Morgunblaðið - 27.06.1986, Side 23
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
23
Forsetakosningar í Finnlandi 1988:
Váyrynen fram
gegn Koivisto
PAAVO Vfiyrynen, utanríkisráð-
herra, hefur verið útnefndur
frambjóðandi Miðflokksins við
forsetakosningamar i Finnlandi
árið 1988.
Vayrynen er 39 ára að aldri og
telur sig eiga góða möguleika á að
ná kjöri sem forseti, jafnvel þótt
Mauno Koivisto, forseti, reyni að
ná endurkjöri.
Gengið var frá útnefningu Vay-
rynens á fundi Miðflokksins um
helgina. Þar lýsti hann yfir því að
kosningamar 1988 yrðu „engin
æfing“ fyrir kosningamar 1994,
eins og hann orðaði það. Mauno
Koivisto, forseti, hefur ekki látið
uppi hvort hann hyggst reyna að
ná endurkjöri að tveimur árum liðn-
um.
Miðflokkurinn hefur verið gagn-
rýndur fyrir að útnefna frambjóð-
anda sinn með svo löngum fyrir-
vara. Leiðtogar flokksins em sagðir
gera sér vonir um að tíminn vinni
með flokknum og það sé ávinningur
f því að vera fyrstur af stað. Þeir
Paavo Vfiyrynen
afsaka ákvörðunina með skírskotun
til þess að næsta flokksþing fari
ekki fram fyrr en að kosningum
loknum.
Ómönnuð
dvergþyrla
Hér á myndinni má sjá nýja flugvélartegund, sem sýnd var í fyrsta
skipti á Bresku hergagnasýningunni í Aldershot fyrir skömmu. Þessi
ómannaða dvergþyrla er nefnd Soarfly, enda líkist hún meira skor-
dýri, en hefðbundinni flugvél á flugi. Framleiðendur hennar telja að
hún muni valda byltingu á vígvöllum framtíðarinnar, þar sem hún
getur farið í könnunar- og árásarferðir, án þess að mannshöndin komi
þar nærri.
Blaðburöarfólk
óskast!
KÓPAVOGUR
Skólagerði
Borgarholtsbr. 20-58
Hrauntunga
ÚTHVERFI
Ármúli
AUSTURBÆR
Hverfisgata 4-62 og fl.
ÍSLENSKA S JÓN VARPSFÉLAGIÐ HF - STÖD 2
EINSTÖK
ATVINNU
TÆKIFÆRI
íslenska sjónvarpsfélagið hf, býður frísku og áhugasömu
fólki að sækja um nokkrar lykilstöður hjá STOÐ 2, fyrstu
einkasjónvarpsstöðinni á íslandi. Útsendingar hefjast í
september. Eftirfarandi störf eru auglýst til umsóknar:
SKRIFSTOFUSTJÓRI
Verksviðið er m.a. umsjón með skrifstofu, starfsmannahaldi, gerð
greiðsluáætlana, eftirlit með samningum og yfirumsjón með bók-
haldi. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu úr
viðskiptaheiminum.
MARKAÐSSTJÓRI
Verksviðið er auglýsinga- og áskriftasala, ásamt ábyrgð á samskipt-
um stöðvarinnar við auglýsendur og áskrifendur á markaðssvæðinu.
Menntun og reynsla af sölu- og markaðsmálum nauðsynleg.
RITARAR OG SKRIFSTOFUFÓLK
Bæði er um að ræða einkaritarastörf, tölvuvinnslu og önnur almenn
skrifstofustörf. Einnig gætu opnast önnur starfstækifæri fyrir skrif-
stofufólk. Búast má við að starfsmennimir vinni ýmist í hópum eða
starfi að sjálfstæðum verkefnum. Áhersla er lögð á góða vélritunar-
og tungumálakunnáttu. Leitað er að fólki með fágaða framkomu og
brennandi áhuga á störfum við sjónvarp.
FRÉTTAMENN
Störfin eru bæði við innlendar og erlendar fréttir. Próf eða reynsla
við fréttafjölmiðlun skilyrði.
STARFSFÓLK í TÆKNIDEILD
Störfin eru við kvikmyndun, upptökur, útsendingar og vinnslu dag-
skrárefnis. Til greina kemur að ráða annars vegar starfsmenn með
reynslu, og hins vegar óreynda starfsmenn með áhuga fyrir tækni-
störfum sem þjálfaðir yrðu til starfa.
Aðeins er tekið á móti umsóknum hjá Liðsauka hf.,
Skólavörðustíg la, frá kl. 9-15, þar sem umsóknareyðublöð fást.
Sérstaklega skal tekið fram að skrifstofan verður opin laugar-
daginn 28. júní n.k. Umsóknarfrestur er til 11. júlí.
Skólavördustig la - 101 Reykjavik - Simi 621355
BJARNI DAGUR/SlA