Morgunblaðið - 24.05.1986, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986
fclk í
fréttum
Varþaðtilviljun?
Maðurinn
sem
sprengdi
bankann
í Monte
Carlo
Þessar stúlkur mynduðu hópinn sem sigraði í „free-style“ danskeppninni sem fram fór í Tónabæ
um helgina. F.v. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Þrúður Vignisdóttir, Eva Margrét Ævarsdóttir, Bjarney
Sigrún Lúðvíksdóttir og Berglind Rut Hilmarsdóttir. Morfrunbiaðið/RAX
Sigurvegarar í „free-style“
danskeppninni 1 Tónabæ
Keppni í „free-style“ dansi fór
fram í Tónabæ um helgina.
Um það bil hundrað keppendur
frá æskulýðsmiðstöðvunum í
Reykjavík og nágrenni tóku þátt
í keppninni. Sigurvegarana sjáum
við hér á myndinni en stúlkurnar
heita: Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Þrúður Vignisdóttir, Eva Margrét
Ævarsdóttir, Bjarney Sigrún Lúð-
víksdóttir og Berglind Rut Hilm-
arsdóttir.
SINGER
hættir að framleiða saumavélar
M
I ahatma Gandhi, fyrrver-
andi forsætisráðherra Indlands,
kallaði Singer-saumavélina „einn
af örfáum hagnýtum hlutum sem
fundnir hafa verið upp“. Singer-
fyrirtækið var stofnað 1851 og varð
eitt fýrsta bandaríska alþjóðafyrir-
tækið. Vörumerki þess, hið stóra
rauða „S“ var um langt skeið al-
geng sjón á heimilum víða um heim.
En nú hefur Singer-fyrirtækið
ákveðið að hætta framleiðslu
saumavéla og láta hana alfarið í
hendur dótturfyrirtækis síns. „Þessi
ákvörðun var ekki sársaukalaus,“
segir Joseph Flavin, forsljóri Sing-
er. „Við hættum ekki við fram-
leiðslu sem staðið hefur í 135 ár án
trega. En þessi breyting var nauð-
synleg vegna endurskipulagningar
fyrirtækisins."
Fyrsta Singer-saumavélin var
hönnuð af Isaac Merritt Singer, sem
fæddist í Oswego í Bandaríkjunum
árið 1811. Saumavél hans kom fyrst
á markað 1850 og naut þegar
mikilla vinsælda. „Mér er fjandans
sama um heiðurinn af uppfinning-
unni, það eru peningar sem ég vil
fá,“ er haft eftir Singer gamla.
Hann komst fljótlega í álnir enda
veitti honum ekki af, þar sem hann
þurfti að standa straum af fram-'
færslu 24 barna sem hann átti með
eiginkonum sínum tveim og a.m.k.
þremur ástkonum. Singer dó í
Englandi 64 ára gamall er hann
var að koma á fót deild fyrirtækis
síns þar.
Ef Singer væri enn á lífi myndi
hann varla þekkja saumavélina sem
kennd er við hann. Sú saumvél sem
fyrirtækið selur best um þessar
mundir þræðir sig sjálf á sex sek-
úndum og hefur innbyggða tölvu-
stýringu fyrir alls konar útsaum og
bróderingar.
T* að var fyrst þegar lestin kom
inn á járnbrautarstöðina í Louisvill
að Bandaríkjamaðurinn George D.
Bryson ákvað að hætta við ferð sína
til New York og fara þess í stað
til Kentucky-borgar. Þangað hafði
hann aldrei komið áður og varð að
spyijast fyrir til að finna besta hót-
elið. Enginn vissi um dvöl hans í
Kentucky, og svona til að gera að
gamni sínu spurði hann hótelaf-
greiðslumanninn á Brown-hótelinu:
„Er nokkur póstur til mín?“ Honum
brá í brún þegar þjóninn rétti hon-
um bréf sem stílað var á hann og
bar herbergisnúmer hans. Sá sem
verið hafði næstur á undan honum
í herbergi 307 hafði einnig heitað
Georg D. Bryson.
