Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 66
Qfr* MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 4. SEPTEMBER 1986
GuðmundurTorfason ekki í landsliðinu:
Enginn leikmaður hér
á landi sem er öruggur
— sagði Sigi Held landsliðsþjálfari um landsliðsvalið
• Þelr Atll og Ásgelr verða báðlr með í leiknum gegn Frökkum á mið-
vikudaginn. Þessl mynd var af þelm á forsfðu nýjasta heftis hins virta
knattspyrnutimarits Kicker f Þýskalandi en lið þeirra hafa leíkið tvívegis
nú á skömmum tfma.
ÞAÐ er margt sem vekur athygli
varðandi val Sigfried Held á
landsliðshópnum sem keppa á
við Frakka á Laugardalsvelli á
miðvikudaginn. Það sem fyrst
vakti athygli okkar var að Stefán
Jóhannsson markvörður KR vœri
annar tveggja landsliðsmark-
varða f þessum leik og við
spurðum Held að því hvers vegna
hann valdi Stefán frekar en þá
Þorstein Bjarnason úr Keflavfk
og Friðrik Friðriksson úr Fram.
„Ég tel að Þorsteinn Bjarnason
eigi enga framtíð fyrir sér sem
landsliðsmarkvörður og Friðrik
hefur ékki leikið vel að undan-
förnu. Ég veit ekki hverju er um
að kenna - hann er ef til vill eitt-
hvað nervös - en alla vega hefur
hann ekki leikið eins og hann getur
að undanförnu. Þorsteinn getur
ekki leikið meö í olympíukeppninni
en Stefán getur það og Friðrik
einnig."
i landsliðshópinn finnst mörgum
eins og vanti markahæsta leik-
mann 1. deildarinnar, Guömund
Torfason úr Fram. Guðmundur
hefur skorað 17 mörk í deildinni í
sumar og staðið sig í alla staði
mjög vel - að flestra mati. Hvers
vegna er Guðmundur ekki í hópn-
um?
„í þessum hópi eru þrír góðir
framlínumenn sem ég tel alla betri
en Guðmund. Þetta eru þeir Pétur
Pétursson, Arnór Guðjohnsen og
Ragnar Margeirsson. Ástæðan
fyrir því að ég valdi ekki Guðmund
er að ég tel þessa menn alla sterk-
ari leikmenn."
Einhverjum hefði ef til vill dottið
í hug að láta Arnór leika á miðj-
unni og þá Pétur og Guðmund
frammi en Held virðist á öðru
máli og greinilegt er að Guðmund-
ur á ekki upp á pallborðið hjá
landsliðsþjálfaranum og nú velta
menn því fyrir sér til hvers hann
hefur verið hér á landi allan þann
tíma sem raun ber vitni. Til hvers
að skoða leikmenn hór á landi fyrst
ekki er þörf fyrir þá í landsliðið.
Jafnvel leikmenn sem leika í 2.
deildinni í Belgíu og Sviss eru tekn-
ir fram yfir bestu leikmenn okkar
hér heima, þó svo flestir séu á því
að Guðmundur Þorbjörnsson eigi
tvímælalaust heima í hópnum. Auk
þess eru í liðinu leikmenn sem lítið
sem ekkert hafa leikið á þessu ári
eins og þeir Sigurð Jónsson og
Ómar Torfason. Er Held ekkert
smeykur viö að nota leikmenn sem
ekki hafa leikið í langan tíma?
„Nei. Þetta eru allt atvinnumenn
og sem siíkir eiga þeir að vera í
góðri æfingu þó svo þeir hafi ekki
leikið mikið. Þeir eru allir tilbúnir
til að leggja sig 110% fram í þenn-
an landsleik og ég er því ekkert
smeykur um frammistöðu þeirra í
ieiknum. Það er enginn leikmaður
hér á landi sem er öruggur í lands-
liðið."
Varöandi leikaðferðina sem
beita á gegn Frökkum sagði Sigi
Held að í nútíma knattspyrnu væri
ekki hægt aö segja aö einhverjir
ákveðnir leikmenn léku í framlín-
unni heldur léku allir leikmenn í
öllum stöðum ef svo mætti komast
að orði. Það verður samt að öllum
líkindum leikinn varnarleikur gegn
Frökkum á miðvikudaginn og þess
freistað að skora mörk í skyndi-
sóknum.
„Ég tel að við eigum möguleika
í leiknum gegn Frökum, ég tala nú
ekki um ef þeir leika eins og gegn
Sviss á dögunum. Það eru allir til-
búnir til að leggja sig alla fram í
þessum leik og ég er sannfærður
um að þetta er okkar besta lið sem
hægt er að stiila upp."
Þess má geta hér að þeir Pétur
Ormslev og Sigurður Grétarsson
eru meiddir og því ekki í hópnum
og einnig talaði Held um að ef
Ágúst Már Jónsson yrði ekki fær
um að leika þá kæmi Viðar Þorkels-
son úr Fram inn í liðið.
