Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
140. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
Prentamiðja Morgunblaðsiiis
Rætt um málefni Suður-Afríku á leiðtogafundi EB-ríkja:
Refsiaðgerðir
í undirbúningi
Haag, Jóhannesarborg, Lundúnum, AP.
LEIÐTOGAR ríkja Evrópubandalagsins ræddu í gær
til hvaða aðgerða beri að gripa til þess að bæta aðstöðu
blökkumanna í Suður-Afríku. Ljóst er að samstaða er
ekki meðal leiðtoganna um harðar efnahagslegar refsi-
aðgerðir, en þeir eru sammála um nauðsyn þess að
beita ríkisstjórn Suður-Afriku þrýstingi til þess að fá
hana til að láta af kynþáttaaðskilnaðarstef nunni.
Meðal þess sem rætt er um
innflutningsbann á grænmeti,
ávöxtum, jámi og stáli, sem og
fjárhagsleg aðstoð við fómarlömb
kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar.
Þá er og til athugunar hvort senda
eigi utanríkisráðherra Bretlands,
Sir Geoffrey Howe, til Suður-
Afn'ku, ásamt með utanríkisráð-
herrum Hollands og Belgíu, til
þess að hvetja minnihlutastjóm
hvítra manna til þess að láta af
aðsklilnaðarstefnunni og til þess
að að semja við leiðtoga blökku-
AP/Símamynd
Ronald Reagan Bandaríbjaforseti lýsir yfir ánægju sinni með úrslit
atkvæðagreiðslu i fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem samþykkt
var að veita skæruliðum i Nicaragua 100 milljón dollara aðstoð.
Samþykkt fulltrúadeildarinnar á aðstoð við skæruliða í Nicaragua:
Contadora ríkin
harma úrslitin
Washin^ton, Haag, Managua, AP.
VlÐBRÓGl) við samþykkt full-
trúardeUdar Bandaríkjaþings
um 100 milþ'ón dollara aðstoð við
skæruliða í Nicaragua hafa verið
Sprenging
á flugvelli
í Madrid
Tel Aviv og Madrid, AP.
SPRENGJA, sem falin var í
ferðatösku, sprakk á flugvellin-
um í Madrid í gær, 15 minútum
áður en flugvél ísraelska flug-
félagsins E1A1 átti að halda áleið-
is tU Tel Aviv. Þrettán manns
særðust, þar af tveir alvarlega.
Sprengjan sprakk um kl 15:30
að staðartíma, stuttu eftir að sfðasti
farþeginn skráði sig til flugs. Ör-
yggisvörður EI A1 reif töskuna af
færibandi í farþegaafgreiðslu fé-
lagsins á Barajas-flugvellinum,
þegar hann sá reyk stíga frá tösk-
unni. Stuttu sfðar sprakk taskan
og særðust sjö manns. Sprengingin
olli einnig töluverðum skemmdum
á flugvallarbyggingunni.
Farþeginn sem átti töskuna var
handtekinn, en neitaði að gefa upp
nafn og þjóðemi og enn er ekki Ijóst
hver ber ábyrgðina á sprenging-
unni.
misjöfn. Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti lýsti yfir mikilli
ánægju með lyktir málsins og
kvað niðurstöður atkvæða-
greiðslunnar bera góðum mál-
stað vitni, enda þótt þetta væri
einungis áfangasigur. Hins vegar
sagði Daniel Ortega forseti Nic-
aragua í sjónvarpsræðu að at-
kvæðagreiðslan staðfesti einung-
is þá stríðsæsingastefnu, sem
stjóm Reagans fylgdi og væri
spor í átt að beinni hernaðar-
íhlutun Bandaríkjamanna í Nic-
aragua.
Utanríkisráðherrar hinna svo-
kölluðu Contadora-rílqa, sem staðið
hafa að friðarumleitunum i Mið-
Ameríku, lýstu yfir þvf að úrslit
atkvæðagreiðslunnar hefðu valdið
þeim miklum vonbrigðum. Miguel
D’Escoto utanríkisráðherra Nic-
aragua sagði að sandinistastjómin
kynni að bregðast við úrslitunum
með þvi að auka útgjöld til hermála.
Búist er við því að alþjóðadóm-
stóllinn í Haag fordæmi samþykkt
fulltrúadeildarinnar, en í dag kveð-
ur dómstóllinn upp dóm í kæmmáli
sandínistastjómarinnar á hendur
Bandaríkjamönnum vegna meintra
tilrauna þeirra til að steypa stjóm-
völdum í Nicaragua af stóli. Málið
var lagt fram fyrir tveimur ámm,
en Bandaríkjamenn hafa lýst yfír
því að þeir hyggist ekki hlíta dómi
alþjóðadómstólsins, þar sem hann
hafi ekki lögsögu í málinu.
Bandarískir stjómarerindrekar í
Haag sögðu í gær að nánast væri
víst að dómsúrskurðurinn yrði
sandínistastjóminni í hag.
manna í landinu. Umræðum um
málið verður framhaldið í dag.
