Morgunblaðið - 27.06.1986, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986
Sumargleðin leggur
upp í sextánda sinn
UM næstu helgi leggur Sumar-
gleðin upp í árvissa ferð sína um
landið. Fyrsti viðkomustaðurinn
verður í Stapa kvöld, föstudag-
inn 27. júní, og daginn eftir heim-
sækir hópurinn nýja hótelið á
Selfossi.
f viðtali við fréttamann, sagði
Hermann Gunnarsson, að Sumar-
gleðin yrði með allt öðru sniði í
sumar en fólk ætti að venjast. Hinn
létti andi kabarettsins mun svífa
yfír vötnum og söngur og dans
verða áberandi þáttur í skemmtun-
um flokksins. Þessa breytingu má
rekja til þess að Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Diddú, og íslandsmeistaram-
ir í ftjálsum dansi, Svörtu Ekkjum-
ar, hafa gengið til liðs við Sumar-
gleðina.
Ragnar Bjamason er höfundur
söngtexta skemmtidagskrár og
stjómar dagskránni, líkt og undan-
farin ár. Höfundur og stjómandi
dansatriða er Kolbrún Aðalsteins-
dóttir. í Sumargleðinni em, auk
Ragnars, þeir Bessi Bjamason,
Magnús Ólafsson, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Hermann Gunnarsson.
Hljóðfæraleikarar em Carl Möller,
Jón Sigurðsson, Stefán Jóhannsson,
Eyþór Stefánsson og Einar Bragi
Bragason, en hann er nýr í hljóm-
sveit Sumargleðinnar. Danshópinn
Svörtu ekkjumar skipa Eydís Ey-
jólfsdóttir, Elsa Yeoman og Ólafía
Einarsdóttir, allar úr Dansnýjung
Kollu.
Þóra Guðmundsdóttir
Guðrún Vilborg Borgþórsdóttir
Liðsmenn Sumargleðinnar reiðubúnir fyrir átök sumarins
„Framtíðin
alveg óráðin“
— segir Sigurður Oddsson fyrrum ábúandi að Höfða
„ÞAÐ ER eiginlega ekkert nýtt að gerast, enginn verið drepinn eða
neitt svoleiðis, það er allt í ró og spekt,“ sagði Sigurður Oddsson
fyrrum ábúandi á Höfða í Eyjahreppi, en hann var borinn út með
lögregluvaldi eins og fram kom í frétt blaðsins í gær.
Sigurður sagðist hafa farið að
Höfða í gær eftir að sýslumaður
og lögreglumenn höfðu borið út
búslóð hans. „Ég þurfti að huga
að nokkmm kindum sem vom
óbomar í girðingu hjá mér. Ég kom
að íbúðarhúsinu Iæstu og bakdyr
gamla bæjarins höfðu verið innsigl-
aðar, en framdymar vom enn sem
fyrr opnar og því hægt að fara um
allt gamla íbúðarhúsið."
Sýslumaður og menn hans höfðu
ekið búslóðinni í geymsluskúr og
gamalt íbúðarhús á Ytra-Rauðamel
og sagðist Sigurður vera búinn að
koma búslóðinni í geymslu annars
staðar í sveitinni, þar sem skúrinn
hefði verið hriplekur, fúi í íbúðar-
húsinu og músagangur á báðum
stöðum. Hann sagði búslóðina hafa
orðið fyrir skemmdum, húsgögnun-
um hent inn á þessa staði og öllu
ægt saman, postulínsstyttur og leir-
tau meira og minna brotið, fatnaður
út um allt og isskápur, fullur af
matvælum, hafí verið þama innan
um allt hitt.
„Það er ekkert nýtt í þessu og
framtíðin hjá mér alveg óráðin.
Þessa stundina erum við á bæjunum
í sveitinni. Formaður Lögvemdar
hringdi þó í mig og óskaði gagna
í málinu, því honum blöskraði að-
farimar."
Sigurður var spurður hvort eitt-
hvað væri hæft í því að bændur
.. ætluðu að tmfla veiðar í Haf^arð-
ará í sumar."
Ljósmyndasýning
I Menningar stofn-
un Bandaríkjanna
NtJ STENDUR yfir i Menningar-
stofnun Bandarikjanna, að Nes-
haga 16, Ijósmyndasýningin
„Contemporary American Com-
posers“.
Sýningin er byggð upp á ljós-
myndum á 37 bandarískum tón-
skáldum og verkum þeirra. Einnig
er á staðnum hægt að hlýða á
snældur með verkum skáldanna.
Sýningin er opin daglega á opn-
unartíma Menningarstofnunarinn-
ar, þ.e. milli kl 8:30 og 17:30. A
fímmtudögum er opið til kl. 20:00.
Sýningunni lýkur 1. júlf nk.
