Morgunblaðið - 24.05.1986, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1986
Jttcáöur
á morguu
DÓMKIRKJAN: Trinitatis. Messa
kl. 11. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson.
Sr. Þórir Stephensen.
ÁRBÆJARKIRKJA: Messa í safn-
aðarheimili Árbæjarsóknar kl.
11. Organisti Jón Mýrdal. Sr.
GuðmundurÖrn Ragnarsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Sameiginleg guðsþjónusta
Breiðholts- og Bústaðakirkju kl.
11. Organisti Daníel Jónsson. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Sameiginleg
guðsþjónusta Breiðholts- og Bú-
staðasafnaða kl. 11. (Vinsamleg-
ast ath. breyttan messutíma).
Guðspjall dagsins:
Jóh. 3.: Kristur og Nikó-
demus.
Organisti Daníel Jónasson.
Prestur sr. Lárus Halldórsson.
Sóknarnefndin. Félagsstarf aldr-
aðra miðvikudagseftirmiðdag.
Lagt verður af stað í vorferðina
kl. 14.00frá kirkjunni.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 10. Sr. Árelíus Níelsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Safnaðarferð
um Suðurnes. Lagt af stað frá
Fáöu þér
Ameriska
glerbrynju
á bilinn
* Þœgilegt og auövelt í notkun.
* Bílþvotturinn veröur leikur einn. /
* Glerungurinn styrkir lakk
bílsins gegn steinkasti.
Þeim fjölgar ört sem átta sig á yfirburöum ULTRA GLOSS
gagnvartöörum bóntegundum. ULTRA GLOSS erI raun
„fljótandi gler" og því eölilegt aö þaö endist margfalt
lengur en vax- eöa plastbón.
Sé fariö eftir leiöbeiningum um notkun, þá nœgir aö
bóna bílinn 3 sinnum á ári til þess aö tryggja örugga
vernd gegn veörun. Þetta vita þeir sem notaö hafa
ULTRA GLOSS frá byrjun. Erlendis er tekin 18 mánaöa
ábyrgö á endingu, en viö höldum okkur aö sjálfsögöu
viö hérlendar staöreyndir.
ULTRA GLOSS er ódýr langtímavörn.
Útsölustaöir: ESSO-stöðvarnar. HAGKAUP, Skeifunni
iðnaðaiDankinn
-Mtím kmkj
Grensáskirkju kl. 9.30. Messa í
Grindavíkurkirkju kl. 11 með sr.
Erni B. Jónssyni. Skoðunarferð
um Reykjanesið. Góðir leiðsögu-
menn verða með í ferðinni.
Komið aftur kl. 17. Þriðjudag 27.
maí: Biblíulestur kl. 20.30. Sr.
HalldórS. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kaffisala kvenfélagsins í Domus
Medica kl. 3. Þriöjudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30.
LANDSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organleikari Orthulf Prunner. Sr.
ArngrimurJónsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11 ár-
degis. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. (Ath. breyttan messu-
tíma). Hestamenn koma á gæð-
ingum sínum til kirkju og úr röð-
um þeirra munu aðstoða við
messuflutninginn, hljóðfæraleik-
ararnir Ásgeir Steingrímsson,
Sveinn Birgisson og Þorkell Jó-
elsson, leikararnir Gunnar Eyj-
ólfsson og Klemens Jónsson og
söngvarinn Guðmundur Þ. Gísla-
son. Kór Langholtskirkju syngur
og organisti er Jón Stefánsson.
Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardagur 24. maí: Guðsþjón-
usta í Hátúni 10B 9. hæð kl. 11.
Hr. Pétur Sigurgeirsson biskup
pédikar. Sunnudag 25. maí:
Messa kl. 11 í Laugarneskirkju.
Altarisganga. Þriðjudag 27. maí:
Bænaguðsþjónusta kl. 18. Sókn-
arprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Þriðjudag og fimmtu-
dag: Opið hús fyrir aldraða kl.
13—17. Miðvikudag: Fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SEUASÓKN: Guösþjónusta í
Ölduselsskólanum kl. 11. Altaris-
ganga. Skaftfellingakórinn í
Reykjavík syngur við guðsþjón-
ustuna. Þriðjudag 27. maí: Fyrir-
bænasamvera kl. 18.30 í Tinda-
seli 3. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN I REYKJAVÍK:
Guðsþjónusta kl. 14. Ræðuefni:
Er trúmaðurinn vangefinn? Frí-
kirkjukórinn syngur. Söngstjóri
og organisti Pavel Smid. Sr.
Gunnar Björnsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa
kl. 14. Rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18 nema á laugardög-
um þá kl. 14. I maímánuði eru
Maríubænir eftir lágmessuna kl.
18 nema á fimmtudögum en þá
er maíandakt.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskólastarfinu lýkur kl. 14.
Hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
Þar stjórna og tala flokksforingj-
arnir.
KFUM & KFUK Amtmannsstíg:
Samkoma kl. 20.30. Arnmundur
Jónasson talar. Samvera öld-
ungadeildar i félagsheimilinu við
Holtaveg kl. 15.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filad-
elfía: Almenn söngguðsþjónusta
kl. 20. Fjölbreytt söngdagskrá.
Guðni Einarsson flytur hugleið-
ingu.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Helgi Bragason. Sr. Gunnþór
Ingason.
KAPELLA St. Jósefssprtala: Há-
messa kl. 10.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 20. Rúmhelga daga messa kl.
8.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa
kl. 11. Ath. breyttan messutíma.
