Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 04.09.1986, Blaðsíða 68
 ttgtiiifrlafrlfe SEGÐU RMARHÓLL ÞEGAR ÞU FERÐ ÚT AÐ BORÐA ----—SÍMI18833----- FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. • • Osku- spreng- ingar FULLVlST er talið að ösku- sprengingar hafi átt sér stað í Heklu síðari hluta aðfaranætur þriðjudagsins, samkvæmt þvi sem Haukur Jóhannesson jarð- fræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun upplýsti biaðamann Morgunblaðsins í gærkveldi. „Eg hafði samband við nokkra bæi í Gnúpveijahreppi, og fékk þær upplýsingar að svartur vikur hefði fallið í Skriðufelli," sagði Haukur. Hann sagðist hafa fengið sömu upplýsingar frá Búrfelli, en þar hefðu menn á þriðjudagsmorgun fundið svartan vikur, m.a. á bílum sínum. ' Haukur sagði að Hekla væri greinilega að skjóta úr sér ein- hveijum eftirhreytum, og kvaðst hann ekki telja að þessar ösku- sprengingar væru fyrirboði ein- hvers annars og meira. Haukur sagði reyndar að svona öskuspreng- ingar væru ekkert óvenjulegar - síðast hefðu þær verið í Heklu sl. vor, og reyndar alltaf öðru hvoru frá síðasta Heklugosi. Prófkjör 18. október STJÓRN fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík ákvað á fundi sínum í gærkveldi að leggja til við fund fulltrúaráðsins þann 11. september að prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vegna komandi alþingiskosninga fari fram í Reykjavík, þann 18. október næstkomandi. Stjórnin gerir það að tillögu sinni að að rétt til þátttöku í prófkjörinu hafi einungis flokksbundnir gsjálfstæðismenn. Sveinn Skúlason formaður stjórnar fulltrúaráðsins sagði í gær- kveldi að endanleg ákvörðun um prófkjör væri í höndum fulltrúa- ráðsfundarins. Stjórnin legði til að prófkjörið yrði opið flokksbundnum sjálfstæðismönnum, farið yrði að reglum þeim sem í gildi væru í Sjálf- stæðisflokknum um prófkjör, þannig að númerað yrði í sæti og merkt við fæst 8 sæti en flest 12. Það væri sama fyrirkomulag og í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu borgarstjómarkosningar. Morgunblaðið/Þorkell Fjórðungur þjóðarinnar að setfast á skólabekk SKÓLASTARFIÐ er nú að hefjast um land allt og mæta grunnskólanemendur í fyrsta sinn í skólann í dag. í vetur verða um 60 þúsund nem- endur í grunnskólum og framhaldsskólum á landinu öllu, eða rúmur fjórðungur þjóðarinnar. Kennsla er hafin í framhaldsskólunum og nemendur farnir að kaupa skólabækurnar. Kostnaður við bókakaup framhaldsskólanem- anna er að sögn þeirra frá fjórum upp í tíu þúsund krónur, en einnig er hægt að fá notaðar bækur á svokölluðum skiptimörkuðum. Áætlanir Pósts og síma: Nýjarðstöð byggð innan 2—3 ára Á NÆSTU vikum fær samgöngu- ráðherra í hendur áætlanir Póst- og simamálastofnunarinnar um byggingu nýrrar jarðstöðvar, sem stofnunin telur heppilegt að hafist verði handa um að byggja innan 2-3 ára. Fallist ráðherra á áætlanir Pósts og síma verða útboðslýsingar sendar út í haust, að sögn Ólafs Tómassonar, póst- og símamálastjóra. Það sem fyrir stofnuninni vakir er að reisa jarðstöð í sambandi við stafræna Evrópukerfið sem notast við Eutelsat-gervihnettina. „Það gæti orðið talsverður ávinningur fyrir okkur íslendinga að fara inn í það kerfi, sem gæfi varaleið út úr landinu og svo ætti kostnaður okkar af símaþjónustu smám saman að minnka," sagði Ólafur. Hann sagði að sæsímastrengimir væru orðnir of litlir til að nýtast eins og þörf væri á enda yrðu þeir teknir úr notkun um leið og ný jarð- stöð kæmist í gagnið. „Það er að vísu til varastöð í stað Skyggnis, sú sem reist var til að taka á móti sjónvarpsefni fyrir herinn á Keflavíkurflugvelli, en hún er á sama stað og Skyggnir og það er ekki hið heppilegasta,“ sagði Ólaf- ur. Ólafur vildi ekki nefna tölur um kostnað við byggingu nýrrar jarð- stöðvar en sagði að það væri