Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986 Bylgjan á Suðureyri aflar leyfis ráðherra til að kaupa kúfiskveiðiskip: Formaður kúfisknefndar telur rétt að bíða með fjárfestingar Byggðastofnun hefur lagt fram 30% af hlutafé i Bylgjunni á Suðureyri við Súgandafjörð, eða 5 milljónir króna. Fyrirtæk- ið hefur fengið leyfi sjávarút- vegsráðherra til að kaupa kú- fiskveiðiskip frá Þýskalandi, og verður sett upp vinnslustöð á Tómas Björnsson, Jón Garðar Viðarsson, Bragi Kristjánsson og Jó- hann Hjartarson, en þeir skipuðu ásamt Margeiri Péturssyni og Hilmari Karlssyni sigursveit Búnaðarbankans í skákkeppni stofnana og fyrirtækja. Skák: Snorri Bergsson vann boðsmót TR1986 SNORRI Bergsson sigraði á boðsmóti Taflfélags Reykjavíkur sem lauk um síðustu helgi. Skáksveit Búnaðarbanka íslands sigraði í A-riðli í skákkeppni stofnana og fyrirtækja og sveit Pósts og síma f B-riðli. í firmakeppni I hraðskák varð keppandi Visa Island, Karl Þorsteins, hlutskarpastur. Snorri Bergsson fékk 6 V2 vinn- ing af 7 mögulegum. Hannes Hlífar Stefánsson varð annar með 6 vinn- inga en jafnir í þriðja til fimmta sæti urðu Uros Ivanovic, Þröstur Þórhallsson og Sigurður D. Sig- fusson, með 5 V2 vinning. Keppend- ur voru 69 og teflt var eftir Monrad-kerfi. Verðlaun voru afhent þriðjudags- kvöldið 24. júní. Þá voru einnig afhent verðlaun í „Skákkeppni fyr- irtækja og stofnana" og „Firma- keppni í hraðskák". 38 sveitir tóku þátt í „Skákkeppni fyrirtækja og stofnana". Vinningssveit Búnaðar- bankans fékk 23 V2 vinning af 28 mögulegum í A-riðli. Sveit Rfkis- spítalanna varð f öðru sæti með 21 vinning og sveit Flugleiða í þriðja sæti með 19 V2 vinning. í B-riðli varð sveit Pósts og síma hlutskörpust með 18 V2 vinning pg 86.5 stig. Önnur varð sveit Ár- múlaskóla með 18 V2 vinning og 78.5 stig og þriðja sveit ÁTVR með 18 vinninga. 252 fyrirtæki tóku þátt í firma- keppni í hraðskák. Karl Þorsteins, sem keppti fyrrir Visa Island, varð efstur, Jóhann Hjartarson, sem keppti fyrir JL-húsið, varð annar, Jón L. Amason, sem keppti fyrir Félag löggiltra rafverktaka, varð þriðji, Þröstur Þórhallsson fjórði fyrir hönd Hreingemingarstöðvar Hólmbræðra, og Snorri Bergsson fímmti fyrir hönd Samvinnubanka íslands. Suðureyri. Þessar áætlanir hafa ekki verið bornar undir Kúfisk- nefnd. „Nefndin undirbýr nú rannsóknarleiðangur f sam- vinnu við Rækjunes hf. til að kanna stofnstærðir og annað. Stefnt er að þvf að hann fari í gang í lok ágúst,“ sagði Finnur Ingólfsson, formaður Kúfisk- nefndar, í samtali við blaða- mann. „Eg tel rétt að menn bfði eftir niðurstöðum úr þessum rannsóknarleiðangri áður en lagt er út f miklar fjárfestingar. Enn vitum við of lítið um veiðan- legt magn.“ Finnur sagði að samkvæmt nið- urstöðum skýrslu sem Kúfisknefnd hefði látið gera væri fjárfestingar- kostnaður vegna kúfískveiða og vinnslu um 100 milljónir króna. „Kúfísknefnd hefur verið í sam- vinnu við Rækjunes hf. í Stykkis- hólmi. Á næstunni verður sett um borð í skip þeirra, Önnu, sérhæft veiðarfæri, vatnsþrýstiplógur, smíðaður í Bandaríkjunum, sem notaður er við veiðar þar.“ Sagði Finnur að Bylgjan hefði ekki átt samstarf við Kúfisknefnd að und- anfömu. „Þetta er í burðarliðnum, en menn líta mjög björtum augum á þessar veiðar. Það er jú alltaf verið að leita að leiðum til nýsköpunar," sagði Viðar Aðalsteinsson, sveitar- stjóri og verðandi framkvæmda- stjóri Bylgjunnar. Viðar sagði að skelin sem Bylgjan hygðist gera út á væri frábrugðin þeirri sem menn í Stykkishólmi ætla að nýta. Hún væri verðminni en til í mun meira magni. Tæknin sem Bylgjan myndi beita væri önnur en sú sem Rækju- nes er að þróa. „Hér hefur verið starfandi fiskifræðingur sem gerði ýmsar rannsóknir, og sendi sýni til útlanda. Allt lofar þetta góðu.