Morgunblaðið - 24.05.1986, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986
Éftir útskrift Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Garðabær:
Morgunblaðið/Börkur
24 stúdentar frá Fjölbrautaskólanum
Friðarmyndí
Norræna húsinu
KVIKMYNDIN, Konur, talsmenn
friðar, verður sýnd á vegum
friðarhreyfingar í Norræna hús-
inu sunnudaginn 25. maf kl. 4
síðdegis og á sama stað á þriðju-
dagskvöld.
Að lokinni sýningu myndarinnar
ræðir Bonnie Sherr Klein, sem gerði
myndina ásamt Terri Nash fyrir
National Film Board f Kanada, við
sýningargesti um friðarhreyfingar
kvenna f Kanada og hugmyndir sín-
ar um störf kvenna að friðarmálum.
Sfðan ætlar hún að svara fyrir-
spumum viðstaddra.
Jónína Margrét Guðnadóttir,
cand. mag. og löggiltur dómtúlkur
f ensku, mun aðstoða við fyrirspum-
imar.
Fíladelfía:
Hljómleika-
samkoma
I tilefni af 50 ára afmæli Fflad-
elfíusafnaðarins í Reykjavík um
þessar mundir, verður efnt til
sérstakrar söng- og hjjómlistar-
samkomu í kirkju Ffladelfíusafn-
aðarins { Hátúni 2, sunnudags-
kvöldið 25. mai kl. 20.00.
Á dagskrá verður Qölbreytt tón-
list bæði í hljóðfæraleik og söng.
Ffladelffukórinn syngur undir stjóm
Áma Arinbjamarsonar. Unglinga-
kór syngur undir stjóm Hafliða
Kristins8onar. Þá verður einsöngur
og tvísöngur og hljóðfæraleikur í
umsjá ungs fólks.
(Fréttatilkynning)
Vortónleikar
í Kópavogi
Samkór Kópavogs heldur sína
árlegu vortónleika í Kópavogs-
kirkju, laugardaginn 24. maí kl.
14.00.
Á efnisskrá eru lög úr ýmsum
áttum, innlend og erlend
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
útskrifaði 24 stúdenta sl. laug-
ardag og er það í fjórða sinn
sem skólinn útskrifar stúdenta
frá stofnun hans 1. ágúst 1984.
AÐALFUNDUR Sambands ís-
lenskra auglýsingastofa — SÍA —
var haldinn fyrir skömmu. í
stjórn SÍA sl. starfsár áttu sæti
þau Ólafur Stephensen, formað-
ur, Kristfn Þorkelsdóttir, vara-
formaður og Páll H. Guðmunds-
son, meðstjórnandi.
Á aðalfundinum gerði formaður
grein fyrir störfum stjómar. Á árinu
voru haldnir fjölmargir félagsfund-
ir, þar sem rædd vom ýmis hags-
munamál og verkefni sambandsins.
Einnig gekkst SÍA fyrir námskeið-
um fyrir starfsfólk auglýsingastof-
anna um siðareglur og lagaákvæði
Bestum námsárangri náði Brynja
Guðmundsdóttir á viðskiptabraut.
Alls útskrifuðust nemendur frá
sjö brautum: níu af viðskipta-
braut, fimm af málabraut, Qórir
um auglýsingar og um höfundar-
rétt. Þá tóku fulltrúar SÍA þátt í
mörgum fundum og ráðstefnum þar
sem málefni auglýsingaiðnaðarins
komu við sögu.
SÍA á aðild að siðanefnd um
auglýsingar ásamt fulltrúum frá
Verslunarráði íslands og Neytenda-
samtökunum. Lætur SIA nefndinni
í té starfsaðstöðu og framkvæmda-
stjóri SÍA vinnur fyrir nefndina.
Siðanefndin fjallaði um 14 mál á
sl. ári. í 7 tilvikum var um kærur
að ræða en í hinum 7 gerði nefndin
athugasemdir að eigin frumkvæði.
í nær öllum tilvikum var farið eftir
af félagsfræðibraut, þrír af nátt-
úrufræðibraut og einn nemandi
af uppeldisbraut, einn af heilsu-
gæslubraut og einn af iþrótta-
braut.
ábendingum siðanefndar og auglýs-
ingum annaðhvort breytt eða birt-
ingu þeirra hætt. Langalgengust
voru brot á 4. og 5. gr. siðareglna
um auglýsingar, sem Qalla um
sannleiksgildi og samanburð. Oft
var einnig vitnað í grundvallarhug-
myndir siðareglnanna um að allar
auglýsingar skuli vera löglegar,
siðlegar, heiðarlegar og segja sann-
leikann.
Á sl. ári var samningur milli SÍA
og Félags íslenskra leikara endur-
skoðaður og gerður nýr kjarasamn-
ingur við Félag grafískra teiknara.
Þá átti stjóm SLA ítarlegar viðræð-
Valur Arnason af viðskipta-
braut þakkar skólanum fyrir
hönd nýstúdenta.
ur við fulltrúa Ríkisútvarpsins um
fjölmörg málefni vegna endurskipu-
lagningar starfsemi auglýsinga-
deilda útvarpsins.
