Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986
Morgunblaöið/Brynja Tomer
• Á æfingu hjá Juventus. Þarna má þakkja kappa eins og Michel Platini og Michael Laudrup. í liði Juv-
entus er valinn maður íhverju rúmi og verður spennandi að sjá hvernig Valsmönnum tekst að standa í þeim.
„Leikmenn
Juventus eru
snillingar"
— segir lan Ross, þjálfari Vals
„ÉG TEL mig hafa séð margt í
knattspyrnunni og hef lært að
láta ekkert koma mér á óvart,
þegar knattspyrna er annars veg-
ar, en það sem ég sá til leik-
manna Juventus á sunnudaginn
er ólýsanlegt," sagði lan Ross,
þjálfari Vals, i samtali við Morg-
unblaðið, nýkominn aftur til
íslands frá Ítalíu.
Ross fór gagngert til Torínó til
að sjá leik með Juventus á heima-
velli í bikarkeppninni. „Þeir léku
gegn liði í 3. deild, sem satt best
að segja var mjög gott, betra en
við eigum að kynnast hér í 1. deild.
Engu að síður var þetta leikur katt-
arins að músinni. Leikmenn
Juventus fóru á kostum, voru alls
staðar á vellinum og ekki bundnir
í ákveðnar stöður. Eftir hálftíma
leik var staðan 3:0 og þá fóru Ju-
ventus-menn að leika fyrst og
fremst fyrir áhorfendur og sýndu
ótrúlegustu listir með knöttinn.
Ég hef hingað til haldið að Liv-
erpool sé með besta lið í Evrópu,
en eftir þennan leik er ég farinn
að efast. Leikmenn Juventus eru
snillingar allir með tölu. Besta
rauðvínið kemur frá Frakklandi og
allir vita, að Platini er heimsklassa-
knattspyrnumaöur. Sama má
segja um hina leikmennina. Ég
skil núna, hvers vegna Juventus á
aðdáendur alls staðar á Ítalíu, sem
fara á flesta ef ekki alla leiki liðs-
ins, hvar sem þeir eru,“ sagði
Ross.
Kærkomið tækifæri
fyriralla
Fyrri leikur Vals og Juventus í
Evrópukeppni meistaraliða verður
í Torínó 17. september, en sá
seinni á Laugardalsvellinum 1. okt-
óber. Hvernig leggjast þessir leikir
í þjálfara Vals?
„Ég er í sjöunda himni yfir að
fá tækifæri til að leika gegn þess-
um snillingum og strákarnir eiga
eftir að muna eftir þessum leikjum
alla ævi. En leikirnir koma ekki
aðeins okkur við, heldur allri
íslensku þjóðinni. Þegar frægt leik-
rit er fært upp fara allir í leikhúsið
til að sjá stykkið, hvort sem þeir
hafa áhuga á leiklist eða ekki.
Sama er upp á teningnum núna.
Eitt besta, ef ekki besta félagslið
í heimi leikur einu sinni á íslandi
og þá gefst fólki kærkomið tæki-
færi til að sjá knattspyrnu eins og
hún er best leikin.
Varðandi möguleika okkar held
ég að ef ég mætti stilla upp liði
Vals, Fram og ÍA, 33 leikmönnum,
gætum við náð jafntefli. En að öllu
gamni slepptu, þá er knattspyrnan
óútreiknanleg og við gefumst ekki
upp fyrr en í fulla hnefana," sagði
lan Ross.
2. deild:
Fimm lið berjast um tvö sæti í 1. deild
KEPPNIN í 2. deild í knattspyrnu hefur verið gífurlega spennandi
í allt sumar og þegar 2 umferðir eru eftir, eiga fimm lið möguleika
á sæti í 1. deild næsta ár, eitt siglir lygnan sjó, þrjú eru í fallhættu
og eitt er löngu fallið í 3. deild.
KA hefur tveggja stiga forystu,
er með besta markahlutfallið og
hefur aðeins tapað tveimur leikj-
um, báðum á útivelli. Liðið var
óheppið í 2. deildinni í fyrra og
missti af sæti í 1. deild á loka-
sprettinum. Fátt bendir til að
sagan endurtaki sig í ár og reynd-
ar eru allar líkur á að KA sigri í
2. deild. KA á útileik gegn
Njarðvík á sunnudaginn og fær
Víking í heimsókn í síðustu um-
ferð.
Völsungur hefur oft verið ná-
lægt því að komast í 1. deild en
aldrei tekist. Liðið hefur átt jafn-
ari leiki í sumar en oft áður og
hefur haldið sig við toppinn allt
tímabilið. Völsungur er í 2. sæti,
en á tvo erfiða leiki eftir, á laugar-
daginn á Vopnafirði gegn Ein-
herja og síðan gegn Selfossi á
Húsavík.