Ríkisstjóm Suður-Afríku lét í
gær lausa úr fangelsi að minnsta
kosti tylft verkalýðsleiðtoga, en
ennþá em í haldi í landinu um
1.800 manns, verkalýðsleiðtogar
og aðrir, sem fangelsaðir vom eftir
að neyðarástandslög tóku gildi í
landinu fyrir tveimur vikum síðan.
Engin ástæða var gefín fyrir lausn
fanganna. Útgöngubann var sett
á í átta bæjarfélögum blökku-
manna til viðbótar í gær eftir að
jarðsprengja sprakk. Enginn
særðist í sprengingunni.
Fimm blökkumenn féllu í gær,
þar af tveir fyrir hendi lögreglu,
að sögn upplýsingaþjónustu ríkis-
ins. 66 menn hafa þá látist í
Suður-Afríku frá því neyðar-
ástandi var lýst yfír 12. júní síðast-
liðinn, en 1.800 manns hafa látist
frá því óeirðir hófust vegna kyn-
þáttastefnu ríkisstjómarinnar í
september 1984.
Yfírstjóm hersins hefur mót-
mælt því við ríkisstjóm Zimbabwe
að þremur „hryðjuverkamönnum"
vopnuðum hríðskotabyssum var
leyft að flýja yfir landamærin til
landsins fýrr í þessum mánuði.
Segir í tilkynningu yfírstjómarinn-
ar að hún líti atburðinn alvarlegum
augum, sérstaklega þar sem sak-
laust fólk hafí látið lífíð skömmu
áður er jarðsprengjur sprungu.
OPEC-fundurinn:
Nokkuð mið-
ar í sam-
komulagsátt
Bríoni, Júgóslaviu. AP.
NOKKUÐ miðaði í samkomu-
lagsátt í gær á fundi olíumála-
ráðherra ríkja innan OPEC,
Samtaka olíuframleiðsluríkja,
um það hvernig bregðast berí við
þeirrí verðlækkun sem orðið
hefur á olíu á þessu ári. Talsvert
vantar þó upp á að samkomulag
náist.
Meirihluti ráðherranna vill stefna
að verði á bilinu 17—20 Bandaríkja-
dalir fyrir olíufatið og miða fram-
leiðslutakmarkanir við það. Verðið
nú er 12—15 dalir fatið, en var í
nóvember-mánuði á síðasta ári um
30 dalir. OPEC-ríki framleiða nú
18—19 milljónir olíufata á dag og
telur meirihluti ríkjanna að nóg sé
að minnka framleiðsluna um 1—2
milljónir til þess að ná verðinu upp
í allt að 20 dali.
íran hefur verið í forustu fyrir
minnihluta ríkjanna, sem vill
minnka framleiðsluna niður í 14
milljónir fata á dag og ná þannig
verðinu upp í það sama og það var
síðastliðið haust.
Irland:
Þjóðaratkvæði um
hjónaskilnaði
Dyflinni, AP.
ÍRAR gengu til kosninga í gær til að ákveða hvort leggja eigi
niður ákvæði í stjóraarskrá þeirra, sem bannar skilnaði þjóna.
Ákvæði þetta er 49 ára gamalt og lögðu stjórnvöld til að gengið
yrði til þjóðaratkvæðis um að fella ákvæðið úr stjórnarskránni.
Skoðanakannanir undanfama
daga hafa bent til þess að þessi
tillaga, sem stjómin átti fmm-
kvæði að, verði felld og þjóðin
haldi enn við hina hálfrar aldar
gömlu hefð. Vom 55% aðspurðra
á móti því að leyfa hjónaskilnaði.
Um 97% Ira eru rómversk-
kaþólskrar trúar og eru þeir eina
þjóðin, að undanskildum Möltubú-
um, sem enn banna hjónaskilnaði.
Forsætisráðherra írlands,
Garret Fitzgerald, var einn hinna
fyrstu til að greiða atkvæði í
gær, en stjómin hélt uppi miklum
áróðri fyrir tillögunni sfðustu
daga. Birti hún m.a. auglýsingar
í öllum helstu dagblöðum á írlandi
þar sem hún hvatti konur til að
fella ákvæðið, þar sem líf þeirra
myndi taka miklum breytingum
til batnaðar, ef hjónaskilnaðir
yrðu leyfðir. Árið 1983 var ákveð-
ið með þjóðaratkvæði að bæta
ákvæði f stjómarskrána sem
bannar fóstureyðingar og sam-
kvæmt irskum lögum, eru ýmis
höft lögð á sölu getnaðarvama.
Búist er við að talningu at-
kvæða ljúki annað kvöld.
AP/Símamynd
Irsk nunna býr sig undir að
greiða atkvæði um tillögu sem
irska stjórnin lagði fram, um
að fella ákvæði um bann við
hjónaskilnuðum úr stjóraar-
skránni.