Morgunblaðið - 27.06.1986, Side 27
Akureyri
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
27
Eyfirskir verktakar með hæsta tilboð í verksmiðjuhúsið:
„Ekki eins ánægður
nú og ég var í gær“
Segir Hörður Túliníus stjórnarformaður
Akureyri.
„ÉG ER ekki eins ánægður nú og í gær,“ sagði Hörður Túlinius,
stjórnarforniaður Eyfirskra verktaka, í samtali við Morgunblaðið i
gær, en þá hafði verið opnað tilboð í byggingu húss undir sútunar-
verksmiðju í Julianehaab á Grænlandi. Þetta var 2. hluti verksins,
en Eyfirskir verktakar áttu lægsta tilboð í 1. hlutann — grunninn
— svo og byggingu skólahúss, en þau tilboð voru opnuð á þriðjudag
eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær.
Lægsta tilboð í húsið sjálft kom á 18.870.000 danskar kr. (tæpar
frá Nunatak, sem er danskt-græn-
lenskt fyrirtæki. Það hljóðaði upp
á 15.714.808 danskar krónur — en
eru tæpar 80 milljónir íslenskra
króna. Næst lægsta tilboðið kom
frá dönsku fyrirtæki og hljóðaði upp
95 milljónir ísl. kr.) og þriðja og
hæsta tilboðið kom frá Eyfirskum
verktökum. Það hljóðaði upp á
19.325.750 danskar krónur. Það
eru rúmlega 96,6 milljónir ísl. króna
- eða rúmum 16 milljónum ísl. kr.
hærra en lægsta tilboðið.
Fyrirvari um tímasetningu var
bæði í danska tilboðinu og því frá
Nunatak — um það hvenær verkinu
yrði skilað, en skv. útboði á því að
vera lokið í febrúar á næsta ári.
„Það kæmi mér ekki á óvart þó
samið yrði við einn aðila um verkið,"
sagði Hörður aðspurður. „Ég geri
ráð fyrir því að við gerum kröfu
um það að samið verði við okkur
um allt, ef við fáum verkið á annað
borð,“ sagði Hörður.
í dag verða opnuð tilboð í síðasta
hluta verksins — allar lagnir í sút-
unarverksmiðjuna.
Kristján H. Theódórsson, bóndi á Brúnum í Öngulsstaðahreppi,
byijaði slátt í gær og bjóst við að flestir í hreppnum yrðu
byrjaðir í þessari viku.
Heyskaparhorf-
ur eru góðar
Akureyri.
SLÁTTUR er nú hafinn á nokkrum bæjum í Öngulsstaðahreppi
og Hrafnagilshreppi i Eyjafirði.
Birgir Jónsson, bóndi á Grýtu
í Öngulsstaðahreppi, sagði í gær
þegar Morgunblaðsmann bar að
garði að yfirleitt hæfíst hann
handa við að slá um þetta leyti.
„Okkur hér inni í Eyjafirði ætti
ekki að vera neitt að vanbúnaði
því spretta hefur verið mjög góð
að undanfömu og þurrkur,“sagði
Birgir. „Ég reyni alltaf að slá
frekar snemma til að geta borið
aftur á og slegið síðan öðru sinni
í ágústbyijun, yfírleitt hef ég því
hafið fyrri slátt um og upp úr
20.júní. Sláttur er nú að hefjast
hér allt í kring, en eins og alltaf
þá byija menn á svolitið mismun-
andi tíma,“ sagði Birgir.
Á Brúnum í Öngulsstaðahreppi
var hreppstjórinn, Kristján Theó-
dórsson, í óðaönn að slá þegar
blaðamann bar að garði. „Eg er
að hefja slátt í dag en sumir hér
um slóðir voru byijaðir um síðustu
helgi," sagði Kristján.
Hann sagði að síðasta sumar
hefðu eyfírskir bændur fengið að
finna fyrir sunnlensku sumri, eins
og hann kallaði það. „Það var
fullvætusamt héma í fyrra en nú
er ekki hægt annað en að líta
björtum augum fram á við því
heyskaparhorfur eru góðar. Það
má reikna með að hægt verði að
slá aftur, bændur gerðu talsvert
af því hér um slóðir fyrir nokkmm
ámm og ég reikna með að gera
það að einhveiju leyti nú í ár,“
sagði Kristján að lokum.