Víkingur er í 3. sæti eftir tap
um síðustu helgi. Liðið féll úr 1.
deild í fyrra og hefur fullan hug
á að endurheimta sætið. Víkingur
leikur gegn KS á sunnudaginn,
en KS hefur unnið fimm leiki í
röð, og síðasti leikur Víkings
verður gegn KA á Akureyri.
Víkingar þurta ekki aðeins að
standa sig vel í þeim leikjum, sem
eftir eru, heldur verða úrslit ann-
arra leikja að vera þeim hagstæð
til að sæti í 1. deild verði að veru-
leika.
Einherji hefur komið mest á
óvart í sumar. í byrjun móts var
takmarkið að halda sætinu í 2.
deild, en þegar tvær umferðir eru
eftir á liðið möguleika á að kom-
ast í 1. deild í fyrsta skipti.
Heimavöllurinn hefur reynst
þeim vel og einnig hafa Vopn-
firðingarnir unnið góða sigra á
útivelli. Einherji leikur gegn Völs-
ungi á Vopnafirði á laugardaginn
og gegn KS á Siglufirði í síðustu
umferð.
Selfyssingar byrjuðu vel og
voru komnir með góða forystu,
en tap í síðustu tveimur leikjum
hefur heldur betur breytt stöð-
unni. Selfoss á heimaleik gegn
ísafirði á laugardaginn og síðasti
leikurinn verður á Húsavík. Sæti
í 1. deild að ári er langsótt, en
ekki er öll nótt úti enn.
Siglfirðingar voru í fallhættu
framan af, en um leiö og Þróttar-
ar réttu úr kútnum, tóku norðan-
menn sig á, hafa unnið fimm
síðustu leiki og sigla lygnan sjó.
Engu að síður hafa þeir mikil
áhrif á endanlega röö efstu liða,
því KS leikur gegn Víkingi í
Reykjavík á sunnudaginn og
heima gegn Einherja í síðustu
umferð.
Þróttur var í fallsæti fyrstu
tólf umferöirnar og allt benti til
að liðið, sem lék í 1. deild í fyrra,
léki í 3. deild næsta ár. En fjórir
sigurleikir í röð hafa breytt stöð-
unni og liðið virðist ætla að
sleppa fyrir horn. Þróttur leikur
í Borgarnesi á laugardaginn og
Morgunblaðið/Skaptí Hallgrimsson
• Þessi mynd úr leik KA og Skallagríms um síðustu helgi er einkennandi fyrir stöðu þessara liða f
2. deildinni í knattspyrnu. KA á toppnum en Skallagrímur í neðsta sæti og hefur tapað öllum sfnum
leikjum með miklum mun.
síðan gegn Njarðvík á Laugar-
dalsvelli.
ísfirðingar hafa verið i neöri
hluta deildarinnar allt tímabilið
og eru enn í fallhættu, en geta
tryggt stöðu sína í síðustu leikj-
unum. Þeir leika á Selfossi á
laugardaginn og fá falllið Skalla-
gríms í heimsókn í síöustu
umferð.
Njarðvík hefur tapað síðustu
fjórum leikjum og er í næstn-
eðsta sæti deildarinnar.
Njarðvíkingar leika heima á
sunnudaginn gegn KA og síðan
gegn Þrótti í Reykjavík. Erfiðir
leikir og fall blasir við liðinu.
Skallagrímur hefur átt erfitt
uppdráttar í 2. deild í sumar.
Félagið hefur teflt fram nýju og
óreyndu liði, ungum og óhörðn-
uðum strákum, sem eiga framtíð-
ina fyrir. sér, en eiga ekki erindi
í hina hörðu keppni í 2. deild aö
svo stöddu. Liðið hefur ekkert
stig fengið í sumar, skorað fjögur
mörk og fengið 94 á sig eða
tæplega sex mörk í leik að meðal-
tali og segir það allt sem segja
þarf. Skallagrímur leikur gegn
Þrótti í Borgarnesi á laugardag-
inn og úti gegn ísfirðingum í
síðustu umferð.
Staðan f 2. deild eftir lelkl helgarinnar
og þegar tvœr umferðir eru eftir í deiid- inni er þessi:
KA 16 10 4 2 48:13 34
Völsungur 16 10 2 4 35:14 32
Víkingur 16 9 3 4 45:19 30
Einherji 16 9 2 5 24:20 29
Selfoss 16 8 4 4 29:13 28
KS 16 7 3 6 29:31 24
Þróttur 16 6 2 8 30:28 20
IbI 16 3 6 7 26:32 15
Njarövík 16 4 2 10 27:43 14
Skallagrímur 16 0 0 16 4:94 0