Einstök tilviljun og sagan finnst
mörgum merkilegri fyrir það að
maðurinn sem segir hana oftast er
Dr. Warren Weaver, þekktur
bandarískur stærðfræðingur og sér-
fræðingur í líkindareikningi. Dr.
Weaver heldur því fram að tilviljun-
arlögmálið skýri marga atburði sem
menn hafa tilhneigingu til að trúa
að sérstök „gæfa“ eða ókunn öfl
standi að baki.
Ef kastað er upp peningi nógu
oft sér tilviljunarlögmálið til þess
að útkoman verður álíka margar
krónur og skjaldarmerki. En stund-
um kemur sama hlið peningsins upp
oft í röð og hægt er að reikna út
Óþekktur Englendingur, Charles
Wells, varð frægur um allan
heim 1891 er honum tókst að
þurrausa banka Monte Carlo
spilavítisins þrisvar í röð. Um
hann var samið vinsælt dægur-
lag: Maðurinn sem sprengdi
bankann í Monte Carlo.
með tiltölulega mikilli nákvæmni
hversu líklegar slíkar raðir eru.
Hið sama gildir við rúlettuna.
Eintómar jafnar tölur komu einu
sinni upp 28 sinnum í röð í spilavít-
inu í Monte Carlo. Líkumar á að
þetta gerist eru um 268 milljónir á
móti einum. Samt má fullyrða út
frá líkindareikningi að þetta geti
gerst, hafi gerst - og muni gerast
ef nógu mörgum rúlettum er haldið
gangandi nógu lengi.
Þannig telur Weaver að tilviljun-
arlögmálið skýri fyllilega spilagæf-
una sem varð til þess að Charles
Wells hlaut sæmdarheitið „Maður-
inn sem sprengdi bankann í Monte
Carlo", en vinsælt dægurlag var
samið um hann og hina einstöku
heppni hans í fjárhættuspili.
Wells - feitur og dálítið skugga-
legur Englendingur - varð frægur
árið 1891 þegar honum tókst að
„Fyrsta kennslu-
stundin með Singer-
saumamaskinunni'*
stendur á þessari
auglýsingu sem er frá
um 1880.
;J«fiftSTtfsSON
THE NEW IMPROVEO SlNGER.
F.A9.Y TO Ú4C - £*,livTO -> ro Bov.:
H
ljómsveitin Rolling Stones, eða
Rollingamir eins og þeir hafa verið kallað-
ir uppá íslensku, vinna sjaldan saman nú
orðið. Fyrir skömmu komu þeir þó saman
og unnu um skeið að því að gera plötu,
og er það sú fyrsta sem frá þeim kemur
í tvö ár. Plötuna nefna þeir enda Skítverk
(Dirty Work).
„Við höfum ennþá mikil áhrif,“
segir Ron Wood, einn Rollinganna,
„og við viljum beina unglingum núti-
mans í okkar farveg." Aðspurður
hvemig væri að vinna með hljóm-
sveitinni á ný svaraði Mick Jaggen
„Það er eins og að fara aftur í gamla
skó.“ Rollingarnir fimm em allir
komnir yfir fertugt nema einn -
Mick Jagger er 42, Ron Wood
38, Keith Richards 42, Charlie
Watts 44 og Bill Wyman 44.
Þeir hafa lengi átt við nokkra
erfiðleika að stríða vegna þess
að Mick Jagger hefur sífellt gert
meira af því að koma fram einn
sér. Ogþrátt fyrir hve hljóm-
leikaferðalög geta verið erfíð
vildu flestir þeirra leggja í hljóm-
leikareisu með Skítverkið. En þá
sagði Jagger þvert nei.
Þessi mynd var tekin af Rollingunum þegar þeir unnu saman að Skítverkunum
sem nú er fyrir nokkru komin út á plötu. F.v. Richards, Jagger, Wood, Watts
og Wyman.