Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Paragvæ
Eg hef ekki látið hjá líða að
§alla hér á síðu um íslenskar
heimildarmyndir er hafa ratað á
skjáinn. Þó hef ég nú stundum ekki
verið alveg sáttur við þessar „heim-
ildarmyndir" enda talið sumar hvetj-
ar nánast auglýsingamyndir er lofa
og prísa þær stofnanir er að baki
standa. Þá má ekki gleyma því að
það getur skipt miklu fýrir ung og
uppvaxandi kvikmyndafyrirtæki að
koma filmum á framfæri í sjónvarpi
allra landsmanna. Hvað um það þá
er ég alls ekki að amast við íslenskum
heimildarmyndum framleiddum af
einkaaðilum en vil aðeins benda á
að ríkisútvarpið er bundið ákveðnum
siðareglum er kveða á um óhlut-
drægni. Þriðjudaginn 24. júní síðast-
liðinn birtist á skjánum alíslensk
heimildarmjmd er var kynnt svo í
dagskrárkynningu: Paragvæ — ís-
lenskir kvikmyndagerðarmenn fóru
til Paragvæ í Suður-Ameríku á liðn-
um vetri. í myndinni er brugðið upp
svipmyndum af landi og þjóð. Fram-
leiðendun Myndvarp og Frétta- og
fræðsluþjónustan. Umsjón og stjóm:
Rafn Jónsson. Kvikmyndataka: Bald-
ur Hrafnkell Jónsson. Hljóð: Böðvar
Guðmundsson.
Það vill nú þannig til að aðstand-
endur þessarar Paragvæ-myndar eru
fyrrum innanbúðarmenn hjá íslenska
ríkissjónvarpinu og því hæg heima-
tökin. Samt hreifst ég nú svolítið af
framtaki strákanna. Af hveiju ekki
« að nota sér fría ferð til Paragvæ og
festa það sem fyrir augu og eyru
bar á filmu? Það er hárrétt hjá Rafni
Jónssyni að sjaldnast sjáum við hér
á Vesturlöndum aðrar myndir frá
S-Ameríku en af skelfdu fólki hlaup-
andi undan táragassprengjum og
kylfum lögreglu. I Paragvæ-mynd
Myndvarps sáum við hins vegar
landið með augum venjulegs ferða-
manns, slíks er rétt drepur niður
fæti og kíkir á hið hversdagslega
mannlíf og skreppur til helstu merk-
isstaða. Eg segi kannski ekki að
myndin hans Rafns jafnist á við
þaulhugsaðar landkynningarmyndir
frá breska eða þýska sjónvarpinu,
myndir þar sem ekki er bara skoðað
landið er við blasir heldur eru og
innviðir samfélagsins rýndir. En
getur fagmennskan ekki gengið úr
hófi fram þannig að sjónvarpsáhorf-
andinn þreytist á formúlunni?
Paragvæ-mynd Rafns og félaga varð
til af tilviljun og því var hún einlæg
í öllum sínum ófullkomleika. Komst
Rafn Jónsson jafnvel svo langt í
einlægni sinni að lýsa því yfir að
sennilega væri Alfredo Stroessnere,
hinn alræmdi einrasðisherra landsins,
bara farsæll stjómandi úr því hann
hefði hangið á valdastóli síðan 1954.
„Þeir væm ömggiega löngu búnir
að losa sig við hann ef ástæða hefði
þótt til.“
Rafn Jónsson áréttaði hvað eftir
annað í myndinni að sjaldan kæmist
nú Paragvæ í heimsfréttimar og
því væri kannski ástæða til að kíkja
á þetta gleymda land í hjarta S-Amer-
íku. En nú vill svo til að kvöldið eftir
að hið týnda land Paragvæ ljómaði
á skerminum þá skaust þaðan örstutt
fréttaskot af gervihnattaspeglum
alþjóðlegu fréttastofanna. I þessu
fréttaskoti sáum við ekki stærsta
vatnsorkuver jarðarinnar eða lista-
fögur leirker Paragvæ-indíánanna,
nei, myndavélunum var beint að hópi
óeinkennisklæddra lögreglumanna
er hindraði helsta stjómarandstæð-
inginn í Paragvæ í að komast um
alþjóðaflugvöll inn í landið. Mynda-
vélum var síðan beint að mari á síðu
mannsins. Allt fór sumsé samkvæmt
áætlun, fréttamennimir mættir á
staðinn það sem átökin voru fyrirséð.
Er nema von að manni finnist stund-
um að fréttamenn alþjóðlegu frétta-
stofanna séu hafðir að ginningarfifii
að þeir séu kvaddir á þaulæfðar leik-
sýningar sem ætlað er að rata á hinn
alheimslega sjónvarpsskjá er sjaldn-
ast sýnir hið hversdagslega amstur
milljarðanna er byggja þessa jörð.
