem
bezti faðir.
Hér verður ekki nánar stiklað á
æviatriðum Ólafs Einarssonar,
honum hefði ekki heldur verið slík
upptalning að skapi. Hafí hann
þökk fyrir allt og allt. Ásu tengda-
móður minni, sem bjó Ólafí fallegt
og gott heimili, votta ég mína inni-
legustu samúð á sorgarstundu.
Ágúst Ingi Jónsson
Kveðja frá stjúpsyni
Stjúpfaðir minn, Olafur Einars-
son, er látinn. Banamein hans var
ógnvaldurinn mikli, krabbameinið.
Ég get ekki látið hjá því líða að
minnast hans með örfáum orðum,
þó ekki væri nema til að þakka
honum fyrir meira en fjömtíu ára
samfylgd.
Ég var vart tveggja ára er móðir
mín giftist stjúpa mínum. Eignuð-
umst þau síðan þijú böm og ólst ég
upp með systkinum mínum og aldrei
fann ég annað en að ég væri einn
af hans bömum. Ef eitthvað var,
þá naut ég frekar forréttinda, eins
og stundum vill verða með fyrsta
bam.
Margs er að minnast og af mörgu
að taka. Mér er ennþá minnisstætt
er stjúpi minn keypti sitt fyrsta hús
og öll sú vinna og tími sem fór í
það að stækka og breyta, en alla
hluti vann hann sjálfur og skipti
þá ekki máli, hvort hann var að
múra, mála eða smíða, alltaf sama
fágaða handbragðið á öllu, eins og
um mublusmíði væri að ræða.
Seinna átti ég eftir að kynnast
þessu ennþá betur, er við byggðum
saman tvíbýli. Naut ég þá sem oftar
góðs af, því ekkert var það verk
sem hann hafði ekki gott vit á, eða
treysti sér ekki í. Sama var að segja
um garðinn. Húsið var varla komið
upp er hann hafði hannað lóðina,
teiknað garðinn og gróðursett tré
og plöntur og þekkti hann nöfnin
á öllum þeim fjölmörgu tegundum
sem hann gróðursetti.
Ekki er lengra en sex ár síðan ég
byggði mitt annað hús og þau vom
ekki mörg kvöldin eða helgamar
sem stjúpi minn mætti ekki og alltaf
var það saman sagan, ætíð tók
hann að sér erfiðustu og leiðinleg-
ustu verkin.
Ólafur var að mörgu leyti sér-
kennilegur maður og ekki fóm
skoðanir okkar alltaf saman. Kom
það þá stundum fyrir að maður lét
hann fá það óþvegið, eins og sagt
er, en allt kom fyrir ekki, stjúpi
minn haggaðist aldrei og var alltaf
sama rósemin yfír honum, sama á
hveiju gekk. Þegar maður hafði
látið gamminn geysa þá var þetta
búið og gleymt og aldrei vissi ég
til þess að hann talaði illa um
nokkum mann.
Ólafur var vel menntaður og
fylgdist vel með, hvort sem um var
að ræða innlend eða erlend málefni.
Það var alveg saman um hvað var
verið að ræða, ætíð hafði hann
eitthvað til málanna að leggja. Fékk
maður það þá gjaman í fyrirlestrar-
formi og fannst manni stundum nóg
um, því það var alveg ótrúlegt hvað
hann gat fjölyrt um allt milli himins
og jarðar. Helztu áhugamál hans
vom skákin og lestur bóka um vís-
indaleg málefni.
Ólafur var óvenju nægjusamur
maður og gerði litlar kröfur til lífs-
ins og sóttist ekki eftir veraldlegum
auði. Hann var alla tíð bindindis-
maður á vín og tóbak, heimakær
og undi sér best við tafl og lestur
góðra bóka. Með þessum fátæklegu
orðum kveð ég stjúpa minn og bið
algóðan guð að blessa sálu hans.
Friðrik Björnsson
Leiðrétting
I minningargrein hér í blaðinu á
sunnudaginn var misritaðist nafn
Svend Ove Andersen. Ove varð
Aage. Um leið og þetta er leiðrétt
er beðist afsökunar á þessari misrit-
un á nafni hins látna.
Birting afmæl-
is- ogminning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar getið.
Sama gildir ef sálmur er birtur.
Meginregla er sú, að minningar-
greinar birtist undir fullu nafni
höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins em
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar em
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
t
Eiginmaður minn, faðir, bróðir, tengdafaöir og afi,
GUNNAR MAGNÚS BJÖRNSSON,
Löngufit 16, Garðabæ,
lést 24. mars í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Erla Ársælsdóttir,
Dagmar Gunnarsdóttir, Örn Jóhannesson,
Ársæll Gunnarsson, Erla Inga Skarphóðinsdóttir,
Jóhanna Gunnarsdóttir, Lúðvík Þorvaldsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín,
ÁSLAUG JOHNSEN,
lést þriðjudaginn 25. mars.
Jóhannes Ótafsson
t
Þökkum af alhug samúð og vinarhug við andlát og jaröarför
JÓNS ÞORKELSSONAR,
Kothúsum,
Garði.
Eggert Jónsson, Guðrún Jónsdóttir,
Bjarni Jónsson, Ásta Árnadóttir,
Guðríður Jónsdóttir, Reynir Markússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín,
ANNA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Kárhóli,
andaðist í Landspítalanum laugardaginn 22. mars.
Minningarathöfn fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 26.
mars kl. 15.00.
Jarðsett verður frá Einarsstaðarkirkju laugardaginn 29. mars kl.
14.00.
Ingi Tryggvason.
t
Faðirokkar,
ÞORGILS JÓNSSON,
Ægissíðu,
Rangárvallasýslu,
verður jarðsettur frá Oddakirkju laugardaginn 29. mars kl. 14.00.
Börnin.
t
ÁSTA EGGERTSDÓTTIR FJELDSTED
verður jarðsungin frá ísafjaröarkirkju fimmtudaginn 3. apríl, kl.
14.00.
Börn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Við þökkum innilega þá samúð og vinsemd sem okkur var sýnd
við andlát og útför
JÓHANNS FRIÐRIKSSONAR
frá Efri-Hólum.
Gunnlaug Eggertsdóttir,
Ingimar Jóhannsson,
Magnea Jóhannsdóttir,
Eggert Jóhannsson,
Friðrik Jóhannsson,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Þórný Jóhannsdóttir,
Lilja Oddsdóttir,
Sölvi Sveinsson,
Inga Bravell,
Hildur Guðnadóttir,
Hans Gunnarsson
barnabörn og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö við andlát og jarðarför
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Naustvík.
Anna Margrét Guðmundsdóttir,
Ingibjörg K. Guðmundsdóttir,
Sveinn Guðmundsson,
Guðfinna M. Guðmundsdóttir,
Áslaug Guðmundsdóttir,
Kjartan Guðmundsson,
Guðbjörg Jóna Guðmundsdóttir,Skúli Helgason,
Þóra K. Guðmundsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Jónas Kristjánsson,
Jónína Sturlaugsdóttir,
Ágúst Lýðsson,
Bernharð Andrésson,
Svanhildur Eyjólfsdóttir,
t
Innilegar og bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
fráfall eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
KJARTANS BJÖRNSSONAR,
Hringbraut 52, Keflavík.
Guð blessi ykkur öll.
Katrín Kristjánsdóttir,
Björn Eggert Kjartansson,
Ólöf Jóhanna Young, Alan E. Young,
Katrín Farren, William J. Farren,