Morgunblaðið - 30.08.1986, Side 35

Morgunblaðið - 30.08.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGUST 1986 35 Guðmundur Pétur Gylfason — Minning Vinur minn Guðmundur Pétur Gylfason er látinn. Leið hans frá vöggu til grafar varð aðeins 21 ár. Við sem fylgdumst með Gumma í veikindum hans vorum oft orðlaus yfir andlegu þreki hans og kjarki. Hann lét ekkert huga sig — og þó hann hlyti að sjá örvæntinguna í augum okkar hinna gat hann samt brosað sínu ógleymanlega brosi. Gummi var óvenjulegur persónu- leiki, hlýr og gefandi. Hann hafði yfirleitt ekki mörg orð um hlutina og var vanur að gefa stuttar yfirlýs- ingar sem allir tóku eftir og varð ekki mótmælt. „Ekki klippa blómin, þau finna til,“ sagði hann þegar hann lá fársjúkur á gjörgæsludeild. Þessi ummæli lýsa honum vel. Allt og allir sem ekki gátu borið hönd fyrir höfuð sér áttu hann vísan sem stuðningsmann. Um hann eru fallegar minningar. í huganum spyr ég Guð hvers- vegna Gummi, svona fallegur og góður drengur þurfti að kveðja svona fljótt. Það er svo sárt. Eg viðurkenni skilningsleysi mitt á til- gangi þess lífs. En þrátt fyrir skilningsleysi trúi ég því að honum hafi verið ætlað æðra hlutverk. — Og maðurinn ákvarðar en Guð ræð- ur. Ég minnist Gumma með gleði og þökk fyrir allt sem hann gaf. Ég minnist hans eins og hann var geislandi af lífsorku, með bros á vör og stjörnur í augum. Ég kveð hann eins og ég hef gert síðan hann var pínulítill, ofurlítið áhyggjufull um þennan kjarkmikla dreng en þess fullviss að við hitt- umst aftur. Maja, Halli, Kiddi og Anna Stína, elsku Sigga og Gylfí, bestu vinir mínir í gegnum logn og storma, gleði og sorgir. Guð gefi ykkur styrk. Anna Kristjánsdóttir. Þegar ungur maður deyr fyll- umst við sorg og söknuði og spyijum óhjákvæmilega — hvers vegna? Hver er tilgangurinn? Fátt er um svör en samt spytjum við og vitum að eitthvað okkur mikilvægt er horfið. Systursonur minn, Guðmundur Pétur Gylfason, er látinn, aðeins 21 árs að aldri. Ég er nú í sporum þess sem spyr — hvers vegna? Hver er tilgangurinn? Síðast hitti ég Gumma frænda hinn 19. þessa mánaðar. Hann var þá í sjúkrahúsi. I minningunni er hann glaður og reifur. Hann lék á als oddi og æðruleysið og dugnaður- inn leyndu sér ekki. Mér finnst að frændi minn ungi hafi kvatt lífið trúr því, sem einkenndi hann frá okkar fyrstu kynnum, þegar hann var ungbarn. Hann var sjálfstæður, dugmikill og fór sínar eigin leiðir. Síðustu daga sína hér með okkur lagði hann sig fram um að gleðja sína nánustu og gera þeim kveðju- stundirnar sem léttbærastar. Ég veit nú að Gummi bar sig svo vel síðustu dagana að ég gerði mér ekki grein fyrir því hve sjúkdómur hans var kominn á alvarlegt stig og Gummi hlýtur að hafa verið sár- þjáður. Ævisaga 21 árs gamals manns er ekki löng í sjálfu sér. Lífsreynsl- an mælist þó aldrei í árum og þannig var það í Gumma tilviki. Aðeins 18 ára gamall þurfti hann að horfast í augu við mjög alvarleg- an sjúkdóm, þann hinn sama, sem að lokum varð honum að aldurtila. Þetta breytti auðvitað miklu um lífshlaup frænda míns en ótrauður hélt hann áfram, því lífið var rétt að heQast og verkefnin mörg, sem biðu. Gummi starfaði hjá föður sínum síðustu árin, við stjórn þungavinnu- véla, og ég veit að helsta tóm- stundaánægjan hans var starfið innan JC-samtakanna í Hveragerði. Það var auðfundið