Morgunblaðið - 03.07.1986, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.07.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1986 13 Tölvugagnabanki fyrir um- ferðaróhöpp í Reykjavík eftir Gunnar H. Gunnarsson Upphaf þessa máls var, að ég hafði um nokkurt skeið haft áhuga á gerð slíks banka og fært það í tal við yfirmenn mína. Þann 18. maí 1984 fékkst svo þeirra leyfí fyrir því að gerð bankans yrði hafín. Með mér að gerð bankans hafa unnið: Ásgeir Þór Ásgeirsson, deild- arverkfræðingur á umferðairdeild, Heiðar Þór Hallgrímsson, deildar- verkfræðingur á þróunar- og gagnasöfnunardeild og Bergur Jónsson, tölvufræðingur. Innslátt gagna í tölvubankann hafa þær Anna Ólafsdóttir og Hrönn Baldursdóttir séð um. Gerð bankans sjálfs og þar með talinn innsláttur upplýsinga upp úr lögregluskýrslum um umferðar- óhöpp í Reykjavík á árunum 1983, 1984 og 1985 og innsláttur upplýs- Gunnar H. Gunnarsson inga um gatnakerfið er nú að mestu lokið. Þetta verk, sem að mestu er greitt af umferðardeild gatnamála- stjóra, eiganda bankans, mun kosta rúmlega 1 milljón króna. Helstu gögn, sem slegin eru inn í bankann Gatnakerfínu í Reykjavík er skipt upp í á þriðja þúsund gatnamót og götubúta og fær hver hiuti kerfísins sitt númer og er síðan sleginn inn í bankann. Dæmi: Gatnamótin Eiðs- grandi — Öldugrandi eru númeruð X—0001, en götubúturinn Eiðs- grandi milli Öldugranda og Skelja- granda fær númerið G—0001. Ekki er látið nægja að númera hvern stað í gatnakerfinu, heldur eru gefnar aðrar upplýsingar um hann einnig. Dæmi: Umferðar- magn, leyfður hámarkshraði, teg- und götulýsingar o.s.frv. Einnig má geta þess, að gatna- kerfisbútamir era flokkaðir í teg- undir eins og t.d. krossgatnamót, t-gatnamót og planfrí gatnamót o.fl. og svo aftur á móti t.d. ijög- urra akreina götur með miðeyju, fjögurra akreina götur án miðeyju, tveggja akreina götur án miðeyju o.s.frv. Eins og áður var nefnt era slegn- ar inn upplýsingar í tölvuna um umferðaróhöpp í Reylq'avík og era þau hvert um sig skráð á réttan stað, þ.e.a.s. á það X- og G-númer, sem svarar tii þess staðar sem umferðaróhappið varð á. Þar fyrir utan era slegnar inn eftirfarandi upplýsingar: A. Aðilar að umferðaróhappi Allt að þrír aðilar geta verið að umferðaróhappi. Sérhvert öku- tæki er sér aðili, gangandi veg- farandi getur verið aðili, einnig hindranir á vegi. B. Slasaðir einstaklingar Unnt er að skrá allt að 9 slasaða einstaklinga fyrir sérhvem aðiia að umferðaróhappi. Uin hvem slasaðan einstakling era svo skráðar ýmsar upplýsingar, t.d. tegund og orsök meiðsla, notkun bílbeltis eða ekki, innlögn á sjúkrahús eða ekki, aldur, kyn o.s.frv. C. Nánari upplýsingar um umfér ðar óhappið 1. Hvenær umferðaróhappið varð. 2. Hversu alvarlegt umferðar- óhappið var. 3. Nánari lýsing á aðilum að umferðaróhappinu. 4. Færð, þegar umferðaróhappið varð. 5. Veður, þegar umferðaróhappið varð. 6. Birta, þegar umferðaróhappið varð. 7. Ástand götunnar, þegar um- ferðaróhappið varð. 8. Gerð hjólbarðanna, þegar umferðaróhappið var. O.s.frv. Helstu upplýsingar, sem úr bankanum má fá A. Svartblettaútskrift Með henni má sjá m.a. þá staði í gatnakerfinu, þar sem flest umferðaróhöpp eða slys hafa orðið, að teknu tilliti til umferðar- magns, þ.e.a.s. þeir staðir sem era hættulegastir. Þessir staðir hafa verið nefndir svartir blettir (á ensku: Black spots). B. Skrá yfir slasaða I umferð- inni í Reykjavík Miðað er við ákveðið ár, sundurlið- að eftir kyni og aldri hins slasaða ásamt því hvort hann er akandi, hjólandi eða gangandi t.d. C. Umferðaróhöpp í Reykjavík á ákveðnu ári, flokkuð eftir höfuðflokkum umferðarlaga- brota. D. Umferðaróhöpp sem upp- fylla ákveðin skilyrði Þau era leituð uppi með hjálp sérstaks tölvuforrits. Dæmi: Umferðaróhöpp, sem hafa orðið á ákveðnum áram milli kl. 21 og kl. 07, á gulu blikkandi ljósi. E. Ýmsar fleiri skrár mætti nefna, sem unnt er að fá. Lokaorð Nú kynni einhver að spyija: „Til hvers í ósköpunum að vera að eyða tíma og peningum í þennan tölvu- gagnabanka?" Því er til að svara að þama eram við umferðartæknimennimir komn- ir með ómetanlegt tæki til þess að fínna hættulegustu staðina f gatna- kerfínu og getum því einbeitt okkur að því að laga þá, en þurfum ekki að tefja okkur á tfmafrekri hand- virkri leit. Auk þess er ástandið þannig í dag að við komumst ekki yfír að leita þá uppi með handvirkum hætti, svo vel sé, vegna þess að í Reykjavík verða á ári hveiju u.þ.b. 3.000 umferðaróhöpp samkvæmt skýrslum lögreglunnar. Þó að heildarkostnaður við gerð þessa banka verði rúmlega 1 milljón króna, verður hann fljótur að borga sig vegna vinnuspamaðar við úr- vinnslu á skýrslum um umferðar- óhöpp í Reykjavík, því það verk yrði aldrei jafn vel unnið með hand- Fer ínn á lang flest heimili landsins! virkum hætti af minna en 3—4 mönnum í fullu starfí. Einnig mun bankinn spara mikið fé vegna markvissari og árangurs- ríkari lagfæringa á gatnakerfínu, vegna betri upplýsinga en áður um svarta bletti í því. Höfundur er deildarverkfræðing- urá umferðardeild gatnamála- stjóra. Datsun King CAB árg. 1983. Góður bíll, ekinn aðeins 49.000 km. Drif á öllum hjólum. Nýleg dekk, útvarp. Topplúga. Silfurgrár á litinn. Verð 475.000,-. Upplýsingar í símum 22013 og 44122, 20620 og 623858. Íreturðu líka að veislumatinn ísuðvestan rign i nm ■’ Meco útigrillin eru alveg einstök í sinni röð. Yfirhitinn, sem myndast með lokuðu grilli gefur matnum þennan sanna grill-keim. Þú sparar grilltíma, notar færri kol og nærð betri árangri í matargerðinni. Að grilltíma loknum lokarðu einfaldlega fyrir loftstrauminn og slekkur þannig í kolunum, sem þú getur síðan notað við næstu grill-máltíð. Meco grillin bjóða upp á þægi- lega fylgihluti svo sem teina, borð, hitaskúffu og snúningsmótor. Maturinn er munngæti úr Meco! heimilistæki hf. SÆTUNI 8 - S> 15G55 ALVÖRU ÞRÍHJÓL Með öryggið í öndvegi Örugg og sterk á mjög góðu verði Þríhjólið er eitt albesta leikfang yngstu barnanna. í leiknum lærir bamið að samræma hreyfingar sínar og þjálfar jafnvægisskynið í leiðinni. Rauðu og hvítu Winther þríhjólin rrá Danmörku hafa í áratugi verið langvinsælustu þríhjólin á íslandi og hafa gengið í arf frá kynslóð til kynslóðar vegna styrkleika og varahlutaþjónustu. Nú hefur Winther bætt um betur og hannað þríhjól framtíðarinnar sem er enn betra og öryggið haft í öndvegi. Við hönnun eru allar línur hafðar bogadregnar eða sléttar, þannig að hvergi fyrirfinnast skarpar brúnir, göt eða nibbur, sem bamið getur skaðað sig á. (Skrúfur era innfelldar, sléttir hjólkoppar o.s.frv.) Einkaumboð á íslandi: mm Reidhjólaverslunín_ ORNINN Spítalastíg 8. Símar 14661 — 26888. sérverslun i meira en hálfa öld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.