Fræðslunefnd SÍA hóf störf á sl.
ári. Nefndin mun vinna áfram að
skipulagningu fræðslunámskeiða
fyrir starfsfólk auglýsingastofanna
en einnig er ætlunin að gera úttekt
á menntunarmálum auglýsinga-
fólks með framtíðarskipulag þeirra
í huga.
SIA á aðild að Sambandi nor-
rænna auglýsingastofa — NFR —
og var aðalfundur þess haldinn í
Reykjavík á sl. hausti. Einnig er
SÍÁ félagi í Sambandi evrópskra
auglýsingastofa og sækir fundi þess
reglulega. Formaður Evrópusam-
bandsins heimsótti ísland nýlega í
boði SÍA. Hélt hann fund með for-
stöðumönnum auglýsingastofanna
og einnig opinn fyrirlestur um
auglýsingar í Evrópu.
Á sfðasta ári var tekinn upp sá
háttur á merkingu auglýsinga, að
á eftir auðkenni sínu setja auglýs-
ingaatofumar merkingu, sem sýnir
að þær em félagar í SLA. Tilgangur-
inn með þessu er aðallega sá að
gefa til kynna að viðkomandi aug-
lýsingastofa veiti fulla faglega þjón-
ustu og starfi í fullu samræmi við
siðareglur um auglýsingar, en
hvom tveggja em skilyrði fyrir
inngöngu í SIÁ.
Formaður skýrði einnig frá
mörgum öðmm þáttum í starfi SÍA,
sem miða að því að efla starfsemi
auglýsingastofa og auka hæfni
þeirra til þess að veita sem besta
þjónustu.
Á aðalfundinum gerðust fjórar
nýjar stofur aðilar að SÍA: Almenna
auglýsingastofan, auglýsingastofa
P&Ó, Auglýsingastofa Þórhildar og
Svona gemrn við, auglýsingar—al-
menningstengsl. Eiga nú 18 auglýs-
ingastofur aðild að SÍ A.
Stjóm SÍA var öll endurkjörin,
en framkvæmdastjóri er Sólveig
Ólafsdóttir, lögfræðingur.
Að loknum aðalfundarstörfum
vom á dagskrá málefni tveggja
Qölmiðla:
Guðjón Guðmundsson, rekstrar-
ráðgjafi greindi frá endurskipulagn-
ingu augiýsingadeilda Rfkisút-
varpsins og urðu töluverðar umræð-
ur um samskipti auglýsingastofa
við stofnunina eftir að hið nýja
skipulag kemst í framkvæmd.
Þá komu þeir Haraldur Sveins-
son, framkvæmdastjóri og Styrmir
Gunnarsson, ritsfjóri í heimsókn og
ræddu við fundarmenn um „Morg-
unblað framtíðarinnar".
Nýstúdent-
arnir frá
Framhalds-
skóla Vest-
mannaeyja.
Skólameist-
ari kveður
þá.
Vestmannaeyjar:
Morgunblaðið/Sigurgeir
12 stúdentar brautskráðir
Vestnuumejjum.
FRAMHALDSSKÓLANUM í Vestmannaeyjum var slitið 17.
mai sl. Tólf stúdentar voru þá útskrifaðir frá skólanum, 5 af
viðskiptabraut, 4 af náttúrufræðibraut og 3 af uppeldisbraut.
Þetta er þriðja árið sem skólinn brautskráir stúdenta.
Níu nemendur luku verslunar- 8 en stundakennarar 15.
Ólafur H. Sigutjónsson, skóla-
meistari Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum.
prófi, þrir Iðnskólaprófi, tveir vél-
stjóranámi 2. stigs, fímm véla-
varðaprófi, fjórir undanþágunám-
skeiði fyrir vélstjóra og tveir
nemendur luku námi í grunndeild
málmiðna. Alls voru nemendur við
FÍV um 200 á þessu námsári sem
er álíka og undanfarin ár. Fastr-
áðnir kennarar við skólann voru
Kennsla fer nú fram á tveimur
stöðum í bænum sem er bagalegt
og háir skólanum. Skólameistari
kom inná þetta í skólaslitaræðu
sinni og taldi hann knýjandi þörf
á því að sem allra fyrst yrði ráðist
í byggingu verkmenntahúss við
húsnæði FIV í gamla Gagnfræða-
skólanum. í haust var í fyrsta
skipti boðið upp á nám í öldunga-
deild við skólann og stunduðu 30
nemendur nám í deildinni í vetur.
Við skólaslitin var Lýður Bryn-
jólfsson kennari heiðraður sér-
staklega fyrir langt og farsælt
starf að skólamálum í Eyjum.
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra var viðstaddur
skólaslit FÍV og ávarpaði hann
nemendur, kennara og gesti.
Skólameistari Framhaldsskólans í
Vestmannaeyjum er Ólafur H.
Siguijónsson.
18 auglýsingastofur
eiga aðild að SIA