Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 37
MORGÚtfBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUR 4. SEPTEMBER 1986 V7 V estmannaeyjar; Gestgjafinn býður upp á Eyjakvöld V estmannaeyj um. GESTGJAJFINN í Vestmannaeyjum býður gestum sínum uppá vandaða skemmtidagskrá á laugardagskvöldum nú á haust- mánuðum. Þetta eru svokölluð Eyjakvöld, þar sem þekktir tónlistarmenn flytja gömul og ný Eyjalög meðan gestir njóta góðra veislurétta í huggulegu umhverfi. Þessi Eyjakvöld Gest- gjafans hafa fengið hreint frábærar móttökur og verið uppselt þau tvö laugardagskvöld sem þegar hafa verið haldin. Heimafólk kann vel að meta þessa kærkomnu tilbreytingu í skemmtanalífinu og aðkomufólk og erlendir gestir hafa mjög rómað þessa skemmt- un. Á haustdögum í fyrra og fram á vetur stóð Gestgjafinn fyrir Eyjakvöldum með svipuðu sniði, alls 18 sinnum, ávallt fyrir fullu húsi. Vegna þessara góðu undir- tekta var ákveðið að taka upp þráðinn að nýju nú í ár en þó með nokkuð breyttri dagskrá. Eyjakvöldin hafa undirtitilinn „Blítt og létt“, sem er sóttur í þekkta laglína úr Siglingu, lagi Oddgeirs Kristjánssonar, hins ást- kæra tónskálds Eyjanna. Það eru einmitt hin landsþekktu lög Odd- geirs og annara tónsmiða úr Eyjum við texta eftir Ama úr Eyjum, Ása í Bæ, Loft Guðmunds- son og fleiri, sem mynda umgjörð skemmtidagskrár Eyjakvöldanna. Það er tónlistarmaðurinn Jónas Þórir sem heldur um stjómvölinn í þessari velheppnuðu skemmtun eins og hann gerði á síðasta hausti. Helgi Hermannsson sér um sönginn og kynnir er Runólfur Dagbjartsson. Hann kryddar kynningar sínar með mörgum bráðskemmtilegum gamansögum úr Eyjum frá fyrri tíð og tekur einnig lagið. Þá hafa þrír lands- þekktir tónlistarmenn bókstaflega slegið í gegn á þessum Eyjakvöld- um, þeir Jónas Þórir Dagbjartsson sem jöfnum höndum leikur á fiðlu og trompet, Þorvaldur Stein- grímsson sem leikur ýmist á fiðlu eða klarinet og Bjöm R. Einarsson sem leikur á básúnu og þenur harmonikku. Jónas Þórir Dag- bjartsson skemmti á Eyjakvöldun- um í fyrrahaust og hefur oft síðar komið fram á Gestgjafanum, ávallt við frábærar viðtökur. Fréttaritari Morgunblaðsins brá sér á annað Eyjakvöldið um síðustu helgi. Húsið var troðfullt og stemmningin í salnum hreint frábær. Boðið var uppá vandaðan matseðil með þrennskonar forrétt- um og aðalrétt var einnig hægt að velja úr þremur réttum. Gest- gjafínn hefur fyrir löngu skapað sér sess sem vandaður matstaður og vissulega smakkaðist maturinn sem borinn var fyrir fréttaritara mjög vel. Skemmtidagskrá Jónas- ar Þóris og félaga féll í góðan jarðveg hjá gestunum og tóku þeir undir í söngnum svo glumdi við. í lokin kom Einar Sigurfínns- son á sviðið og söng með hljóm- sveitinni nokkra gamalkunna slagara. Þau eru trúlega ekki mörg veit- ingahúsin í svipuðum flokki og Gestgjafinn sem geta boðið gest- um sínum uppá svona vandaða skemmtun. Gestgjafar Gestgjaf- ans, hjónin Mary Sigurjónsdóttir og Pálmi Lórensson, eiga þakkir skildar fyrir framtak sitt. -hkj. Athugasemd vegna N or ður stj örnunnar ÓLAFUR Finsen, stjómarmaður og hluthafi í Norðurstjörnunni hf., óskar eftir að gera eftirfarandi athugasemd við ummæli Þórðar Friðjónssonar, stjórnarformanns Framkvæmdasjóðs, i sambandi við sölu ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar á hlutabréfum sínum í fyrirtæk- inu. Ummælin voru í frétt á bls. 4 í Morgunblaðinu föstudaginn 29. ágúst. Haft er eftir Þórði að tveir af hinum nýju eigendum þeir Jón Erlingsson og Njörður hf., hafi selt fyrirtækinu hráefni um árabil. Ég skil að vísu ekki hvers vegna Þórð- ur er að blanda þessu inn í söluna á hlutabréfunum, nema hann sé með þessu að rökstyðja að þeir séu vel að góðum kaupum komnir. Stað- reynd málsins er hins vegar sú, að Norðurstjaman átti 25% hlut í bv Hauki GK á móti Jóni Erlingssyni, og fékk þar af leiðandi 25% af afla skipsins. Fyrir ca. 3 árum ákvað stjóm Norðurstjömunnar að afsala