Morgunblaðið - 27.06.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
17
Um tónlistarhús
eftir Kolbein J.
Ketilsson
Þar sem lítið sem ekkert hefur
borið á áliti þeirra sem nú stunda
tónlistamám í landinu varðandi
fyrirhugað tónlistarhús, tel ég mig
knúinn til að opinbera skoðun mína
og sannfæringu vegna þess.
Síðan dómnefnd gerði úrskurð
sinn opinskáan hefur umQöllun um
tónlistarhúsið, m.a. í fjölmiðlum,
einkennst af greinilegri andstöðu
vegna þess að ekki skuli vera gert
ráð fyrir aðstöðu til óperuflutnings
í því. Það er gagnslaust að ætla
að kasta sandi í augu aimennings
í þessu sambandi og halda því fram
að fyrir henni sé ráð gert. Ekki er
aðeins nóg að líta á teikningar
fyrirhugaðs húss og iögun sam-
kvæmt líkani til að sjá að svo er
ekki, heldur virðist ekki möguleiki
á að breyta því seinna meir.
Mikil tilhiökkun og hugur var í
almenningi við upphaf umræðunnar
um íslenskt tónlistarhús. Flestir
eygðu þar drauminn sem aldrei
virtist ætla að rætast um að loksins
risi alhiiða tónlistarhús fyrir allar
tegundir tónlistar. Hús sem ekki
þyrfti að skammast sín fyrir, en svo
oft hefur sú sorglega orðið raunin
á er listamenn, innlendir sem er-
lendir, hafa flutt list sína hér. En
nú hefur sá draumur tekið miður
skemmtilegum breytingum. Dóm-
nefnd í samkeppni um tónlistarhús
ætlar sér að axla þá ábyrgð með
ákvörðunartöku sinni að séð er nú
„Flestir eygðu þar
drauminn sem aldrei
virðist ætla að rætast
um að loksins risi al-
hliða tónlistarhús fyrir
allar tegundir tónlist-
ar.“
fyrir endann á möguleikanum á
meiriháttar uppfærslum hinna
margvíslegu tónlistarviðburða.
Ballett, ópera, söngleikir (musicals)
og annars konar sviðsverk verða
enn um ókomna tíð að hírast við
þröngan kost og lítið pláss þar sem
flutningur þeirra getur nánast aldr-
ei orðið annað en hálfgerð skrípa-
mynd af því sem upphaflega var
ætlast til.
En hvað veldur, hljóta allir þeir
að spyrja sem í upphafi lýstu sig
reiðubúna að styrkja fyrirtækið?
Hefur land sem ekki telur fleiri íbúa
- en raun er á, efni á að gera ekki
ráð fyrir mismunandi tónlistarflutn-
ingi í slíku húsi? Aðrar þjóðir sem
telja milljónir íbúa og kalla má ríkar
telja sig ekki hafa efni á því.
Kolbeinn J. Ketilsson.
Það hlýtur að vera sanngjöm
krafa þeirra sem ekki sætta sig við
úrskurð dómnefndarinnar að fá
upplýst hvað réði slíkri ákvörðun.
Hjá hveijum var leitað álits og ráð-
gjafar og hver var hún? Þvi hafa
svo margar mótmælagreinar birst
um ákvörðun dómnefndarinnar en
engin til stuðnings henni? Það
furðulega við þetta allt er að þegar
þetta mál ber á góma og ég verið
nálægur, hef ég engan þann tónlist-
amema talað við eða persónu yfir-
leitt sem ekki hefur lýst furðu sinni
á væntanlegu fyrirkomulagi húss-
ins.
Þvi er mér spum, af hveiju ekki
að sameinast um tónlistarhús sem
langflestir geta sætt sig við, flytj-
endur og áheyrendur?
Höfundur er söngvemi í Reykja-
vík.
„Kvenna-
gnllin“
í Regn-
boganum
REGNBOGINN hefur tekið tU
sýninga myndina „Kvennagullin"
með Peter Coyote, Nick Mancuso
og Carole Laure í aðalhlutverk-
um. Leikstjóri er Bobby Roth.
Myndin fjallar um tvo vini, annar
er listmálari og lepur dauðann úr
krákuskel, hinn er pabbastrákur og
gerir það gott undir handarjaðri
föður síns. Þar kemur sögu að
sambýliskona listamannsins fær
léttan afkomuskjálfta, yfirgefúr
hann og tekur saman við annan
listamann sem komið hefur ár sinni
vel fyrir borð.
Hinn niðurbrotni listamaður er í
AUSTURSTR/ET117
VIÐIR
STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI
Það er engin spuming —
í kjöti emm við í sérflokki!
1. flokks úrvinnsla á kjöti og
gæðamatið í höndum færustu
fagmanna.
Kjötborðin slá allt út... É
Pú færð hvergi
meira úrval af ávöxtum,
og fersku grænmeti! m
Nauta.
hamborgari
m«ð brauðl
/
• JV; I
, iINí. 'v. ^—.. 'V .
AÐEINS
kr.
i fiskborði
V5A K555um fslenskt
Mianala »VI Vl • Eftlrlœti okkar Islendinga
rjíUiaidniD. sunnud«0sst.lkl
Læri Hryggur
Bananar 79 i2l. 298" 298
Gulepli 69í°kft- ,, Grillsneiddir
V2
með kjöthitamæli
l>/2 líter
nn - frampartar ACZ
Cidiappelsínur 68 “ke.
UR BAKARIINU
6—8 manna
ljúffeng
Sjónvarpskaka 89 00 rjómaterta 29800
nn PRIPPS BJÓR
‘UV Vl Kter ÍO 50
pr.kg. AÐEINS ^O’
Kaffe kaffi
g!\ Vi kg
* 15900
þann veginn að gefa upp alla von
um hamingju og velgengi héma
megin grafar þegar listaverkasali
nokkur fær áhuga á verkum hans.
Akveðið er að setja upp sýningu á
þeim, Amor fer á kreik og hinn sí-
gildi þrihymingur verður staðreynd.
Vinimir tveir gera sér dælt við sama
kvenmanninn og það liggur við
vinslitum. Spumingin er aðeins
þessi; hversu mikið álag þola gömul
vinabönd?
Opiðtilkl.21 í Mióddinni-* 01 í Austurstræti
Lokað á laugardögum í sumar