Morgunblaðið - 24.05.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAI1986
19
Frímerkjasýning í Færeyjum
og tijáskemmdir engar. Lúsataln-
ing sýndi þó að stofninn var í örum
vexti: 8—9 af hvetjum 10 lúsum
sem fundust voru ungar.
Snemma í júli voru umsjónar-
menn tijágróðurs í Reykjavík og á
Suðvesturlandi varaðir við hættu á
haustplágu og beðnir um að fylgjast
vel með og grípa til vamaraðgerða
ef með þyrfti. Einnig voru garðeig-
endur varaðir við haustplágu í fjöl-
mjðlum. Þessi aðvörun var ítrekuð
um mánaðamót ág./sept. og jafn-
framt birt í ársriti Skógræktarfé-
lags Islands. Því miður vora vamað-
arorð ekki tekin alvarlega og í okt.
og nóv. fór að bera á skemmdum
á greni í Reykjavík. Skemmdimar
jukust jafnt og þétt fram í mars,
en þá var ástand tijánna orðið eins
og það er núna. Koma mátti í veg
fyrir skemmdir með því að úða trén
í júli, ágúst eða september jafnvel
í október. Vorúðun skilaði litlum
árangri gegn þessari plágu. Greni
sem úðað var um vor fór víða mjög
illa.
Árlega þarf að fylgjast með
sitkalús. Hún er meindýr sem hefur
burði til að fara mjög illa með
grenitré, getur jafnvel drepið þau
þegar verst lætur. Þegar 'hætta er
á ferðum þarf að grípa til vama
gegn henni. Miklu máli skiptir þá
að velja rétt efni og beita þeim á
réttum tíma.
Jón Gunnar Ottósson
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Frímerkjasýning verður
haldin i Norræna húsinu í Þórs-
höfn í Færeyjum dagana
26.-29. júní nk. Tilefnið er
það, að á þessu ári er Félag
frímerkjasafnara í Færeyjum
(Faroya Filatelistfelag) 50 ára
og eins hefur póststjórn Fær-
eyja starfað í tíu ár sem sjálf-
stæð stofnun. Frímerkjasýning
þessi nefnist NORÐATLAN-
TEX-86.
Á þessari frímerkjasýningu
verða um 250 rammar í sam-
keppnisdeild, en auk þess er nor-
rænum póststjómum boðin þátt-
taka í heiðursdeild. I samræmi við
það, sem gert var fyrir tíu áram,
þegar færeyskir safnarar héldu
sýninguna N ORÐ ATLANTEX-
76, hefur vinafélögum á öðram
Norðurlöndum einnig verið boðið
að taka þátt í sýningunni núna
og eins félögum á Hjaltlandseyj-
um og Orkneyjum.
Þetta verður svonefnd þjóðleg
frímerkjasýning (national) og
reglur hennar miðaðar við reglur
Landssambands danskra frí-
merkjasafnara. Þátttökuskilyrðin
era þau, að sýnendur séu félagar
í einhveiju frímerkjafélagi eða
klúbb, sem á aðild að landssam-
Norræna húsið í Þórshöfn.
bandi, sem er í Alþjóðasambandi
frímerkjasafnara (FIP). Vemdari
NORÐATLANTEX-86 verður Atli
P. Dam, lögmaður Færeyja. Póst-
stjóm Færeyja starfrækir sér-
stakt pósthús á sýningunni, þar
sem sérstimpill verður notaður.
Sýningamefnd skipa Súni Vint-
er formaður, Hendrik Rubeksen
varaformaður, Ingvard Jacobsen
gjaldkeri og Knud Wacher fyrir
Postverk Faroya.
Islenzku frímerkjasöfnuram
var boðin þátttaka í NORÐATL-
ANTEX-86, og hafa sex safnarar
þekkzt boðið og sýna í 29 römm-
um. Árið 1976 urðu íslenzkir sýn-
endur fimm og rammafjöldi þrett-
án. Enginn þeirra tekur þátt í
þessari sýningu í sumar. Margs
konar efni verður sent héðan í
samkeppnisdeild. Guðmundur
Ingimundarson sýnir Vestmanna-
eyjar, Hálfdan Helgason íslenzk
bréfspjöld 1879-1941, Hjalti Jó-
hannesson íslenzka póststimpla
af ýmsum gerðum, Jón Aðalsteinn
Jónsson Danmörk 1870—1904,
Ólafur Elíasson Gullfoss-frímerki
1931—32 á bréfum og snyfsum,
þar sem lesa má úr margvísleg
burðargjöld, og Sigurður Þormar
íslenzka stimpla, sem kallaðir
hafa verið svissneskir stimplar
eða brúarstimplar eftir gerð
þeirra. Era þeir flestir á heilum
umslögum og sumir næsta sjald-
séðir. Öll hafa þessi framan-
greindu söfn komið fram á sýn-
ingum hér heima, og era því
mörgum kunn.
Enn sem komið er hef ég engar
nákvæmar spumir haft af frí-
merkjaefni því, sem sýnt verður
á NORÐATLANTEX-86, en vafa-
laust verður þar margt áhugavert
til sýnis. Þátttaka verður öragg-
lega mjög mikil, og marka ég það
af því, að íslenzkir safnarar gátu
ekki fengið allan þann ramma-
fjölda, sem þeir óskuðu eftir.
Ég álít sjálfsagt, að íslenzkir
frímerkjasafnarar taki þátt í frí-
merkjasýningum á Norðurlönd-
um, þegar færi gefst á. Á þann
hátt kynna þeir starfsemi frí-
merkjasafnara hérlendis meðal
vina og frænda. Þá er ekki síður
ástæða til þátttöku meðal næstu
nágranna okkar, þegar þeir halda
sýningar hjá sér. Allt ætti það að
auka á samvinnu og skilning
meðal frímerkjasafnara og verða
um leið góð landkynning.
Því miður mun engin hópferð
verða héðan á NORÐATLANT-
EX-86, en ég hvet með þessum
línum alla þá íslendinga, sem
gista Færeyjar síðustu viku júní-
mánaðar, til að heimsækja af-
mælissýningu frænda okkar í
Norræna húsinu í Þórshöfn.