Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR 4. SEPTEMBER 1986 '•52 t Móðir okkar og tengdamóðir, ÁSTA ÁSGEIRSDÓTTIR, Grænuhlíð 5, lést á Hrafnistu í Reykjavík 2. september. Jóhanna Hjaltadóttir, Björn Helgason, Gunnar Hjaltason, Jóna Ámundadóttir, María Hjaltadóttir, Jósef Magnússon, Friðrik Hjaltason. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, CORA SOFIE BALDVINSSON fædd PAULSEN, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 6. september kl. 14. Jóhann Baldvinsson, böm, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móður okkar og tengdamóöur, ÞÓRUNNAR SIGURÐARDÓTTUR frá Fiskilæk, sem lóst fimmtudaginn 28. ágúst, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. sept. kl. 15.00. Bergljót Garðarsdóttir Sleight, Morris G. Sleight, Geir Garðarsson, Marita Garðarsson, Arnþór Garðarsson, Guðrún Sveinbjarnardóttir. Móðir mín og tengdamóöir, HENNÝ OTTÓSSON, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. september kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Slysavarnafélag islands. Pótur Goldstein, Hlin Guðjónsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ARNHEIÐAR BERGSTEINSDÓTTUR, Hæðargarði 34, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. september kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameins- félagið. Ragnar B. Henrysson, Sigríður Jónsdóttir, Kristján K. Pálsson, Kristín J. Guðlaugsdóttir, Ragnhildur Kr. Pálsdóttír, Guðbjartur Ágústsson, Bergsteinn Pálsson, Hrönn Árnadóttir, Brynhildur Erla Pálsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Þórunn S. Pálsdóttir og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður og tengdafööur, ÓLAFS SVEINSSONAR frá Stóru-Mörk, verður gerð frá Stóra-Dalskirkju laugardaginn 6. september kl. 14.00. Guðrún Auðunsdóttir, Áslaug Ólafsdóttir, Ólafur Auðunsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, ÓLAFUR B. HJÁLMARSSON, Rauðalæk 49, sem lést 30. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 5. september kl. 13.30. Ragnheiður Guðmundsdóttir, Valdimar Ólafsson, Ingileif Ólafsdóttir, Gestur Ólafsson. Kveðjuorð: GilbertJúli Þráinsson Fæddur 12. júlí 1968 Dáinn 17. ágúst 1986 Sunnudagurinn 17. ágúst verður okkur ævinlega minnisstæður. Það varð einhver afgerandi breyting innra með okkur, þegar við fengum þá sorglegu fétt að Gilbert væri dáinn. Hann hafði farist í slysi á mótorhjólinu sínu rétt fyrir hádegið. — Fyrst var eins og við hefðum orðið fyrir heljarhöggi, sem lamaði okkur. Svo fyllti ólýsanlegur sökn- uður bijóst okkar. Það er ekki hægt að lýsa því eins og það var. Það var eins og horfínn væri partur af okkur sjálfum allt í einu. Stórt skarð var höggvið í vina- hópinn. Gat það verið að Gilbert væri dáinn? Hvemig mátti það ske? Hann sem fór alltaf svo varlega, var svo gætinn. En það var satt. Við vitum að slysin gera ekki boð á undan sér. En við vitum ekki hvað raunveru- lega gerðist. Við skiljum það ekki? Hver var orsökin? Hvað skeði? Gilbert var svo góður strákur. Hann vildi aldrei neinum neitt illt. Hann var alltaf kátur og brosandi. Alltaf gat hann komið manni í gott skap og vakið hlátur og gleði. Hann hafði gaman af að mála og hann var hreinn snillingur að spila á gítar. Það var hans líf og yndi. Við viljum með þessum fáu orð- um kveðja góðan vin, sem var svo sárt að missa. Við þökkum fyrir allt. Við geym- um allar góðu minningamar, sem við eigum um hann í hjartastað. Og við viljum votta samúð for- eldrum hans og systkinum og biðjum Guð að styrkja þau f þeirra miklu sorg. Ingibjörg og Krístín Guðmundur M. Þor- láksson — Kveðjuorð Fæddur 12. júní 1908 Dáinn 5. febrúar 1986 Ég ætlaði mér alltaf að minnast Guðmundar Þorlákssonar þó að það hafi dregist lengur en til stóð. Það verður aðeins ofurlítil kveðja úr sveitinni hans og bænum þar sem hann ólst upp. Eg minnist