Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JtJNÍ 1986 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Að Listahátíð lokinni Utlit er fyrir að níunda Listahátíðin í Reykjavík, sem haldin var dagana 31. maí til 17. júní, hafí verið rekin án fjárhagslegs halla og kunni jafnvel að skila ein- hverjum hagnaði. Þetta er ánægjulegt og nokkur tíðindi miðað við fyrri hátíðir af sama tagi. Þessi árangur hefur sýnilega ekki verið á kostnað þeirra atriða, sem í boði voru. Hinir erlendu listamenn, sem hingað komu að þessu sinni, Claudio Arrau, Doris Lessing, Ingmar Bergman, Dave Brubeck, Herbie Hancock og Margaret Price, svo nokkrir séu nefndir, eru ekkert síður í hávegum hafðir, en þeir listamenn, sem fyrri hátíðir hafa sótt. Picasso-sýningin á Kjarvalsstöðum er líka mikill viðburður og sumir hafa talið hana kórónu þessarar hátíðar. Hitt er annað mál, að rétt- læting Listahátíðar felst ekki í reikningsniðurstöðum að henni lokinni. Við höldum ekki Listahátíð til að hagnast á henni flárhagslega, heldur til að auðga andann, örva hugs- unina, kveikja nýjar hug- myndir og efla okkar eigin menningu. í því felst ágóði, sem að sjálfsögðu verður ekki færður í höfuðbækur fjár- haldsmanna, en er ekki síður mikilvægur fyrir það. A undanfömum Listahátíð- um hafa erlendir listamenn verið í brennidepli, enda þótt hlutur íslendinga hafí jafíian verið veglegur. Þetta er ekki nema eðlilegt, því markmið Listahátíðar hlýtur að vera að færa listalíf umheimsins nær okkur. Frá upphafí var hátíðin hugsuð sem vettvangur al- þjóðlegra lista, tækifæri fyrir almenning á íslandi til að kynnast því, sem hæst bæri og áhugaverðast væri í sam- tíðarmenningu erlendra þjóða. Ýmsum fínnst víst, að hlutur íslenskra listamanna mætti vera enn stærri, en hann hefur verið, og gagnrýnisraddir í þá veru hafa heyrst í flölmiðlum að undanfömu. Vel má vera, að þetta sé rétt, en við verðum að treysta framkvæmdastjóm hátíðarinnar til að meta það hveiju sinni, hver hlutföllin eigi að vera. Það getur verið breytilegt frá hátíð til hátíðar með tilliti til þess, hveijir hinir útlendu gestir em og hvað er að gerast í íslenskum listum. Listahátíðin í Reykjavík er fyrir íslendinga alla, en ekki eingöngu Reykvíkinga, þótt hún sé haldin í höfuðborginni. Það er umhugsunarefni í þessu sambandi, hvort unnt sé að veita íbúum úti á landi ríkari hlutdeild í hátíðinni, en verið hefur, t.d. með sérstök- um ferða- og gistitilboðum. En við eigum einnig að sælg'a áhorfendur til útlanda og gera auglýsingar um Listahátíðina að föstum lið í landkynningu okkar. Þannig gæti Listahá- tíðin orðið akkur fyrir ferða- þjónustuna, jafnframt þvi sem aukin kynning hátíðarinnar erlendis auðveldar okkur að fá hingað ýmsa listamenn. Þegar næsta Listahátíð verður haldin verður Borgar- leikhúsið í Kringlunni tekið til starfa og vafalaust verður það vettvangur fyrir einhveija liði hátíðarinnar. Hús tónlistar- innar verður tæpast risið þá, en vonandi komið á ágætan rekspöl, því mikil þörf er á sérstöku tónleikahúsi. Er það raunar undarlegt í ljósi hins mikla tónlistaráhuga og grósku í tónlistarlífí, sem er hér á landi, að slíkt hús skuli ekki vera risið fyrir löngu. Það hefur stundum gustað um Listahátíðina í Reykjavík og menn ekki alltaf verið sátt- ir við þau atriði, sem boðið hefur verið upp á. Gagnrýnin hefur líka beinst að þáttum, sem menn hafa viljað fá en ekki fengið. Að þessu sinni virtust ádrepurnar, sem fram- kvæmdastjóm hátíðarinnar fékk, einkum snúast um rekstur klúbbs á hennar veg- um, og voru það heldur lítil- sigldar deilur. Skoðanamunur um sýningar, samkomur og aðra viðburði Listahátíðar er annars ekki til að hafa miklar áhyggjur af. Slíkt sýnir, að mönnum stendur a.m.k. ekki á sama um hátíðina qg hún fer ekki framhjá fólki. Á þessu atriði má raunar hnyklg'a og segja, að það sé höfuðkostur ef Listahátíðin veldur ein- hveijum hræringum í þjóð- félaginu. List er ekki bara stofustáss, heldur partur af lífinu, sem við lifum, þar sem til allrar hamingju skiptast á skin og skúrir, logn og storm- ur. Starfsmannafélagið Sókn hef- ur flutt starfsemi sína í nýtt hús- næði að Skipholti 50A. Þar hefur félagið skrifstofur sínar en auk þess hafa Sóknarkonur komið sér þar upp fullkominni heilsu- rækt. I húsinu er einnig stór samkomu- og fundarsalur. Frá því Starfsmannafélagið Sókn var stofnað og til 1976 hafði það tii afnota tvö herbergi á Skóla- vörðustíg 16, en þá festi félagið kaup á einni hæð að Freyjugötu 27. I ágúst í fyrra voru skrifstofur félagsins svo fluttar í nýtt hús í Skipholti 50A. Bygging hússins var fjármögnuð með því fé sem til var í sjóðum félagsins auk þess sem húsnæðið við Freyjugötu var selt. A efri hæð hússins eru tvær íbúðir og voru þær einnig seldar á almenn- um markaði. Verkakvennafélagið Framsókn hefur sömuleiðis keypt hluta hússins og deilir það allri aðstöðu með Sókn. Sem fyrr segir er í húsinu líkams- rækt og er hún opin öllum konum sem áhuga hafa, Sóknarkonum sem öðrum. Karlmenn hafa enn ekki haft not af heilsuræktinni en til stendur að veita hópum aðstöðu í framtíðinni. í heilsuræktinni er þrekhjól, róðrartæki og fleira þ.h., gufubað og heitur pottur og þar er líka einn ljósabekkur og hægt að fá tíma í nuddi. Eftir líkamsræktina geta konur síðan slappað af og fengið sér kaffi í kaffistofu sem þar Nýja Sóknarhúsið að Skipholti 50a. [ heilsuræktmni er heitur pottur þar sem konurnar geta slakað á í vistlegu umhverfi..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.