Morgunblaðið - 27.06.1986, Page 48
XJöfðar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Útvegs-
bankanum
gertað
afhenda
Hafskips-
skjöl
. ■.Ém
Horgunblaðið/RAX
Þátttakendur í kaupstaðarferðinni fara yfir Þjórsá. Frá vinstri Sigríður Þorsteinsdóttir, Sigurgeir Valmundsson, Páll Valmundsson
og Páll Árnason er um borð í bátnum.
Kaupstaðarferð með gamla laginu
Sandhólafeiju, frá Asdisi Haraldsdóttur
í TILEFNI af landsmóti hesta-
manna sem haldið verður á
Hellu á Rángárvöllum dagana
2.-6. júlí var ákveðið að fara í
kaupstaðarferð til Reykjavíkur
eins og gert var í gamla daga.
Fimmtán hestamannafélög á
svæðinu frá Keflavik að Skeið-
ará leggja til hesta, klyf og
vaming.
blaðamanni Morgunblaðsins.
Lagt var af stað í ferðina í
gærmorgun, en þá voru aðeins
þrír hestar komnir í lestina. Riðið
var jrfir Rangá og lá leiðin að
Sandhólaferju þar sem upphaf-
lega var áætlað að fara yfir
Þjórsá. Flytja átti menn og vam-
ing yfir á báti og láta hestana
synda. Þegar komið var að Þjórsá
reyndist hún ófær.
Lestarstjóri er Páll Valmunds-
son og með honum í för eru Sigur-
geir Valmundsson, Sigríður Þor-
steinsdóttir og blaðamaður Morg-
unblaðsins. Hreinn Ámason verð-
ur ferðamönnum til trausts og
halds, en hann er f framkvæmda-
nefnd landsmótsins.
í dag verður farið yfír Þjórsá
á brú; en fyrirhugað er að sund-
ríða Olfusá við Oddgeirshóla og
bætast þá tveir hestar við lestina.
Lestin kemur til Reykjavíkur á
mánudag og verður vamingur
seldur á Lækjartorgi. í Reykjavík
verða svo teknar vistir til ferðar-
innar austur á Hellu.
Hálendisgróðuríim
tveim vikum á eftir
Upprekstur sauðfjár hefst víða ekki fyrr en í júlí
FULLTRÚI í Sakadómi
Reykjavíkur kvað upp þann
úrskurð á þriðjudag að Útvegs-
bankanum bæri að veita Rann-
sóknarlögreglunni aðgang að
tilteknum skjölum varðandi
bankareikninga vegna rann-
sóknar á Hafskipsmáiinu og
tengdum málum. Krafa um
þetta kom frá Rannsóknarlög-
reglunni eftir að Útvegsbank-
inn hafði synjað RLR um að-
gang að skjölunum. Útvegs-
bankinn áfrýjaði ekki úrskurð-
inurn til Hæstaréttar og hefur
þegar afhent umrædd skjöl.
Umræddir bankareikningar
voru á nafni Hafskips hf. en sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins munu aðeins æðstu stjómendur
fyrirtækisins hafa gefíð út ávísanir
áþá.
Lárus Jónsson bankastjóri Út-
vegsbankans sagði í gær að bank-
inn vildi síður en svo torvelda
rannsókn málsins. Það væri hins
vegar kveðið svo á í viðskipta-
bankalögunum að úrskurður dóm-
ara þyrfti að vera fyrir hendi þegar
slík gögn væru afhent til lögregl-
unnar og því hefði bankinn viljað
fá hann. Hann sagði að annað gilti
um skiptaráðanda og skattrann-
sóknarstjóra, samkvæmt lögum
ættu þeir rétt á vitneskju án þess
að þurfa fyrst að leita úrskurðar
dómara.
Láms sagði að bankinn væri
ekki sammála forsendum úrskurð-
arins, teldi þær of almennar. Hins
vegar hefði verið ákveðið að áfrýja
úrskurðinum ekki að þessu sinni,
en gera grein fyrir þessari skoðun
með bréfí.
GRÓÐUR á hálendinu er almennt
mjög langt á eftir því sem gerist
í meðalári, liklega um 2 vikum á
eftir að meðaltali. Þetta er
meginniðurstaða árlegra gróður-
skoðunarferða starfsmanna
Landgræðslu ríkisins. Hefur
upprekstri búfjár verið frestað í
samræmi við þetta og hefst ekki
fyrr en í júlí á flestum afréttum.
