Morgunblaðið - 30.08.1986, Side 28
28
MORGUNBIAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
Sumarstarfi í Kaldár-
seli lýkur um helgina
SUMARSTARFI KFUM og KFUK í Kaldárseli er nú að ljúka, en alls
hafa um 200 börn dvalið þar í sumar á viku til 10 daga námskeiðum.
Byr|að var að byggja nýjan skála
í Kaldárseli seinni hluta júlimánaðar
og er ráðgert að hann verði fok-
heldur áður en vetur gengur í garð.
Nýja húsið er 300 fermetrar og
1.600 rúmmetrar að stærð. í skálan-
um verður m.a. svefnsalur, íþrótta-
salur, setustofa, föndurherbergi og
snyrtiherbergi. Bætir þetta alla að-
stöðu, en gamla húsið var um 230
fermetrar að stærð. Ekki er þó ráð-
gert að flölga dvalarbömum þegar
nýbyggingin verður tekin í notkun.
Samkoma verður haldin í Kaldár-
seli á sunnudaginn næstkomandi kl.
14.30 í tilefni af því að sumarstarfi
er að ljúka. Raeðumaður verður
Benedikt Amkelsson cand. theol.,
sem starfað hefur með drengjum í
Kaldárseli í mörg sumur. Kaffísala
hefst um kl. 15.30 og stendur hún
yfír til kl. 23.30 og mun allur ágóði
af henni renna til framkvæmda í
Kaldárseli.
Teikning af aðstöðunni í Kaldárseli, bæði gamla hlutanum og nýja
húsinu, sem nú er í smíðum. Um 40 börn geta dvalið I selinu i einu.
Bókauppboð á sunnudag
BÓKA-OG Tímaritauppboð verð-
ur í Templarahöllinni við Eiríks-
götu kl. 14 á sunnudag á vegum
Listmunauppboðs Guðmundar
Axelssonar í Klausturhólum. Þar
verða ýmsar sjaldgæfar bækur og
tímarit seld.
Meðal þeirra má nefna „Árferði á
íslandi í 1000 ár“ eftir Þorvald Thor-
oddsen, sem var prentuð um aldamót
í 600 eintökum, einnig ferðabók
sama höfundar og íslandslýsingu
hans í frumútgáfu. Meðal fágætra
lögfræðibóka má nefna „Fomyrði
lögbókar" eftir Pál Vídalín, Legorðs-
málskver Magnúsar Stephensens,
prentað í Viðey 1821, og danska
Jónsbókarútgáfu frá 1763.
Meðal fágætra tímarita má nefna
„Skemmtileg vina-gleði“ Magnúsar
Stephensens frá 1797, „Sunnan-
Pósturinn“ útgefinn í Viðey frá 1835
til 1838, „Gefn“, tímarit Benedikts
Sveinbjamarsonar Gröndals, „Ný
tíðindi" Magnúsar skálds, prests og
þjóðsagnasafnara Grímsonar,
„Bóndi“, búnaðarrit Jakobs Guð-
mundssonar frá 1851, 1.-5. árgang
af „Lögfræðingi" Páils Briem, og
listatímarit Steingríms Sigurðssonar
„Líf og list“.
Alls verða seldar 185 númer tíma-
rita og bóka á uppboðinu. Bækumar
verða til sýnis f verslun Klausturhóla
við Laugaveg 8 í dag kl. 14—18.
Starfsmenn utanrfldsráðuneytísins sem borið hafa hita og þunga
undirbúningsins, frá vinstri: Þórður Einarsson, Sigrfður Snæv-
arr, Komelíus Sigmundsson og Ingvi Ingvarsson, ráðuneytís-
stjóri.
Utanríkisráðuneytið:
Þriðja ráðstefna
ræðismanna haldin
RÆÐISMENN íslands koma saman á ráðstefnu í Reykjavik dagana
1. september tíl 4. september. Þetta er í þriðja sinn, sem slík ráð-
stefna er haldin. Siðast komu þeir saman árið 1977. Af 185 ræðis-
mönnum hafa 127 tilkynnt þáttti
„Við teljum nauðsynlegt að halda
ráðstefnu sem þessa fyrir ræðis-
mennina og þá Islendinga sem þeir
hafa samskipti við,“ sagði Ingvi S.
Ingvason ráðuneytisstjóri í utan-
ríkisráðuneytinu. Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra setur
ráðstefnuna á mánudag og skýrir
frá utanríkisstefnu íslands. Ingvi
S. Ingvason gerir grein fyrir utan-
ríkisþjónustunni og verksviði
ræðismanna. Þá mun Þórhallur
Ásgeirsson ráðuneytissfjóri í við-
skiptaráðuneytinu ræða um utan-
ríkisviðskipti íslands.