Ólafur M.
Jóhannesson
Atriði í kvikmyndinni Ósýnilegan konan sem er á dagskrá sjónvarps í kvöld.
Föstudagsmyndin:
Ósýnilega konan
■■^H Ósýnilega kon-
QO15 an (Phantom
LiLt— Lady), banda-
rísk bíómynd frá árinu
1944, er á dagskrá sjón-
varps í kvöld. Myndin er
svart-hvít. Þegar ungur og
framagjam arkitekt kemur
heim í íbúð sína í New
York er tekið á móti honum
af hóp rannsóknarlög-
reglumanna. Kona hans,
sem hann hefur þá nýlega
verið að rífast við, hefur
fundist kyrkt í rúmi sínu.
Hann fullyrðir að hann
hafi eytt kvöldinu með
ungri konu sem hann hafi
hitt á bar fyrir tilviljun.
Stúlkunnar er ákaft leitað
þar sem hún er eina vitnið
sem áréttað getur fjarveru
eiginmannsins um kvöldið.
Kvikmyndahandbókin gef-
ur
þessari
stjömu og
sæmilega.
mynd
telur
eina
hana
Stjórnmálanámskeið:
Erlendur Jónsson
les smásögu sína
■■■■ Erlendur Jóns-
-| A 00 8011 *es smásögu
14— sína, Stjóm-
málanámskeið, á rás eitt
eftir hádegi í dag. Það er
fyrri hluti, en síðari hlutinn
verður lesinn mánudaginn
30. júní. Sagan fjallar um
einhleypan mann um fer-
tugt sem líður önn fyrir
einsemd sína og langar að
finna sér lífsfyllingu með
einhveijum hætti. Vinir
hans og velunnarar vilja
að hann finni sér góðan
félagsskap, t.d. í pólitík-
inni, og þegar flokkurinn
sem hann hefur alltaf stutt,
auglýsir stjómmálanám-
skeið finnst honum kjörið
tækifæri að reyna sig á
þeim vettvangi. Um skeið
finnst honum að sér muni
opnast dyr til áhrifa og
valda í þjóðfélaginu en
þegar fram líða stundir sér
hann að þar er ekki allt
eins og hann hafði vænst.
Og á kosningadegi ráðast
úrslitin hjá okkar manni í
fleiri en einum skilningi.
Lágnætti:
Spilað og spjallað um tónlist
■■■■ Lágnætti, tón-
C\a 00 listarþáttur
Lj*±— ISddu Þórarins-
dóttur, verður að venju
eftir miðnætti í kvöld.
Gestir Eddu að þessu sinni
verða þeir Bjöm R. Einars-
son básúnuleikari og Jónas
Þórir Dagbjartsson fiðlu-
leikari hjá sinfóníuhljóm-
sveitinni. Þeir hafa báðir
starfað með sinfóníuhljóm-
sveitinni allt frá því að hún
var stofnuð, og þekkja því
manna best þá tíma er
hljómsveitin var að slíta
bamsskónum. Munu þeir
segja ýmsar sögur af því,
t.a.m. hvaða stjómendur
mótuðu hljómsveitina
mest. Fyreti aðalstjómand-
inn var Ólafur Kielland og
hafði hljómsveitin nánast
verið eins og leir í höndum
hans. Leikin verður tónlist
eftir óskum þeirra og það
era m.a. mjög gamlar
upptökur frá fyreta skeiði
sínfóníuhljómsveitarinnar.
I
UTVARP
FOSTUDAGUR
27. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
8.30 Fréttirá ensku
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Pétur Pan og Vanda"
eftir J.M. Barrie
Þýöandi: Sigríöur Thorlac-
ius. Lesari: Heiðdís Norð-
fjörð (3).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.46Lesiö úr forustugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áöur sem Guö-
mundur Sæmundsson flyt-
ur.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Sögusteinn
Umsjón: Haraldur Ingi Har-
aldsson. (Frá Akureyri)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur
Umsjón: Anna Ingólfsdóttir
og Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miödegissagan:
„Stjórnmálanámskeiö”,
smásaga eftir Erlend Jóns-
son.
Höfundur les fyrri hluta.
14.30 Nýttundirnálinni
Lög leikin af nýútkomnum
hljómplötum.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Á hringveginum —
Suöurland
Umsjón: Einar Kristjánsson,
Þoriákur Helgason og Asta
R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir
16.20 Síödegistónleikar
a. „Orfeus í undirheimum",
forieikur eftir Jacques Offen-
bach. Fílharmoníusveitin í
Berlín leikur; Herbert von
Karajan stjómar.
b. „Keisaravalsinn" eftir
Johann Strauss.
