Morgunblaðið - 03.07.1986, Side 2

Morgunblaðið - 03.07.1986, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1986 Rainbow-málið: Neyðarhnappar aldraðra og öryrkja: Stofnkostnaður greidd- ur og 50% þjónustugjalds TRYGGINGARÁÐ hefur sam- þykkt að sjúkratryggingaraar borgi 50% þjónustugjalds við svokallaða „neyðarhnappa“ sem ætlaðir eru öldruðu fólki og öryrkjum. Þeir sem þurfa hnapp- anna við geta fengið greidd 70% af stofnkostnaði við tengingu neyðarhnapps, og Reykjavíkur- borg hefur ákveðið að borga þau 30% sem á vantar fyrir 100 manna reynsluhóp borgarbúa. „Neyðarhnappamir" eru lítil senditæki sem eigandi ber á sér. Þurfí hann nauðsynlega á aðstoð að halda getur hann með því að ýta hnappinn sent hjálparbeiðni til stjómstöðvar. Koma þá öryggis- verðir á vettvang eins fljótt og auðið er. Að sögn Bjöms Önundarsonar tiyggingayfírlæknis er tekið mið af læknisfræðilegum sjónarmiðum við úthlutun neyðarhnappanna. Þeim er ætlað að gefa notendum tækifæri til að dvelja öruggir í heimahúsi, í stað þess að flytjast á stofnanir. ■■ ‘ Harður árekstur á Mýrarvegi HARÐUR árekstur varð laust eftir hádegið í gær var ekið í austur úr Skógarlundi og inn á Mýrarveg. á mótum Skógarlundar, Mýrarvegs og Álfabyggðar. Ökumaður bifreiðarinnar sem ekið var eftir Mýrar- Ökumenn og sjö ára gamall farþegi voru fluttir á vegi, sem er aðalbraut, uggði ekki að sér og ók inn slysadeild en töldust ekki hafa hlotið alvarleg í hliðina á hinum bílnum. Fór bifreiðin eina veltu meiðsli. ogendaðiuppiágrindverki. Slysið bar að með þeim hætti að öðmm bílnum Bifreiðamar em báðar mikið skemmdar. Frá slökkvistarfi í gær. //v., syðra-Lan^hoiu. Verkfærahus brann 1 Gotu í GÆRMORGUN brann verkfærahús á bænum Götu í Hmnamannahreppi, svo og vélar og verkfæri sem í húsinu vom. Það var um klukkan 9.30 sem slökkviliðið á Flúðum var kallað að Götu en þá var mikill eldur í verkfærahúsi sem er áfast við fjós- hlöðuna. Verkfærahúsið brann og allt sem í húsinu var, þar á meðal dráttarvél, heybindivél, tilbúinn áburður, reiðtygi og sitthvað fleira. Slökkviliðinu tókst fljótlega að slökkva eldinn sem var mjög mikill þegar það kom á vettvang. Bóndinn Jón Stefánsson vann við rafsuðu og logsuðu um morguninn en hafði bmgðið sér frá í morgunkaffið en allt var þá orðið alelda í verkfærahúsinu þegar hann kom út aftur. Góðviðri var og auðveldaði það slökkvistarfíð, en ef vindur hefði verið af austri er hætt við að fjós og hlaða hefðu verið í mikilli hættu. Tjón bóndans er mjög vemlegt en auk Jóns býr faðir hans, Stef- án Kristjánsson, einnig í Götu. Sig. Sigm. Bandaríkjastjórn fyrirhugar breyting- ar á útboðsreglum Miða að bættri samkeppnisstöðu skipafélaganna FYRIR næstu mánaðamót er fyrirhugað að breyta útboðsregl- um varðandi vöruflutninga til varaarliðsins og munu þær breytingar tryggja stöðu ís- lenskra skipafélaga í samkeppni við bandaríska skipafélagið Rainbow Navigation Enc. Þetta kom meðal annars fram í viðræð- um Hans G. Andersen, sendi- herra, og Derwinskys, sérlegs ráðgjafa bandaríska utanríkis- ráðuneytisins í Washington, í gær. Þessar viðræður vom í framhaldi af fundi Matthíasar Á. Mathiesen, INNLENT Samanburður á smásöluverði í Glasgow og Reykjavík: Innflutningsverð hærra en smásöluverð er í Glasgow utanríkisráðherra, og Shultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, í Hali- fax í vor en þar hafði Shultz haft á orði að kannaðar yrðu nýjar leiðir til lausnar ágreinings þjóðanna varðandi þessa flutninga. „Der- winsky gerði fulltrúum íslenska sendiráðsins grein fyrir því, að hann vænti þess, að breytingar á þessum útboðsreglum yrðu tilbúnar um næstu mánaðamót og væri þeim ætlað að leysa þessa deilu og tryggja stöðu íslenskra skipafélaga í samkeppninni um þessa flutn- inga,“ sagði utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég mun leggja áherslu á að fylgst verði mjög vel með hvemig þessu verki miðar næstu vikumar og í hveiju breytingamar verði fólgnar til þess að við