að Gummi hafði mikla ánægju og gleði af því starfi. Sjúkrahúsdvöl frænda míns varð ekki löng í lokin. Hann var að störf- um nær því alveg til síðasta dags. Gummi naut þess að vera úti í náttúrunni og starfið gaf góðan kost á því. Mér fannst hann líka ávallt njóta sín þar best. Að leiðarlokum, þegar ég kveð þennan unga frænda minn, sem var fýrsta systkinabarn mitt og mér því kannski hugstæður fremur öðrum, vildi maður gjarnan .hafa ræktað frændsemina betur. Það fínnur maður svo vel í vanmættinum, þeg- ar kveðjustundin er runnin upp svo skjótt og óvænt. Maður spyr sig spuminganna sem ég ræddi um í byijun, — hvers vegna? — hver er tilgangurinn? — Fátt er um svör sem fyrr, en þó heldur maður áfram að trúa á tilganginn og veit að lærast mun að lifa með söknuðinum eftir góðan dreng. Guðmundur Pétur var fæddur í Reykjavík, hinn 19. maí árið 1965 og lést hinn 21. þessa mánaðar. Hann var elstur fjögurra bama hjónanna Sigríðar Guðmundsdóttur og Gylfa Hallgrímssonar, verk- stjóra, sem búsett eru í Hveragerði. Á kveðjustund finnur maður að orð mega sín lítils en ég votta þeim, vinum mínum öllum, foreldmm og systkinum Gumma, innilegustu hluttekningu mína. Ég vona að styrkur og æðruleysi frænda míns unga megi verða þeim hjálp og uppörvun, nú þegar minningin ein um ástkæran son og bróður lifir. Davíð Guðmundsson. Kær vinur og félagi er kvaddui * í dag. Það er svo erfitt að sætta sig við að ungt fólk, sem á svo mörgu ólokið í starfi og leik, sé kallað á braut svo fyrirvaralaust. Eftir situr maður og spyr sjálfan sig hvers vegna? En aðeins Guð getur svarað því. Ég kynntist Gumma fyrst þegar^ ég leigði hjá foreldrum hans litla húsið þeirra við Laufskóga fyrir 5—6 árum. Síðan lágu leiðir okkar saman aftur fyrir tveimur árum þegar ég gekk í JC Hveragerði þar sem Gummi hafði verið virkur fé- lagi í möig ár. Ég veit að ég get fyrir hönd JC Hveragerðis sagt að Gummi var einn okkar atorkusam- asti félagi innan hreyfingarinnar. Minningin um Gumma mun lifa í hjörtum þeirra sem hann þekktu. Ég bið Guð um að styrkja for- eldra og systkini hans á þessar sorgarstund. w Guðrún Ingólfsdóttir Gummi var bekkjarbróðir minn úr gagnfræðaskóla, en kynni okkar lágu ekki saman fyrr en í JC Hvera- gerði, en við störfuðum saman í stjórn þess síðasta ár. Hann var einn af virkustu félög- unum, sem voru mjög fáir þetta ár, og alltaf var hægt að reiða sig á hann hvað sem fyrir var. Þetta ár var okkur mikil reynsla því ákveðið var að byggja upp félagið og átti hann mikinn þátt í því sem gert var. Hann var mjög rólegur en lífs- glaður og aldrei bar á veikindum hans sem höfðu varað í langan tíma. Skrítið er til þess að hugsa, að um verslunarmannahelgina, sem var í byijun þessa mánaðar, vorum við í Þórsmörk ásamt fleiri vinum, og hann fór í langar göngur sem þeir hraustustu treystu sér ekki í, og þegar til baka kom var ekki hægt að sjá að hann væri svo veik- ur að hann andaðist tveim vikum síðar, svo ánægður var hann. Já, það er erfitt að sætta sig við það að jafnaldri sé að kveðja þenn- an heim aðeins 21 árs að aldri. En + eitthvað hlutverk hlýtur að bíða hans, svo góðs og fágæts manns. Kæru Sigga og Gylfi, ég votta ykkur mínar dýpstu samúðarkvcðj- ur á þessum sorgardegi. Ingibjörg Kjartansdóttir í dag, laugardaginn 30. ágúst, kveðjum við vin okkar og bekkjar- bróður, Guðmund