“ Að sögn Viðars hefur fyrirtækið átt viðræður við skipasmíðastöð í Þýskalandi um kaup á skipi sem hentar vel til kúfiskveiða. Ekki er ljóst með endanlegt verð en í vetur var uppsett verð rúmlega 40 millj- ónir króna. Sjávarútvegsráðherra hefur veitt leyfi fyrrir kaupunum og unnið er að því að fá leyfi við- skiptaráðherra fyrir erlendu láni til að íjármagna kaupin. Á næst- unni mun Bylgjan semja við Traust hf. í Reykjavík um smíði á tækja- búnaði fyrir fískvinnsluna. Búist er við að um 15 manns geti haft atvinnu af kúfiskveiðunum þegar þær eru komnar í fullan gang. „Með haustinu ætti þetta að vera orðið mikið ævintýri," sagði Viðar Aðalsteinsson. KA-menn vígja félags- heimili sitt á morgun Akureyri. Knattspyrnufélag_Akureyrar heldur hátið á morgun, laugardag, og á sunnudaginn. Á morgun verður nýja KA-heimílið vígt kl. 14 og á sunnudag leika yngri flokkar félagsins á KA-velIinum og þá verður húsið opið allan daginn til sýnis fyrir gesti. Hátíðin á morgun hefst með leik Lúðrasveitar Akureyrar og skrúð- göngu KA-félaga sem flytja félags- fánann og góða gripi með hátíðleg- um hætti úr KA-herberginu í Lund- arskóla í hið nýja aðsetur. Jón Amþórsson, fyrrverandi for- maður KÁ, stýrir samkomunni. Stefán Gunnlaugsson, formaður bygg>nKarnefndar. lýsir fram- kvæmdum og afhendir Guðmundi Heiðrekssyni heiðurslykil og lykla- völd hins nýja KA-heimilis fyrir yngri og eldri félaga. Formaðurinn stýrir síðan vígslunni með hjálp yngri kynslóðarinnar sem afhjúpar KA-merki á norðurvegg hússins. Þá taka við stutt ávörp gesta og síðan verður gestum boðið til stofu. Á sunnudaginn byija yngri liðin að leika kl. 14. Þann dag verða veitingar á boðstólum sem foreldra- félag KA stendur fyrir. Nýja KA-húsið er á tveimur hæðum, 520 fermetrar alls. Blaðamaður Morgunblaðsins leit inn í hið nýja félagsheimili fyrir skömmu til að forvitnast hvað væri þar á seyði. Þá var mikið óklárað, en að líkindum hafa þeir KA-menn lokið við frágang hússins er þessi orð birtast á prenti. Innan dyra voru nokkrir sjálf- boðaliðar er kepptust við vinnu sína. Þar gat m.a. að líta „heitan pott“ og hálfklárað gufubað. Einn vinnu- þjarkanna, Guðmundur Heiðreks- son, formaður KA, var tekinn tali og hann spurður hvemig hefði gengið. „Það má segja að þetta hafí gengið mjög vel það sem af er. Við erum hér búnir að reisa 520 fer- metra hús á tveimur hæðum og ekki var byijað á bygginguni fyrr en fyrir rúmlega ári, eða 11. maí 1985. Húsið var fokhelt í október síðastliðnum og var þá haldið heil- mikið reisugilli. Við stefndum upp- haflega að því að ljúka byggingunni á einu ári,“ sagði Guðmundur. Á efri hæð hússins verður funda- herbergi, salur, aðstaða vallarvarð- ar og setustofa. Á neðri hæðinni verða búningsklefar fyrir 60 manns, gufubað, sturtuklefar, áhalda- geymsla, heitur pottur, ljósabekkir og e.t.v. einhver aðstaða til líkams- ræktar. Fyrir utan húsið hefur nú verið hellulagt og malbikað, en þar er ráðgert að hafa bílastæði. Næsta sumar er hugsanlegt að upp verði sett mini-golf þar fyrir utan. „Það er ljóst að hér verður mest um að vera á sumrin, enda er knattspyma ekki iðkuð að marki utan dyra á vetuma. Hins vegar er möguleiki á að nýta landrýmið á vetuma og leggjsi skíðagöngubrautir í jaðri grasvallanna og búa til skautasvell á malarvellinum. Þá getur fólk komið hingað og brugðið sér annað- hvort á skíði eða skauta og farið síðan í sturtu og fengið sér kaffi- sopa á eftir. Þá verður sjónvarps- herbergi í húsinu, þannig að menn geta hist og horft saman á leiki, annaðhvort beinar útsendingar eða af myndböndum. Uppi verður sölu- aðstaða þar sem hægt verður að fá keypta einfalda smárétti. Úti á Guðmundur og Sigurður Jakobsson mæla fyrir bekkjum í búnings- klefanum. Hermann Sigtryggsson og óðinn Árnason við heita pottínn. Gnðmundur Heiðreksson, formaður KA, og Jón Stefánsson f óða önn Hin nýj» féUgnmi'AgtflA þgirra KA.mnnna *ía MorgunbiaM/Magnús Gottfreðsson að sópa nýju húsakynnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.