Morgunblaðið - 24.05.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986
27
Sláðu á þráðinn!
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík bjóða
borgarbúum upp á símaviðtalstíma laugardaginn 24.
maí nk. kl. 13—17.
Hringið í síma 82900 og við munum leitast við að
gefa svör við spurningum ykkar um borgarmálefnin
og stefnu okkar sjálfstæðismanna.
FRAMBJÓÐENDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í REYKJAVÍK
Hagnaður
Volvo
Lundi. Frá Pétri Péturssyni,
fréttaritara Morgunbladsins.
Volvofyrirtækið hefur sýnt
aukinn gróða undanfarin ár, sér-
staklega af framleiðslu fólksbíla
sem stendur nú undir um 80 pró-
sentum af heildarhagnaði.
Uppgjörið fyrir fyrsta ársíjórð-
ung þessa árs sýnir 2,5 milljarða
hagnað. Á sama tíma í fyrra var
hagnaðurinn 2,2 milljarðar sænskra
króna. Hagnaðurinn er meiri nú en
menn gerðu ráð fyrir vegna breyt-
inga á gengi Bandaríkjadals undan-
farið.
Þessi niðurstaða styrkir mjög
stöðu Pers Gyllenhammars for-
stjóra fyrirtækisins, en hann hefur
sætt nokkurri gagnrýni að undan-
fömu. Hann vill auka umsvif fyrir-
tækisins enn meir og fyrirtækið
mun vetja um 40 milljörðum
sænskra króna í rannsóknir og þró-
un framleiðslu á næstu ijórum
árum.
AP/Sfmunynd
Herskáir mótmælendur
Herskáir mótmælendur söfnuðust hundruðum saman við Wac-
kersdorf síðustu helgi til þess að mótmæla fyrirhugaðri bygg-
ingu endurvinnslustöðvar fyrir kjarnorkuúrgang. Mörg þúsund
manns komu til að mótmæla friðsamlega, en meðal þeirra leynd-
ust friðarspillar sem tóku til óspilltra málanna gegn lögregi-
unni. Óeirðarseggirnir hentu grjóti og bensínsprengjum og
reyndu að bijóta girðinguna, sem afmarkar byggingarsvæðið.
Wackersdorf er nærri NUrnberg í Vestur-Þýskalandi.
Rannsókninní gegn
Kohl haldið áfram
máli því gegn Helmut Kohi kansl-
ara, þar sem kanslaranum er
gefið að sök að hafa sagt ósatt
gagnvart einni af nefndum
Sambandsþingsins.
Þessi tilkjmning kom fram tveimur
dögum eftir að saksóknarinn í
Koblenz lýsti því yfir, að hætt yrði
rannsókn í öðru svipuðu máli gegn
kanslaranum sökum sannana-
skorts.
Hinn opinberi saksóknari í
Nordrhein-Westfalen, sem hefur
aðsetur í Köln, er yfirmaður sak-
sóknarskrifstofimnar í Bonn og
hefur því vald til þess að ógilda þær
ákvarðanir, sem þar eru teknar.
Koblenz er hins vegar f Rheinland-
Pfalz, sem er annað sambandsfylki
og því hefur saksóknarinn í Köln
ekkert vald tii þess að breyta
ákvörðunum sem þar eru teknar.
Rudolf Seiters, þingmaður úr
flokki Kohls, hefur gagnrýnt harð-
lega ákvörðun saksóknarans í Köln
og sagt, að hún væri ekkert annað
en tilraun til þess að koma höggi
á kanslarann. Væri þetta runnið
undan rifjum Johannesar Rau,
kanslaraefni jafnaðarmanna og
andstæðings Kohls í þingkosning-
um þeim, sem fram eiga að fara í
Vestur-Þýzkalandi í janúar á næsta
ári.
Þá lægi þar enn að baki að reyna
að hafa áhrif á fylkiskosningar
þær, sem fram eiga að fara í
Neðra-Saxlandi um miðjan júní nk.
og spilla fyrir kristilegum demó-
krötum í kosningabaráttunni þar.
Umdeild ákvörðun saksóknarans í Köln
Bonn. AP.
SAKSÓKNARI yfirvalda í gildi ákvörðun saksóknarskrif-
Nordrhein-Westfalen tilkynnti í stofunnar í Bonn og krafizt þess,
fyrradag, að hann hefði fellt úr að haldið yrði áfram rannsókn í
Iranska fréttastofan:
Liður í rógsherferð
Bandaríkjanna
Nikosía, New York. AP.
IRANSKA ríkisstjórnin sagði i
dag að bandaríska leyniþjónust-
an, CIA, stæði að baki ásökunum
um að sendiherra írans hjá
Sameinuðu þjóðunum, hefði stol-
Ólafur
konungur
slapp við
skvettu
0816. Frá Jan Erík Laure, fréttaritara
Morgunblaðsins.
KONAN, sem hellti gos-
drykkjablöndu yfir Sonju krón-
prinsessu við upphaf Evrópu-
söngvakeppninar, var handtekin
fyrir utan Grieg-höllina i gær
þegar uppgötvaðist að hún ætlaði
að skvetta kókdrykk yfir Ólaf
konung, sem opnaði listahátíð í
Bergen í gær.
Konan stóð á nær sama stað og
þegar hún skvetti yfir Sonju, en
hún reyndi að villa á sér heimildir
að þessu sinni með því að setja á
sig hárkollu mikla. Hún var úr-
skurðuð í tveggja daga gæzluvarð-
hald, eða þar til konungur er farinn
frá Bergen.
Konunni tókst ekki að skvetta á
konung, en hún sagðist ætla að
svketta á hann til þess að sýna fram
á að það hafí ekki verið af öfund
út í kynsystur, sem hún skvetti á
Sonju en sleppti Haraldi krónprins,
sem gekk á undan Sonju, við gusu.
Konan, sem er 47 ára gömul,
hefur áður komið við sögu lögregl-
unnar fyrir að mála ókvæðisorð um
konungsfjölskylduna á húsveggi í
Bergen. Hún á yfír höfði sér ákæru
fyrir framkomuna við krónprinsess-
una á dögunum.
ið regnkápu í verslun í New
York.
í íran myndi glæpur þessarar
gerðar þýða að höggvin yrði af
honum önnur höndin. „En í íran
hefði sakleysi mitt veri sannað,"
sagði sendiherra Rafjaie Khorass-
ani á blaðamannafundi í New York
í dag þar sem hann neitaði eindregið
að nokkur fótur væri fyrir fréttun-
um um að hann hefði stolið yfir-
höfninni. Hann sagði að þetta hefði
átt að nota til að kúga hann til að
safna uppýsingum. „Þetta er mjög
andstyggileg ásökun og alvarleg
móðgun,“ sagði sendiherrann. Lög-
reglan hefur ítrekað fyrri frásagnir
af þessu eins og sagði í Morgun-
blaðinu, og hvikar ekki frá þeim.
íranska fréttastofan sagði einnig
um málið, að tilgangurinn væri
augljóslega sá að reyna að sverta
sendiherrann sjálfan og væri liður
í áróðursherferð Bandaríkjamanna
gegn írönum.