Morgunblaðið - 30.08.1986, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunniaugur
Guömundsson
Ég ætla í dag að fjalla um
samband tveggja Meyja (23.
ágúst—23. sept.). Einungis er
fjallað um hið dæmigerða fyr-
ir merkið og lesendur minntir
á að hver maður á sér nokkur
stjömumerki sem öll hafa
áhrif. Hér er einungis fjallað
um sólarmerkið.
Tvær hliðar
Augljóslega er hér um að
ræða tvo líka einstaklinga.
Hið jákvæða við slíkt er að
viðkomandi aðilar eru sam-
taka. Hið neikvæða er að tveir
líkir einstaklingar geta verið
of líkir. Þeir geta orðið leiðir
á hvor öðrum og átt erfitt
með að vega veikleika hvor
annars upp, geta jafnvel
magnað upp neikvæðari hlið-
ar hvor annars.
Fyrirmyndarfólk
Hin dæmigerða Meyja er jarð-
bundin og hagsýn. Hún er
íhaldssöm og hefðbundin.
Tvær Meyjar saman nálgast
því að vera hið fullkomna fyr-
irmyndarpar, þ.e. frá hefð-
bundnum sjónarhóli.
Byggja
Þau eru bæði dugleg og því
var ekki að furða þó þau
væru strax farin að byggja á
meðan þau voru í námi.
Reyndar áttu þau íbúð fyrir.
Maðurinn hafði skellt sér á
sjóinn og þénað stórvel á
meðan konan pijónaði þessi
líka býsnin öll af lopapeysum
og seldi, ba?ði í verslanir hér
heima og til frænda síns sem
bjó erlendis á þessum tíma.
Þau áttu því svo til skuldlausa
íbúð þegar þau hófu nám.
Viðskipta- og
matvœlafrœði
Hann fór í viðskiptafræði og
hún í matvælafræði, enda
hafa þau bæði mikinn áhuga
á rekstri, á góðri afkomu, á
heilsurækt og hollu mataræði.
Þau eru skynsöm.
Frændinn
Þau eiga frænda sem einnig
er í Meyjarmerkinu. Hann er
íslenskufræðingur og skrifar
meðal annars bókmennta-
gagnrýni í dagblöðin. Ansi
skarpur náungi. Þó þeim hafi
báðum gengið vel í tungumál-
um og hafi haft vissan áhuga
á kennslu ákváðu þau að feta
ekki í fótspor frændans, enda
ekki sérlega hagkvæmt nú um
stundir.
Glæsilegt heimili
Heimili þeirra hjóna er glæsi-
legt. Allt er nýtt og pússað.
Ég efast um að ég hafi komið
í hreinlegra hús á ævinni.
Enda eru þau stolt af heimili
sínu.
Gagnrýni
Eins og þið sjáið gengur vel
hjá þeim hjónum. Það er
. kannski eitt sem mætti vera
betra. Þau hafa bæði trúað
mér fyrir því að þeim finnist
hitt vera fullsmámunasamt,
gagnrýnið og frekt. Þau
kvarta undan því til skiptis
að hann eða hún sé alltaf að
gagnrýna allt og ekkert út
af smáatriðum. Og ég verð
að viðurkenna, þó ég vilji vera
hlutlaus og taka ekki afstöðu,
að þau nöldra töluvert hvort
í öðru. Ég hef einnig tekið
eftir því að bæði vilja hafa
hvem hlut á sínum stað. Það
er stundum broslegt að sjá
þau deila um það hvort skeið-
amar eigi að vera vinstra
megin eða hægra megin í
skúffunni.
Artarleg
Fyrir utan þessi smáatriði sem
engan saka eru þau hjónin
alveg sérlega þægilegt og
gott fólk. Þau eru t.d. mjög
artafleg við gamla foreldra
sína og eru alltaf boðin og
búin að hjálpa vinum þegar á
þarf að halda.
X-9
'1 ftorV/A BRl/ ’ Y .T7ÁKI! £6 t/£lp
i; HljóMBM- I /if> ftosxotr af
'\AKNJR- - ! ýyoLDMRP/IM"rS/w//
' - Pfíófi/XMMS Mfiáeitf
perr/ Aur/ r/sw srvrv/i.
vALVfífí//JAr/p /r//t-
Ve/jJ/sluA V/r/
GRETTIR
HALLÓ, BS ER-NORI, ‘SÆ’TASTI KETTL- f INGUR. 1 HEIAAI S /faKPU 6URT)
k NÓRI /
o O
o 6WX S-V-, o
0?M PAU79 10-21
©1985 United Feature Syndicate.lnc.
fegrumarblune/
'pAÐGÆT 1 TEKJS> < f r
MAR5AR- VIKOR.I J ( EG HATA ) ( HANN <
O
O O
O __
DYRAGLENS
UOSKA
ÞETTA ER JAKOP - II1
BLÓ/MSTUKSERG... HANN )
VAK SMAKKARI '
FERDINAND
// W(/
SMAFOLK
600P AFTEKNOON, MANA6ER
l'M THE PH0T06KAPMEK.
F0R0UR 5CHOOL PAPEFT...
Góðan dag. stjóri... ég er Vinsamlegast farðu í þetta Sundskýlu?!
Ijósmyndari skólablaðs-
ins___
Þetta er fyrir sundfata-
útgáfuna okkar!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Fyrst á réttunni, svo á röng-
unni“ — og þá er óhætt að segja
„tjú, tjú tralala". En það verður
að gera hlutina í réttri röð.
Suðurgefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 8752
♦ Á83
♦ Á103
♦ Á96
111
Suður
♦ ÁDG103
♦ 5
♦ DG84
♦ G103
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með lauf-
áttu, lítið úr blindum og austur
drepur á drottningu. Hann send-
ir hjartatíuna til baka, sem
sagnhafi drepur á ás blinds.
Hvemig er best að spila?
Spilið er mjög sterkt, það er
nóg að ein af þremur svíningum
takist. Þó er líklega óhætt að
afskrifa laufsvíninguna, því það
bendir allt til þess að austur eigi
laufkónginn, bæði útspilið og
eins að austur skildi ekki halda
áfram með laufið.
En það er ástæðulaust að
byija strax á því að svína í
trompinu. Ef svíningin mistekst
spilar vestur laufi og þá er
tígulsvíningin síðasta vonin.
Betra er að trompa hjarta heim
og spiia tígli á tíuna. Fría tígul-
inn fyrst. Ef austur drepur á
kónginn getur hann ekki ráðist
á laufið. Það verður því í lagi
þótt vestur fái síðar á spaða-
kónginn, því þá er hægt að
henda lauftaparanum niður í
tígul.
Norður ♦ 8752 ♦ Á83 ♦ Á103 ♦ Á96
Vestur Austur
♦ K9 ♦ 64
V KG762 llllll ♦ D1094
♦ 952 ♦ K76
♦ 874 Suður ♦ 5 ♦ KD52
♦ DG84 ♦ G103 ♦
En auðvitað gefur góður vam-
arspilari tígultíuna. Hvað á þá
að taka til bragðs? Ekkert
vandamál. Næst er spaða svínað,
vestur fær á kónginn og spilar
laufi. Það er drepið á ásinn,
tromp tekið einu sinni og laufi
spilað. Austur lendir inni og
verður að spila út í tvöfalda
eyðu eða frá tígulkóngnum.
TJofóar til
X X fólks í öllum
starfsgremum!