Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 r ► AKUREYRI Ný bryggja í Sand- gerðisbót í HAUST á að taka í notkun fyrstu af þremur nýjum fyrir- huguðum smábátabryggjum í Sandgerðisbót. Það eru fyrir- tækin Vör hf. og Norðurverk hf. sem sjá um framkvæmdir. „Bryggjan verður 52 og hálfur metri á lengd og meiningin er að taka hana f notkun í endaðan októ- ber,“ sagði Guðmundur Sigur- bjömsson, hafnarstjóri, í samtali við Morgunblaðið. Guðmundur sagði þessa btyggju metta þá þörf sem væri á rými fyrir smábáta eins og er — þannig að þær tvær sem fyrir- hugað er að byggja til viðbótar væru ekki á dagskrá alveg strax. „Það vantar ekki mjög margar legur — en þeir sem eiga stærri bátana eru í vandræðum. Dokkum- ar í Sandgerðisbót og við Slippstöð- ina em orðnar grunnar og óhentugar fyrir stærri bátana þann- ig að eigendur þeirra fá væntanlega legur þama við nýju biyggjuna," sagði Guðmundur. Að sögn hafnarstjóra verður væntanlega einnig byggt fiskverk- unarhús í Sandgerðisbót í haust. Það er fyrirtækið Skutull hf. sem hyggst gera það. „Þá flyst fískmót- taka KEA, sem nú er á Oddeyrar- tanga, væntanlega þama út eftir. Það verður þó sennilega ekki í haust,“ sagði Guðmundur. Áhersla er lögð á háls- og axlarvöðva Morgunbu«a/si«pti ihiigrfmuon Konurnar hjá Kaldbak ánægðar með æfingarnar KONURNAR í vinnslusal Kald- baks á Grenivik hafa siðan í júní gert æfingar eftir leiðsögn Magnúsar Ólafssonar, sjúkra- þjálfara, af segulbandi tvisvar á dag. Fyrst áður en þær fara í morgunkaffi og siðan fyrir eftirmiðdagskaffitímann. Þegar blaðamaður leit við hjá Kaldbak á þriðjudag breyttu þær ekki út af vananum — og tóku allar þátt f æfíngunum. Að sögn Ögmundar Knútssonar, verk- stjóra hjá Kaldbak, em konumar mjög ánægðar með æfíngar þess- ar, en þær taka fímm mínútur í senn. „Við höfum reyndar verið með sömu spóluna frá byrjun. Ég á von á annarri frá Magnúsi fljót- lega — og ætlaði að hvíla konum- ar á æfingunum þessa vikuna. En þá börðu þær í borðið; vildu halda áfram þó þær væm orðnar frekar leiðar á að gera alltaf sömu æfíngamar! Þær segjast fínna mun á sér eftir að þær fóra að gera æfíngamar," sagði Ög- mundur. „Vonumst til að opna heilsuhælið 1990, fáist fé úr ríkissjóði“ — segir Laufey Tryggvadóttir, formaður Náttúrulækningafélags Akureyrar Byggwgaframkvæmdir við heiisuhæli Náttúrulækningafélags Akureyrar í Kjamaskógi era nú u.þ.b. hálfnaðar, en framkvæmdir hófust áríð 1979. Húsið er á þremur hæðum auk kjaliara og er hver hæð 600 fermetrar — alls 2.400 fermetrar. Kostnaður við húsið hefur numið 12 til 15 milljónum króna og er gert ráð fyrir svipaðri upphæð í það sem eftir er. fram á ijárframlag úr ríkissjóði á næsta ári til að hraða framkvæmd- um. Við höfum a.m.k. fullan hug á að leita til ríkissjóðs þegar fólk er loksins farið að trúa því að heilsu- hælið verði að vemleika. Það hefur ýmislegt verið styrkt af hinu opin- bera sem ekki er eins þarft eins og þetta framtak okkar, en löngu tíma- Morgunblaðið/Skapti Hús Náttúrulækningafélags Akureyrar i Kjaraaskógi bært hefði verið að byggja heilsu- hæli á Norðurlandi." , Laufey sagði að heilsuhælið væri með sv.puðu smð. og hæl.