Morgunblaðið - 27.06.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
Islenska óperan:
Aida eftir Verdi frumsýnd
í Gamla bíói 9. janúar nk.
UNDIRBÚNINGUR er nú haf-
inn á vegum íslensku óperunnar
á óperunni Aidu eftir Verdi og
verður frumsýning verksins í
Gamla bíói 9. janúar nk., en þá
eru fimm ár liðin síðan íslenska
óperan fékk eigið heimili, að
sögn Garðars Cortes, fram-
kvæmdastjóra.
Bríet Héðinsdóttir verður leik-
stjóri, Una Collins hefur verið ráðin
sem leikmynda- og búningahönn-
uður og Gerard Deckert verður
hljómsveitarstjóri, en hann hefur
sl. 14 ár verið sljórnandi Vínar-
óperunnar. „Þau Bríet, Una og
Gerard hittust í Englandi nú fyrr
í júní til að ráða ráðum sínum en
Borgarfjarðarsýsla:
Mikíð um
tófuí
Flókadal
í FLÓKADAL virðist nú vera
óvenjumikið um tófu og hefur
þegar séð á fuglalífi á staðnum
auk þess sem liklegt þykir að
lömb hafi orðið fyrir barðinu á
henni.
Að sögn Ingvars Ingvarssonar á
Múlastöðum er þegar búið að vinna
á einu greni og vonuðust heima-
menn til þess að það myndi losa
þá undan ágangi tófunnar en það
hafí greinilega ekki dugað til því
að nú sé fyrirgangurinn orðinn slík-
ur að hávaðinn í tófunum heyrist
greinilega inn í bæ á kvöldin.
„Mér er meinilla við hversu mikið
hún er hér,“ sagði Ingvar í samtali
við Morgunblaðið. Nokkuð mikil
afföll hafí verið af lömbum í vor
en erfitt sé að greina hvað sé tóf-
unni að kenna og hvað ekki. Hann
hafi fyrir nokkru dysjað lamb en
það hafi ekki aftrað tófunni frá
því að gæða sér á iambinu. Stuttu
síðar var búið að grafa lambið upp
og hafa það á brott.
Ingvar segir að þegar hann hóf
búskap á Múlastöðum fyrir 14 árum
hafi fuglalíf verið blómlegt, mikið
um spóa og heiðlóu, nú sjáist fugl-
amir æ sjaldnar, en nokkuð sé um
að menn rekist á rænd hreiður.
Þegar hundur var látinn rekja slóð
tófu fyrir nokkmm árum hafi hann
t.d. rekist á mörg hreiður sem tófan
hafði greinilega rænt.
Ingvar segir tófumar ekkert sér-
staklega styggar, þær hræðist bfla
til dæmis ekki en þjóta út í buskann
þegar farið er út úr bflunum. Þær
séu þó nokkuð á ferli við bæinn svo
að líklega sé greni í nánd við hann
þótt enn hafi enginn rekist á það.
æfingar hefjast ekki fyrr en í
haust," sagði Garðar.
Aðalhlutverkið, Aidu, syngur
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Amner-
is er í höndum Sigríðar Ellu Magn-
úsdóttur, sem nú er í starfi hjá
Covent Garden-óperunni í London,
Amonasro leikur Kristinn Sig-
mundsson, Radames leikur Garðar
Cortes, Viðar Gunnarsson fer með
hlutverk Ramphis og hofgyðjuna
leikur Katrín Sigurðardóttir. Einu
hlutverki — hlutverki konungsins
B Re - er óráðstafað. „Sýningin
verður væntanlega heilmikil
skrautsýning, t.d. verður 94
manna kór í Aidu, en flestir hafa
kórmeðlimir á sýningum íslensku
óperunnar verið 38 talsins og síðan
verður það hljómsveit íslensku
óperunnar sem leikur, eins og vant
er, en hún er skipuð 43 hljóð-
færaleikurum úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands auk þess sem ráðnir
verða sex auka trompetleikarar. “
Garðar sagði að uppsetning á
Ólöf Kolbrún Harðardóttir
Aidu hefði alltaf verið draumur
hjá sér. „Þegar sýnt var að sýning-
ar á II Trovatore myndu ganga vel
í fyrra fórum við Gerard Deckert,
sem einnig var hljómsveitarstjóri í
þeirri uppfærslu, að ræða um
hvaða verk íslenska óperan skyldi
taka upp næst. Hann lagði þá strax
til að næsta verk skyldi verða Aida
og fullvissaði mig í leiðinni að það
yrði lítið mál að koma því á fjalim-
ar,“ sagði Garðar.
