Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 Samsýníng í Nýlistasafninu Nýtt leikár að hefjast hjá Þjóðleikhúsinu: Tíu íslensk verk frumsýnd í vetur NÝTT leikár hófst hjá Þjóðleik- húsinu á mánudag og var vetrar- dagskrá leikhússins kynnt á þriðjudag. Átján verk verða sýnd, ýmist á stóra sviðinu eða á nýju sviði í húsi Jóns Þorsteins- sonar á Lindargötu 7. Gísli Alfreðsson, þjóðleikhús- stjóri, kynnti dagskrá vetrarins og verður fyrsta frumsýningin þann 25. þessa mánaðar, en þá verður leikrit Ragnars Amalds, alþingis- manns, Upprcisn á Isafírði, frum- flutt. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir, en með helstu hlut- verk fara Randver Þorláksson, Kjartan Bjargmundsson, Lilja Þór- isdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Róbert Amfinnsson. Leikmynd og búningar em eftir Siguijón Jó- hannsson. Óperan Tosca eftir Giacomo Puccini verður fmmsýnd í október undir leiðsögn breska leikstjórans Paul Ross. I aðalhlutverkum verða þau Kristján Jóhannsson, Elísabet F. Eiríksdóttir og Elín Ósk Óskars- dóttir. Jólaleikrit Þjóðleikhússins í ár verður gamanleikurinn Aurasálin eftir Moliére undir leikstjóm Sveins Einarssonar. Önnur verk á dag- skránni em ballettinn Glugginn eftir Jochen Ulrich, Rómúlus mikli eftir Friedrich DÚrrenmatt, Yerma eftir Federico Garcia Lorca og gam- anleikurinn Lend Me a Tenor eftir Ken Ludwig. Nýtt bamaleikrit, Tapað fundið?, eftir Herdísi Egilsdótttur, verður fmmflutt á stóra sviðinu í vetur og þar verður einnig ballettsýning eft- ir Hlíf Svavarsdóttur og Nönnu Ólafsdóttur. Sýningum á gaman- leiknum Helgispjöllum eftir Peter Nichols verður einnig haldið áfram frá fyrra leikári. Þjóðleikhúsið mun taka í notkun nýtt leiksvið í nóvember og verður það til húsa á Lindargötu 7, bak við Þjóðleikhúsið. Þar verða ein- göngu flutt ný íslensk leikrit í vetur Rafmagns- veitur ríkis- ins kynna starf- semi sína á Heimilið 86 í TILEFNI þess að 1. janúar næstkomandi eru 40 ár siðan Rafmagnsveitur ríkisins tóku til starfa, kynnir fyrirtækið starf- semi sína á sýningunni Heimilið ’86 í Laugardalshöll. í sýningarbás RARIK liggja frammi margvíslegar upplýsingar fyrir rafmagnsnotendur. Meðal efn- is sem dreift er em leiðbeiningar fyrir notendur um raforkuspamað. Starfsmenn fyrirtækisins em einnig á staðnum og svara fyrirspumum sýningargesta. Mörgum leikur forvitni á að vita um raforkunotkun á heimili sínu. í þeim tilgangi að kynna sýningar- gestum rafmagnseyðslu vegna lýsingar og notkunar hinna ýmsu heimilistækja, hefur verið komið fyrir lfkani af íbúðarhúsi, sem tengt er tölvu og geta gestir fengið svör við hinum ýmsu spumingum um orkunotkun á heimilum auk þess sem tölvan sýnir hvaða árangri unnt er að ná í orkuspamaði. Ennfremur geta sýningargestir spreytt sig á að framleiða raforku á hjóli, sem tengt er rafali. Ljós á töflu sýna hversu mikla raforku gestir geta framleitt. Þá sýna Rafmagnsveitur ríkisins í sýningarbási sínum nýja heimild- arkvikmynd um starfsemi RARIK, sem gerð hefúr verið í tilefni 40 ára afmælis fyrirtækisins. Upplýsingabæklingum um orku- spamað og fleira verður dreift til aílra viðskiptavina Rafinagnsveitna ríkisins á næstunni. (FVéttatilkynning;.) Myndlist Valtýr Pétursson Stefnumót er heiti á samsýn- ingu þeirra félaga Bong Kyou Im og Þorláks Kristinssonar (Tolla), en ef ég veit rétt, munu þeir hafa stofnað til kunningsskapar við nám í Berlín á sínum tíma. Það er ekki langt síðan Tolli hélt viða- mikla sýningu í ASÍ-húsnæðinu við Grensásveg, og vakti sú sýn- ing nokkra eftirtekt. Ekki minnist ég þess að hafa séð þau verk, sem hann sýnir nú, á þeirri sýningu, og er því forvitnilegt að kynnast þessum verkum. Tolli er mikill átakamaður í myndlist, verk hans em yfirleitt fyrirferðarmikil, hann tekur hraustlega til við teikningu, og það er mikið flug og