Morgunblaðið - 24.05.1986, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1986
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Strætisvagnasljórar—
unglingar eru líka fólk
Nú er nóg komið!
Við skrifum þetta bréf til að
minna fólk, og þá sér í lagi strætis-
vagnabflstjóra, á þá staðreynd að
unglingar eru líka fólk. Það
virðist nefnilega ekki vanþörf á
að þeir séu minntir á þetta, ef
miða á við það hvemig sumir
þeirra aka, þegar einungis em
unglingar í vögnunum (t.d. seint
á fostudags- og laugardagskvöld-
um).
Sem betur fer á þetta ekki við
um alla strætisvagnastjóra, en allt
of marga samt því að þeir aka
margir hveijir eins og þeir séu í
harðvítugri rallýkross- eða kvart-
mílukeppni. Það virðist a.m.k. ekki
koma þeim við að ökutækið sem
þeir stýra sé strætisvagn hálffullur
af farþegum, sem vegna bijálæðis-
legs aksturslags skoppa um vagn-
inn þveran og endilagan og hend-
ast hver á annan.
Nú þýðir ekki að hundsa okkur
unglingana eins og svo oft er gert
og segja að þetta sé okkur að
kenna, því að þó í strætó séu e.t.v.
nokkrir unglingar sem kjósa að
syngja ættjarðarsöngva og vera
teitir réttlætir það ekki aksturslag
sem helst líkist morðtilraunum.
f tilefni
Tímagreinar
Velvakandi.
Grein í Tímanum, sem em
kveinstafir yfir Vísu Vikunnar
um sl. helgi, varð tilefni limm
í huga lesanda. Limran fylgir
hér með:
Ein er saga um prinsessuraun,
á ótal dúnsængum kvald’ana
baun,
ogþað fyndu víst flestir
fleiri tonn eða lestir
en honum Erlendi brá ekki baun.
Lesandi Tímans
Já, „kæm“ strætisvagnabíl-
stjórar. Sumir ykkar ættu að
endurskoða afstöðu sína til ungl-
inga sem og aksturslag t.d. á
föstudags- og laugardagskvöld-
um.
Ragnheiður L. Skúladóttir,
Dagmar Magnúsdóttir.
Þessum ökutækjum á ekki að
aka eins og kvartmíluköggum,
segja bréfritarar.
„Þér munuð einn-
ig vitni bera“
Mér brá í brún er ég las hug-
vekju, með þessu nafni, er birtist
í Morgunblaðinu sunnudaginn 11.
maí. Oft hafa meinlegar villur
slæðst í dálka blaðsins, en þessi
grein er slíkur óskapnaður frá
upphafi til enda, að alla hlýtur að
furða hvar er hægt að finna svo
lélegan starfsmann, sem þið hafíð
valið til þessa verks. Jafnvel 8-10
ára bam hefði gert betur.
Svo vill til, að ég þekki höfund
greinarinnar, Óskar Jónsson, og
veit hversu vandvirkur hann er í
öllu, sem hann gerir, og þá ekki
sízt hvað varðar málvöndun í ræðu
og riti. Því er sárt að sjá grein
hans svo afbakaða sem raun ber
vitni.
Að lokum þetta. Sjáið sóma
ykkar í að velja hæfa starfsmenn
til blaðsins, svo lesendur þurfí
ekki oftar að sjá svo hörmulega
misþyrmingu á okkar ástkæra
móðurmáli.
Með þökk fyrir birtingu,
Steinunn G. Kristiansen
Aths. ritstj.:
Það er rétt hjá Steinunni G.
Kristiansen, að frágangur á grein
Óskars Jónssonar í Morgunblaðinu
sl. sunnudag var með eindæmum
lélegur. Þar er að sjálfsögðu ekki
við höfund að sakast og ekki próf-
arkalesara heldur. Þegar þeir lásu
próförk af greininni og sendu hana
frá sér var ekkert athugavert við
hana. í tölvuvinnslu Morgunblaðs-
ins urðu einhver þau mistök, sem
ekki hefur fundizt skýring á enn,
sem urðu þess valdandi, að greinin
birtist með óviðunandi hætti í
blaðinu. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessu.
Hvaðan er orðatiltækið?
Að yrkja er að sjá
Arlaud hefur eftir John Paulsen (1851—1924) í dagblaðinu „Verdens
Gang“ í desember 1904, að Henrik Ibsen gæfí þessa skilgreiningu á iðkun
skáldskapar. Það kemur einnig fram í bók Paulsens „Kynni af Ibsen“
19,21 (1906), að þannig skilgreindi Ibsen skáldskapinn.
(Dagfoladens Pressetjeneste)
Utankjörstaða-
skrifstofa
SJÁX-FSTÆÐISFLOKKSINS
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð. (
Símar 688322, 688953 og 688954.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Utankjörstaðakosning fer fram í Ármúlaskóla
alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnu-
dagakl. 14-18.
Sjálfstæðisfólk. Vinsamlegast látið skrifstofuna
vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á
kjördegi 31. maí nk.
■ ■ I Þjónustuíbúðir
aldraðra, Dalbraut 27
Sýning á munum sem unnir
eru í félags- og tómstunda-
starfi heimilisins og dagdeildar
laugardag 24. og sunnudag 25.
maíkl. 13.30—17.00.
Sjálfstæðisflokkurinn
íReykjavík i
Akstur á kjördag
Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða á
bifreið til aksturs á kjördegi, laugardaginn
31. maínk.
Upplýsingar eru góðfúslega veittar á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1 frá kl. 09.00—22.00 og frá
kl. 13.00—18.00 um helgar.
Sjálfstæðisflokkurinn
BREYTING TIL BATNAÐAR
SÆKJUM — SENDUM
Leyfðu okkur að hjálpa þér að halda bílnum
þínum hreinum og fallegum. Við sápuþvoum
hann að utan, hreinsum hann og ryksugum
að innan og síðan berum við Poly-Lack á bíl-
inn.
Poly-Lack er acryl efni sem skírir litinn og
gefur fallegan gljáa sem endist lengi, lengi.
Mercedes Benz í Þýzkalandi notar Poly Lack
á sína bíla áður en þeir eru afhentir.
Hringdu og pantaðu tíma. Við sækjum hann
ef þú óskar. Opið virka daga frá 9-19.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-19.
BÍLAÞVOTTASTÖÐIN
Bfldshöfða 8
við hliðina á Bifreiðaeftiriitinu
Sími 681944