Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 1
80 SIÐURB
STOFNAÐ 1913
197. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Harkan vex enn í Persaflóastríðinu:
íranir her-
taka sovézkt
flutninefaskip
Manama, Bahrain, AP. \m * JtLm
ÍRANSKIR fallbyssubátar hertóku í fyrradag sovézkt flutningaskip
á Persaflóa og færðu það til hafnar í íran. Hótuðu íranir að skjóta
skipið i kaf, ef áhöfn þess hlýddi ekki fyrirskipunum þeirra. Skýrði
Gennady I. Gerasimov, talsmaður sovézka utanríkisráðuneytisins, frá
þessu í gær. í gærmorgun stöðvuðu Iranir annað sovézkt skip, en
leyfðu því fljótlega að halda leiðar sinnar.
Eftir að sovézka skipið „Pyotr
Yementsov" hafði verið fært til
hafnar í írönsku hafnarborginni
Bandar Abbas, tóku íranir strax
að losa farm þess. Héldu þeir því
fram, að það flytti m. a. vopn og
hergögn, sem ættu að fara til ír-
aks. Skipið, sem er um 11.000 tonn
að stærð, var á leið til Kuwait og
kom frá hafnarborginni Nikolayev
við Svartahaf. Var skipið statt und-
an ströndum Sameinuðu arabísku
furstadæmanna, er íranskir fall-
Ritskoð-
unin hert í
S-Afríku
Jóliannesarborg, AP.
STJÓRN Suður-Afríku herti
í gær bann sitt við þvi, að
fréttamenn skýrðu frá að-
gerðum öryggissveita ríkis-
ins.
Með banni þessu er frétta-
mönnum jafnframt meinað að
fylgjast með því ef til óeirða
kemur og öryggissveitimar láta
til sín taka. Hið nýja bann var
tilkynnt rétt áður en fyrirhuguð
ijöldaútfcir átti að hefjast í Sow-
eto, en þar vom 20 blökkumenn
drepnir af lögreglunni í síðustu
viku.
byssubátar sigjdu í veg fyrir það.
Áður hafa íranir stöðvað flölda
skipa frá mörgum löndum, en þetta
er í fyrsta sinn sem þeir stöðva
sovézk skip á alþjóðlegri siglinga-
leið á Persaflóa. Er þetta almennt
túlkað á þann veg, að mun meiri
harka sé að færast í styijöldina við
Persaflóa, sem staðið hefur í sex ár.
Ekkert lát er nú á stríðsaðgerð-
um Írana og íraka. Þeir síðamefndu
héldu því fram í gær, að þeir hefðu
aftur náð á sitt vald mikilvægri
radarstöð á Persaflóa með harðri
gagnárás. Hefðu þeir „þurrkað út“
herlið írana, sem tók stöðina með
skyndiáhlaupi á þriðjudag.
íranir sögðust í gær hafa skotið
niður þijár herþotur íraka í átökum
meðfram allri víglínunni milli
ríkjanna.
1 gæslu hjá górillu
AP/Símamynd
Jambo, 125 kOóa górilla í dýragarðinum í Jersey-eyju í Ermar-
sundi, lét sér ekki bregða þó fimm ára gamall strákur dytti
niður i gryfjuna til hennar og ónáðaði hana og fjölskylduna.
Gætti Jambo stráksa þar til drengurinn rankaði við sér og hljóð-
aði þegar hann sá górilluna yfir sér. Þá sá Jambo þann kost
vænstan að forða sér. Drengurinn handleggsbrotnaði og hlaut
höfuðáverka við fallið.
Geislavirkni í Sviss:
Fiskveiðar
bannaðarí
Lugano-vatni
Bern, AP.
STJÓRN Sviss bannaði í gær
veiðar í Lugano-vatni eftir að i
ljós hafði komið við mælingar
að fiskur í vatninu er mengaður
af geislavirku úrfelli eftir kjam-
orkuslysið í Chernobyl fyrir
fjómm mánuðum.
Þetta er fyrsta skylduboðna að-
gerðin, sem stjómin setur af heil-
brigðisástæðum vegna slyssins í
sovéska kjamorkuverinu í apríl.
Einnig vár tilkynnt að bannað
yrði að flytja inn eða selja fisk, sem
veiðst hefði í vatninu frá og með
1. ágúst sl.
Lugano liggur að mestum hluta
í kantónunni Ticino í Sviss en hluti
af vatninu nær yfir til Ítalíu.
Achille Casanova, talsmaður
svissnesku stjómarinnar, sagði að
bannið mjmdi líkast til standa
næstu þijá til ijóra mánuði. Cas-
anova bætti við að hættulegt magn
af sesíum hefði komið í ljós við
mælingar á afla fískimanna við
vatnið. Heilbrigðisyfírvöld segja að
Lugano-vatn hafí orðið verst úti af
vötnum og gróðri í Sviss vegna
þess að þar rigndi mikið í kjölfar
slyssins. Einnig er svo að fáar ár
renna í vatnið og úr því og dregur
því úr geislavirkninni á lengri tíma
en ella.
