Morgunblaðið - 30.08.1986, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAblÐ', ÍÁÍJOAUOAGUR 30.' ÁGUST 1986
Þing SUF í Eyjafirði:
Samstarf við Al-
þýðuflokk óhugsandi
meðan Jón Bald-
vin er formaður
— segir Páll Pétursson í ávarpi á þinginu
Akurcyri, 28. ágúst.
PÁLL Pétursson, formaður þingflokks framsóknarmanna, sagði í
ávarpi á þingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í Hrafna-
gilsskóla í Eyjafirði í gærkvöldi, að hann væri farinn að þreytast á
sijórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Við það yrði þó að una
til vors, þar sem aðrir kostir væru ekki í boði.
I því sambandi r.efndi Páll að
Alþýðubandalagið væri flakandi í
sárum og hann taldi að samvinna
við Alþýðuflokkinn kæmi ekki til
greina meðan Jón Baldvin IJ.tnni-
balsson væri formaður flokksins,
en hann ræki ábyrgðarlausa slag-
orðapólitík. Undir þessi ummæli var
tekið með dynjandi lófataki.
Á þinginu voru kynntar niður-
stöður skoðanakönnunar um
þjóðmál, sem félagsvísindastofnun
háskóians gerði fyrir SUF. Þar
kemur meðal annars fram að nærri
helmingur kjósenda (46%) telur að
Framsóknarflokkurinn sé ekki
flokkur þéttbýlisins, heldur sé hann
flokkur er fyrst og fremst gæti
hagsmuna dreifbýlisins. Þessarar
skoðunar eru einnig 42% kjósenda
Framsóknarflokksins. Um 29% af
þeim sem kjósa fiokkinnn telja að
hann sé gamaldags. Þá reyndist
Framsóknarflokkurinn vera sá
stjómmálaflokkur, sem flestir að-
spurðir töldu tækisfærissinnaðan
(15,3%).
í gærkvöldi voru kynntar álykt-
anir um þjóðmál, sem lagðar hafa
verið fyrir þingið, og fram fóru al-
mennar stjómmálaumræður. Þing-
inu verður fram haldið á morgun
en lýkur annað kvöid.
MorgunblaOið/J úlíus
Blikkandi ljós blekktu ökumann
HARÐUR árekstur varð á mót-
um Hofsvallagötu og Hring-
brautar í gær. Jeppabifreið ók
á fólksbifreið og var ökumaður
síðarnefndu bifreiðarinnar
fluttur i slysadeild.
Slysið varð með þeim hætti að
jeppabifreiðin ók norður Hofs-
vallagötu. Þegar að gatnamótun-
um við Hringbraut kom vom
götuljósin í ólagi og aðeins blikk-
andi gul ljós. Okumaður jeppans
áttaði sig ekki á biðskyldu og ók
í hlið fólksbifreiðar sem var ekið
austur Hringbraut. Var ökumaður
fólksbifreiðarinnar fluttur í slysa-
deild, en meiðsli hans reyndust
óveruleg.
Háskólarektor vill breyta
reglum um skipun dómnefnda
Ingvar Gíslason:
Fer ekki í
framboð aftur
Akureyri, 28. ágúst.
INGVAR Gíslason, þingmaður
Framsóknarflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra,
hyggst ekki gefa kost á sér tií
þingmennsku í næstu kosning-
um.
Ingvar Gíslason, sem nú er
forseti neðri deildar Alþingis,
greindi frá þessari ákvörðun í
ávarpi sem hann flutti við setn-
ingu þings Sambands ungra
framsóknarmanna í Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði í gærkvöldi.
Hann sagði í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins að hann
teldi tímabært að draga sig í hlé,
nú þegar hann væri orðinn sex-
tugur að aldri og hefði setið á
Alþingi í 25 ár.
