Morgunblaðið - 30.08.1986, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
Subaru XT Turbo, rennilegur, fleygur og fímur í akstri.
Morgunblaðið/Einar Falur
Torfærulúxussportbí 11
___________Bflar_____________
Þórhallur Jósepsson
Hann er trúr uppruna sínum
þessi einstaki bíll. Subaru vann
sér fyrst frægð og frama á al-
þjóðavettvangi þegar fram kom
fjórhjóladrifinn fólksbíll sem fór
undralangt með að sameina kosti
jeppa og fólksbíls í einum vagni.
Hinn hefðbundni Subaru hefur
siðan þróast og aukist að tækni
og búnaði og þó engan veginn
misst hina eftirsóttu torfærueig-
inleika sína, fremur hægt að tala
um að þeir hafi batnað með til-
komu lággirs og fullkominnar
drifatengingar svo dæmi séu
nefnd.
Á síðustu árum hafa komið á
markaðinn fleiri tegundir frá Su-
baru og skammt mun að bíða enn
meiri fjölbreytni þar sem möguleik-
Honum flökrar ekki við svolitlum ófærum þessum og verður liklega
ekki mikið um þótt snjói lítið eitt í vetur.
ar fjórhjóladrifsins eru nýttir á
mismunandi vegu og þá verður
stefnan ekki einvörðungu sett á
torfærueiginleikana, heldur einnig
lögð áhersla á að nýta aldrifið til
betri aksturseiginleika á malbiki og
á miklum hraða.
QsT Subaru XT Turbo 4WD hefur
stigið öðrum „fæti“ yfir í þessa
átt, þ.e. að ná aksturseiginleikum
og veggripi í hraðakstri og lipuð,
en stendur þó fastí hinn torfæru-
megin og hefur jafnvel treyst
fótfestu sína þar með stilanlegri
hæð.
Jafnvígur á malbik
og mela
Enginn þarf að vera hræddur við
að bregða sér út fyrir veg á XT
Turbo og ótrauðir geta menn lagt
í snjóa og sanda í sama mæli og á
öðrum Subaru-bílum eða lágvaxn-
ari jeppum. Og þessi sami bíll sem
bröítir um vegleysur eins og ekkert
sé sjálfsagðara, hann spymir fast,
136 hestöflum, við malbikið og fer
auðveldlega óðslega um götur og
torg með fjöri ungfolans og öryggi
gæðingsins. Ekki er nóg með að
XT Turbo sé af ætt jeppa og sport-
bíla, hinn þriðji leggur kemur inn
í dæmið og fullkomnar þar með
hina þríeinu mynd þessa fjölhæfnis-
vagns. Fjölskyldubíllinn hefur
sannarlega sett sína erfðavísa í
þenna Japana og kemur það ætt-
emi glöggt í ljós þegar við blasa
aftursæti og hreint ótrúlega rúm-
góð farangurgeymsla, hún gefur
ekkert eftir rýminu í ætthreinum
fólksbíl. Síðan er, eins og ijómi á
góðri sérrítertu, vel útilátinn lúxus
til að fullkomna myndina. Og þá
blasir hann við, bíllinn sem reynslu-
ekið var í afmælisvikunni miklu,
torfærutæki, Qörfákur, fjölskyldu-
bíll, lúxusvagn: Subam XT Turbo
4WD.
Nýstárleg- fjöðrun
Þegar bíllinn er fyrst litinn aug-
um, blasir við sannjapanskt útlit
og allar iínur undirstrika hraða-
Subaru XT
Turbo 4WD
Nokkrar staðreyndir
Lengd 4.450 mm
Breidd 1.690 mm
Hæð 1.335 mm
VeghaHÍ 170 mm
Þyngd 1.185 kg
Vél:
Siagrúmmál 1.781 cm1
Þj.hlutf. 7.7:1
Afl 136 hövið 5.600 sn. mín.
Togkr 20 kgm við 2.800 sn.
mín.
Ofanáliggjandi knastásar
4 strokkar
Afgastúrbína
Bein innspýting eldsneytis.
Bensíneyðsla:
90 km/klst. : 8.6 1/100 km
120 km/ktst.: 11.61/100 km
Bæjarakstur: 11.11/100 km
Stýri: Tannst. með hjálparafli.
Fjöðrun: Rafstýrð og -knúin
loftpúðafjöðrun, sjálfstæð á
hveiju hjóli, hæðarstilling.
Beygjuradíus 4.9 m
Dekk: 185/70 VR13
Helsti búnaður innifalinn í
verði:
Aflstýri
Rafdrifnar rúður
Miðstýrðar læsingar
Rafdrifnir útispegiar
Snúningshraðamælir
Klukka í mælab.
Sprauta á ökuljós
Sóllúga
Reynsluakstur:
Subaru XT Turbo 4WD
Umboð: Ingvar Helgason hf.