getum betur áttað okkur á því um mánaðamótin hvort þær em þess eðlis, að þær komi til með að leysa þetta vanda- mál,“ sagði Matthías Á. Mathiesen ennfremur. Verðlagsstofnun telur ástæðu til að kanna málið nánar Verðlagsstofnun hefur birt vík. í báðum borgunum náði niðurstöður könnunar á verði könnunin til stórra matvöru- matvæla í Glasgow og Reykja- verslana og stórmarkaða. Einn- ig aflaði stofnunin upplýsinga um innkaupsverð til íslenskra heildsala á þeim vörum sem könnunin náði til. Verðsaman- burðurinn leiðir í ljós að smá- söluverð er 140—600% hærra í Flugafgreiðslumenn hjá Flugleiðum: Fengri 5% launa- hækkun frá 1. mars STARFSMENN á flugafgreiðsl- um Flugleiða í Reykjavík fengu í gær um 5% launahækkun frá 1. mars sl., þegar undirritaður var nýr sérkjarasamningur Flug- leiða og Verslunarmannaf élags Reykjavíkur. Samningurinn tek- ur til liðiega 20 starfsmanna, að sögn Péturs A. Maack, fulltrúa á skrifstofu VR. Ekki tókst samkomulag um kauphækkun fyrir aðra VR-félaga hjá Flugleiðum, sem eru alls nærri 500. Eftir að Flugleiðir og félög flugliða sömdu nýlega um 26% launahækkun gerði VR kröfu um samskonar kjkrabætur fyrir sína félaga hjá Flugleiðum. „Samningar okkar við Flugleiðir eru bundnir til áramóta og því virðist ekki vera hægt að láta þá hækkun ganga yfír alla aðra starfsmenn," sagði Pétur. „Við munum þó halda þeirri kröfu á loft þegar kemur að næstu almennu kj arasamningum. “ Auk launaflokkahækkunarinnar frá 1. mars var gert samkomulag um hækkun á vaktaálagi þessara sömu starfsmanna, þannig að nú er greitt 33% álag á tímann frá kl. 17—24 og 45% álag á vinnutíma frá miðnætti til kl. 8 á morgnana. Einnig var samið um að í stað þess að fyrirtækið komi starfsmönnum til vinnu á morgnana, áður en stræt- isvagnar eru farnir að ganga, fái þeir 300 krónur fyrir hveija vakt. Að meðaltali vinna þessir starfs- menn 15,17 vaktir á mánuði, þann- ig að um er að ræða liðlega 4.500 krónur á mánuði í ferðastyrk. Sérkjarasamningurinn, sem und- irritaður var í gær, var gerður í samræmi við bókun, sem fylgdi VR-samningunum í febrúar sl., þar sem ákveðið var að taka ákveðin atriði úr gildandi sérkjarasamningi til endurskoðunar á samningstíma- bilinu, að sögn Péturs Maack. Reykjavík en Glasgow. I 22% tilvika var innkaupsverð til ís- lands jafnhátt eða hærra en í Glasgow, og í 55% tilvika var innkaupsverðið jafnhátt eða hærra en verð í stórvörumark- aði („cash and carry“) í Glas- gow. Verðlagsstofnun telur að niður- stöður samanburðarins gefí tilefni til frekari athugunar. I fréttatil- kynningu stofnunarinnar segir að ástæðumar fyrir verðmuninum séu margvíslegar. í fyrsta lagi var innkaupsverð mjög hátt. Ofan á það bættust farmgjöld, vörugjöld, tollar, álagning innflytjanda og smásala. Sem dæmi má nefna að dós af bökuðum baunum kostaði kr. 14,80 í matvömverslun í Glas- gow. Innkaupsverð til íslands var hinsvegar kr. 15,90, og verð til neytanda rúmlega 71 kr. í þessu ákveðna tilviki keyptu Reykvík- ingar sömu vöm á 380% hærra verði en Glasgow-búar. Morgunblaðið birtir niður- stöður samanburðarins í heild á bls. 38 í dag. Guðmundur J. Guðmundsson: „Geri rækilega grein fyrir minu máli að rann- sókn lokinni“ GUÐMUNDUR J. Guðmunds- son formaður Dagsbrúnar og Verkamannasambands íslands segist ekki munu tjá sig frekar um meinta aðild sína að Haf- skipsmálinu fyrr en rannsókn á þætti hans sé lokið, en hann væntir þess að svo verði bráð- lega. „Ég vil ekki ræða málið fi-ek- ar á þessu stigi, en hins vegar mun ég gera mjög rækilega grein fyrir mínu máli, þegar rannsókn er lokið, sem ég vænti að verði mjög bráðlega," sagði Guðmundur í samtali við Morg- unblaðið. Guðmundur sagðist ekki vilja eiga orðastað við fjöl- miðla um þetta mál, og að umflöllun Þjóðviljans að undan- fömu og árásir í hans garð breyttu þar engu um. „Ef menn vilja ekki bíða eftir niðurstöðu rannsóknarinnar, þá verður bara að hafa það,“ sagði Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.