Morgunblaðið - 24.05.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986
23
Paul Zukofsky stjómar Kammersveit Reykjavíkur í Bústaðakirkju. Morgunblaðið/ELF
Kammersveit Reykjavíkur í Bústaðakirkju
Frumflytur 7. sinfóníu
Brukners á Islandi
Verkið líklega ekki flutt af kammersveit síðan 1921 í Vínarborg
„EPTIR ÞVI, sem ég kemst næst hefur sjöunda sinfónía Antons
Bmckner í útsetningu Amolds Schönberg fyrir kammersveit
ekki verið flutt á tónleikum síðan i Vínarborg 1921,“ sagði Paul
Zukofsky, hljómsveitarstjóri og fiðluleikari, sem stjóraar flutningi
verksins á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í Bústaðakirkju
kl. 20.30 á sunnudagskvöld.
Paul Zukofsky er íslenskum
tónlistarunnendum af góðu kunn-
ur, en hin síðari ár hefur hann
stjómað Sinfóníuhljómsveit æsk-
unnar hér á landi við góðar undir-
tektir. Um það viðfangsefni, sem
hann ræðst nú í með Kammersveit
Reykjavíkur, sagði hann, að fyrir
65 til 70 ámm hefðu tónlistar-
menn í Vín gripið til þess ráðs
að útsetja stærri hijómsveitarverk
fyrir kammersveit til að gefa
þannig fleiri áheyrendum tæki-
færi til að _ kynnast verkum
meistaranna. Á þessum tíma hefði
nútímaleg tónlist af þessu tagi
ekki átt upp á pallborðið, en innan
tónlistarfélagsins í Vínarborg hafi
ríkt mikil víðsýni og þar hafi
menn lagt sig fram um að kynna
menn á borð við Bruckner, Strav-
insky, Ravel, Debussy að
ógleymdum Mahler.
Zukofsky sagði það til marks
um þann árangur, sem náðst hefði
aðeins á fáeinum áratugum í ís-
lensku tónlistarlífi, að hér á landi
skyldu verk eftir þessa meistara
alkunn. Það væri til marks um
að íslendingar hefðu náð langt á
tiltölulega skömmum tíma en
auðvitað mætti gera betur og
ætti að gera betur.
Þegar hann var spurður hvers
vegna hann hefði ákveðið að ráð-
ast í þetta verkefni með kammer-
sveitinni, sagði hann, að það væri
heillandi bæði vegna listræns gild-
is verksins og einnig með vísan
til sögu þess. „Ef ástæða var til
að kynna Bruckner með þessum
hætti í Vínarborg árið 1921, er
ekki síður ástæða til að gera það
í Reykjavík nú,“ sagði Zukofsky.
„Þetta er í fysta sinn sem sjö-
unda sinfónía Bruckners er flutt
á íslandi og Kammersveit Reykja-
víkur valdi hana vegna þess að
hljóðfæraleikaramir vilja takast á
við ögrandi verkefni og ráðast í
ævintýri. Með kammersveit er
unnt að gera svo margt, sem
stærri hljómsveitir leyfa ekki, þar
eða starfsemi þeirra er í föstum
skorðum. Hljóðfæraleikaramir
eru einnig óragir við að taka
áhættu í leik sínum,“ saði Paul
Zukofsky að lokum.
í Kammersveit Reykjavíkur á
tónleikum í Bústaðakirkju á
sunnudagskvöld koma fram: Rut
Ingólfsdóttir, fiðla, Júlíana Elín
Kjartansdóttir, fíðla, Helga Þórar-
insdóttir, lágfíðla, Amþór Jóns-
son, selló, Richard Kom, kontra-
bassi, Einar Jóhannesson, klari-
nett, Joseph Ognibene, hom,
Guðríður Steinunn Sigurðardóttir,
píanó, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir, píanó og Hörður Áskelsson,
harmóníum.
Sumarbúðir fyrir
fatlaða á Laugarvatni
STJÓRN íþróttasambands fatl-
aðra hefur ákveðið að starfrækja
sumarbúðir fyrir fatlaða í sumar.
Verða þessar sumarbúðir á
Laugarvatni og megináherslan
lögð á íþróttir og útivist. M.a.
verða kenndar íþróttir og ieikir,
farið í útreiðartúra og bátsferðir
og á kvöldin verða haldnar
kvöldvökur.
Haldin verða tvö námskeið. Það
fyrra frá l.-ll. ágúst og það síðara
frá 12.-22. ágúst. Alls geta 39
þátttakendur tekið þátt í hvom
námskeiði.
Kostnaður vegna þátttöku í
sumarbúðunum er kr. 10.000 pr.
þátttakenda. í því verði er m.a.
innifalið ferðir milli Reykjavíkur og
Laugarvatns, fæði, gisting og
■ kennsla. Einnig afnot af hestum og
bátum.
Umsóknum um dvöl í sumar-
búðunum verður að skila á sérstök-
um eyðublöðum fyrir 20. júní nk.
Þessi eyðublöð er unnt að fá á
skrifstofu íþróttasambands fatl-
aðra, hjá svæðisstjómum um mál-
efni fatlaðra, Öryrkjabandalaginu
og aðildarfélögum þess og Sjálfs-
bjargarfélögum um land allt. Ofan-
greindir aðilar veita einnig allar
upplýsingar um sumarbúðimar.