Utanríkisráðherra Singapore:
Sakar samtök óháðra
ríkia um tvöfalt siðgæði
Hararc, AP. Wj V- J
Utanríkisráðherra Singapore
sagði í gær, að samtök óháðra
ríkja hefðu sett ofan sökum þess
að þau hefðu gert Bandaríkin
að blóraböggli. Sagði ráðher-
rann, S. Dhanabalan, að samtök-
in hefðu glatað trúverðugleika
sínum með þvi að úthúða Banda-
Fundur Geislavarnanefndar OECD:
Geislun frá Cherno-
byl minnst á Islandi
- segir Sigurður M. Magnússon kjarneðlisfræðingur
Á LOKUÐUM fundi sérfræðinga i geislavarnanefnd Efnahags-
og þóunarstofnunarinnar, OECD, í París um Chernobyl-slysið kom
fram að minnst geislavirkni i Vestur-Evrópu mældist á íslandi,
Spáni og Portúgal, en að afleiðingar hennar væru verstar í Nor-
egi og Sviþjóð. Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geisla-
varna rikisins, sat fundinn og sagði hann að fram hefði kcmið
að viðbrögð ríkisstjórna Evrópu við slysinu hefðu verið mjög
misjöfn af pólítiskum ástæðum.
Fundinn í París sóttu 60 sér-
fræðingar vestrænna ríkja og
voru afleiðingar slyssins í Chem-
obyl ræddar, gerð var skýrsla til
stjómarnefndar Iq'amorkustofn-
unarinnar og ráðstefna Alþjóða-
kjamorkumálastofnunarinnar í
Vín rædd.
I viðtali við Morgunblaðið sagði
Sigurður að afleiðingar Chem-
obyl-slyssins hefðu verið ræddar,
m.a. að Sovétmenn hefðu flutt
fólk burt af tæplega 3000 ferkíló-
metra svæði, en það er Vss hluti
íslands. Þó sluppu aðeins 3,5%
geislavirkra efna út í andrúmsloft-
ið, svo sjá má að slysið hefði getað
orðið 30 sinnum verra.
Sigurður sagði að upplýsinga-
tregða Sovétmanna hefði gert
Evrópubúum erfíðara fyrir en ella.
„Einnig vom varúðarráðstafanir
í Vestur-Evrópu oft pólítískar og
má nefna að í Vestur-Þýskalandi
var gripið til misvíðtækra ráðstaf-
ana eftir fylkjum, en í Frakklandi,
sem er mjög háð kjamorku, var
ekki gripið til neinna aðgerða.“
Á fundinum í Vínarborg kom
fram að röð alvarlegra mistaka
og vítavert gáleysi olli slysinu.
Sigurður var spurður hvort hlið-
stætt slys væri mögulegt á
Vesturlöndum og kvað Sigurður
svo ekki vera.
ríkjunum einhliða en hlífa
Sovétríkjunum við gagnrýni.
„Hver og einn, sem fordæmir
morð í einni andrá en afsakar það
í þeirri næstu, hlýtur að verðugu
fordæmingu sem siðferðilegur iodd-
ari og álit hans verður einskis virt,“
sagði Dhanabalan á þingi samtaka
óháðra ríkja, sem nú fer fram í
Harare, höfuðborg Zimbabwe.
„Samtök okkar hafa gert veður út
af aðgerðum risaveldis í Mið-
Ameríku, en þrátt fyrir þykka
skjalabunká, sem lagðir hafa verið
fram hér, er hvergi minnst á
hemám risaveldis i Afganistan, sem
er óháð ríki,“ sagði utanríkisráð-
herra Singapore ennfremur.
Moammar Gadhafí, leiðtogi
Lábýu, gagnrýndi Bandaríkin harð-
lega á ráðstefnunni í gær. Sagði
hann að Bandaríkin undirbyggju
nú aðra loftárás á land hans. „Við
höfum orðið fómarlömb hrottalegr-
ar árásar," sagði Gadhafi, sem lagði
á það áherzlu að Líbýumenn myndu
svara í sömu mynt ef ráðist yrði á
þá á aftur.
Mengistu Haile Mariam, leiðtogi
Eþíópíu, Sinan Hasani, forseti
Júgóslavíu og Samora Machel, for-
seti Mozambique, tóku í sama
streng og gagnrýndu Bandaríkja-
menn harðlega. Þá sakaði Fidel
Castro, leiðtogi Kúbu, Bandaríkja-
menn um að ögra heimsbyggðinni
með stuðningi þeirra við uppreisn-
armenn í Nicaragua.
Frá þingi samtaka óháðra ríkja f Harare í Zimbabwe. Fidel Castro,
leiðtogi Kúbu (fyrir miðju), heilsar Moammar Gadhafi, leiðtoga
Líbýu. Forseti írans horfir á.