Morgunblaðið - 27.06.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
13
Bandalag ísl.
listamanna:
Samstaða
náist um
gerð tón-
listarhúss
VEGNA þeirrar gagnrýni
sem fram hefur komið varð-
andi fyrirhugaða byggingu
tónlistarhúss, viU stjórn
Bandalags íslenskra lista-
manna koma eftirfarandi á
framfæri.
Stjómin leggur ríka áherslu á
að samstaða náist um endanlega
gerð hússins meðal þeirra sem
hagsmuna hafa að gæta. Telur
stjómin að mjög hafi skort á að
eðliiegt samráð og samvinna hafi
verið höfð við þá listamenn sem
málið snertir.
Bendir stjómin og á að mistök
í byggingu tónlistarhúss geti
orðið mjög afdrifarík því að hér
er um hús að ræða sem þjóna á
tónlistarlífi þjóðarinnar um langa
framtíð.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222
Aukinn ferðamanna-
straumur á Flúðum með
bættri aðstöðu á Grund
— spjallað við Sigurgeir kaupmann
VERZLUNIN Grund á Flúðum í Hrunama.nna.hreppi er nú
komin í fullan gang í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem
jafnframt er ágæt veitingaaðstaða. Um Flúðir liggur leið
fjölda ferðamanna yfir sumartimann, einkum þeirra sem fara
til að skoða Gullfoss, og að sögn Sigurgeirs Sigmundssonar
kaupmanns hefur umferðin aukizt mjög síðan veitingastofan
í verzluninni tók til starfa enda er Verzlunin Grund opin á
kvöldin og um helgar á meðan ferðamannastraumurinn er
mestur.
„Það má segja að rekstur svo erlendur ferðamaður hingað
Grundar skiptist þannig að annars til lands að hann skoði ekki Gullfos
vegar sé um að ræða þjónustu við
heimamenn enda er full þörf á
því að þeir hafí aðgang að verzlun
þar sem á boðstólum er öll algeng
matvara, ritföng, búsáhöld, leik-
fong og ýmislegt sem telja má til
daglegra nauðsynja. Hins vegar
er svo þjónusta við sumarbústaða-
fólk og ferðamenn sem eru ákaf-
lega góðir viðskiptamenn enda er
sumarið einskonar vertíð. Síðan
veitingaaðstaðan kom til sögunn-
ar hefur það færzt mjög í vöxt
að fólkið hér í sveitinni komi
hingað ekki síður til að hittast og
spjalla en að gera innkaup sín,“
segir Sigurgeir sem gengur undir
ýmsum nöfnum svo sem títt er
um kunna menn. Ýmist er hann
kallaður Geiri á Grund, kaup-
maðurinn eða bara kaupi.
„Það má eiginlega segja að
verzlunin hafi aukizt I samræmi
við vöxt Flúða-hverfisins,“ segir
kaupmaðurinn, „og þá fiölbreytni
sem orðin er í atvinnulífi hér í
sveitinni. Við urðum fyrir því áfalli
í marz í fyrra að verzlunarhúsið
brann og f eldsvoðanum eyðilagð-
ist eiginlega allt nema frystiklef-
inn sem hægt var að nota áfram
eftir mikla viðgerð á honum.
Skrifstofan brann og allt sem í
henni var og þar fór ýmislegt sem
ekki er unnt að bæta, m.a. per-
sónulegir munir. Það var svo aftur
líkast kraftaverki hvernig þetta
hús, sem verzlunin er nú í, rauk
upp á svipstundu þannig að við
gátum opnað að nýju 8. júní og
þar skipti meginmáli að maður á
góða að og sveitungamir voru
mjög hjálplegir."
Eins og allir vita kemur varla
og Geysi og er það þá yfírleitt
gert í sömu dagsferðinni. Lengi
vel fóru ferðamennimir rakleiðis
á þessa staði en nú tíðkast mjög
að farinn sé hringur með viðkomu
á Flúðum enda er margt skemmti-
legt að sjá þar um slóðir. Á Flúð-
um er ýmislegt til skemmtunar
og fróðleiks fyrir ferðamenn, m.a.
minjasafn Emils Ásgeirssonar í
Gröf. Á Flúðum er auk þess ágæt
aðstaða til útivistar af ýmsu tagi,
Hettavatnið
er ekki óþrjótandi nema...
Sum lífsþægindi eru svo
samtvinnuð daglegu lífi okkar
að við tökum naumast eftir
þeim. Þannig finnst okkur
heita vatnið ósköp hversdags-
legt og lítilvægt, nánast jafn-
sjálfsagt og andrúmsloftið.
Ekkert er t.d. eðlilegra en að
geta skotist í heitt og notalegt
bað hvenær sem er nema...
nema ef lokað er fyrir heita
vatnið. Þá vekur köld gusan
okkur til umhugsunar og
skyndilega er smáatriðið orðið
að aðalatriði. Allt í einu jafnast
ekkert á við heitt vatn.
Heitt vatn úr iðrum jarðar er
auðlind sem mikilvægt er að
nýta. Hitaveita Reykjavíkur
kappkostar að miðla þessari
verðmætu orku skilvíslega og
hnökralaust til notenda. Til að
það sé unnt verða orkukaup-
endur að greiða skilvíslega
fyrir þjónustuna. Hafðu hug-
fast að heita vatnið er ekki
óþrjótandi nema þú greiðir
orkureikninginn.
Láttu orkureikninginn hafa
forgang.
Morgunblaðið/RAX
Sigurgeir í nýju verzluninni. Þar er fullkomin frysti- og kæligeymsla eins og sjá má í bakgrunni.
s.s. sundlaug. Þar er rekið sumar-
hótel en Skjólborg, þar sem eru
smáhýsi með eldunaraðstöðu og
heitum potti við hveija vistarveru,
er hins vegar opin allt árið.
„Við hér í Flúða-hverfinu höf-
um áhuga á því að laða að ferða-
menn. Um það eru allir samtaka
og á undanfömum árum hefur
aðstaða ferðamanna hér sífellt
tekið framförum," segir Sigur-
geir. „Þó er þess gætt að þessi
þáttur í athafnalífínu á staðnum
verði ekki yfírgnæfandi því að við
teljum æskilegt að ferðamanna-
þjónustan mótist af því lífí sem
hér er og slitni ekki úr tengslum
við það.“