„Ég sagði eittthvað á þá lund í
gær að það kæmi mér ekkert á
óvart þó veiðar yrðu truflaðar í
sumar. Þeir vom að segja þetta
nokkrir bændanna í gær að það
væri alveg óþarfi að láta veiðimenn-
ina í friði í sumar, þó ekki verði
farið út í ólöglegar aðgerðir."
Seyðisfjörður:
Jónsmessuhátíð
27.—29.júní
— tónlist, leiklist og uppákomur
SeyðisfirðL
NÚ í vetur varð til sú hugmynd hjá tveimur seyðfirskum stúlkum
að gaman væri að halda hér á Seyðisfirði útihátíð um Jónsmessuna
sem ætluð væri allri fjölskyldunni. Fá hingað hljómsveitir og ýmsa
aðra skemmtikrafta til að halda uppi miklu fjöri í 2-3 daga. Þessar
stúlkur heita Þóra Guðmundsdóttir og Guðrún Vilborg Borgþórs-
dóttir, báðar þekktar hér um slóðir fyrir mikinn dugnað og áræði.
Bakdyr gamJa ibúðarhússins
voru innsiglaðar á þennan hátt
við útburðinn á þriðjudag. Það
vakti hinsvegar athygli að fram-
dyr hússins voru opnar og hægt
að fara um allt húsið.
Til að hrinda þessari hugmynd í
framkvæmd fengu þær í lið með
sér Pétur nokkum Kristjánsson sem
sá um fyrirbæri sem kallaðist „Mið-
vikudagar á Seyðisfírði" og haldið
var hér alla miðvikudaga sl. sumar
með tónleikum og uppákomum
flestra kunnustu hljómlistarmanna
landsins. Þeirra á meðal vora
Mezzoforte, Stuðmenn, Grafík,
Drýsill, Bubbi Morthens, Megas og
Dúkkulísumar. Hefur Pétur aðstoð-
að við að fá á hátíðina ýmsar hljóm-
sveitir og listamenn.
Jónsmessuhátíðin verður haldin
við Fjarðarsel, sem er mjög fallegt
útivistarsvæði hér rétt innan við
bæinn. Undanfamar vikur hefur
stór hópur áhugafólks unnið að
VERÐKONNUN 8 © É NRON ódýrasti fólksbillinn, daggjald / km.gjald LÍtill jeppi 4x4 daggjald / km.gjald Starri jeppi 4x4 daggjald / km.gjald 8-12 sæta bilar, daggjald / km.gjald
A G bilaleiga Tangarhöfða 8-12,R Fiat Lho 1313/13,13 Mitsub. Pajero 2438/24,30 Subaru 8 sæta 1750/17,50 FPrd Eoonol. 12 s. 2188/21,88
Ati5, bilaleigan Hlaðbrekku 2,Kóp Fiat Uho 1238/12,38 Lada Sport 1813/18,13 Mitsub. Pajero 2188/21,88 Mitsubishi 9 sæta 1813/18,13 Förd Club W. 12 s. 2188/21,88
Bilaberg, bilaleiga Hraunbergi 9,R Fiat Uno 1188/11,88
Ðilaleiga Akureyrar Skeifunni 9,R Lada sedan/station 1188/11,88 Lada Sport 2000/20,00 Suzuki Pox 2063/20,63 Land Rover 2063/20,63 Mitsub. Pajero 2438/24,38 Mitsubishi 9 sæta 2250/22,50 Förd Econol. 12 s. 2500/25,00
Bilaleiqa Flugleióa Reykjavikurflugvelli Fiat Uno 1244/12,44 Suzuki FOx 2075/20,75 Mitsub. L 200, yfir- byggóur 2438/24,38 VW diesel 8 sæta 2338/23,38
Bilaleiga Húsavikur Hamarshöfóa 8,R Daihatsu Charade 1244/12,44 Lada Sport 1750/17,50 Mitsubishi 9 sæta 2000/20,00
Ðilaleigan As Skógarhlió 12,R , Mazda 323 1244/12,44 Daihatsu Taft 2063/20,63 Mazda diesel 12 s. 2438/24,38
Bilaleigan Bónus v/lhtf eróamióscöóina, R Daihatsu Charade 825/8,25
Ðilaleigan Geysir Borgartúni 24,R Fiat Uho, Lada 1313/13,13 Lada Sport 1850/18,50 Daihatsu Itocky Mitsub. Pajero 2475/24,75 Range Rover Mitsubishi 9 sæta 2313/23,13
Ðilaleigan ös Langholtsvegi 109,R Colt, Datsun Cherry 1313/13,13
Bilaleigan Portið Reykjavikurv. 64, Hafn. Datsun Pulsar 1500/15,00
Ðilaleigan Vik v/Miklatorg,R Nissan Micro 1375/13,75 Lada Sport 2063/20,63 Daihatsu Itocky 2475/24,75
E G bilaleigan Ðorgartúni 25,R Fiat Panda 1125/11,25
SH bilaleigan Nýbýlavegi 32,Kóp. Daihatsu Charmant 1244/12,44 Lada Sport 1813/18,13 TOyota diesel 2625/26,25 Mazda diesel 9 s. 2438/24,38 Ford Econol. 12 s. 2313/23,13
Könnun á verði hílaleigubíla
NEYTENDAFÉLAG Reylga-
víkur og nágrennis og aðildar-
félög ASÍ og BSRB gengust
fyrir könnun á verði bilaleigu-
bíla dagana 23.—25. júni.