(Fréttatilkynningar)
Hrafnhildur Hagalín Guðmunds-
dóttir.
Ólöf Þorvarðardóttir.
Þrennir tónleikar hjá
Tónlistarskólanum
Tónlistarskólinn i Reykjavík
heldur þrenna tónleika dagana
25., 26. og 28. mai nk.
Sunnudaginn 25. maí verða burt-
fararprófstónleikar Hrafnhildar
Hagalín Guðmundsdóttur, gítar-
leikara, í sal skólans, Skipholti 33,
og hefjast þeir kl. 17.00. Á efnis-
skrá era verk eftir L. Roncalli, J.S.
Bach. M. Giuiliani, Boccherini og
Brouwer. Kvintett með Hrafnhildi
skipa Hildigunnur Halldórsdóttir,
fíðla, Kristján Matthíasson, fíðla,
Eyjólfur Alfreðsson, víóla og Sig-
urður Halldórsson, selló.
Mánudaginn 26. maí verða burt-
fararprófstónleikar Ólafar Þor-
varðsdóttur fiðluieikara í sal skól-
ans, Skipholti 33, þeir hefjast kl.
20.30. Ólöf leikur verk eftir
Brahms, J.S. Bach, E. Bloch, Áskel
Másson og Beethoven. Lára Rafns-
dóttir leikur með á píanó.
Miðvikudaginn 28. maí verða síð-
ustu tónleikar skólans á þessum
vetri. Hljómsveit skólans frumflytur
verk eftir Finn Torfa Stefánsson.
Þetta er lokaverkefni Finns frá tón-
fræðideild skólans. Stjómandi er
Atli Heimir Sveinsson.
Þá mun hljómsveitin einnig flytja
Konsert fyrir lágfíðlu eftir Hoff-
meister, einleikari með hljómsveit-
inni í því verki er Guðmundur Krist-
mundsson víóluleikari og er þetta
síðari hluti einleikaraprófs hans.
Stjómandi er Mark Reedman. Þess-
ir tónleikar verða í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð og hefjast kl.
20.30.
Aðgangur á tónleikana er ókeyp-
isogöllumheimill.
Samvinnuskólinn á Bifröst:
Inntökuskil-
yrðum breytt
Samvinnuskólanum að Bifröst
var slitið 1. maí sl. í 68. sinn, en
alls stunduðu 111 nemendur nám
við skólann í vetur, þar af 33 í
framhaldsdeild sem starfar í
Reykjavík. Hæstu einkunn á
samvinnuskólaprófi hlaut Hulda
Björg Baldvinsdóttir, 9,12. Fyrir
liggur að breyta skipulagi og
starfsháttum skólans nú miðað
við það sem áður hefur verið,
en sl. haust markaði stjórn
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga stefnuna og skólanefnd
fylgdi málinu eftir í samráði við
menntamálaráðuneytið.
Héðan í frá verður umsækjandi
að hafa lokið a.m.k. tveggja vetra
námi á framhaldsskólastigi á við-
skiptasviði eða öðram sambærileg-
um undirbúningi til að fá inngöngu
í skólann, en áður nægði grann-
skólapróf. Umsóknarfrestur um
skólavist fyrir næsta ár rennur úr
10. júní. Nemendur munu nú út-
skrifast frá skólanum að loknu
tveg,aa vetra Samvinnuskólanámi
með stúdentspróf sem m.a. veitir
rétt til háskólanáms.
Þetta kom m.a. fram í ræðu
skólastjóra, Jóns Sigurðssonar, við
skólaslitin. í ræðu sinni nefndi Jón
m.a. nýjungar í félagsmála- og
starfsfræðslunámskeiðum Sam-
vinnuskólans. Hann sagði: „Enn
fremur fól aðalfundur Sambands
íslenskra samvinnufélaga á sl.
sumri Samvinnuskólanum að undir-
búa og gangast fyrir nýjum flokki
námskeiða fyrir konur, jafnt f hópi
starfsmanna sem félagsmanna
samvinnuhreyfíngarinnar, um að-
stöðu, áhrif og þátttöku kvenna í
störfum, félagslífí og ákvörðunum
samvinnuhreyfingarinnar. Þessi
námskeið mynda nokkurs konar
keðju með aðgreindum þrepum. Þau
hafa hlotið nafnið „kvennaframi"
og era þegar hafín og fleiri eru
fyrirhuguð á næstunni.“
Kosningahappdrættið
stendur straum af
kosningabaráttunni
Sjálfstæðlsmenn, grelðum hetmsenda gíróseðla.
Skrifstofa happdrættislns i Valhöll er opin alla daga
kl. 09.00 — 22.00. Aðeins dregið úr seldum miðum.
dregið 27 maí 1986 wmmmmmmmm
Glæsilegir vinningar að verðmæti kr. 1.749.780,-
3 fólksbifreiðir:
Nissan Cherry GL 5 dyra, Corolla 1300 5 dyra
og Suzuki Swift 5 dyra.
14 glæsilegir ferðavinningar
SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN