Morgunblaðið - 03.07.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 03.07.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1986 63 Shari Belafonte Leikkonan Shari Belafonte, sem íslenskir sjónvarpsáhorf- endur þekkja hvað best úr fram- haldsmyndaflokknum „Hótel", er jafnframt dóttir hins dáða söngv- ara, Harry Belafonte. Fimm ár eru nú liðin síðan hún steig sín fyrstu spor á leiklistarbrautinni og sífellt hækkar stjama hennar. Að eigin sögn á þetta-'líf vel við hana, þar sem henni er meinilla við alla „stimpilklukkuvinnu". „Mér fínnst best að geta tekið svona tarnir,“ segir Shari, „unnið eins og vitleysingur í 2—3 mánuði, en slakað svo á, þess á milli." Shari á 3 systur og 1 bróður, sem öll hafa haldið góðu sambandi við söngvarann, föður sinn, þrátt fyrir að foreldrar þeirra hafí slitið samvistum er Shari var aðeins tveggja ára að aldri. , „Pabbi gætti þess vel að við myndum ekki gleyma honum," segir hún, „hann tók okkur alltaf til sín af og til, eiginlega hvenær sem hann gat. Við erum þess vegna mjög náin. Og sem betur fer styður hann dyggilega við bakið á mér á þessari framabraut, þó svo hann hafi verið hálfhrædd- ur um mig fyrst í stað.“ Shari er að sögn hamingjusam- lega gift og er mjög lífleg ung kona, sem á sér fjölda áhugamála, þar á meðal hestamennsku. Shari Belafonte ásamt aðal- áhugamáli sínu — hestinum. Mariel Hemingway farin að matreiða á Manhattan Arnold Schwarzenegger, sem þekktastur er fyrir kraftalegt útlit sitt, hefur í fjölda ára átt þcnnan gula Labrador-hund, sem gegnir nafninu Conan. Lesendur geta síðan sjálfír spáð í það hvort fyrirsætumar eigi eitt- hvað sameiginlegt. L yrirsætan og leikkonan Mariel ■ Hemingway, sonardóttir hins eina og sanna Hemingway, hefur nú, ásamt manni sínum Stephen Crisman, opnað veitingastaðinn „Sam’s Cafe“ á Manhattan í New York. Stephen, sem er nú 36 ára að aldri, hefur frá tvítugu starfað á þessu sviði og var hann m.a. einn stofnenda „Hark Rock Cafe“, sem er vinsæll veitingastaður í Lundún- um. Þau Stephen og Mariel, eða Sam, eins og Stephen kallar konu sína, kynntust fyrir 4 árum, þegar hún var aðeins tvítug að aldri á veitinga- stað, sem hann rak þá, á Man- hattan. „Ég vissi ekkert hver hún var,“ fullyrðir Stephen. „Ég hafði ekki séð neina af myndum hennar, en hún vakti um leið áhuga minn með fágaðri framkomu sinni." Eftir að þau giftu sig í desember 1984 fóru þau að leggja drögin að opnun þessa staðar. „Mér fínnst það skipta mestu máli að fólk geti slappað af hér,“ segir Mariel. „Það er nefnilega ekkert sem fer eins mikið í taugam- ar á mér og veitingastaðir sem eru svo ofsalega fínir að manni líður illa þar. Þess vegna leggjum við líka áherslu á góðan og heimilislegan mat, en höfnum þessari nýju línu, þar sem meiri áhersla er lögð á skreytingu matarins en gæðin sjálf." Það vekur athygli á þessum stað að beljur virðast vera einkenni hans og aðalsmerki. Myndir af þeim hanga á öllum veggjum og prýða m.a. matseðlana. Hvers vegna? „Jú, það er liður í því að skapa þægilegt andrúmsloft," segir Mariel og hlær. Mariel Hemingway og Stephen Crisman á veitingastaðnum „Sam’s Café“. Þetta hefur kostað mikla vinnu, eins og vera ber,“ segja þau, „en við skiptum með okkur verkum." „Til dæmis sér Stephen um að loka á kvöldin, því yfirleitt er ég svo uppgefin um 10-leytið að ég verð að fara heim,“ bætir Mariel afsakandi við. „Mér hafa alltaf fundist beljur af- svip.“ Alls konar fólk sækir þennan skaplega róandi skepnur. Þær eru stað og þó svo að meðal fastagest- svo æðrulausar og afslappaðar — anna séu stjömur á borð við Robert eiginlega mitt á milli þess að vera DeNiro, Kevin Bacon og Ahmad heimspekilegar og heimskar á Rashad, fá þar allir sömu þjónustu. COSPER COSPER. — Ég er bara að athuga hvort pelsinn klæðir þig NÝJA ÍSLENSKA ELDHÚSIÐ NÝR MATSEÐILL 6 Leki í húsum getur myndast af mörgum ástæðum. T.d. þegar frýs í þakrennum og niðurföllum, því um leið og utanaðkomandi vatn kemst ekki venjulega leið í niðurfall leitar vatn að öðrum leiðum sem getur leitt til að leki myndist í híbýlum þar sem hans er síst von. Við vonum sannarlega að manninum hér að ofan sé kunnugt um HITASTRENGINA frá Rönning, sem leggja má í þakrennur og niðurföll, því þeir vinna í þágu húseigenda. HITASTRENGINA frá Rönning má einnig leggja í rör, tröppur, bílskúrsaðkeyslur og gólf. Þú slekkur bara á sumrin og kveikir aftur þegar frýs. ítarlegri upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar. Jf RÖNNING 25ISB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.