Morgunblaðið - 27.06.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
Stórveldin:
Hlé á afvopn-
unarviðræðum
Miðar þótt hægt fari
# Genf, Waahinton, AP.
Á FIMMTUDAG lauk fimmtu
lotu afvopnunarviðræðnanna i
Genf, með allsheijarfundi samn-
inganefndanna. Max Kampel-
man, aðalsamningamaður
Bandarikjastjóraar, sagði að
þrátt fyrir að enn vœri alvarleg-
ur ágreiningur milli ríkjanna,
hefði miðað vel áfram. Þegar
Viktor P. Karpov, formaður
sovésku samninganefndarinnar,
var spurður hvort einhver árang-
ur hefði náðst, svaraði hann hins
vegar: „Ekki svo ég hafi tekið
eftir“.
Þegar svar Karpovs var borið
undir Kampelman, vísaði hann því
á bug sem áróðursbragði. Hann
sagði að samninganefndin héldi til
BrUssel, og myndi skýra banda-
mönnum Bandaríkjanna frá gangi
viðræðna. Að því loknu mun hún
fara til Washington, til þess að
aðstoða við samningu gagntiiboða,
sem verða kynnt Sovétmönnum í
næstu samningalotu. Viðræður
hefjast hinn 18. september, að
loknu sumarhléi.
Viðræðunum, sem hófust í mars-
mánuði 1985, hefur verið skipt
milli þriggja undimefnda. Ein fjall-
ar um geim- og vamarvopn, önnur
um meðaldræg kjamorkuvopn og
sú þriðja um langdræg kjamorku-
vopn. Hefur misvel miðað, en
minnst hvað varðar meðaldrægar
flaugar. Sovétmenn hafa linast f
afstöðu sinni til nokkurra mála, og
ber hæst afstaða þeirra til geim-
vamaáætlunar Bandaríkjamanna.
Kempelman sagði þó að Sovétmenn
yrðu að sýna meiri samningsvilja,
ef saman ætti að ganga.
Að undanfömu hafa Bandarfkja-
Hér má sjá síðasta fund samninganefnda stórveldanna, í bili. Af-
vopnunarráðstefnan í Genf hefur staðið með hléum síðan í mars,
1985.
menn sætt gagnrýni fyrir að ætla
að hefja framleiðslu efnavopna á
ný. Hafa Sovétmenn verið framar-
lega í hópi gagnrýnenda. Kom þetta
mál m.a. til tals á ráðstefnu 40 ríkja
um afvopnunarmál, sem haldin er
í Genf þessa daga. Donald Lowitz,
fulltrúi Bandaríkjastjómar svaraði
gagnrýni Sovétmanna fullum hálsi.
Hann sagði það sfst traustvekjandi
af hálfu Sovétríkjanna, að neita að
viðurkenna tilvist efnavopna í Sov-
étríkjunum, einmitt þegar viðræður
um bann við þeim ættu sér stað.
Bandaríkin halda þvf fram að Sovét-
menn búi yfir stærsta efnavopna-
búri heims. Sovésk stjómvöld neita
alfarið að gefa nokkrar upplýsingar
um efnavopn sín, fyrr en bann hefur
tekið gildi.
GENGI
GJALDMIÐLA
Lundúnum, AP.
Bandarikj adalur hækkaði lít-
Ulega á Evrópumarkaði í gær.
Er talið að orðrómur þess efnis
að Japansbanki ætli að lækka
jenið gagnvart dolLaranum, eigi
sök á því. Sterlingspundið kost-
aði 1,5170 dali í gær, en kostaði
á miðvikudag 1,5195 dali. Þrátt
fyrir það lækkaði gengi dollar-
ans gagnvart jeninu þriðja
daginn í röð. Sérfræðingar telja
að dollarinn muni enn lækka,
þrátt fyrir þennan kipp.
GuU hækkaði einnig lítUlega,
en óvist þykir um f ramhaldið.
Síðdegis í gær var gengi banda-
ríkjadals sem hér segir. 2,2195
v-þýsk mörk (var 2,2115), 1,8185
svissn. franki (1,8135), 7,0895
franskir frankar (7,0550), 2,5005
hollensk gyllini (2,4895), 1.524,50
ítalskar límr (1.516,75), 1,3925
kanad. dollarar (1,3852).