Gróðurskoðunin fer fram úr lofti
með flugvélum og á jörðu niðri.
Andrés Amalds gróðureftirlitsmað-
ur Landgræðslunnar sagði að víðast
hvar á hálendinu væri gróður aðeins
farinn að lifna meðfram lækjar-
bökkum og sumstaðar í votlendis-
jöðrum en land annars dökkt og
gróðurvana yfir að líta. Hann sagði
að um norðan- og vestanvert landið
væri þetta vor í hópi seinustu ára,
gróðurfarslega séð. Kuldamir í
maímánuði og framan af júní eru
að sjálfsögðu aðalástæða þessa, en
Andrés sagði að í hlýindunum að
undanfömu hefði gróður lifnað
heilmikið þó víða væri enn nokkuð
í nægan sleppigróður fyrir sauðfé.
Andrés sagði að þegar svona illa
voraði væri áríðandi að sleppa fé
ekki of snemma á afrétti. Fátt hefði
meiri áhrif á beitarþol, því ef fénu
væri sleppt of snemma næði gróður-
inn sér ekki upp, og þá yrðu afurð-
imar minni en annars. Andrés sagði
einnig í tilefni ferða hestamanna á
landsmótið á Hellu að litlir hagar
væm á hálendinu og væri hætta á
að sá litli gróður sem væri á helstu
áningastöðum yrði stórskemmdur
ef hestamenn færa ekki varlega.
Óbreytt veður
um helgina
AÐ SÖGN Yeðurstofunnar er
gert ráð fyrir að veðrið um helg-
ina verði svipað og undanfarna
daga.
Hitinn verður 10—15 gráður
sunnanlands og 12—18 gráður
austanlands. Fremur hæg austanátt
og skýjað um vestanvert landið, en
bjartara og betra veður um landið
austanvert.
Olíureikning-
urinn hækkar
um 800 millj-
ónir króna
— ef OPEC hækkar olíu-
verðið um 5 dollara fatið
HÆKKUN heimsmarkaðsverðs á
oliu inn 5 dollara fatið, úr 13
dollurum i 18, sem búist er við
að verði ef samkomulag tekst á
fundi OPEC um minnkun fram-
leiðslu aðildarþjóðanna úr 19
milljónum fata á dag niður í 17-18
miRjónir, mun hafa mjög slæm
áhrif í íslensku efnahagslífi. Það
þýddi að helmingur olíuverðs-
lækkunarinnar gengi til baka og
myndi hafa i för með sér 800
milljóna króna hækkun á kostnaði
við oliuinnkaup þjóðarinnar á ári,
að sögn Bolla Þórs BoIIasonar
aðstoðarforstjóra Þjóðhagsstofn-
unar.
Bolli Þór sagði að olíuverðs-
hækkun myndi hafa ýmis óbein
áhrif. Til dæmis mætti búast við að
verðbólga í aðal viðskiptalöndunum
og þar með hér yrði meiri en ella
og myndu möguleikar á eitthvað
hærra útflutningsverði ekki ná að
vegaþað upp.
Bolli sagði að Þjóðhagsstofnun
hefði ekki miðað áætlanir sínar við
það lága olíuverð sem að undanfömu
hefur verið á mörkuðunum og væri
verðið sem nú væri verið að tala um
lítið hærra en það olíuverð sem flest-
ir hefðu miðað við í áætlunum sínum.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Kýrnar á Sveinsstöðum virðast láta sér vel líka að lambið sjúgi sig. En kannski má segja að með
þessu sé verið að færa vanda ny ólkurframleiðenda yfir á sauðfjárræktina.
Biönduóxi.
ÞAÐ VAR nokkuð undarleg
sjón sem fréttaritari Morgun-
blaðsins varð vitni að á dögun-
um. Heimalningur á Sveins-
stöðum í Þingi gerði sér lítið
fyrir og saug eina kúna.
Lamb á kýrspena
Að sögn Magnúsar Ólafssonar
bónda er þetta ekki liður í því að
draga úr mjólkurframleiðslunni
en hugmyndin væri ekki vitiausari
en hver önnur. Þetta uppátæki i
lambinu kom ábúendum veralega
á óvart en kýmar á Sveinsstöðum
virtust láta sér vel líka afstöðu
lambsins til annarra búflárkynja
en sauðfjár. Jón Sig.