Sýningar á II Trovatore hefjast
aftur 12. september nk. og verða
að öllum líkindum fram í nóvem-
ber. Garðar sagði að uppsetning
Aidu yrði dýr alveg eins og upp-
setningar annarra ópera. „Eg geri
ráð fyrir að kostnaður verði orðinn
um sex milljónir króna þegar að
frumsýningarkvöldi kemur, en það
er staðreynd alls staðar í heiminum
að ópemr standa ekki undir sér
nema í einstaka tilvikum. Mig
minnir að aðeins eitt verk — Töfra-
flautan — hafí staðið sjálft undir
kostnaði frá því við byijuðum,"
sagði Garðar.
Fimleika-
sýning í
Austurstræti
í DAG kl. 2 verður fimleikasýn-
ing í Austurstræti á vegum barna
og unglinga úr fimleikadeiid
Armanns.
Sýningin er liður í fjáröflun
vegna ferðar sem deildin ætlar að
fara í æfingabúðir í Svíþjóð í júlí.
Sýndar verða gólfæfingar og
æfingar á fjaðurbretti (trambolín)
kl. 2 og síðan á hálftíma fresti fram
eftir degi. Einnig verður fímleika-
deildin með flóamarkað og köku-
sölu.
Fáóuþér
eríJSSSSÍSS-
SUZUKI SWIFT
Sparneytnasti bíll sem fluttur er
til landsins fæst nú stærri og
rúmbetri og auk þess með
sjálfskiptingu.
SUZUKI SWIFT GL 3dr. beinskiptur kr. 299.000.'
SUZUKI SWIFT GL 3dr. sjálfskiptur kr. 329.000.
SUZUKI SWIFT GL 5 dr. beinskiptur kr. 322.000.
SUZUKI SWIFT GL 5dr. sjálfskiptur kr. 348.000.
SUZUKISWIFT sendibíll kr. 345.000.
SUZUKI CARRY
Nýr og enn betur
búinn sendibíll frá Suzuki,
með alla kosti fyrirrennara
síns og marga að auki.
SUZUKICARRY1000
sendibíll kr. 373.000.-
SUZUKI CARRY 1000
háþekjusendibíll kr. 385.000.-
SUZUKI - Margfaldur
íslandsmeistari í sparakstri
SUZUKI FOX
Sterkbyggður og sparneytinn.
Þrautreyndur við íslenskar aðstæður.
SUZUKI FOX SJ410 jeppi 4 gíra kr. 380.000.-
SUZUKI FOX SJ413 háþekju-
jeppi 5gíra kr. 468.000.-
SUZUKI FOX SJ410 pickup 4gíra kr. 420.000.-
SUZUKI FOX SJ413 pickup 5 gíra kr. 465.000.-
SUZUKI
s«
SVEINN EGILSSONHF.
Skeifunni 17. Sími 685100
SOLUUMBOÐ:
Bílaverkstæði Guðvarðar Elfss., Drangahraun 2
220 Hafnarfjörður-91/52310
Bilaumboð Stefnis hf., Austurvegur 55-58
800 Selfoss- 99/1332-1626
Ragnar Imsland, Miðtiin 7
780 Höfn Hornaf. - 97/8249-8222
Bifreiðaverkst. Lykill
740 Reyðarfjörður - 97/4199-4399
Bílaverkst. Jóns Þorgrimss., Garðarsbraut 62-64
640 Húsavík - 96/41515
Blasalan hf., Strandgata 53
600 Akureyri - 96/21666
Brynjar Pálsson, Hólmagrund 19
550 Sauðárkróki - 95/5950-5317
Dalverk, Vesturbraut 18
370 Búðardal- 93/4191
Bflasala Vesturlands, Borgarbraut 56
310 Borgarnes - 93/7577
Ólafur G. Ólafsson, Suðurgata 62
300 Akranes - 93/1135-2000
Kaupfélag Húnvetninga
540 Blönduósi - 95/4198
PÁV IWtm>V Arru Viklrmiruau, hl
Gengi 10.6.86