Morgunblaðið - 27.06.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986
Norrænt vinabæja-
mót á Siglufirði
e/tir VigfúsÞór
Arnason
Tuttugasta og sjöunda júní árið
1938 var Norræna félagið stofnað
á Sigiufirði. Aðalhvatamaður að
stofnun þess var Guðmundur Hann-
esson þáverandi bæjarfógeti á
Siglufirði. Á fyrsta fundi félagsins
gekk í félagið 61 félagi, en í fyrstu
stjómina voru kosnir Guðmundur
Hannesson formaður, Alfons Jóns-
son ritari og Baldvin Þ. Kristjánsson
gjaldkeri.
í fyrstu grein félagslaganna er
tilgangur orðaður á eftirfarandi
hátt: Tilgangur félagsdeildarinnar
er að vinna í náinni samvinnu við
Norræna félagið í Reykjavík, og við
skyld félög á Norðurlöndum í því
að efla sambúð og samvinnu nor-
rænna þjóða.
Vill Siglufjarðardeildin sérstak-
lega vinna að j)ví að samband Sigl-
fírðinga og Islendinga við aðrar
norrænar þjóðir verði sem öflugast
víðtækast og innilegast, bæði á
hinum félagslega og menningarlega
grundvelli. Félagið vill stuðla að
auknum kynnum og þekkingu nor-
rænna þjóða. Félagið hefur starfað
allt frá stofndegi, þó að starfsemin
hafí verið misjafnlega mikil frá ári
til árs.
Mikilvægur þáttur í starfsemi
Norrænu félaganna er að stuðla að
og rækta svonefnd vinabæjatengsl.
Snar þáttur í þeim eru vinabæja-
mótin, sem haldin eru til skiptis í
vinabæjunum.
Fyrsta vinabæjamótið á íslandi
var haldið á Siglufírði 26.—30. júlí
árið 1951. Eðlilegast má telja að
Siglufjörður hafí verið fyrstur til
að halda slíkt mót, þar sem saga
staðarins, síldarsagan, var svo mjög
norræn.
Um árabil sóttu staðinn heim
sjómenn og síldarspekúlantar frá
flestum Norðurlandanna, og heyra
mátti á götum úti talaða dönsku,
norsku, sænsku og fínnsku.
Á fyrsta vinabæjamótið mættu
fulltrúar frá Heming í Danmörku,
Holmestrand i Noregi, Vánersborg
í Svíþjóð, Utajárvi í Finnlandi. Síðan
hafa bæst við Álesund á Álandseyj-
um, Eiði í Færeyjum, og í stað
Utajárvi í Finnlandi kom Kangasa-
la.
Þegar fyrsta vinabæjamótið var
haldið var Þ. Ragnar Jónasson
formaður, en lengst af hefur Sig-
urður Gunnlaugsson gegnt því
starfí fyrir Norræna félagið. Hefur
hann starfað ötullega að þeim mála-
flokki, bæði fyrir Norræna félagið
á Siglufírði og fyrir Norræna félag-
iðálslandi.
Mikilvægur þáttur vinabæjamóta
er að á milli bæjarfélaganna skapist
traust og varanleg tengsl en þau
verða til, ef einstaklingar bæjarfé-
laganna tengjast vináttuböndum,
en fátt er mikilvægara í lífinu en
traust vinátta og heilbrigð. Mikil-
vægt er því að allur almenningur
taki þátt í slíkum mótum. Síðan
vinabæjamótið var haldið í Kan-
gasala árið 1982, hafa Siglfírðingar
tekið virkan þátt í vinabæjamótun-
um. Fimmtíu til sextíu Siglfírðingar
hafa sótt mótin ár hvert en þau eru
haldin árlega.
Sterk félagsleg og menningarleg
tengsl hafa skapast, margir hafa
eignast persónulega vini. Kirkjukór
og Lúðrasveit Siglufjarðar hafa
tekið þátt í mótunum, skipti hafa
átt sér stað milli skóla og kennara-
samtaka, og þannig mætti lengi
telja.
Oft er spurt hvort norræn sam-
vinna hafí eitthvert gildi fýrir okkur
íslendinga. Það yrði langt mál að
svara þeirri spumingu, en hér má
benda á hve mikilvægur þáttur í
norrænni samvinnu vinabæja-
tengslin og starf norrænu félag-
anna er.
Nú í lok júnímánaðar munu Sigl-
fírðingar halda vinabæjamót sitt.
Til staðarins munu koma á þriðja
hundrað gestir, félagar í Norrænu
félögunum, íþróttamenn og konur,
tónlistarfólk og svo frv.
Á Siglufírði fer fram fjölþætt
menningardagskrá, en helztu þætt-
ir hennar eru eins og meðfylgjandi
dagskrá sýnir.
Það er von Norræna félagsins
að sem flestir Sjglfírðingar taki þátt
í vinabæjamótinu. Með þátttöku
skapast tengsl og vinátta sem eru
homsteinar norrænnar samvinnu.
Höfundur er sóknarprestur á
Siglufirði og formaður Norræna
félagsins.
Almannavarnir:
Leiðbein-
ingar um
þyrlunotkun
ALMANNAVARNIR hafa sent frá
sér bækling með leiðbeiningum um
notkun þyrlu við neyðar- og björg-
unarþjónustu.
Bæklingurinn er ætlaður öllum
þeim aðilum sem tengjast starfí
almannavama á neyðar- og hættu-
tímum og á að auðvelda þeim mót-
töku og umgengni við þær þyrluteg-
undir sem em í notkun á íslandi.
Lýst er öllum þessum þyrluteg-
undum og kennt hvemig á að bera
sig að við að velja lendingarstað
og undirbúa lendingu, hvað ber að
varast og hvemig gefa á flugmanni
merki.
Hótel Skál-
holt tekið
til starfa
Sumarhótelið í Skálholti hefur
tekið til starfa í húsakynnum Lýð-
háskólans.
í hótelinu er boðið upp á fullt
fæði og gistingu í eins og tveggja
manna herbergjum, auk þess sem
svefnpokapláss er til reiðu.
Þar er aðstaða fyrir minni ráð-
stefnur og námskeið. í nágrenni
hótelsins er auk þess hægt að
komast í sundlaugar, heita potta
og ljósabekki, hestaleigu og fá
veiðileyfi.
Um helgar heldur Helga Ingólfs-
dóttir tónleika í Skálholtskirkju.
Til Skálholts er hægt að komast
daglega með Sérleyfísbílum Selfoss.
ÓS^erbfóstari’o9^
Hún **£*«*»■ 9£TýbV«j
■ coant)óK\na se i v tgem'ð
'^Máið^'.^nabarbar
>tnáe9a