Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 4- EINANGRUÐ HITAVEITURÖR KAPPKOSTUM AÐ EIGA ÁVALLT Á LAGER ALLT EFNI í HITAVEITU- LAGNIR - MARGRA ÁRA REYNSLA TRYGGIR GÆÐIN - SENDUM UM ALLT LAND. SET HF. EYRAVEGI 43-45 P.O. BOX 83 800 SELFOSS SÍMI 99-2099,-1399 EROBIK BALLETT JASS BOLIR BUXUR SAMFESTINGAR SOKKABUXUR LEGGHLÍFAR BELTI UPPHITUNAR- BUXUR SKÓR SOKKAR O.FL. ÝMSIR LITIR Opið bréf til borgarstjóra Hæstvirtur borgarstjóri, Davíð Oddsson. Ég ætti ekki að þurfa að skrifa þér þetta bréf. Ég skrifaði þér nefnilega bréf í maí síðastliðnum auk þess sem eiginkona mín sendi þér fyrirspum í þáttinn „Spurt og svarað um borgarmál" í Morgun- blaðinu skömmu fyrir kosningar. Bréfið og fyrirspumin flölluðu m.a. um örugga gönguleið að Selás- skóla fyrir bömin í efstu byggð Seláshverfís (Norðurás, Næfurás, Rauðás og Reykás). Tilefni bréfsins og fyrirspumarinnar voru upplýs- ingar, sem ég fékk hjá skrifstofu borgarverkfræðings í apríl. Þar kom fram að ekki vom þá á fram- kvæmdaáætlun borgarinnar næstu tvö árin neinar gangstéttafram- kvæmdir austan Selásbrautar. Þið ætluðuð sem sagt að reisa skóla fyrir böm, en ykkur þótti greinilega óþarfí að bömin kæmust að honum á greiðan og ömggan hátt. Eða hvað? Nei, auðvitað sáuð þið strax að gangstíga þyrfti að gera þegar ykkur var bent á það. Þú svaraðir fyrirspuminni í Morgunblaðinu daginn fyrir kosningar með eftirfar- andi orðum: „Séð verður til þess að bömin á þessu svæði fái sína gönguleið í skólann þó hún verði ekki strax með bundnu slitlagi." Þannig var loforðið. Og hverjar em efndimar? Skv. upplýsingum gatna- málastjóra í dag (1. sept.) hefur hann enn engin fyrirmæli fengið um gerð umræddra gangstíga. Eig- um við, foreldrar bamanna, sem innan fárra daga eiga að heQa skólagöngu í Selásskóla, þá að líta á loforð þitt sem eitt af hinum sviknu kosningaloforðum. Gleymd- ist þetta kannski í afmælisdýrðinni miklu? Eða ætlarðu að láta gera göngustíginn eftir að skólinn er byijaður? Slíkt væri heldur léleg frammistaða af þinni hálfu þegar tillit er tekið til þess að þú fékkst ábendinguna frá mér mjög tíman- lega. Ég hef haft samband við skóla- stjóra Selásskóla, Kristínu Tryggvadóttur, vegna þessa máls og tjáði hún mér að hún væri líka búin að biðja um göngustíga að skólanum. Því spyr ég þig Davíð. Eiga borg- arbúar að þurfa að nauða svona í borgaryfírvöldum til að fá í gegn jafn sjálfsagðan hlut og örugga gönguleið að nýbyggðum skóla? Hvers konar óstjóm er eiginlega á þessum málum hjá þér? Þegar hringt er á skrifstofu borgarverk- fræðings og bent á nauðsyn ákveðinna framkvæmda eins og þeirra sem hér um ræðir fást alltaf sömu svörin. „Skrifaði bréf, safn- aðu undirskriftum." Hafa borgar- yfírvöld enga sjálfstæða. hugsun og skipulagsgáfu? Hér er ekki verið að fara fram á fullgerðar gangstéttir. Góður malarstígur er fullnægjandi ef hann er á öruggum stað og séð fyrir snjómokstri af honum á vetrum því Björn Guðmundsson að hér er vetrarríki mest í Reykjavík. Stígur meðfram Selás- braut er ekki nógu góður kostur ef sami háttur verður hafður á með snjómokstur og venjan er, þ.e. að ryðja snjó af akbrautinni upp á gangstíginn. Ekki kemur til greina að láta bömin ganga eftir Selás- brautinni því að hún er hættuleg umferðargata og strætisvagnaleið. Reyndar vantar enn á Selásbrautina hraðahindranir, en þær hafa þegar verið samþykktar í umferðamefnd. Þú manst kannski að ég minntist líka á þær í bréfínu í vor. Borgar- yfírvöld hafa ekki hugsað fyrir neinu af þessu. Varðandi snjómoksur af gang- stígum vil ég neftia eitt atriði. Undanfama tvo vetur hef ég á hveijum degi farið fótgangandi til vinnustaðar míns, sem er í Breið- holti. Þar er snjómokstur af gangstígum (þeim, sem ég geng eftir) í góðu horfi enda yfírleitt ekki mokað seinna en daginn eftir snjókomu. í Árbæjar- og Selás- hverfí hefur oftast ekki verið mokað fyrr en um 5 dögum seinna. Þetta er með öllu óþolandi mismunum skattgreiðenda enda er vetrarríki í Seláshverfí enn meira en i Breið- holti. Ég legg því áherzlu á að skólaböm og aðrir fótgangandi í Seláshverfí fái í vetur betri þjón- ustu í þessum efnum en verið hefur. Davíð, hertu nú upp hugann og láttu borgarstarfsmenn fara í að gera umrædda stíga svo að þeir verði tilbúnir þegar skólinn byijar. Sjáðu einnig til þess að snjónum verði mokað af stígunum í vetur svo að bömin komist í skólann. Mér er það nóg svar við þessu bréfi að þessir hlutir verði fram- kvæmdir. Það, hvort ég þarf að skrifa þriðja bréfíð, er algerlega undir þér komið. Ég held að þú sofír líka betur eftir að þú hefur komið þessu í verk. Höfundur er efnafræðingur og kennir efnafræði við Fjiilbrautn- akólann I Breiðholti. Þessar ungu dömur, sem eiga heima i Hafnarflrði, efndu þar til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Söfnuðu þær 2.500 kr. Þær heita Hafdís, Þórey, Anna og Dóra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.