Gylfason, Lauf- skógum, Hveragerði. Þau tvö ár sem við sátum með honum á skólabekk fór fremur lítið fyrir honum. En þá hafði sjúk- dómurinn gert vart við sig, sem við reyndar vissum fæst þá, og seinna ^ leiddi hann til dauða. Hann tók þó fullan þátt í félagslífi skólans og var alltaf boðinn og búinn hvað sem til stóð. Seinustu tvö árin var hann mjög virkur félagi í JC Hveragerði og átti stóran þátt í að reyna að byggja upp öflugt félag. Okkur setur hljóð að strax sé farið að höggva skarð í félagahóp- inn úr 8. bekk ’79—’80 í gagn- fræðaskólanum í Hveragerði. En við trúum því að tilgangur sé með brottkvaðningu Guðmundar, því þeir deyja ungir sem guðimir elska. Foreldrum og systkinum hins látna vottum við okkar dýpstu sam- úð. Fyrir hönd bekkjarfélaga, -* Inga, Hulda og Helgi Blómabúðin Hótel Sögu sími 12013 Blóm og skreytingar gjafavörur heimsendingar- þjónusta t Eiginmaður minn og faöir, BJÖRN ÓLAFSSON, byggingameistari, Norðurvangi 44, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum fimmtudaginn 28. ágúst. Sigríður Jakobsdóttir, Ólafur Björnsson. t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, frá Fiskilæk lést fimmtudaginn 28. ágúst. Bergljót Garðarsdóttir Sleight, Morris G. Sleight, Geir Garðarsson, Marita Garðarsson, Arnþór Garðarsson, Guðrún Sveinbjarnardóttir. t Útför eiginmanns mins, föður okkar, bróður, tengdafööur og afa, ARTHÚRS BENEDIKTSSONAR, Hafnarstæti 7, Akureyri, sem lést þann 24. ágúst, fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudag- inn 3. september kl. 13.30. Hulda Sigurjónsdóttir, Benedikt Arthúrsson, Bára Arthúrsdóttir, Eggert Bollason, Ester Benediktsdóttir, Yrsa Benediktsdóttir og dóttursynir. t Eiginmaður minn, INGVAR INDRIÐASON, Engjavegi 1, Selfossi, er andaðist 25. þ.m., verður jarðsunginn frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn 30. ágúst nk. kl. 14.00. Jarösett veröur að Torfastöð- um. Bílferð veröur frá Bifreiðastöð íslands kl. 12.00 og frá afgreiöslu Sérleyfisbíla Selfoss kl. 12.45. Þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta Torfastaðakirkju njóta þess. Fyrir hönd vandamanna, Halldóra Jósefsdóttir. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, RANNVEIGAR INGIMUNDARDÓTTUR. Ingimundur Sigfússon, Sverrir Sigfússon, Sigfús R. Sigfússon, Margrét Sigfúsdóttir Valgerður Valsdóttir, Stefanía Þ. Daviðsdóttir, Guðrún Norberg, og barnabörn. t Þökkum auösýnda samúö við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HELGU SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR, Brimhólabraut 33, Vestmannaeyjum. Árný Guðmundsdóttir, Magnús Pálsson, Jóna Guðmundsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Helga Sigurðardóttir, Ásgeir Sverrisson, Kristín Sigurðardóttir, Magnús Þorsteinsson, Lilja Sigurðardóttir, Sæþór Ásgeirsson. t Innilegar þakkir fyrir vinsemd og samúö við fráfall föður okkar og tengdaföður, ÁSGEIRS ÓLAFSSONAR forstjóra. Dagmar Gunnarsdóttir, Ólafur Ásgeirsson, Vilhelmína Gunnarsdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir, Theodór Árnason, Ásgeir Ásgeirsson, Ragnhildur Zoéga, Rannveig Ásgeirsdóttir. Legsteinar ? , Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi 'UVfUt Símar 91-620809. Í?S NÝTTSÍMANÚMER 69-11-00 Augýsingar 22480 Afgreiðsia 83033

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.