þessum 25% til Jóns og var samið um að Jón greiddi andvirðið með fiski. Þessi sala var að mínu mati ákaflega óskynsamleg af stjóm Norðurstjörnunnar, en það er önnur saga. Hvað Njörð hf. snertir á það fyrirtæki m.a. 30 tonna bát, sem hefur leyfí til dragnótaveiða í Faxa- flóa hluta af ári og fiskar þá út á kvóta sem Norðurstjömunni er út- hlutað. Mér er ekki kunnugt um að útgerð þessi hafi selt Norður- stjömunni afla umfram þetta. Það ska! skýrt tekið fram að ég er ekki með þessu að kasta rýrð á fyrr- nefnda menn, sem em sagðir duglegir athafnamenn, með gott orð á sér og eiga vonandi eftir að blása því lífi í rekstur fyrirtækisins, sem hingað til hefur skort. Haft er eftir Þórði að rekstur Norðurstjömunnar hafí gengið afar erfíðlega 1980, og ríkið hafí þá komið til liðs við eigendur fyrirtæk- isins og keypt hlutaféð að mestu. Staðreynd málsins er sú að ríkið kom inn í rekstur fyrirtækisins í kring um 1970 með hlutafjáraukn- ingu. Forsaga málsins er sú, að verksmiðjan var á þessum árum eingöngu byggð með það fyrir aug- um að framleiða síld í dósum (Kipper Snack). Eins og margir eflaust muna ákvað ríkið á þessum ámm algjört bann við öllum síldveiðum hér við land og kippti þar með fótunum undan rekstri fyrirtækisins. Einn af eigendum verksmiðjunnar, C. Bjelland í Nor- egi, ákvað þá að setja upp verk- smiðju í Kanada og bauðst hann til þess að kaupa allar vélar og tæki af Norðurstjömunni. Þetta reyndist hins vegar óþægilegt mál fyrir pólitíkusa þess tíma og var okkur því synjað um útflutningsleyfi. A móti buðust stjómvöld til þess að lánum sem verksmiðjan hafði feng- ið í Framkvæmdabanka íslands (Framkvæmdasjóði) yrði breytt í hlutafé. Þar sem við höfðum ekki sérstakan áhuga á að verksmiðjan flyttist úr landi samþykktum við þetta tilboð. Af framansögðu er ljóst að við báðum ríkið aldrei um peninga, aðeins um leyfí til þess að bjarga okkur sjálfir. Haft er eftir Þórði að verksmiðj- an gangi nú vel. Betra ef satt væri. Rekstrartap á fyrstu 6 mánuðum þessa árs nemur um 2 milljónum króna. Til sönnunar á því góða gengi sem Þórður telur vera á fyrir- tækinu talar hann um að fengist hafa 30% yfír nafnverð fyrir hluta- bréfín. Staðreynd málsins er sú að ef lagt er til grundvallar 65% af brunabótamati fasteignar og 50% af brunabótamati véla, er eigna- staða fyrirtækisins sú, að verðmæti hlutabréfanna umfram nafnverð er 70%. Þar sem tilboð það sem tekið var er aðeins 30% yfír nafnverð, fæ ég ekki skilið að það gefí vísbend- ingu um góðan rekstur. Sannleikur- inn er auðvitað sá, að þeir sem eru að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu eru ekki að ijárfesta í afburða rekstri undanfarinna ára, heldur í þeim tækjum og þeirri aðstöðu sem verksmiðjan býr yfír og ríkinu tókst ekki að nýta. Og eðlilega eru menn jafnframt að reyna að gera góð kaup. Það er rétt að hagnaður varð af rekstri árana 1983—1985 og dylst engum sem til þekkir að hann staf- aði fyrst og fremst af sterkri stöðu dollara. En í stað þess að nota þessi góðu ár til frekari uppbyggingar með það fyrir augum að nýta betur vélakost þann sem aðstöðu sem fyrir er í fyrirtækinu, undu menn bara glaðir við sitt með þeim ár- angri að verksmiðjan hefur síðustu ár verið rekin langt undir fram- leiðslugetu. Leiðrétting MEINLEG prentvilla varð í frétt af leikári Leikfélags Reykjavíkur, sem birtist í blaðinu í gær. Þar er skýrt frá því að í tilefni 90 ára af- mælis LR verði frumsýning á nýju íslenzku verki. Nafn þess en „Upp með teppið, Sólmundur". eiriháttar Haust-tilboð! Nú er hægt að gera reyfarakaup á öllum okkar hjólum. 20—30% afsláttur! Sérverslun Reióhjólaverslunin í meira en hálfaöld Immmm Reidhjólaverslunin.—___ ORNINNL Spítalastíg 8 vióOóinstorg símar: 14661,26888 Til dæmis: 20“ BMX - Áður kr. 9.604.- Nú kr. 6.740.- 26“ kvenreiðhjól: Áður kr. 9.796.- Nú kr. 6.860.- Komið og skoðið úrvalið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.