kraftur f myndverkum hans yfírleitt. Það vill brenna við á stundum, að Tolli verði nokkuð harðhentur við viðfangsefnið og útkoman því oft á tíðum nokkuð hijúf. Litimir em yfírleitt fremur þungir og hafa sterka dramatíska tilurð, sem er áberandi í þeim verkefnum, sem sprottin em úr þunga nætur og mánaskini. En persónuleg em þessi verk Tolla og lofa góðu, eins og maður segir um það fólk, sem sýnir viðbrögð og vinnusemi. Á þessari sýningu fannst mér nær Starfsmenn og leikarar Þjóðleikhússins stilltu sér upp fyrir myndatöku á mánudaginn, en þá hófst starfsemi leikhússins á ný eftir sumarfrí. og verður leikritið / smásjá eftir Þómnni Sigurðardóttur fmmsýnt í nóvember undir leikstjóm Þórhalls Sigurðssonar. Einþáttungamir Hver veit . . .? eftir Kristínu Bjamadóttur og Draumar á hvolfi eftir Kristínu Ómarsdóttur verða sýnd undir leikstjóm Helgu Bach- mann. Kristín Ómarsdóttir vann fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Þjóðleikhússins í tilefni loka kvennaáratugarins og Kristín Bjamadóttir önnur verðlaun. Á nýja sviðinu verða einnig sýnd Kvenna- fár eftir Þorvarð Helgason og Bílaverkstæði Badda eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjóm Þór- halls Sigurðssonar. Þrátt fyrir að ráðgert sé að nýja sviðið á Lindargötu taki við af litla sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum verður þar eitthvað á fjölunum áfram. Valborg og bekkurinn eftir Finn Mettling verður áfram sýnt undir leikstjóm Borgars Garðars- sonar og Herdís Þorvaldsdóttir mun sjá um ljóðakvöld með íslenskum skáldum. Matur verður innifalinn í miðaverði. Gísli sagðist vonast til þess að rekstur nýja sviðsins tækist vel, þar sem nú væri hægt að bjóða upp á sýningar á hveiju kvöldi sem um helgar. Hann sagði að rekstur veit- ingahússins í Þjóðleikhúskjailaran- um yrði með svipuðu móti og áður, þar sem leikhúsgestir gætu fengið veitingar bæði fyrir og eftir sýning- ar og í hléum. Nýtt bamaleikrit verður frnrn- sýnt hjá Þjóðleikhúsinu í vetur, Hvar er hamarinn? eftir Njörð P. Njarðvík. Biynja Benediktsdóttir leikstýrir verkinu, sem er sérstak- lega haft í dagskránni til að ferðast með það um landið og flytja í skól- um, að sögn Gísla. Skólaritvélar Olympia ritvélarnar eru allt í senn skóla-, ferða- og heimilisritvélar. Ódýrar og fáanlegar í mörgum gerðum. Carina áreiðanleg vél, búin margs konar vinnslu sem aðeins er á stærri ritvélum. TraveUer de Luxe fyrirferðarl ítil og léttbyggð vél sem þolir auðveldlega hnjask og ferðalög. Reporter rafritvel með leiðréttingarbún- aði. Fisléttur ásláttur auk annarra kosta stórra skrifstofuvéla þótt Reporter sé bæði minni og ódýrari. Ekjaran m ÁRMÚLA 22, SlMI 83022108 REYKJAVlK Tolli — Til móts við sjóndeildarhringinn Bong-Kyou IM — Öld goðsagna allar vatnslitamyndir Tolla vera í betri gæðaflokki sem myndlist en olíumálverk hans. Á þessu sviði nær hann miklu meira flugi í lita- meðferð, og formið virðist upp- runalegra. Hér er ungur og efnilegur málari í mótun, og eftir þessar tvær sýningar að undan- fömu verða vonir við hann bundnar. Bong Kyou Im mun vera Asíu- búi og nánar til tekið frá Kóreu. Myndverk hans bera og sterkan svip af uppruna hans, og á ég þá sérstaklega við mýkt í lit og formi. Hann er alger andstæða Tolla vin- ar síns, en hefur engu að síður mjög sterka myndræna tilfinn- ingu, og teikning hans er mýkri og fínlegri en hjá vininum úr skammdeginu norður við Pól. Mynd nr. 11, Kona að mála sig, varð mér sérdeilis minnisstæð, og ég held í henni megi sjá flesta kosti Bong Kyou Im sem málara. Þessi sýning þeirra félaga er þeim báðum til sóma, og að síðustu vil ég geta þess, að nýtt miðlunarfyrirtæki, sem kallar sig íslenska mjmdlist, stendur fyrir þessari sýningu og fer vel af stað að mínum dómi með þessa tvo ungu listamenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.