Kammersveitin í Baden-
Baden leikur; Manfred
Reichert stjórnar.
c. „Flautudans", þáttur úr
„Hnotubrjótnum" eftir Pjotr
Tsjaikovský; Fílharmoníu-
sveitin í Beriín leikur; Ferdin-
and Leitnerstjómar.
e. „Tveir þættir" úr Þyrni-
rósuballettinum eftir Pjotr
Tsjaíkovský. Fílharmóniu-
sveitin í Varsjá leikur; Witold
Rowicki stjórnar.
17.00 Fréttir
17.03 Barnaútvarpiö
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir. Aöstoöarmaöur: Sig-
urlaug M. Jónasdóttir.
17.45 I loftinu
Hallgrímur Thorsteinsson
og Guölaug María Bjarna-
dóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.55 Daglegt mál. Öm Ólafs-
son flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins
Valtýr Bjöm Valtýsson kynn-
ir.
20.40 Sumarvaka.
a. Skiptapinn á Hjallasandi
Úlfar K. Þorsteinsson les
annan hluta af fjórum úr
Gráskinnu hinni meiri.
b. Kórsöngur
Kariakór Mývatnssveitar
syngur undir stjóm Amar
Friörikssonar.
c. Gamla heyiö
Guörún Aradóttir les sögu
eftir Guömund Friöjónsson.
Umsjón: Helga Ágústsdótt-
ir.
21.30 Frátónskáldum
Atli Heimir Sveinsson kynnir
verk sitt „Landet som icke
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Visnakvöld
Aöalsteinn Ásberg Sigurös-
son sér um þáttinn.
23.00 Frjálsarhendur
Þáttur í umsjá llluga Jökuls-
sonar.
24.00 Fréttir.
00.05 Lágnætti
Spilaö og spjallaö um tón-
list. Edda Þórarinsdóttir tal-
ar viö Björn R. Einarsson
og Jónas Þóri Dagbjartsson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl.
3.00.
FOSTUDAGUR
27.júní
9.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: ÁsgeirTómas-
son, Kolbrún Halldórsdóttir
og Gunnlaugur Helgason.
12.00 Hlé
14.00 Bótímáli
SJÓNVARP
I
19.15 Á döfinni. Umsjónar-
maöur Maríanna Friöjóns-
dóttir.
19.25 Krakkarnir í hverfinu
(Kids of Degrassi Street)
4. Martin heyrirtónlist.
Kanadískur myndaflokkur í
fimm þáttum fyrir börn og
unglinga.
Þýöandi Ólöf Pétursdóttir.
19.60 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Listapopp 16. júni
FOSTUDAGUR
27.júní
1986.
Svipmyndir frá fyrri popp-
tónleikum Listahátíöar i
Laugardalshöll. Kynnir: Jón
Gústafsson.
21.16 Ságamli(DerAlte)
12. þáttur.
. Þýskur sakamálamynda-
flokkur í fimmtán þáttum.
Aöalhlutverk: Siegfried
Lowitz. Þýöandi Kristrún
Þóröardóttir.
22.10 Seinni fréttir.
22.16 Ósýnilega konan
(Phantom Lady) s/h
Bandarísk kvikmynd frá ár-
inu 1944.
Leikstjóri: Robert Siodmak.
Aöalhlutverk: Ella Raines og
Franchot Tones.
Ungur maöur á uppleiö er
sakaöur um moröið á konu
sinni. Fjarvistarsönnun
hans veltur á vitnisburöi
stúlku sem enginn veit deili
á. Hennar er ákaft leitað,
en ýmis Ijón veröa á vegin-
um.
Þýöandi Kristmann Eiðsson.
23.40 Dagskráriok.
Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynnir óska-
lög þeirra.
16.00 Frítiminn
Tónlistarþáttur meö ferða-
málaívafi í umsjá Ásgerðar
Flosadóttur.
17.00 Endasprettur
Ragnheiöur Davíösdóttir
kynnir tónlist úr ýmsum átt-
um og kannar hvað er á
seyöi um helgina.
18.00 Hlé.
20.00 Þræðir
Stjórnandj: Andrea Jóns-
dóttir.
21.00 Rokkrásin
Snorri Már Skúlason og
Skúli Helgason kynna
söngvarann Peter Gabriel
Síöari hluti.
22.00 Kvöldsýn
Valdfs Gunnarsdéttir
kynnir tónlist af rólegra
taginu.
23.00 Ánætun/akt
meö Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskráriok.
Fréttir em sagöar í þrjár
mínútur kl. 9.00, 10.00,
11.00, 15.00, 16.00 og
17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.15—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96.5 MHz.