Morgunblaðið - 24.05.1986, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986
Aiien frá IAD stal senunni.
Loftmótstaða: CD 0.27. Vél:
ýmislegt, t.d. tvær BMW mótor-
hjólavélar eða 2.8 1 Ford, þú
velur.
Tormo ’86
Þórhallur Jósepsson
61. alþjóðlega bílasýningin í
Torino á Italíu var haldin fyrir
skömmu í Lingotto-sýningar-
höllinni þar í borg. Þessi sýn-
ingarhöll á sér merka sögu að
baki. Húsið er geysistórt og var
aðeins hluti af því notaður
undir sýninguna (sá hluti er
reyndar margfaldlega stærri
en Laugardalshöllin okkar).
Þessi bygging var tekin í notk-
un árið 1920 og var fyrsta
samsetningarverksmiðja FIAT
þar sem allt var vélvætt og á
einum stað. Nú eru breyttir tím-
ar og húsið hentar ekki lengur
til bílaframleiðslu og þá er það
notað til annarra verkefna, t.d.
sýninga. Vel má sjá þegar inn
er komið að þarna hefur mikil
„fabrikka" verið starfrækt, enn
mótar fyrir festingum af ýmsu
tagi í loftum og víða sjást stigar
og gangbrautir um hæðir. Sér-
staka athygli vekur hve vel
hefur verið hirt um bygging-
una, enda er hún öll hin snyrti-
legasta.
Sýningin skiptist í fjóra aðal-
hluta og voru almennir bílar í
einum, sérsmíðaðir í öðrum, sendi-
bílar og jeppar í þeim þriðja og
bílhlutir af öllu tagi í hinum fjórða.
Eins og við er að búast var
athygli gestanna mest bundin við
nýjungar þær sem kynntar voru
og einkum var að fínna meðal
sérsmíðaðra bfla, þótt einnig fynd-
ust þær í hinum deildunum.
Bretar stálu senunni. Bretar
hafa hingað til ekki verið þekkt-
astir fyrir frumleika eða listræna
sköpunargleði í bílaframleiðslu
sinni. Haft er fyrir satt að þegar
Bugatti og Bentley voru keppina-
utar í Grand Prix millistríðsá-
Skyldi hann taka Subaru og Tercel fram þessi? Nissan með drif
á öllum, bíður eftir að vera hleypt í snjóinn á íslandi.
ítalskur lúxusjeppi: Magnum 4x4 framleiddur
af Rayton Fissore. (Fjær sést í afturhlutann á
Lamborghini LM-002.) Leðurklæddur að innan
mundi Magnum kosta tæpar þtjár milljónir
króna hingað kominn.
ranna, hafí Ettore Bugatti lýst
þeim bresku svo: „Þetta eru hrað-
skreiðustu vörubflar sem ég hef
séð.“ Nú er öldin önnur, á meðan
hinir fornfrægu ítölsku forystu-
menn í bílahönnun, Pininfarina,
Bertone, Giugiaro og fleiri áttu í
basli með að ná athygli sýningar-
gestanna, hrósuðu hinir bresku
IAD og Rover sigri. ítalirnir áttu
greinilega í nokkrum vandræðum
með að losa sig frá hugmyndum
sem hafa áður verið kynntar og
áhorfendur fengu á tilfínninguna
að þeir hefðu séð þetta allt áður,
auk þess sem helstu bflar þeirra
voru svo framúrstefnulegir í
hönnun að telja má víst að þeir
verði ekki framleiðsluvara. Best
tókst þeim upp þegar þeir tóku
fjöldaframleidda bíla og gáfu þeim
nýtt og óneitanlega fegurra útlit
eins og t.d. Alfan sem Pininfarina
fór höndum um.
IAD (Intemational Automotive
Design) frá Sussex á Englandi,
tóku sýningargesti með trompi.
Það tromp heitir Alien og er engu
öðru farartæki líkt. Hönnuðimir
em ungir menn og greinilega að
springa úr sköpunargleði og ekki
vantar þá hugmyndimar. Þeir
segja sjálfír að með þessu fyrir-
bæri vilji þeir sameina ímyndir
afls og listræns skúlptúrs.