Landsliðin
SIGFRIED HELD landsliðsþjálfari ístands í knattspyrnu tilkynnti í
gaer landsliðshópinn fyrir fyrsta leik íslands í Evrópukeppni lands-
liða sem fram fer á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag. Þá
verður lelkið við sjálfa Evrópumeistara Frakka sem með þessum
leik hefja titilvörn sína f Evrópukeppninni. Held valdi að þessu
sinni aöeins 15 leikmenn sem eru:
Við skulum þá líta á landsliðshóp islands og Frakklands. Lands-
leikjafjöldi er hafður í sviga:
ÍSLAND: FRAKKLAND:
MarkvwMr: Markverðir:
Bjami Sigurðsson. Brann (12) Joel Bats, Paris SG (29)
StefinJóhannason, KR (2) Bruno Martini, Auxerre (0)
Aftrtr ieikmenn: Aörir ieikmenn:
Ágóst Már Jónsson, KR (S) Francois Domersgue, Marseilies (6)
Arnór Guðjohnsan, Anderlecht (20) Manuel Amoros, Monaco (40)
Ásgeir Sigurvinsson. Stuttgart (36) William Ayache, Paris SG (13)
Atli Eðvaldsson, Uerdingen (39) Patrick Battiston, Bordeaux (50)
Guðmundur Þorbjömsson, Baden (37) Basile Boli, Auxerre (1)
Guðni Bergsson, Valur (8) Luiz Fernandez, Racing Club (34)
Gunnar Gíslason. KR (22) Jean Tigana, Bordeaux (47)
Ólafur Þórðarson, lA (7) Phillippe Vercruysse, Bordeaux (6)
ÓmarTorfason, Luzem (21) Jean-Marc Ferreri, Bordeaux (19)
Pótur Pótursson. |A (28) Bernard Genghini. Servette (26)
Ragnar Margeirsson, Waterschei (20) Fabrice Poullain, Paris SG (2)
Sigurður Jónsson, Sheff. Wed. (7) Vannick Stopyra, Toulouse (23)
Ssevar Jónsson, Brann (29) Gerald Buscher, Brest (1)
Stephane Paille, Sochaux (0)
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
•Sigurður Jónsson er svekktur yffir þvf að komast ekki f aðalliðið hjá
Sheffield. Hann er þó bjartsýnn á að hans tfmi komi en á meðan
leikur hann með varaliðinu.
Alltaf svekkjandi
að fá ekki tæki-
færi með aðalliðinu
- segir Sigurður Jónsson hjá Sheffield Wednesday
Landsliðsmaðurinn Sigurður
Jónsson sem er á atvinnumanna-
samning hjá enska 1. deildarlið-
inu Sheffield Wednesday hefur
ekki komist í byrjunarliðið það
sem af er deildarkeppninni f Eng-
landi. Blaðamaður Morgunblaðs-
ins náði tali af Sigurði f gærkvöldi
og spurði frótta af gangi mála hjá
honum.
„Það er alltaf svekkjandi að fá
ekki tækifæri með aðalliðinu en
þetta er barátta og það verður
bara að taka því. Ég hef verið í 15
manna hópnum en ekki komist á
bekkinn enn. Ég er þó bjartsýnn á
að úr rætist á næstunni þar sem
liöinu hefur ekki gengið vel að
undanförnu," sagði Sigurður Jóns-
son.
Sigurður er samningsbundinn
hjá Sheffield Wednesday fram í
júni 1988. Hann sagði að ef hann
færi ekki að fá tækifæri með liðinu
hefði hann hug á að breyta tii. Sig-
uröur varð fyrir því óhappi að slasa
sig á öxl á undirbúningstímabilinu
og gat hann þá ekki æft í 2 vikur.
„Þessi meiðsli há mér ekki lengur
og er ég nú í mjög góðri æfingu.
Howard Wilkinson sagði við mig
um síðustu helgi að hann teldi mig
tilbúinn í slaginn eftir eina til tvær
vikur. Ég vona að ég fá tækifæri
nú um helgina gegn Newcastle þar
sem liðið átti mjög lélegan leik
gegn Arsenal á þriðjudagskvöld."
- Hvernig líst þór á ensku
deildarkeppnina það sem af er?
„Þetta er nú bara rótt að byrja
og erfitt aö tjá sig um það. Staðan
í deildinni á eftir að breytast mikið
á næstu vikum. Það er öruggt að
Wimbledon, sem nú er í efsta
sæti, verður ekki þar í lok keppn-
istímabilsins. Það er næsta víst
að Manchester United og Aston
Villa verða ekki lengi í neðstu sæt-
unum, ég hef trú á að þessi lið
eigi eftir að vera í toppbaráttunni
í vetur. Wednesdayliðið er allt of
gott til að vera neðar en í 10.
sæti þegar upp verður staðið í
vor."
- Nú hefur þú verið valinn í
landsliðshópinn gegn Frökkum f
næstu viku. Hvernig leggst leikur-
inn í þig?
„Bara mjög vel. Það er alltaf
gaman að koma heim og leika með
landsliöinu. Viö getum unnið þá á
heimavelli svo fremi sem við trúum
því að við getum það. Það hefur
komið í Ijós aö þegar við spilum
heima á Islandi hafa þessi sterku
landslið átt í miklu basli með okk-
ur, við eigum raunhæfa möguleika
á að vinna Frakka."
Sigurður kemur heim á sunnu-
daginn til að leika gegn Frökkum
á miðvikudag.