þess að margar vom ferðimar famar milli bæjanna Heiðarbæjar og Skála- brekku. Eldri systkini mín vom á svipuðu reki, hann og Jóhannes bróðir minn vom góðir vinir. Guðmundur var kennari í sveit- inni, mjög vel látinn, hann var kennari af guðs náð, eins og sagt er. Einar bróðir minn var í skóla hjá honum og urðu þeir mjög sam- rýndir. Ég minnist þess þegar Einar fermdist, þá gaf Guðmundur honum 25 krónur sem vom miklir peningar á þeim ámm, 1931. Þessu gat ég aldrei gleymt og fínnst mér þetta lýsa honum vel. Þetta fannst mér líka um móður hans. Hún var svo örlát við ýmis tækifæri og vom þau ömgglega mjög lík. Guðmundur naut þess að vera hér í nokkur ár í sumarbústað með fjölskyldu sinni. Þá fór hann oft út á vatn og fannst mér hann og bátur- inn eiga vel saman, auðséð að hann kunni vel við sig á vatninu. Þá hef ég þetta ekki lengra. Það átti aðeins að vera kveðja frá þess- um stað þar sem hann ólst upp með blómunum, vatninu og blessuðum Qöllunum, þar sem ég fékk síðar að eiga heima í áratugi. Guð blessi Guðmund Þorláksson. Regina Sveinbjörnsdóttir Kjartan Eide Pálsson — Minning Fæddur 20. apríl 1914 Dáinn 21. júní 1986 Hann var einkasonur foreldra sinna, Nathalie Eide frá Noregi og Páls Benjamínssonar frá Fljótsdals- héraði. Hann ólst upp á Sunnuhvoli í Fáskrúðsfírði, hjá góðum foreldr- um á fallegu menningarheimili. Móðirin kom frá Noregi um alda- mótin, með Stangelandsfólkinu og móður sinni, auk tveggja lítilla systkina, móðir þeirra þá orðin ekkja. Nathalie var listakona við alla handavinnu, elskaði blóm og gróð- ur, ræktaði fallegan blóma- og tijágarð við Sunnuhvol, þann fyrsta í Fáskrúðsfirði. Páll fluttist snemma til Fáskrúðsfjarðar og starfaði hjá verslun Örum & Wolf í mörg ár, síðan verslaði hann sjálfstætt í Valhöll. Hann var mjög söngelskur og naut þess að hafa góða gesti á heimilinu, dýravinur með afbrigð- um, hafði kindur, hesta og kú. Kjartan sótti þessa góðu kosti til foreldra sinna, var mikill bama- og dýravinur. Það var gott orgel á heimilinu, og var drengurinn ekki hár í loftinu, þegar hann heyrði koma skrítin og falleg hljóð úr þess- um kassa, sem fljótt urðu að lögum, enda var það svo, að hann spiiaði öll lög sem hann heyrði rauluð og sungin. Mörgum skemmti hann með orgelspílí sínu, ég var ein af þeim, hann spilaði allt sem ég bað um. t Eiginmaöur minn og faöir, BJÖRN ÓLAFSSON, byggingameistari, Norðurvangi 44, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 5. september kl. 13.30. Sigríður Jakobsdóttir, Ólafur Björnsson og fjölskylda. t Þökkum auösýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður og stjúpmóður, ÖNNU FANNEYJAR RÖGNVALDSDÓTTUR, Yrsufelli 11, Reykjavik. Ólafur Eirfksson, Rögnvaldur Ólafsson og börn, stjúpbörn og fjölskyldur þeirra. Við hjónin bjuggum fyrstu búskap- arár okkar á Sunnuhvoli hjá góðu fólki. Kjartan lærði og útskrifaðist úr Laugarvatnsskóla. Hann var um tíma í hljómsveit Karls Ó. Runólfs- sonar á Akureyri, hann spilaði oft undir söng Hreins Pálssonar og fl., einnig kenndi hann orgelspil heima í Fáskrúðsfírði. Hann fluttist til Danmerkur árið 1938. Það voru margir sem söknuðu hans. Hann giftist góðri danskri konu, Inger, þau bjuggu í Kaup- mannahöfn. Þar kom annað fallegt heimili, þar sem margir íslendingar hafa notið gestrisni þessara elsku- legu hjóna. Ég var ein af þeim sem nutu þar góðra stunda árið 1949, þá spilaði vinurinn á píanó, gömlu góðu lögin. „Hvað á ég að spila næst“? var hann vanur að spyija. „Allt,“ var mitt svar. Ég; er þakklát fyrir þær góðu minningar frá liðnum árum. Kjart- an rak myndarlegt þvottahús í Kaupmannahöfn, hafði margt fólk í vinnu. Hjónin eignuðust einn son, Ingólf, sem er kennari, giftur og á eina dóttur. Guð blessi eiginkonu og fjöl- skyldu Kjartans. Sigfríð Einarsdóttir J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.