Morgunblaðið - 27.06.1986, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986
38
+
Dönsum í kvöld
Þeir sem ætla aö skemmta sér
í kvöld — koma í Sigtún.
Þaö er toppurinn í dag.
Allir í Sigtún - þar er
Stuðið mest og fólkið flest
Sigtiut T-os
V^t’DíMDD Sími 68-50-90
VEmMGAHÚS
HÚS GÖMLU DANSANNA
Gömlu dansarnir
ikvöld kl.9-3.
Hlj óms veit in
Ármenn
ásamt hinni vinsælu söng-
konu Mattý Jóhanns
OPNAÐ NIÐUR KL. 9.00
Nýtt
m
■jUýtt
Fyrri sýningin kl. 10.30
me8.rábærablöðrusyningu.
Nektardansmærin sem hefur heldur betur slegið
í gegn gerir sitt besta.
Seinni sýningin er kl. 1.30.
Aðgangseyrir frá kl. 10.00 er kr. 300,- Opið
Uppi allan daginn og öll kvöld.
Ef þú ætlar út að borða, því ekki að borða Uppi?
GóAur matur
Gott verð
Góö þjónusta
BorÖapantanir í síma 10312
DISKOTEKÁ HVERJU KVÖLDI
Skúlagötu 30. S. 11555.
Ef þú vilt vera villt eða
villtur og eiga eftir-
minnilegt kvöld skaltu
koma í Roxzy.
Það er eini „rock-under-
ground“-staðurinn á ís-
landi.
VILLT RÓMANTÍK í R0XZY.
LJÓS MYRKURSINS R0XZY.
Plirrgmiiw
| Góðan daginn!
Borgarbókasafnið:
Bókaút-
lánum fækk-
aði á síð-
asta ári
Morgunblaðinu hefur borist i
hendur ársskýrsla Borgarbóka-
safns Reykjavíkur fyrir árið
1985. f henni má m.a. sjá að bóka-
útlánum safnsins fækkaði heldur
frá fyrra ári.
Þetta var sextugasta og þriðja
starfsár Borgarbókasafnsins og
voru starfsmenn þess í árslok 63
talsins. Bókaeign safnsins var að
því er segir í skýrslunni 328.015
bindi og voru útlán alls 748.220,
eða rúmiega 50 þúsund færri en
’84.
Unnið var að frágangi nýs útibús
í Breiðholti á árinu og var það
kallað „Borgarbókasafnið í Gerðu-
bergi". Borgarbókasafnið hefur þá
ijögur útibú auk bókabfla og aðal-
safns í Þingholtsstræti.
Ýmislegt var gert til að kynna
starfsemi safnsins. Bókasafnavika
var skipulögð dagana 14,—20. októ-
ber og var þá boðið upp á kaffi og
brúðuleikhús var fyrir bömin. Safn-
kynningar í tengslum við grunn-
skólana voru hafðar áfram líkt og
árið áður.
Unnið var að undirbúningi fyrir
nýtt aðalsafn og einnig var undir-
búningsvinna fyrir tölvuvæðingu
safnanna, tölvunámskeið og breyt-
ingar á skrárkerfí með tilliti til
tölvuvinnslu.
Safninu barst á árinu vegleg tón-
listargjöf á sviði óperutónlistar;
plötur, raddskrár og textar ásamt
bókum um tónlist. Safn þetta var
í eigu Brynjólfs Ingólfssonar hjúkr-
unarfræðings, sem lést 1984 aðeins
33 ára að aldri. Foreldrar hans
færðu safninu þetta safn og verður
því komið fyrir í Borgarbókasafninu
í Gerðubergi.
Bókakostur safnsins jókst um
1.184 bækur á árinu 1985 og bókar-
titlum fjölgaði um 1.725, og eru
að meðaltali 5—6 eintök af hveijum
titli. Seld skírteini á árinu voru
12.761.
Borgarbókavörður er Þórdís
Þorvaldsdóttir.
Sállækningar:
Gestalt-
námskeið
um helgina
Helgina 28. og 29. júni
heldur þekktur breskur sál-
læknir, Terry Cooper, Ge-
stalt-námskeið að Fríkirkju-
vegi 11, á vegum Miðstöðvar
áhugafólks um mannúðarsál-
arfræði. Námskeiðið stendur
frá kl. 9-17 báða dagana og
kostar þátttakan 4.000 krón-
ur.
Aðeins takmarkaður fyöldi kemst
að og þeir sem áhuga hafa hringi
í síma 18795 eftir kl. 18. Terry
Cooper hefur komið hingað til lands
undanfarið og mun koma áfram á
tveggja mánaða fresti. Eftir tvö
slík námskeið hittast tveir hópar
sem reglulega til að viðhalda
árangri námskeiðsins.
Gestalt-meðferð byggir á þeirri
hugsun að með því að vera það
sjálft geti fólk orðið heilt. Á nám-
skeiðinu kynnist fólk aðferðum til
að nálgast kjarna tilveru sinnar og
fær tækifæri til að sameina and-
stæð öfl innra með sér og verða
heilli og virkari manneskjur, segir
í fréttatilkynningu frá miðstöðinni.