Svíþjóð:
upplýstur
Frá Willy Silbergtein, fréttaritara Morgunblaðsins f Stokkhóbni.
FORSTJÓRI nokkur í Stokk-
hólmi varð uppvís að því að hafa
komist yfir 53 inilljónir sænskra
króna með aðstoð tölvu. Stuldur-
inn var uppgötvaður í tæka tíð
Kari Storækre.
Storækre
vill skjótan
skilnað
Ósló, fró Jan Erik Laure,
fréttaritara Morgunblaðaina.
KARI Storækre, fyrrum kona Arne
Treholt, reynir nú að fá skilnaði
þeirra að lögum flýtt með dómi.
Sænskur lögfræðingur hennar,
Henning Sjöström, hefur lagt fram
kröfu þar um fyrir borgardómi
Óslóar.
Taki borgardómur ekki kröfu Kari
Storækre til greina mun Sjöström
taka málið upp við norsku ríkisstjóm-
ina. Heimildir eru fyrir því að Ame
Treholt óski einnig eftir því að skilnaði
þeirra Kari verði flýtt. Hann heldur
því fram að hún hafi verið sér ótrú
með því að halda við sænskan sjón-
varpsfréttamann.
Kari Storækre fékk skilnað frá
Treholt að borði og sæng í október í
fyrra. Venjan er að eitt ár líði frá
skilnaði að borð og sæng þar til lög-
skilnaður fæst. Með skírskotan til
ætlaðrar flóttatilraunar Treholts og
ótta í þvi sambandi um að hann hafi
ætlað að ræna syni þeirra, hefur
Kari Storækre óskað eftir því að þurfa
ekki að bíða fram I október eftir því
að fá lögformlega upplausn hjóna-
bands þeirra.
og hefur maðurinn játað afbrot
sitt. Þetta er stærsti tölvuþjófn-
aður sem átt hefur sér stað í
Svíþjóð.
Lögreglan telur þrjá menn hafa
átt hlut að máli. Ýmislegt er enn á
reiki um sjálfan verknaðinn og
hefur lögreglan varast að gefa ná-
kvæmar upplýsingar, væntanlega
til þess að hindra að einhveijir fylgi
fordæmi mannanna. Hins vegar er
ljóst að mönnunum þremur tókst
að komast yfir upplýsingar sem
gerðu þeim kleift að færa 53 millj-
óna króna greiðslu frá Volvo-fyrir-
tækinu til tryggingafyrirtækis
nokkurs, inn á reikning í eigu þeirra
sjálfra. Þegar starfsmenn trygg-
ingafyrirtækisins urðu þess varir
að peningamir höfðu ekki skilað sér
gerðu þeir lögreglunni viðvart.
Við yfirheyrslur sagði forstjórinn
að tveir óþekktir menn hefðu haft
samband við sig og beðið um afnot
af reikningi sínum gegn þóknun og
hefði hann þekkst þetta boð.
Mennimir tveir eru enn ófundnir
en lögreglan telur þá vera útlend-
inga. Það vakti mikla reiði lögreglu-
manna að flölmiðlar skyldu komast
í frétt þessa þar sem mennimir tveir
ganga enn lausir.
Austur-Berlín:
Hermaður
skotinn
áflótta
Berlin.AP.
LÖGREGLAN í Vestur-Berlín
skýrði frá þvi ( gær, að grunur
léki á að austur-þýskir landa-
mæraverðir hefðu skotið her-
mann, sem var að reyna að fþ’ýja
yfir Berlínarmúrinn til vestur-
hluta borgarinnar.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
sjónarvottar, sem búa I hverfinu
Frohnau í Vestur-Berlín hefðu
heyrt skothríð og séð hermanninn
falla til jarðar við múrinn í Austur-
Berlín. Síðan hefðu austur-þýskir
landamæraverðir flarlægt manninn,
sem var enn með lífsmarki, og ekið
meðhannábrott.
//
Kjörbúð Lóuhólum 2-6 sími 74100
da»--iá
4 rúllur wc pappír papco 55,80
M S Bruður 59,80
Don Petro kaffi 69,80
2 kg. þvottaefni 56,90
1,5 1 mýkingarefni 56,90
T. Tómatar á 119 kr. kg.
Kryddlegin kinda blaðsteikt á 199 kr. kg.
Kryddlegnar lambalærissn. 339 kr. kg.