ð í Hveragerði og ætti að smna al- ----------------------------------- hliða endurhæfíngarstörfum — einkonar millistig heimilis og sjúkrahúss. „Hælið verður í stakk búið til að taka á móti 74 vist- Leikf élag Húsavíkur: Á þessu ári verður unnið að múrhúðun og nú er verið að ein- angra og vinnu utanhúss er að ljúka að sögn Laufeyjar Tryggvadóttur, formanns Náttúmlækningafélags- ins. „Við höfum verið að gæla við þá hugmynd að geta opnað heilsu- hælið árið 1990, en óhætt er að segja að ifklega munum við fara „Síldin kemur — síldin fer“ og „Ofurefli“ í vetur LEIKFÉLAG Húsavikur ætlar að taka tvö verk til sýninga í vetur og munu æfingar á því fyrra væntanlega hefjast um næstu mánaða- mót eða um Ieið og góður leikstjórí fæst, að sögn Einars Njálssonar á Husavik. Fýrra verkið er nýtt íslenskt leik- rit eftir systumar Iðunni og Kristínu Steinsdætur og ber það nafnið „Sfldin kemur — sfldin fer“. Um er að ræða gamanleikrit, sem gerist fyrír austan á ámnum upp úr 1960 þegar miðin vom morandi í sfld og rokkið upp á sitt besta. I leiknum taka þátt 15 til 20 leikend- ur og jafnvel hljómsveit, en vegna skorts á rými í samkomuhúsinu em þær hugmyndir ekki fullmótaðar — „fyrsta skrefíð er að fá hugmynda- ríkan leikstjóra," sagði Einar. Seinni hluta vetrar verður síðan leikritið „Ofurefli" eftir bandaríska höfundinn Michael Cristopher tekið til sýninga á Húsavík, en það hefur ekki áður verið flutt á sviði. Þríðju bekkingar Leiklistarskóla íslands fluttu verkið í útvarpi fyrir nokkmm ámm og verður María Sigurðar- dóttir, sem þá var á meðal leiklistar- nemenda, leikstjóri hjá Leikfélagi Húsavíkur. „Ofurefli" Qallar um dauðann og viðbrögð fólks til hans. Fylgst er með persónum, sem ganga með banvæna sjúkdóma, og einnig verður fylgst með viðbrögð- um vina og fjölskyldna þeirra. Leikritið er fyrst og fremst um fólk og tilfinningar þess, en þó sagði Einar að mikið líf væri í verkinu og spaugileg atvik ættu sér stað í þessu annars alvarlega verki. Einar sagði að bráðlega kæmi í heimsókn til Húsavíkur danskur leiklistarhópur frá Bagsværd, út- hverfí Kaupmannahafnar, og ætlaði að sýna „Stundarfrið" Guðmundar Steinssonar í samkomuhúsinu 12. og 14. september. „Samskipti við Norðurlöndin hafa verið mjög öflug undanfarin ár og hefur Leikfélag Húsavfkur t.d. farið einu sinni til Finnlands, einu sinni til Svíþjóðar og tvisvar til Danmerkur. Þá hafa Finnar komið einu sinni til okkar, Svíar einu sinni og Danir þrisvar sinnum. Upphaf þessa samstarfs var árið 1974 þegar við, áhuga- mannaleikflokkamir, mynduðum einskonar norrænan leikhring, sem er einn liðurinn í starfsemi Norræna Áhugaleiklistaráðsins, sem við Is- lendingar höfum verið meðlimir í síðan árið 1970. Einar sagði að ástæðan fyrir því að Danimir kæmu nú með alís- lenskt verk væri sú að hópurinn hefði séð sýningu konunglega leik- hússins í Kaupmannahöfn á Stundarfriði og heillast mjög af. Leikrit Guðmundar hafi einnig fengið mjög góða dóma í blöðum. Hann sagði að Leikfélag Húsavíkur ráðgerði næstu leikför til Norður- landa að vori eða næsta sumar og væri þá ætlunin að halda af stað með „Ofurefli" í faramesti. mönnum i einu og verður boðið upp á eins og tveggja manna herbergi. Byggð verður sundlaug á fyrstu hæðinni auk þjálfunaraðstöðu og ráðnir sérfræðingar til að sinna störfum." Laufey sagði að fjármögnun hússins hefði hingað til verið með ýmsu móti. Náttúmlæknifélag Ak- ureyrar hefði verið endurreist árið 1974 gagngert til að reisa heilsu- hælið, en það hafði þá verið í nokkurri lægð undangengin ár. „Við ræddum á sínum tíma við Sjálfsbjörg um samvinnu, en það náðist ekki samstaða. Sjálfsbjörg hefur nú byggt eigin aðstöðu og Náttúrulækningafélagið komið vel áleiðis. Við höfum verið styrkt heilmikið — fengið fé frá félaga- samtökum og klúbbum. Akureyrar- bær hefur árlega veitt fé til framkvæmdanna og önnur sveita- og bæjarfélög hafa verið okkur ákaflega vinveitt. Þá fengum við fyrstu árin smástyrk frá samtökum náttúmlækningafélaga, en sl. flög- ur ár hefur styrkveiting fallið niður frá þeim þar sem ríkissjóður hefur fellt niður bein framlög til samtak- anna,“ sagði Laufey.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.