Morgunblaðið - 27.06.1986, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1986
Morgunblaöiö/Börkur
• Pótur Guftmundsson körfuknattleiksmaður reiknar meft aft skrifa
undir samning vift Lakers nœstu daga.
Sfðasti leikur
Bossis á morgun
„Skrifa undir ein-
hvern næstu daga“
— segir Pétur Guðmundsson körf uknattleiksmaður
„ÉG REIKNA með aft skrifa undir
samninginn við Los Angeles
Lakers núna nœstu daga. Bíð
eftir að fá samninginn sendan
hingað til lands til undirskriftar,
það var búið að ganga frá þessu
að mestu áður en ág kom heim,
átti afteins eftir að skrifa undir,“
sagði Pátur Guðmundsson,
körfuknattleiksmaður, í samtali
við Morgunblaðið f gœr. Hann er
nú staddur hár á landi í sumarfrfi.
Keppnistímabilið í NBA-deild-
inni hefst aftur í endaðan október.
Pétur lék sem kunnugt er með
Lakers í úrslitakeppninni og stóð
sig vel. „Þetta var góður reynslu-
tími fyrir mig og er ég mjög ánægð-
ur með útkomuna. Það var æðis-
legt að komast að hjá Lakers og
eins og að fá draum sinn uppfyllt-
ann. Ég komst strax vel inní liðið
og það hjálpaði mér mikið," sagði
Pétur.
Lakers er hæstlaunaðasta lift
NBA-deildarinnar og hafa fjórir
leikmenn meira en milljón dollara
eða um 41 milljón íslenskar í árs-
laun. Auk þess hafa leikmenn
miklar aukatekjur af auglýsinga-
samningum sem þeir gera upp á
eigin spýtur.
Pótur var spurður um hvort
mikið væri um kókaínneyslu hjá
íþróttafólki f Bandaríkjunum í kjöl-
far láts Len Bias. „Já, þetta er
mikiö vandamál í Bandaríkjunum
og mun meira en fólk almennt
gerir sér grein fyrir. Nú á að fara
að taka þetta fastari tökum og láta
leikmenn fara í lyfjapróf fyrir leiki."
Pétur fer til Bandaríkjana í
næstu viku til að koma sér fyrir í
nýrri íbúð sem hann var að fá í
Los Angeles. Til þessa hefur hann
búið í Portland. Pétur er 27 ára
9. UMFERÐ f 1. deild karla f
knattspyrnu verftur leikin um
helgina. 3 leikir fara fram f kvöld,
einn á sunnudag og síðasti leikur
umferftarinnar verftur á mánu-
dagskvöldift.
UBK og FH leika á Kópavogs-
velli f kvöld. Breiðablik gerði jafn-
tefli við Þór á Akureyri fyrr í vikunni
og FH vann ÍBV. Viðar Halldórsson
leikur ekki með FH í kvöld vegna
leikbanns.
í Vestmannaeyjum leika tvö
neðstu lið deildarinnar, ÍBV og Víð-
ir. Eyjamenn eru enn án sigurs,
en Víðismenn verða án Vilhjálms
Einarssonar, en hann er í banni
vegna fjögurra gulra spjalda.
Keflvfkingar byrjuðu illa og töp-
uðu 3 fyrstu leikjunum. Hólmbert
þjálfari þeirra var þá veikur, en kom
beint í þriðja leikinn af spítalanum.
Síðan hefur ÍBK unnið 5 leiki í röð
og eru Keflvíkingar í 2. sæti. Þór
hefur hins vegar aðeins fengið 5
og á eflaust eftir nokkur ár í
NBA-deildinni ef heppnin verður
með honum, eins og hann sagði
sjálfur.
stig í síðustu 5 leikjum. Leikirnir í
kvöld hefjast allir kl. 20.
Valur og ÍA leika á Valsvelli á
morgun og byrjar leikurinn kl. 2.
Liðin eru með jafnmörg stig og eru
í 3.-4. sæti, en ÍA hefur mun betri
markatölu.
Síðasti leikur umferðarinnar
verður á aðalleikvanginum í Laug-
ardal á mánudagskvöldið og hefst
leikur Fram og KR kl. 20. Bæði liðin
hafa aðeins tapað einum leik til
þessa, gegn ÍBK. Framarar hafa
skorað flest mörk í 1. deild og eru
í efsta sæti eftir 8 umferðir, en
KR er í 5. sæti.
Þá verður 8. umferð í 2. deild
karla leikin f kvöld og á morgun. í
kvöld kl. 8 byrja 3 leikir. Völsungur
og Einherji leika á Húsavík, KS og
Víkingur á Siglufirði og KA og
Njarðvík á Akureyrí. Á morgun
leika Þróttur og Skallagrímur í
Laugardalnum og ÍBÍ og Selfoss á
ísafirði. Báðir leikirnir hefjast kl.
14.
Knattspyrna:
Þrír leikir F
1. deild íkvöld
MAXIME Bossis, bakvörðurinn sterki hjá Frökkum, segir að leikurinn
gegn Belgfu á morgun verfti sfðasti leikur sinn meft landsliðinu. Hann
leikur þá sinn 80. landsleik.
Bossis er 30 ára og leikur nú
meft Rasing Club frá París, sem
vann sig upp í 1. deild á síðasta
keppnistímabili. Hann er eini leik-
maðurinn í franska liðinu sem
kemur frá liði sem lék í 2. deild á
síðasta ári. Hann fór til Parísarliðs-
ins frá Nantes fyrir tveimur árum.
Hann hefur leikið í þremur
heimsmeistarakeppnum. Hann var
sá sem brenndi af vítaspyrnu gegn
Vestur-Þjóðverjum í hinum fræga
leik í undanúrslitum á Spáni fyrir
fjórum árum og hefur ekki tekið
vítaspyrnu síðan, hvorki fyrir lið
sitt eða landsliðið. Við Islendingar
fáum því ekki að sjá þennan
skemmtilega leikmann á Laugar-
dalsvelli í september þegar Frakk-
ar og (slendingar leika í Evrópu-
keppni landsliða.
Handknattleiks-
þjálfari
2. deildar félag í nágrenni Reykjavíkur óskar eftir
þjálfara næsta vetur. Þeir sem hafa áhuga leggi
inn nafn og símanúmer á augld. Mbl. merkt:
„T—5735“.
Kvennaiandsleikur
ísland — Færeyjar
Akranesvelli í kvöld kl. 19.00.
alis
MJÖLKURDAGSNEFND
FLUCLEIDIR,
addas
Stórleikur
1. DEILD
KOPAVOGSVÖLLUR
Breiðablik - FH
í kvöld kl. 20.00.
Kópavogsbúar fjölmennið á völlinn og styðjið
liðið ykkar.
SPORTBUÐ
KÓPAVOGS
Hamraborg 22
Sími 641000
Búðin sem Blikar
versla í
Breiöablik í
umbro
BYKO
í*2
YPSILDN
SMIÐJUVEGI 14dr 200 KÓPAVOGI.
SÍMI 72 1 77 OG 78630