Morgunblaðið - 30.08.1986, Síða 1

Morgunblaðið - 30.08.1986, Síða 1
48 SIÐUR OG LESBOK STOFNAÐ 1913 193. tbl. 72. árg. . LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Iran: Sóknin mikla að hefjast 1.000 herfylki verða send til vígstöðvanna Nikósíu, AP. „HIN MIKLA sókn iranska hersins gegn her íraks, sem nú gerist æ þróttminni, er skammt undan.“ Þannig komst Huss- ein Musavi forsætisráðherra írans að orði í mikilli ræðu, sem hann flutti í gær. Sagði hann, að 1.000 herfylki væru nú til- búin til þess að halda til vígstöðvanna til stórsóknar inn í írak í því skyni að binda i eitt skipti fyrir öll enda á stríðið milli landanna, sem nú hefur staðið i sex ár. Ali Hasemi Rafsanjani, forseti íranska þingsins tók undir þessi orð í ávarpi, sem hann flutti. Þar Snarp- ir jarð- skjálftar á Italíu Feneyjum, AP. TVEIR snarpir jarðskjálftar urðu á stóni svæði fyrir norðan Feneyjar á Ítalíu i gær. Mikill ótti greip uin sig og flúðu mörg hundruð manns í skelfingu burt frá heimilum og hótelum. Eng- ar fréttir hafa þó borizt af slysum á fólki né umtalsverðu tjóni á mannvirkjum. ítalska jarðeðlisstofnunin skýrði svo frá í gær, að fyrri kippurinn, sem varð rétt fyrir kl. 5 síðdegis, hefði mælzt 4,2 stig á Richters- kvarða og sá síðari, sem varð 3 'h mínútu seinna, hefði mælzt 3,5 stig. Upptök beggja jarðskjálft- anna voru um 100 km fyrir norðan Feneyjar. varaði hann nágrannanki Araba við Persaflóa við því, að íranar hefðu rétt til þess að loka Hormuzssundi og stöðva þannig olíuútflutning þeirra, ef þau héldu áfram stuðningi sínum við írak. „Ef þið styðjið stjóm fraks og veitið henni aðgang að olíusjóðum ykkar, þá eruð þið stuðningsmenn hennar í stríðinu. Hvers getið þið þá vænzt af okkur. Þolinmæði okkar er senn á þrotum," sagði Rafsanjani. Hann skýrði svo frá, að undir- búningi væri nú lokið undir það að senda 1.000 herfylki til vígstöðvanna og væru þau aðal- lega skipuð ungum byltingarliðum íslams. Þessir menn eru fyrst og fremst ofstækisfullir sjálfboðalið- ar, sem trúa því, að falli þeir í bardaga fyrir málstað íslams, þá tryggi þeir sér þarmeð vist í paradís. „Setjið fíngurinn á gikkinn og bíðið skipunar um árás, svo að unnt verði að frelsa þjóð íraks og aðrar þjóðir á þessu svæði undan vonsku stjómar síonista í írak,“ sagði Rafsanjani í hvatningar- ávarpi sínu. Talið er, að um 350.000 manns séu í herliði því, sem íranar hyggj- ast nú senda til vígstöðvanna. Ifyrir eru þar 250.000 byltingar- liðar auk 400.000 manns í hinum reglulega her írans. Fylgst með njósnavél Atlantshafsbandalagið hóf miklar heræfingar á Norður-Atlantshafi og Eystrasalti í gær. Um 150 herskip og kafbátar, hundruð flugvéla og 35.000 hermenn frá 10 NATO-ríkjum taka þátt í æfingun- um, sem standa í þrjár vikur. í tilefni af æfingunum hafa Sovétmenn aukið hernaðarumsvif sín á Norðurslóðum og meðal annars sent flugvélar til að njósna um ferðir skipa og flugvéla NATO- ríkjanna. Þessi mynd er tekin skammt frá íslandi í þessari viku og sýnir þrjár F-15-orrustuþotur frá vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli elta sovéska kafbátaleitar- og eftirlitsflugvél af svonefndri May-gerð. Sveitir úr varnarliðinu taka þátt í NATO-æfingunum. Þær halda uppi eftirliti með ferð- um skipa og flugvéla i nágrenni landsins og einkum á milli Noregs og íslands. Norskir hvalveiðimenn: Stöðvuðu Nim- itz í Vestfirði Ósló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. TUTTUGU norskir hrefnu- veiðibátar sigldu í gær í veg Bandariska flugmóðurskipið Nimitz i Vcstfirði fyrir sunnan Lófót. ferð þess með því að sigla 20 hrefnubátum í veg fyrir það. Verdens Gang/Simamynd Norskir hvalveiðimenn stöðvuðu fyrir bandariska flugmóður- skipið Nimitz þegar það lagði inn í Vestfirði í Norður- landsfylki og hindruðu það í að halda lengra. Með þessu vildu hvalveiðimennimir mót- mæla því, að frá næstu áramótum verða hrefnuveið- arnar stöðvaðar „vegna þrýstings frá Bandaríkja- stjóm“. Skipherrann á Nimitz, sem nú tekur þátt í heræfíngum Atlants- hafsbandalagsins á Norður- Atlantshafi, reyndi ekki að halda áfram ferðinni eftir að hann hafði mætt hrefnubátunum en sendi hins vegar á loft nokkrar flugvélar, sem flugu beint á haf út. Hvalbátunum var þá öllum siglt upp að Nimitz en að nokk- urri stund liðinni var þeim snúið aftur til hafnar. „Þetta gekk vel og okkur hef- ur tekist að vekja athygli á málstað okkar. Við höfum mót- mælt því áður, að Bandaríkja- stjóm skuli gerast taglhnýtingur óábyrgra umhverfisvemdarsam- taka en það er einmitt vegna þrýstings frá Bandaríkjastjórn sem hrefnuveiðamar verða stöðvaðar frá næstu áramótum. Norska stjómin gafst upp í þessu máli,“ sagði Steinar Bastesen, formaður í félagi hvalveiði- manna í Norðurlandsfylki. Mótmæli hvalveiðimannanna fóru friðsamlega fram en flest- um fannst tilkomumikið að sjá litlu bátana við hlið Nimitz, þessa risastóra, kjarnorkuknúna flugmóðurskips. Um borð í bát- unum voru ekki aðeins hvalveiði- menn, heldur vom þeir líka þéttskipaðir blaðamönnum frá öllum helstu fjölmiðlunum. Kvaðst Steinar Bastesen búast við, að myndir frá mótmælunum birtust í blöðum og sjónvarpi um allan heim. „Þá hefðum við haft okkar fram, að setja Bandaríkjastjóm upp að vegg. Við höfum góðan málstað að veija. Aðrir beijast fyrir hærri launum, við beijumst fýrir að að fá að vinna,“ sagði Bastesen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.