Hlaupið í Súlu:
„ÞAÐ ER rétt, ég hef verið að
vinna að tíllögum um breytt fyr-
irkomulag á því hvernig skipað
er í dómnefndir, sem meta hæfni
umsækjenda um stöður embætt-
ismanna við háskólann. Ég hef
hins vegar ekki lagt þessar hug-
myndir mínar fyrir háskólaráð
og vU ekki tjá mig um þær opin-'
berlega fyrr. En þær munu sjá
dagsins ljós innan tíðar,“ sagði
Sigmundur Guðbjarnason rektor
Keflavíkurflugvöllur:
Ekið á flug-
freyju
FÓLKSBÍLL ók á flugfreyju á
Keflavikurflugvelli snemma í
gærmorgun. Hún hlaut höfðuð-
áverka og var flutt í sjúkrahús
Keflavíkur, en líðan hennar mun
vera góð eftir atvikum.
Konan var á gangi á flughlaðinu
og stefndi á aftari Iandgang Flug-
leiðavélar sem hún átti að fljúga
með til Kaupmannahafnar. Hún
gekk fram fyrir enda svokallaðs
pressubíls, sem var kyrrstæður á
hlaðinu. Samtíniis ók fólksbíl! sam-
hliða pressubílunum og sá ekki
konuna fyrr en um seinan.
Háskóla íslands í samtali við
Morgunblaðið.
Að sögn Sigmundar er núverandi
fyrirkomulag með eftirfarandi
hætti: Dómnefndir fyrir lektors-
stöður eru valdar af viðkomandi
deild og hefur hún algerlega með
afgreiðslu málsins af gera. í dóm-
nefndir fyrir stöður dósenta og
prófessora er skipað með öðrum
hætti. Þar tilneftiir háskóladeild
einn fulltrúa, háskólaráð annan og
menntamálaráðnuneyti hinn þriðja.
Dómnefndir leggja síðan álit sitt
fyrir deildarfund, þar sem fjallað
er um málið og síðan eru greidd á
deildarfundi atkvæði um umsækj-
endur. En menntamálaráðherra
hefur síðasta orðið og skipar í stöð-
una óbundinn að öðru en því, að
hann getur ekki skipað mann í stöð-
una nema hann sé dæmdur hæfur
af dómnefnd.
Sigmundur sagði að þetta fyrir-
komulag væri á ýmsan hátt gallað.
„Ég tel að með því að hafa til-
högunina svolítið öðruvísi megi
Félagsgjöld Bandalags
íslenskra sérskólanema munu
ekki verða innheimt af Lánasjóði
íslenskra námsmanna við af-
greiðslu námslána fyrir septem-
ber og október.
Samkvæmt reglugerð, sem
komast hjá ýmsum þeim erfiðleik-
um sem upp hafa komið af og til
á liðnum misserum og árum. Tillög-
ur mínar miða að því að gera þetta
sanngjarnara fyrir alla aðila,“ sagði
Sigmundur Guðbjamason.
Sverrir Hermannsson menntamála-
ráðherra gaf út nýverið, innheimtir
Lánasjóðurinn því aðeins félags-
gjöld fyrir BÍ SN og SÍNE (Samband
íslenskra námsmanna erlendis) að
þau félög fari fram á það við sjóð-
inn. SÍNE hefur þegar farið fram
á það við sjóðinn, að félagsgjald
SÍNE (1.000 kr.) verði dregið frá
námslánum, en að sögn Hrafns Sig-
urðssonar framkvæmdastjóra LIN
hefur BÍSN ekki farið fram á slíkt.
Um þessar mundir eru miklar
annir hjá sjóðnum að afgreiða um-
sóknir um námslán og útbúa
skuldabréf vegna fyrstu úthlutunar
(fyrir september-október) og er við
það miðað, að skuldabréfín verði
send til námsmanna um miðbik
september. „Það er nánast búið að
loka forritinu, þ.a. þeir hjá BÍSN
eru orðnir of seinir," sagði Hrafn
Sigurðsson. „Ég hef reynt í margar
vikur að ná sambandi við forsvars-
menn BÍSN, en án árangurs og
ekkert frumkvæði hefur komið frá
Seðlabankinn:
Bankastj óraskipti
HINN 1. september nk. tekur
Geir Hallgrímsson, fyrrverandi
ráðherra, við starfi seðlabanka-
stjóra.
