Morgunblaðið - 24.05.1986, Síða 5

Morgunblaðið - 24.05.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986 5 Bæjarstj órnarkosningarnar: Framboðsfundi sjónvarp- að frá Akureyri í dag KOSNINGASJÓNVARP hófst síðastliðinn mánudag með fundi fram- bjóðenda í Reykjavík. Sjónvarpað verður frá framboðsfundi á Akureyri í dag, laugardaginn 24. maí. Fundurinn hefst klukkan 15.00 og stendur yfir í tvær klukkustundir. Umsjónarmaður er Erna Indriðadóttir. Á morgun, sunnudag, koma frambjóðendur í Kópavogi fram í sjónvarpssal. Fundurinn hefst klukkan 14.00 á því að fluttar verða framboðsræður. Síðan verða hring- borðsumræður í klukkustund. Umsjónarmaður er Einar Öm Stef- ánsson. Að loknum fundinum, eða klukk- an 18.00, verður framboðsfundur vegna bæjarstjómarkosninganna í Hafnarfirði. Umsjónarmaður hans , verður Ólafur Sigurðsson frétta- maður. Fyrst flytja frambjóðendur ræður, en síðan svara fulltrúar framboðslistanna spumingum fréttamannsins. Næsti framboðsfundur í sjón- varpssal verður föstudaginn 30. maí kl. 22.00. Þá taka fulltrúar frá framboðslistum í Reykjavík þátt í hringborðsumræðum. Umræðun- um stýrir Páll Magnússon. Morgmiblaðið/Júliua Nýr lögreglubíll LÖGREGLAN i Reykjavík hefur tekið i notkun nýja bifreið af gerðinni Volkswagen Caravelle Syncro, sem er fyrsti billinn af þeirri gerð sem lögreglan tekur í notkun. Bíllinn er með si- tengdu aldrifi og fuil læsing á bæði aftur- og framdrifi sem gerir það að verkum að hér er um að ræða „hraðakstursbíl með miklum torfærueiginleikum", að sögn Finnboga Eyjólfsson- ar, söiustjóra hjá Heklu-umboðinu. BiUinn rúmar 9 menn og verður fyrst um sinn í þjónustu slysarannsóknadeildar lögregl- unnar. Ættleiðingar barna frá Sri Lanka: Ráðuneytið stöðvar afgreiðslu ættleiðingarmála frá einum manni DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið gaf i gær út fréttatilkynningu þar sem því er lýst yfir að ráðu- neytið telur sér ekki fært að heimila frekari ættleiðingar barna frá Sri Lanka fyrir milli- göngu ákveðins aðila sem séð hefur um slík mál. Ráðuneytið leggur sérstaka áherslu á að einungis sé um að ræða stöðvun á afgreiðslu mála frá þessum ákveðna milligöngumanni og að önnur ættleiðingarmál hljóta áfram venjulega afgreiðslu. Yfírlýsingu þessa birtir dóms- og kirkjumálaráðuneytið í kjölfar blaðaskrifa sem hafa orðið að und- anfömu um ættleiðingar bama frá Sri Lanka. í fréttatilkynningunni kemur fram að í febrúar sl. bárust ráðu- neytinu umsagnir um meðferð til- tekins ættleiðingarmáls á Sri Lanka og var á grundvelli þeirra talið nauðsynlegt að kanna málsatvik og leita upplýsinga um milligöngu- manninn í Sri Lanka. Var óskað skýringa frá honum og hefur hann svarað ráðuneytinu. Ráðuneytið leitaði einnig upplýsinga um milli- göngumanninn hjá stjómvöldum sem annast ættleiðingamiál á Norð- urlöndum og hafa svör þeirra einnig borist. Á grundvelli þessara upplýs- inga telur ráðuneytið sér ekki fært að heimila frekari ættleiðingar fýrir milligöngu þessa manns. Þessi nið- urstaða og þau gögn sem hún er byggð á hafa verið kynnt stjóm félagsins íslenskrar ættleiðingar. Félagið vinnur nú að því í samvinnu við ráðuneytið að finna nýja lausn á vanda þeirra sem óska eftir að ættleiða böm. Jafnframt segir í fréttatilkynn- ingunni að vegna sérstakra óska þeirra sem málið varðar sé ekki unnt að skýra nákvæmar frá mála- vöxtum. Norræna húsið: Ole Kortzau opnar sýningu SÝNING á verkum danska lista- mannsins Ole Kortzau verður opnuð í Norræna húsinu í dag. Kortzau er arkitekt að mennt, en hann hefur hlotið frægð og viðurkenningu fyrir grafiklist sína, textílmynstur, postulín, silf- urmuni og húsgögn. Ole Kortzau er ^ölhæfur og frumlegur listamaður, sem sækir fýrirmyndir að verkum sínum í efnivið náttúrunnar. Hann sýndi verk sín fyrst á sýningu í Marien- borg 1973 og era sýningar hans nú orðnar 25 um heim allan, í Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og Japan. Á þessu ári verða verk hans sýnd^á tveim stöðum, í Frakklandi og á íslandi. Verslunin Epal gengst fyrir sýn- inguni hér á landi. Listamaðurinn kemur hingað og verður viðstaddur opnunina, en á sýningunni verður sýnt úrval grafíkverka og plakata eftir Kortzau, textílmyndir, postu- línsmunir, silfurgripir og húsgögn. (Úr fréttatilkynningru) Danski listamaðurinn Ole Kort- zau. Forsala aðgöngumiða á Laugardaisvelli sunnudag frá kl. 10.00 f .h. þriðjudaginn 27. og fimmtudag- inn 29. maí frá kl. 12.00 á sama stað. Komið og sjáið frábæra knatt spyrnu góðra liða 25. maí kl. 17.00 ísland — írland 27. maí kl. 19.00 íriand—Tékkóslóvakía 29. maí kl. 19.00 ísland - Tékkóslóvakía breifitiý Mjum TÖLVUPAPPÍR flílFORMPRENT Hverfitgötu 78. •imar 2S980 -r2S568. húsgögn stðÍAOT hf Tepprlrnd í knattspyrnu á Laugardalsvelli 25., 27. og 29. maí

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.