Verð: 886.000 kr. (ág. 1986)
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALOIMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N H0L
Sýnlshorn úr söluskrá:
Stór og góð við Tjarnarból
5 herb. íb. á 4. hæö 117,6 fm nettó. 4 svefnherb. Ágæt sameign.
Sólarsvalir. MiklA útsýni.
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi
Nýendurbyggt og stækkað. Húsið er hæö 99 fm og rishæö um 60 fm
sem getur verið séríb. Bflskúr meö geymslu um 36 fm. Glæsilegur
blóma- og trjágaröur. Skipti mögui. á 4ra-5 herb. hæö eöa vandaöri ib.
í lyftuhúsi.
Við Ásgarð — skiptamöguleiki
Raðhús meö 4ra herb. íb. á tveimur hæöum um 48 X 2 fm. í kj. er
þvottahús og geymsla. Verö aðeins kr. 2,7 millj. Skipti mögul. á góðri
3ja herb. ib.
2ja og 3ja herb. við:
Njálsgötu — Ránargötu — Flókagötu — Kriuhóla — Laugaveg og
Skúlagötu. Ennfremur 3ja herb. hæð í Hafnarfiröi meö mjög Iftilli út-
borgun.
Hagkvæm skipti m.a.:
Sérbýli óskast í Vesturborginni eöa nágr. með 5 svefnherb. Skipti
mögul. á 5 herb. úrvalsíb. á 1. hæð i Vesturborginni.
Sórhæð 5-6 herb. óskast í Norðurmýri, Hliöum eöa nágr. Skipti mögul.
á 4ra herb. endurn. hæð á mjög góðum staö í þessum hverfum.
3ja herb. rúmgóðri íb. á 1. eöa 2. hæö miösvæöis i borginni. Skipti
mögul. á 5 herb. endurn. íb. á góðum staö í Hlíðunum.
2ja-3ja herb. góöri ib. í Vesturborginni á 2. hæð. Skipti mögul. á 3ja
herb. íb. með stórkostl. útsýni í Vesturborginni.
í háhýsi óskast
4ra-5 herb. góö ib. með útsýni. Æskilegir staöir Espigeröi, Ljósheim-
ar, Sólheimar eöa Þverbrekka Kóp. Fjársterkir kaupendur.
Opið í dag laugardag
kl. 11.00 til kl. 15.00.
FASTEIGNASAL AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
m
s £ Góðan daginn!
Aðstaða til knattspyrnuiðkunar hefír tekið miklum stakkaskiptum á
örfáum árum.
Til sölu
Vandað einbýlishús í Fossvogi. Húsið er 146 fm og
bílskúr sem er 32 fm. Húsið er sérgert fyrir fatlaða,
snúningsrými fyrir hjólastól og innangengt í bílskúr.
Húsið verður fullbúið og tilbúið til afhendingar 1. des. nk.
Kaupendaþjónustan Örn Isebarn
sími30541 sími 31104
29555
Opið ki. 1-3
Furugerði
Vorum að fá í sölu 4ra herb. glæsilega íbúð á 2. hæð
í lítilli blokk við Furugerði. Ákv. sala. Verð 3,7 millj.
Hrólfur Hjaltason, viöskiptafræölngur.
Knattspyrnufélagið
Víðir í Garði 50 ára:
Skemmti-
dagskrá
fyrir alla
aldurshópa
^ Garði.
Á ÞESSU ári eru liðin 50 ár síðan
knattspyrnufélagið Víðir i Garði
var stofnað. í tilefni þess hefir
stjórn Víðis og annarra styrktar-
félaga sem tengd eru félags-
skapnum ákveðið að hafa
skemmtidagskrá á laugardag á
nýja knattspyrnuvellinum og í
Samkomuhúsinu um kvöldið.
Skemmtunin hefst kl. 13.30 með
móti sem kallað er íssporsmótið og
leikur þá 6. flokkur Víðis gegn jafn-
öldrum sínum úr Sandgerði. Þá mun
stjóm kvenfélagsins spila gegn
stjóm Víðis. Eiginkonur Víðis-
manna ætla að kenna mönnum
sínum nokkra takta í knattspymu
íþróttinni. Einnig munu feður etja
kappi við syni sína í knattþrautum
og svo mætti lengi telja. Þá mun
Jón Páll hinn sterki mæta á stað-
inn. Hann gengur reyndar ekki
heill til skógar en hefír samt ákveð-
ið að láta sjá sig.
Kaffisala hefst i Samkomuhúsinu
kl. 16 og kl. 20 verður fjölskyldu-
dansleikur í tvær klukkustundir en
síðan er meiningin að mömmumar
og pabbamir eigi það sem eftir lifír
kvöldsins fyrir sig en keflvísk
hljómsveit mun leika fyrir dansi frá
kl. 23.
Arnór