Hópur úr Grensássókn kemur í
heimsókn og sóknarpresturinn
þar, sr. Halldór S. Gröndal, préd-
ikar. Organisti Árni Arinbjarnar-
son. Sr. Örn Bárður Jónsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl.
10.30. Ath. breyttan messutíma.
Fríða Lárusdóttir organisti. Sr.
Björn Jónsson.
GARÐAKIRKJA: Sameiginleg
guðsþjónusta Garða- og Víði-
staðasóknar í Garðakirkju kl. 11.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson
prédikar. Sr. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Sameiginleg
guðsþjonusta Garða- og Víði-
staðasókna kl. 11. Sr. Haraldur
M. Kristjánsson messar. Sr.
Sigurður H. Guðmundsson.
Rauða kross húsið — hjálparstöð æskufólks:
73hafaleitað
hjálpar frá stofnun
Á ÞEIM fjórum og hálfa mán-
uði sem Rauða kross húsið
hefur starfað hafa 38 ung-ling-
ar komið til gistingar í lengri
eða skemmri tíma og aðrir 35
komið hluta úr degi til að fá
upplýsingar og ráðleggingar.
Rauða kross húsið, Tjarnargötu
35, er neyðarþjónusta æsku-
fólks sem á við vandamál að
stríða og er opið allan sólar-
hringinn auk þess sem síma-
þjónusta er allan sólarhringinn.
Rauði kross íslands rekur húsið
en Reykjavíkurborg lagði til
húsnæðið gegn vægri leigu.
Stöðinni var ætlað að starfa til
sex mánaða til reynslu og var 1
milljón króna varið á því tímabili.
„Það hefur sýnt sig að þetta starf
hér er bráðnauðsynlegt," sagði
Ólafur Oddsson forstöðumaður á
blaðamannafundi sem haldinn var
í gær. „Við erum að reyna að
vinna hér forvamarstarf. Böm og
unglingar upp að 18 ára aldri
hafa komið hingað með alls konar
vandamál, allt frá minniháttar
vandræðum upp í kynferðis-
áreitni, vanrækslu, og ofbeldis-
beitingu. Stór hluti þeirra sem
komið hafa hingað hefur leiðst út
í fíkniefni og áfengi, en það er
sjaldnast vandamálið — vanda-
málin em aðrir þættir í umhverfi
krakkana. Þessir krakkar em alls
ekki langt sokknir í neyslu áfengis
og fíkniefna, því viljum við koma
þeim strax út úr þeim vítahring
sem þau em í mörgum tilfellum
komin í áður en það verður um
seinan,“ sagði Ólafur.
„Okkur vantar tilfinnanlega
langtímaheimili fyrir þessa
krakka — Rauða kross húsið er
mikil hjálp fyrir suma, en er ekki
nóg fyrir aðra. Þau þurfa á eigin
meðferð að halda. Þær stofnanir
sem til em nú þegar, em yfirleitt
sniðnar fyrir fullorðna svo þessi
aldurshópur fær ekki rétta með-
ferð í því kerfí. Ef þær hugmyndir
sem uppi em um Krísuvíkurskól-
ann ná fram að ganga, er stór
vandi unglinganna leystur og
gæti þá Rauða kross húsið verið
Ólafur Oddsson, forstöðumaður.
einskonar stökkbretti inn i þá
langtímameðferð," sagði Ólafur.
Rauða kross húsið er opið fyrir
alla þá sem vilja láta hjálpa sér.
Unglingamir koma að sjálfsdáðun
hingað, án nokkurrar þvingunar
og reynt er að leysa úr vandamál-
um þeirra. „Krakkamir verða að
gera það upp við sig hvort þau
vilja láta hjálpa sér eða ekki. Það
er engin vistaður gegn eigin vilja.
í flestum tilvikum em ^ölskyldu-
erfíðleikar heima fyrir, foreldrar
fráskildir, skortur á tilfinninga-
samböndum, samskiptaörðugleik-
ar eða vandamál í vinnu eða skóla
þannig að unglingamir leiðast út
í vímuefnin,“ sagði Ólafur.
Flestir gestanna koma um og
eftir helgar og á þeim tíma sólar-
hrings sem aðrar stofnanir em
lokaðar, á kvöldin og fyrri hluta
nætur, segir í nýútkominni
skýrslu hjálparstöðvarinnar. Með-
alaldur gesta er 16,6 ár, pilta
17,7 ár og stúlkna 15,9 ár. Flestir
gestanna dvelja aðeins einn dag
eða 58%. Þó em 42% sem dvelja
lengur, allt upp í fímm vikur sá
er lengst hefur dvalið. Stúlkur
dvelja að meðaltali 8,2 daga en
piltar í 5,4 daga. 16 og 17 ára
unglingar. dvelja að meðaltali
lengst. Með því að starfsemin
væri ekki tengd hinu opinbera
þjónustukerfí var álitið að það
auðveldaði bömum og unglingum
að leita aðstoðar. I ljós hefur
komið að um 40% gesta leita
aðstoðar að eigin fmmkvæði en
hinum hefur verið bent á það af
starfsmönnum ýmissa stofnana
s.s. Utideild, Lögreglu, Unglinga-
heimili ríkisins, Félagsmiðstöðv-
um og fleirum. Athygli vekur að
39% gistigesta höfðu ekki leitað
aðstoðar annars staðar og flestir
hinna sem komu aðeins til að
ræða málin höfðu ekki leitað
annað, sem sýnir brýna þörf fyrir
þessa nýju þjónustu, segir m.a. í
skýrslu Rauða kross hússins.