Að loknu hádegisverðarhléi flyt-
ur Ólafur Davíðsson framkvæmda-
stjóri Félags fslenskra iðnrekenda
erindi um íslenskt efnahagslíf. Frið-
rik Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvar
hraðftystihúsanna mun ræða um
fslenskan sjávarútveg og útflutn-
ing. Ragnar Halldórsson stjómar-
formaður Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins fjallar um iðnframleiðslu
og útflutning iðnaðarvöru. Matthías
Á. Mathiesen utanríkisráðherra og
lU.
kona hans frú Sigrún Þ. Mathiesen,
bjóða til kvöldverðar að loknum
fundarhöldum.
Þriðjudaginn 2. september fara
ráðstefnugestir í kynnisferð um
Suðurland og koma við í Hvera-
gerði, á Flúðum, við Gullfoss, Geysi
og á Þingvöllum. Á miðvikudag
verður fjallað um ferða- og menn-
ingarmál. Ræðumenn verða Davíð
Oddsson borgarstjóri í Reykjavík,
Matthfas Johannessen ritstjóri
Morgunblaðsins, Birgir Þorgilsson
forstjóri Ferðamálaráðs, Sigfús Erl-
ingsson framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs Flugleiða og Hörður
Einarsson stjómarformaður Amar-
flugs. Davíð Oddsson borgarstjóri
og ftú Ástríður Thorarensen bjóða
ráðstefnugestum til hádegisverðar
á Kjarvalsstöðum. Að honum lokn-
um verður farið í skoðunarferð um
Reykjavík og í heimsókn til frú
Vigdfsar Finnbogadóttur forseta
íslands. Dagskránni lýkur með
kvöldverði á veitingahúsinu Broad-
way þar sem boðið er upp á
blandaða skemmtidagskrá.
Dómsmálaráðuneytið:
Bogifull-
nægir öllum
skilyrðum til
skipunar
Morgunblaðinu hefur borizt
eftírfarandi fréttatilkynning frá
dómsmálaráðuneytinu:
Vegna umQöllunar í flölmiðlum
að undanfömu vegna skipunar í
embætti rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins óskar ráðuneytið að taka
fram eftirfarandi:
Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga
nr. 108/1976 um rannsóknarlög-
reglu ríkisins em skilyrði til skipun-
ar í embætti rannsóknarlögreglu-
stjóra þau, að hann fullnægi
lögmæltum skilyrðum til skipunar
í héraðsdómaraembætti og hafí afl-
að sér þekkingar í þeim efnum er
varða eftirgrennslan brota.
Þar sem efasemdir hafa komið
fram um að Bogi Nflsson uppfylli
síðargreinda skiiyrðið skal tekið
fram, að þegar umsóknir um emb-
ættið lágu fyrir, lagði ráðuneytið
mat á það hvort umsækjendur full-
nægðu skilyrðum til skipunar.
I því sambandi skal einkum tekið
fram, að Bogi Nflsson gegndi starfi
fulltrúa við embætti bæjarfógetans
á Akureyri og sýslumannsins í Eyja-
fjarðarsýslu um 8 ára skeið, og
starfaði þar m.a. við rannsókn og
meðferð brotamála. Síðan hefur
hann í rúmlega 10 ár verið sýslu-
maður f Suður-Múlasýslu og
bæjarfógeti á Eskifírði og þar með
verið lögreglustjóri og dómari, og
sem slíkur haft með höndum stjóm
á rannsókn brotamála og annast
dómstörf í slikum málum.
Hefur hann því í starfi sínu aflað
sér alhliða þekkingar á þessum
málafíokki, og telur ráðuneytið
þannig engum vafa undirorpið að
hann hafi aflað sér þeirrar þekking-
ar sem lögboðin er til skipunar í
embætti rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins.
Guðni rektor
í Reykjavíkur-
spjalli í dag
í DAG klukkan 3 flytur Guðni
Guðmundsson rektor pistíl í
Reykjavíkurspjalli á Kjarvals-
stöðum sem hann nefnir „Óðins-
gatan, nafli alheimsins".
Á sama stað og tíma á morgun
flytur Valgerður Tryggvadóttir er-
indi sem hún nefnir „Minningar
dreifbýlisreykvíkings", en Valgerð-
ur ólst upp í Laufási við Laufásveg.
Erindin í Reykjavíkurspjalli, sem
haldin hafa verið á Kjarvalsstöðum
í tengslum við Reykjavíkursýning-
una, hafa verið flutt fyrir fullu húsi
og mælst vel fyrir meðal áheyrenda.