Jafnframt lætur Davíð Ólafs-
son af starfí sem seðlabankastjóri
sakir aldurs, en hann varð 70 ára
fyrr á árinu.
Frá 1. september nk. er banka-
stjómin skipuð dr. Jóhannesi
Nordal, sem er nú formaður
bankastjómar, Tómasi Ámasyni
og Geir Hallgrímssyni.
LÍN innheimtir ekki
félagsgjöld BÍSN
„Rennur við jökuljaðarinn með
feiknarlegum boðaföllum“
— segir Oddur Sigurðsson hjá Orkustofnun sem flaug yfir svæðið í gær
HLAUP hófst í Grænalóni í fyrrinótt og hljóp í ána Súlu, sem kem-
ur undan Skeiðaráijökli og rennur í Núpsvötn. Áin var í vexti fram
eftir degi í gær, en ekkert tjón varð á vegum eða brúnm.
í síðasta Súluhlaupi, sem varð
fyrir tveimur árum, munaði litlu að
vegurinn við Núpsá undir Lóma-
gnúpi skemmdist, en hann hefur
verið nú verið styrktur. Hlaup í
Súlu era nánast árlegur viðburður.
Þau standa yfírieitt ekki nema 2—3
daga. Hlaupið í Skeiðará, sem hófst
fyrr í vikunni, vex hægt og búist
er við vexti í áitni í 1—2 vikur í
viðbót.
Oddur Sigurðsson hjá Orkustofn-
un flaug yfír vatnasvæðin í gærdag.
„Þetta var mjög tilkomumikil sjón.
Vatnið í Súlu kemur venjulega und-
an Skeiðaráijökli, en nú rennur það
á yfirborðinu með jökuljaðrinum
með feiknalegum boðaföllum. Við
fylgdum hlaupinu upp eftir ánni og
í Grænalón-og það er enginn vafí
að það kemur þaðan, en ekki úr
Skeiðará, ems og stundum hefur
gerst,“ sagði Oddur.
Jökulfylu varð fyrst vart í
Skaftafelii fyrr í vikunni, sem talinn
er órækur vitnisburður um að
Skeiðará fari að hlaupa. Skeiðarár-
hlaup eiga upptök sín í Grímsvötn-
um á Vatnajökli. „Við flugum yfír
Grímsvötn og sáum að íshellan er
þar að brotna. Sem bendir til að
hlaupið eigi eftir að aukast þó nokk-
uð,“ sagði Oddur.
Venjulega eru Skeiðarárhlaup á
fjögurra ára fresti, en Oddur sagði
þau hefðu verið tíðari á síðustu
árum. Síðasta hlaup var í Skeiðará
í desember 1983.
þeim. Hins vegar verður nýr út-
reikningur í nóvember og ætti að
vera unnt að koma innheimtunni inn
í forrit okkar þá.“
í samtali við Morgunblaðið, sagði
Kristinn H. Einarsson starfsmaður
BÍSN að það væri vissulega ætlun-
in að notfæra sér þjónustu Iána-
sjóðsins og ef ekki tækist að koma
þessu inn í forritið hjá sjóðnum í
september, yrði farið fram á það
við sjóðinn, að félagsgjöldin yrðu
innheimt í nóvember. „Ég stóð í
þeirri trú, að búið væri að ganga
frá þessu máli af hálfu fyrrverandi
starfsmanns BÍSN,“ sagði Kristinn,
„en sjálfur er ég nýbyijaður hjá
bandalaginu og stöndum við í flutn-
ingum um þessar mundir,“ sagði
Kristinn og kvað það myndu koma
sér mjög illa fyrir félagið, ef félags-
gjöldin fengjust ekki inriheimt fyrr
en í nóvember.