Hér er um sumarverð að ræða
sem nýlega tók gildi. Bílaleigum-
ar gefa í öllum tilfellum upp verð
án söluskatts en í töflunni er búið
að bæta honum við. Könnunin nær
aðeins til hluta allra þeirra bfla-
tegunda sem í boði era hjá bfla-
leigunum. Hvorki er tekið tillit til
fylgihluta né árgerða bílanna,
þannig er skýring á lágu verði
hjá Bflaleigunni Bónus að sögn
þeirra sem standa að könnuninni
sú að þar era flestir bflar af ár-
gerð’79—’80.
Athygli er vakin á því að um
ýmiss konar afslátt getur verið
að ræða ef bfll er tekinn á leigu
til lengri tíma, t.d. f eina viku.
Launþegum, sem þurfa á bfla-
leigubfl að halda, er bent á að
kanna hvort aðild þeirra að stétt-
ar- eða starfsmannafélagi veitir
þeim réttindi til afsláttar. Nefna
má sem dæmi að Bflaleiga Akur-
eyrar veitir aðilum margra slíkra
félaga afslátt.
Sjálfsábyrgð leigutaka getur
verið mismunandi há, eftir bfla-
leigum. Á það er bent að sumar
bflaleigumar bjóða upp á fulla
kaskótryggingu, gegn aukagjaldi.
undirbúningi þessarar hátfðar undir
forystu þeirra Þóra og Guðrúnar
Vilborgar. Reist hefur verið stórt
tjald, settur upp hljómsveitarpallur
og gerð hreinlætisaðstaða. Hefur
ungur Seyðfírðingur, Tómas Tóm-
asson tónlistarmaður, verið ráðinn
framkvæmdastjóri hátíðarinnar og
mun hann sjá um alla skipulagningu
á meðan henni stendur.
Þeir hljómlistarmenn sem fram
koma era Grafík, Lóla, Bjami
Tryggva, Sue Ellen, Fiff, Algebra,
Jassband Tómasar Einarssonar,
Tríó Valgeirs, Rikshaw, Lúðrasveit
Neskaupstaðar, Kamevalflokkur
Eddu Heiðrúnar Backman, Áma
Péturs og Dominique.
Útigrill verður á staðnum og mun
Guðjón Harðarson, kaupmaður í
versluninni Bröttuhlíð, verða með
mikið úrval af grillsteikum, sem fólk
getur sfðan grillað sér sjálft. Aðrar
veitingar verða í umsjón íþróttafé-
lagsins Hugins á Seyðisfírði. Auk
þessa verður hótel Snæfell opið alla
helgina og þar hægt að fá hina
fjölbreytilegustu rétti alla hátíðar-
dagana.
Ferðir verða á milli hátíðarsvæð-
isins og kaupstaðarins með reglu-
legu millibili. Björgunarsveitin á
Seyðisfírði og íþróttafélagið Huginn
munu sjá um gæslu og leiðbeina
fólki meðan á hátíðinni stendur.
Flugleiðir hafa verið aðstandend-
um hátíðarinnar innan handar, veitt
afslátt á ferðum hljómlistarfólksins
hingað austur.
Sætaferðir verða frá Egilsstöðum
alla dagana og áætlunarferðir frá
öðram stöðum hér austanlands til
Egilsstaða í tengslum við þær.
Allir hljómlistarmennimir og þeir
sem unnið hafa að undirbúningi
þessarar Jónsmessuhátíðar munu
gefa vinnu sína og verður því miða-
verði stillt í hóf. Það verður kr.
1000 en miðinn gildir á öll
skemmtiatriðin alla hátíðardagana.
Er meiningin að hátíðin standi undir
útlögðum kostnaði en ef einhver
afgangur verður á að kaupa tæki
handa félagsheimilinu Herðubreið
til uppbyggingar æskulýðsstarfi hér
á Seyðisfirði.
Hátíðahöldin byija kl. 16.00 f dag
og lýkur með dansleik á sunnudags-
Garðar Rúnar.
©
INNLENT