dýrt fyrirtæki - kostnaður myndi skipta hundruðum milljóna. Rækjusala til Noregs: Ótmnin rækja seld á rúmar 120 krónur kílóið tsafirði. RÆKJUTOGARINN Hafþór landaði á þriðjudag og miðviku- dag 120 lestum af rækju, sem hann fékk í tveggja vikna túr fyrir Austurlandi. Rækjan er mjög smá, en þó fást rúmar 120 krónur fyrir kílóið, en hún er seld óunnin til Noregs. Heildar- verð sem rækjuverksmiðjur á íslandi greiða fyrir rækjuna er 53 krónur, svo þarna er um mik- inn mun að ræða. Hásetahlutur úr sjóferðinni er um 200 þúsund krónur, en hefði verið vel innan við 100 þúsund ef selt hefði ver- ið til rækjuverksmiðjanna á ísafirði. Sjómenn fagna að vonum þessari miklu kjarabót, en mikil vandamál geta skapast hér á ísafirði og víðar á landinu ef slíkur útflutningur á Deilan um gjaldskrá tannlækna: Heilbrig'ðisráðherra aflétti endurgreiðslubanni í gær RAGNHILDUR HELGADÓTTIR heilbrigðisráðherra ákvað í gær að aflétta því endurgreiðslubanni sem verið hefur í gUdi hjá Trygginga- stofnun ríkisins, vegna endurgreiðslu reikninga frá tannlæknum sem gjaldlagt hafa þjónustu sína samkvæmt eigin gjaldskrá, en ekki sam- kvæmt gjaldskrá heilbrigðisráðuneytisins. Segist ráðherra telja að ^fcessi ákvörðun eigi eftir að liðka til I deilum Tryggingastofnunar og tannlækna, hvað varðar gjaldskrá tannlækna. Birgir J. Jóhanns- son formaður Tannlæknafélags íslands segir málið enn vera í hnút. Heilbrigðisráðherra sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gærkveldi að þessi ákvörðun hennar hefði verið tekin, til þess að þeir sem síst skyldi, yrðu ekki fyrir barðinu á þessari deilu - þ.e. viðskiptavinir tannlæknanna, sem beðið hafa með reikningana í höndunum, og ekki fengið þá endurgreidda, vegna end- urgreiðslubannsins. Endurgreiðslur þær sem nú eru reiddar af hendi í Tryggingastofnun, miðast við gjald- skrá ráðuneytisins. Segir ráðherra að hafi sjúklingur þurft að greiða fyrir þjónustu tannlæknis sam- kvæmt gjaldskrá tannlækna, sé það mál á milli sjúklingsins og’viðkom- andi tannlæknis, en ekki mál ráðuneytisins eða Tryggingastofn- unar. Ráðherra sagðist fagna því að stöðugt fleiri tannlæknar bættust nú í þann hóp, sem skilaði reikning- um samkvæmt gjaldskrá ráðuneyt- isins, en þeir væru núna 38 af 130 starfandi tannlæknum í Reykjavík. Kvað ráðherra það sérstakt gleði- eftii að flestir þessara manna væru úr hópi ýngri tannlækna. Heilbrigðisráðherra sagðist einn- ig telja að það myndi auðvelda samkomulag í þessari deilu að hún hefði í fyrradag ákveðið að allir sérfræðingar sem fengu áður greitt frá Tryggingastofnun, samkvæmt sérfræðingstaxta, fengju nú greitt samkvæmt sérfræðingsákvæðinu í gjaldskrá ráðuneytisins. óunninni rækju eykst að mun. Tals- menn rækjuverksmiðjanna á ísafirði fullyrða að útilokað sé að þeir geti keypt rækjuna á sambæri- legu verði og telja fullvíst að þama komi til miklar niðurgreiðslur af hendi norskra stjómvalda. Mjög góð rækjuveiði hefur verið undanfarið og stöðugt fjölgar þeim skipum sem héðan eru gerð út á rækjuveiðar, en nú fer að styttast i þann tíma að einungis stærri skip- in geti stundað þessar veiðar, sem fara að jafnaði fram mjög langt frá landi. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sem sæti á í Verðlagsráði sjáv- arútvegsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að nýtt rækjuverð kæmi til ákvörðunar frá 1. október. Þá yrði væntanlega endurmat á rækjuverði með hliðsjón af gjör- breyttum markaðsaðstæðum. „Því er ekki að leyna að þessi verðþróun hefur haft þau áhrif að rækja er stórlega yfirborguð frá því verði sem við ákváðum,“ sagði Kristján. „Það er algilt orðið, að rækja, sem var verðákveðin í sex flokkum, með mjög miklum verðmun, er nú öll borguð í hæsta verðflokki með álagi.“ - Úlfar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.