Rover kynnti CCV og gerðu það
á einstaklega breska vísu. Þó að
bfllinn hefði fremur átt heima
meðal sérsmíðuðu bílanna, þar
sem hann er hugmynd Rover um
framtíðina, þá var hann einfald-
lega settur á bakvið aðalsýningar-
svæði Rover og bar ekki mikið á
honum þar. Það kom þó ekki í
veg fyrir að hann nyti verulegrar
athygli, enda er hann sérlega
laglegur og ber það með sér að
hann á ekki langt í land með að
komast á framleiðslustigið og það
eitt er næg ástæða til að vekja
áhugamanna.
Þessir bflar voru, hvor á sinn
hátt, tákn um að lóks fari að vora
í breskum bflaiðnaði eftir mikla
lægð undanfarin ár.
Ef hægt er að tala um að eitt-
hvað eitt atriði hafi verið rauði
þráðurinn í þessari sýningu, þá
er það bætt nýting og á við um
jafnt orku sem rými. Dieselbílar
voru áberandi, t.d. FIAT Uno
turbo D og Panda D, meira að
segja Range Rover var kynntur
með turbo D. Minni loftmótstaða
er kjörorðið í dag og núorðið er
varla sá bílaframleiðandi að hann
þreifí ekki a.m.k. fyrir sér með
fjórhjóladrif. Síðar verður hér sagt
meira frá einstökum tegundum,
en núna fylgja myndir af fáeinum
sýningargripum.
Renault Espace, rýmíð nýtt til fulls. Svar Frakka við Mitsubishi
Space Wagon og fleiri slíkum.
Sérstædir bílar
Ljótastur, dýrastur og duglegastur
ÁTTU rúmar sjö milljónir?
Viltu kaupa bíl fyrir þær
krónur og viltu að allir sjái
það umsvifalaust að þarna
ferð þú á dýra torfærutröllinu
þínu og lætur enga ófærð
hindra þig í að komast þína
leið? Hvemig væri þá að fá
sér einn Lamborghini LM-
002, dýrasta, ljótasta og dug-
legasta jeppann á markaðin-
um?
Eins og nærri má geta er bíll
þessi um flest einstakur, enda
hefur Lamborghini getið sér orð
fyrir annað en hversdagsleika í
framleiðslu sinni á tryllitækjum
og þótt þau séu gerð fyrir slétt
malbik, þá nýtast margir eigin-
leikar þeirra á torfærutröllinu.
Þetta er enginn silakeppur þótt
groddalegt útlitið minni um
margt á ónefndan breskan
jeppa, vélin er 5167 cm 3 og
skilar 450 hestöflum við 6800
snúninga hraða og togkraftur-
inn er ekki minni en 51 kgm
við 4500 snún. Þetta dugir til
að rífa bflinn upp í 100 km.
hraða á 8,5 sekúndum og há-
markshraðinn er 201 km/klst
og er hann þó heil 2700 kg.
tómur! Eins og vænta má, þarf
svolítinn bensínsopa til að fram-
leiða allt þetta afl og tankurinn
tekur heila 290 lítra. Dýrt? Ef
þú hefur efni á að kaupa bílinn
þá hefurðu væntanlega ekki síð-
ur efni á að reka hann (ekki er
gefíð upp hve miklu hann eyðir!).
Boddyið er allt úr áli og einnig
grindin. Til að sjá virðist vera
heldur óheflað handbragð á öllu,
en þegar grannt er skoðað
kemur í ljós að vinnan er vön-
duð, nánast óaðfínnanleg. Að
innan er allt í vandaðasta leðri
og sportlegt um að litast, sæti
eru fyrir fjóra inni og fjóra úti,
þ.e. í lestinni afturí.
Kassinn er fímm gíra og er
fímmti yfírgír. Drif eru læst að
hluta, 25% að framan og 75%
að aftan, sama er að segja um
millikassann, 75% læsing og
hægt að 'allæsa með handafli.
Fjöðrun er sjálfstæð á hveiju
hjóli og að framan eru diska-
hemlar með fjórum dælum á
hvoru hjóli, að aftan eru 12“x3“
skálar.
Hæð undir miðjan bfl er 42,5
cm og undir drifkúlur 29,5 cm
svo að ekki ættu að verða vand-
ræði með að stikla yfir ófærum-
ar og flennibreið Pirelli 325/65
VR 17 radialdekkin ættu að
tryggja grip við allar aðstæður.
Víst má telja að þessi tröl-
laukni jeppi nyti sín við við íslen-
skar aðstæður, en hvort það er
sjö milljóna króna virði, tja -
dæmi hver fyrir sig.