Starfsmenn Securítas skrifa dómsmálaráðherra:
Krefjast rannsóknar á
starfsemi keppinautarins
FIMMTÁN starfsmenn öryggis-
gæslufyrirtækisins Securitas sf.
hafa krafist þess af Jóni Helga-
syni dómsmálaráðherra, að hann
látí fara fram opinbera rannsókn
á starfsemi vaktþjónustunnar
Vara í Reykjavík, sem ráðuneytið
viðurkenndi nýlega. í bréfi, sem
fimmtánmenningarnir sendu
dómsmálaráðherra í gærmorgun,
segir að þeim hafi verið „mis-
boðið herfilega sem stétt með
þessari opinberu viðurkenningu
á starfsemi Vara“. Telja þeir
Kveðjuorð:
Fríða Fríðríks
í gær var til moldar borin vin-
kona mín, Fríða Friðriks. Árin eru
orðin mörg síðan okkar kynni hóf-
ust. Hún var fædd í Reykjavík 2.
ágúst 1902. Foreldrar hennar voru
Valgerður og Friðrik. Var hann
umsjónarmaður við Útvegsbank-
ann. Þar ólst Fríða upp og vann
þar við ræstingastörf uns hún flutti
af landi brott til Bandaríkjanna.
Henni þótti gott að vera þar. Heim-
þráin var þó ætíð mikil. Mörg
síðustu árin var hún meirihluta árs-
ins hér heima. Hún hafði fyrir
nokkru ákveðið að bregða sér vest-
ur aftur. Af þeirri ferð varð ekki.
Hún var flutt í sjúkrahús skömmu
áður og lést þar um síðustu helgi.
Hún hafði ætlað sér að hafa
skamma viðdvöl þar og koma aftur
hingað til bæjarins.
Síðustu árin sem hún var hér í
Reykjavík átti hún heima á Laugar-
nesvegi 85 hjá Kristjáni Jónssyni.
Þangað var gott að koma. Ég veit
að þar er hennar mikið saknað.
Eg vil þakka Fríðu allar þær
góðu stundir sem við áttum saman
á langri lífsleið. Vinátta okkar var
ætíð náin og samband okkar rofn-
aði aldrei og mörg urðu bréfin sem
okkur fóru á milli.
Fríða átti þijú myndarböm, tvo
syni og eina dóttur, sem öll búa
vestan hafs með Qölskyldum sínum.
Dóttir hennar kom hingað heim við
fráfall móður sinnar.
Ég og dóttir mín kveðjum Fríðu
með söknuði og mér er efst í huga
þetta sálmavers:
Ég krýp og faðma fótskör þína
frelsari minn á bænastund.
Eg legg sem bamið bresti mína,
bróðir, í þína líknarmund.
Eg hafna auðs og hefðarvöldum,
fel mig í þínum kærleiksböndum.
Sigríður Hannesdóttir
ástæðu tíl að rannsaka hvort
Vari hefur „blekkt viðskiptavini
sína með skipulögðum loddara-
skap eða ekki“, eins og segir
orðrétt í bréfi þeirra.
Þar segir einnig að í veði sé „ung
og vaxandi starfsgrein, sem verður
að hlúa að í stað þess að setja á
bekk með óforskömmuðum og
óprúttnum lýð, sem virðist ekki
starfi sínu vaxinn . . . Til að þjóna.
hagsmunum okkar stéttar sem best
og reyndar alls almennings óskum
við eftir að starfsemi Securitas verði
opinberlega rannsökuð og þannig
leitt í ljós með hvaða hætti starfsem-
in er rekin þar,“ eins og það er orðað.
Starfsmennimir fimmtán geta um
átta atriði, sem þeir telja ástæðu til
að rannsökuð verði og þeir hafi vitn-
eskju um „svo óyggjandi sé“.
Ekki náðist í Jón Helgason dóms-
málaráðherra i gær til að spyija
hann um viðbrögð af hálfu ráðuneyt-
is hans til bréfs starfsmanna
Securitas. Hvorki Þorsteinn Geirs-
son ráðuneytisstjóri né Hjalti
Zóphaníasson, skrifstofustjóri í
ráðuneytinu, höfðu séð bréfíð
síðdegis í gær og gátu því ekki tjáð
sig um efni þess.
Nýr æskulýðs-
fulltrúi ríkisins
Erlendur Kristj-
ánsson hefur
verið skipaður
æskulýðsfulltrúi
ríkisins til fimm
ára frá 1. sept-
ember. Erlendur
Kristjánsson
Hann hefur gegnt starfi æsku-
lýðsfulltrúa síðan í október í fyrra
en undanfarin tvö ár hefur hann
verið formaður Æskulýðsráðs ríkis-
ins.
Aðrir umsækjendur um stöðuna
voru Þórður Gunnar Valdimarsson,
kennari við félagsvísindadeild Há-
skóla íslands, Pálmar Halldórsson,
framkvæmdasljóri Iðnnemasam-
bandsins, og Ingi Þ. Þorgrímsson,
framkvæmdastjóri Farfugla. Það
er menntamálaráðherra sem skipar
í embættið.