Á Grýtu var sláttur hafinn fyrir nokkrum dögum og Birgir
Jónsson, bóndi þar, var ásamt Jette Kristinu Hansen að byija
að setja bagga inn í hlöðu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hólmsteinn Hólmsteinsson framkvæmdastjóri hjá Möl og sandi iengst til vinstri og Njörður Tryggvason
frá Sérsteypunni fylgjast með framkvæmdum.
Leggja steypu á plön
með malbikunarvélum
Akureyri.
MÖL OG sandur hf. á Akureyri
gerði á dögunum tilraun með
að steypa öll bOaplön við eigin
húsnæði — og var steypan lögð
með malbikunarvélum.
„Við leggjum út þurra steypu
og síðan er farið með valtara á
hana strax, þannig að umferð
getur komið á steypuna fljótlega
eins og á malbik," sagði Hólm-
steinn Hólmsteinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Möl og sandi, í
samtali við Morgunblaðið.
Hólmsteinn sagði að fyrirtækið
vildi kynna þessa nýjung fyrir
einstaklingum og fyrirtækjum í
bænum. „Þetta getur orðið mjög
sniðugt, sérstaklega í sambandi við
bílaplön. Þá verður hægt að leggja
gólf í stórar skemmur — það verður
hagkvæmt því með þessari aðferð
þarf ekki að leggja nein jám.“
Hann sagðist telja að þessi að-
ferð ætti eftir að verða mikið not-
uð. „Ég held að þetta komi meira
og meira með árunum í stað mal-
bikunar og við höfum mikinn
áhuga á að kynna forráðamönnum
Akureyrarbæjar þessa aðferð,"
sagði Hólmsteinn. Hann bætti við
að þetta væri vissulega nokkru
dýrara en malbikun en væri á móti
mun endingarbetra.
Það var Njörður Tiyggvason
frá Sérsteypunni sf. sem var ráð-
gjafí Malar og sands við þessar
tilraunir. Sérsteypan er í eigu ís-
lenska jámblendifélagsins og
Sementsverksmiðju ríkisins og
hafa þessi fyrirtæki gert nokkrar
tilraunir með þessa nýju aðferð
syðra.
Morgunblaðið/KJS
I hádeginu hafði þegar safnast talsverður hópur manna fyrir framan áfengisútsöluna, en útsalan hófst
ekki fyrr en eftir hádegid.
Utsöluvínið seldist upp á hálftíma
Akureyri.
AKUREYRINGAR fóru ekki
varhluta af útsölu ÁTVR á létt-
um vínum. Upp úr hádegi í gær
hafði safnast saman nokkuð stór
hópur fyrir utan áfengisútsöluna
við Hólabraut, en útsalan hófst
ekki fyrr en klukkan eitt. Hún
átti að hefjast strax við opnun
um morguninn en dróst vegna
seinkunar á sendingunni að sunn-
an.
„Búðin fylltist á augabragði og
þessar 1000 flöskur sem við fengum
að sunnan seldust upp á auga-
bragði,“ sagði Ólafur Benediktsson,
útsölustjóri.
Að sögn Ólafs var mikill hluti
þess víns sem á útsölunni var hvft-
vín og rauðvín frá Bandaríkjunum
og einnig var nokkuð um grískt
rósavín. „Afslátturinn sem gefínn
var á þessum vínum var á bilinu
31 til 50% og virtist sem áhugi
manna væri talsverður fyrir þessu
því nokkuð var um að menn vildu
kaupa mikið magn í einu,“ sagði
Ólafur að lokum.
Suðurbrekka
Blaðbera vantar á Suðurbrekku og í Lundahverfi. Sér-
staklega óskað eftir fólki sem getur borið út fyrir hádegi
allt árið.
Upplýsingar hjá afgreiðslunni í síma 23905.
Hafnarstræti 85, Akureyri.